\
\I. kafli
1. gr.
Heiti félags, heimili og markmiđ
Heiti félagsins er Félag kvenna í atvinnurekstri, FKA. Heimili félagsins og varnarţing er í Reykjavík.
2. gr.
Markmiđ félagsins
Markmiđ félagsins er ađ gćta hagsmuna, efla samstöđu og samstarf kvenna í atvinnurekstri.
II. kafli
3. gr.
Félagsmenn
Félagiđ er opiđ öllum ţeim konum sem gegna leiđtoga- og stjórnunarstöđum í íslenskum atvinnurekstri, skrá sig í félagiđ og greiđa félagsgjöld.
Halda skal félagaskrá yfir félagskonur. Hafi félagskona ekki greitt félagsgjald í eitt starfsár skal litiđ svo á ađ hún óski ekki lengur eftir ađild ađ félaginu og skal nafn hennar tekiđ út af félagaskrá.
4. gr.
Stjórn félagsins getur vikiđ félagskonu úr félaginu hafi hún brotiđ lög félagsins eđa međ öđrum hćtti sýnt af sér háttsemi sem er andstćđ hagsmunum félagsins.
Áđur en tekin er ákvörđun um brottvísun skal gefa félagskonu kost á ađ tjá sig um hina fyrirhuguđu ákvörđun.
Félagskona getur krafist félagsfundar til ađ bera ákvörđun stjórnar um brottvikningu hennar undir fundinn.
5.gr
Tekjur félagsins
Tekjur félagsins eru árgjöld félagskvenna, ákveđin á ađalfundi, styrkir, vaxtatekjur svo og ađrar tekjur sem kunna ađ verđa af rekstri.
III. kafli
Ađalfundir og félagsfundir
6.gr
Ađalfundur hefur ćđsta vald í málefnum félagsins. Ađalfund skal halda fyrir lok júní ár hvert. Til hans skal bođađ međ tryggilegum hćtti, t.d. bréflega eđa međ tölvupósti til félagskvenna međ minnst fjórtán daga fyrirvara. Ađalfundur er lögmćtur ef til hans er löglega bođađ. Í ađalfundarbođi skal auk tilkynningar um dagskrá gera grein fyrir ţví hvađa konur gangi úr stjórn á ađalfundinum og hvort ţćr gefi kost á sér til endurkjörs. Jafnframt skal hvetja félagskonur til ađ gefa kost á sér í laus stjórnarsćti og önnur trúnađarstörf fyrir félagiđ. Rétt til setu og atkvćđis á ađalfundi eiga ţćr félagskonur er mćttar eru á fundinn og stađiđ hafa skil á félagsgjaldi yfirstandandi starfsárs.
Almenna félagsfundi skal halda eftir ákvörđun stjórnar eđa ađ kröfu tíunda hluta félagskvenna eđa skođunarmanna reikninga. Krafa um félagsfund skal gerđ skriflega og fundarefni tilgreint og er stjórn ţá skylt ađ bođa til fundar innan fjórtán daga. Félagsstjórn bođar til almennra félagsfunda međ minnst sjö daga fyrirvara. Félagsfundur er lögmćtur ef til hans er löglega bođađ. Félagsfundur kýs fundarstjóra og fundarritara, sem skráir fundargerđ. Rétt til setu á félagsfundum eiga allar félagskonur. Rétt til atkvćđis á félagsfundi eiga ţćr félagskonur, sem mćttar eru á fundinum og sem stađiđ hafa skil á félagsgjaldi yfirstandandi starfsárs.
Meiri hluti greiddra atkvćđa rćđur úrslitum mála á ađalfundi og félagsfundi, nema annars sé getiđ í lögum ţessum.
7.gr
Dagskrá ađalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og rekstur ţess á liđnu starfsári.
3. Ársreikningur félagsins fyrir liđiđ starfsár kynntur og borinn upp til samţykktar.
4. Skýrslur starfsnefnda.
5. Lagabreytingar ef einhverjar.
6. Kosning stjórnar.
7. Kosning skođunarmanns reikninga og eins til vara.
8. Kosning í starfsnefndir á vegum félagsins.
9. Ákvörđun félagsgjalds.
10. Önnur mál.
IV. kafli
Stjórn félagsins, starfsnenfdir og félagsdeildir
8. gr.
Stjórn félagsins skal skipuđ sjö konum kjörnum á ađalfundi til tveggja ára í senn.
Formann skal kjósa sérstaklega en ađrar stjórnarkonur skal kjósa í einu lagi og skipta ţćr međ sér verkum.
