Beint í efni
Mínar síður

LeiðtogaAuður

Konur í forystusveit atvinnulífsins með yfirgripsmikla stjórnunarreynslu

LeiðtogaAuður er deild innan FKA sem er sérstaklega ætluð konum með yfirgripsmikla stjórnunarreynslu í bæði einkageiranum og opinbera geiranum. Félagskonur í LeiðtogaAuði tilheyra forystusveit íslensks atvinnulífs, þar sem þær gegna eða hafa gegnt ábyrgðarstöðum og vilja vera öðrum konum hvatning, fyrirmynd og stuðningur í eflingu íslensks atvinnulífs. Deildin veitir þessum konum vettvang til að þróa leiðtogahæfni sína enn frekar, styrkja tengslanet sitt og auka áhrif sín í atvinnulífinu.

LeiðtogaAuður starfar sem sjálfstæð eining innan FKA, með eigin stjórn, árlegum aðalfundum og sér um sitt bókhald. Félagskonur í LeiðtogaAuði eru jafnframt aðilar að FKA.

Starfsemi

Tilgangur LeiðtogaAuðar er að efla tengslanet kvenna í stjórnunar- og áhrifastöðum í atvinnulífinu og að auka þátttöku og áhrif kvenna í atvinnulífinu. Markmið félagsins er að konur í forystusveit íslensks viðskiptalífs kynnist hver annarri og geti nýtt sér tengsl, stuðning, aðstoð og önnur tækifæri sem félagsskapurinn býður upp á.

Starfsemi LeiðtogaAuður er fjölbreytt og eru helstu liðir í dagskránni þessir:

  • Hádegishittingar
  • Fyrirtækjaheimsóknir
  • Náms- og hópeflisferðir
  • Námskeið og fræðsla
  • Aðalfundur

Inntökuskilyrði

Stjórn LeiðtogaAuðar tekur við umsóknum og tilnefningum um nýjar félagskonur frá núverandi félögum. Þegar stjórn telur rétt að fjölga í hópnum, er óskað eftir slíkum tilnefningum. Konur sem óska eftir inngöngu, eða eru tilnefndar, senda tölvupóst á netfangið leidtogaaudur@fka.is, ásamt kynningarbréfi og/eða ferilskrá. Einnig er heimilt að senda hlekk á LinkedIn-síðu viðkomandi, ef þar koma fram nægjanlegar upplýsingar. Umsókn eða tilnefning þarf jafnframt að vera studd af tveimur núverandi LeiðtogaAuðum. Stjórn metur allar umsóknir og tilnefningar með hliðsjón af tilgangi og gildi félagsins. Inntaka er háð samþykki stjórnar, og því er ekki sjálfgefið að umsókn leiði til inngöngu. Að lokinni ákvörðun frá stjórn, tilkynnir formaður LeiðtogaAuðar nýjum félagskonum um inngöngu og býður þær velkomnar, ásamt því að upplýsa framkvæmdastjóra FKA. Að jafnaði er miðað við að hámark tíu nýjar félagskonur bætist við árlega.

Félagsgjald

Árgjald LeiðtogaAuðar er viðbót við félagsgjald FKA og skal fjárhæð þess ákvörðuð á aðalfundi. Árgjaldið er ætlað til uppbyggingar deildarinnar og til að standa straum af kostnaði við eigin viðburði. Viðbótargjaldið er 5.000 kr.

Núverandi samþykktir tóku gildi á aðalfundi LeiðtogaAuðar þann 28.maí 2024.

LeiðtogaAuður

  • Starfsemi
  • Inntökuskilyrði
  • Félagsgjald
  • Stjórn
  • Saga LeiðtogaAuðar
  • Upphaf Auður í krafti kvenna
Stjórn LeiðtogaAuður 2025-2026 Frá vinstri: Jóhanna, Elín, Valdís, Svanhildur, Erla og Ásdís.