Stjórnarkjöri skal hagađ ţanniđ ađ oddatöluár skal kjósa formann og ţrjár stjórnarkonur en hitt áriđ ţrjár stjórnarkonur. Gangi stjórnarkona úr stjórn á fyrra ári kjörtímabilsins skal kjósa nýja stjórnarkonu í hennar stađ á nćsta ađalfundi til eins árs.
9. gr.
Stjórn félagsins stýrir öllum málefnum félagsins milli ađalfunda og gćtir hagsmuna ţess á grundvelli laga ţessara og ákvarđana ađalfundar og félagsfunda.
Stjórn félagsins getur ráđiđ framkvćmdastjóra til ađ sinna daglegum rekstri félagsins sem í ţeim efnum skal fara eftir fyrirmćlum stjórnar.
Stjórn félagsins tekur nánari ákvarđanir um starfsemi félagsins og ber ábyrgđ á fjárreiđum ţess. Ef framkvćmdastjóri er ráđinn skal hann annast um ađ bókhald félagsins sé fćrt í samrćmi viđ lög og venjur og ađ međferđ eigna félagsins sé međ tryggilegum hćtti.
Stjórninni er heimilt ađ skuldbinda félagiđ fjárhagslega, enda undirriti fjórir stjórnarmenn slíkar skuldbindingar. Stjórnin veitir prókúruumbođ.
Ef framkvćmdastjóri er ráđinn getur hann skuldbundiđ félagiđ í málum sem eru innan verksviđs hans samkvćmt 2. mgr. ţessarar greinar.
10. gr.
Stjórnarfundi skal halda svo oft sem ţurfa ţykir. Formađur stjórnar bođar til funda međ hćfilegum fyrirvara og aldrei skemmri en eins sólarhrings fyrirvara.
Stjórnarfundur er ályktunarfćr ef meiri hluti stjórnarkvenna sćkir fund. Afl atkvćđa rćđur úrslitum á stjórnarfundum. Nú eru atkvćđi jöfn og rćđur ţá atkvćđi formanns (varaformanns í fjarveru formanns) úrslitum.
Gerđir stjórnarinnar skulu bókfćrđar.
11. gr.
Starfsnefndir kosnar á ađalfundi starfa ađ verkefnum sem ţeim eru falin í samráđi viđ og á ábyrgđ stjórnar félagsins.
11. gr. A
Stofnun félagsdeilda í FKA er heimil ađ fengnu samţykki stjórnar. Beiđni um stofnun félagsdeildar skal send stjórn skriflega og skal taka beiđnina fyrir á nćsta stjórnarfundi eftir ađ hún berst. Eftirfarandi upplýsingar skulu fylgja beiđninni:
- Heiti félagsdeildar
- Tilgangur félagsdeildar
- Nöfn stofnfélaga
- Fyrirsvarsmenn félagsdeildar, sem skulu vera a.m.k. tveir.
- Hvernig ađild nýrra félagskvenna ađ félagsdeild skuli háttađ
Stofnfélagar félagsdeildar skulu vera a.m.k. 15. Einungis félagskonur í FKA geta veriđ félagsmenn í félagsdeild. Halda skal félagaskrár félagsdeilda. Félagsdeild skal halda fundi eftir ţví sem ţurfa ţykir.
Stjórn FKA er heimilt ađ synja umsókn félagsdeildar ef tilgangur hennar samrćmist ekki tilgangi FKA. Stjórn FKA er heimilt ađ leggja félagsdeild niđur gerist hún eđa međlimir hennar sekir um brot á lögum félagsins eđa vanrćkslu á skyldum sínum.
V. kafli
Ýmis ákvćđi
12. gr.
Starfsár og reikningsár félagsins er almanaksáriđ. Stjórnin skal hafa ársreikning endurskođađan af skođunarmanni tilbúinn í tćka tíđ fyrir ađalfund.
13. gr.
Lögum félagsins verđur ađeins breytt á ađalfundi enda fái breytingartillagan 2/3 hluta greiddra atkvćđa. Tillögur ađ lagabreytingum ţurfa ađ berast stjórninni eigi síđar en 15. apríl ár hvert. Í fundarbođi skal ţess getiđ sérstaklega ađ tillaga til lagabreytinga verđi tekin til međferđar á fundinum og skal efni hennar lýst.
14. gr.
Nú kemur fram tillaga um ţađ ađ félaginu skuli slitiđ og skal hún ţá sćta sömu međferđ sem tillaga til lagabreytingar, sbr. 13. gr. Á ţeim fundi skal ţá jafnframt tekin ákvörđun um hvernig fariđ skuli međ eignir og skuldir félagsins.
Samţykkt á ađalfundi félagsins 20. maí 2008.