Stjórn

Ásdís Arna Gottskálksdóttir framkvæmdarstjóri Aurbjörg – ritari
Elín Gränz Director Human Resources RFS hjá Marel – inntaka nýrra félaga
Erla Ósk Ásgeirsdóttir stjórnarmaður Bláa lónsins og Festu – vorferðarnefnd
Jóhanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri Banana - viðburðarnefnd
Svanhildur Jónsdóttir deildarstjóri fjárfestinga rafveitu hjá Veitum - formaður
Valdís Arnórsdóttir mannauðsstjóri Sýnar - gjaldkeri

Viðburðarnefnd

Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Helga Steinþórsdóttir
Hulda Steinþórsdóttir
Rut Gunnarsdóttir

Saga LeiðtogaAuðar

LeiðtogaAuður varð til í tengslum við verkefnið ,,AUÐUR í krafti kvenna” sem stóð yfir á árunum 2000-2003. Markmið AUÐAR var að auka þátttöku kvenna í atvinnusköpun og var LeiðtogaAuður einn af sex meginþáttum verkefnisins.

Kjarna hópsins mynda þær konur sem tóku þátt í LeiðtogaAuðar námskeiðum á árunum 2000-2002. Sá hópur var valinn með því að hafa samband við stærstu fyrirtæki atvinnulífsins, auk nokkurra stofnanna og bjóða þeim að tilnefna konu úr röðum æðstu stjórnenda fyrirtækisins. Frá árinu 2005 hefur stjórn LeiðtogaAuðar borið ábyrgð á inntöku nýrra meðlima og hafa tæplega tíu nýliðar verið teknir inn á hverju ári.

Upphaf Auður í krafti kvenna


Árið 1999 ákvað Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins að efna til átaks til að auka þátttöku kvenna í atvinnusköpun. Í upphafi var leitað í smiðju til þeirra sem bestum árangri hafa náð í þessum efnum, einkum í Bandaríkjunum.

Haustið 1999 samþykkti stjórn NSA tillögu undirbúningshóps um fjölþætt fræðslu- og hvatningarátak. Átakinu var ætlað að ná til kvenna á öllum aldri og standa í þrjú ár.

Samstarfsaðilar voru valdir úr hópi öflugustu fyrirtækja landsins, Íslandsbanki, Deloitte & Touche og Morgunblaðið. Ákveðið var að Háskólinn í Reykjavík hefði umsjón með framkvæmd átaksins, sem gefið var nafnið AUÐUR í krafti kvenna.

Birta og kjarkur einkenndu AUÐI alla tíð og þegar verkefninu lauk í janúar 2003 höfðu 1480 konur tekið þátt í AUÐI og ómældur fjöldi notið óbeint ávaxtanna af þeim sex þáttum sem AUÐUR bauð, en þeir eru FjármálaAUÐUR, FrumkvöðlaAUÐUR, FramtíðarAUÐUR, LeiðtogaAUÐUR, AUÐARdætur með í vinnuna og AUÐARverðlaunin.

FjármálaAUÐUR jók hagnýta þekkingu kvenna á fjármálum svo þær öðluðust meiri skilning og sjálfstraust og varð tamara að líta á sig sem ,,fjármálaverur". Námskeiðin voru haldin utan hefðbundins vinnutíma og nam hvert þeirra 16 klukkustundum. Haldin voru 16 námskeið sem 862 konur tóku þátt í.

FrumkvöðlaAUÐUR var ætlað konum sem vildu stofna og/eða reka fyrirtæki. Markmiðið var að gera konurnar færar um að reka fyrirtæki, móta viðskiptahugmynd og semja viðskiptaáætlun, sem kynnt var í lok námskeiðsins. Haldin voru 6 námskeið og stóð hvert þeirra í 16 vikur. Þátttakendur voru 163 og unnu að meira en 90 viðskiptahugmyndum. Við verklok AUÐAR höfðu þátttakendur í FrumkvöðlaAUÐI stofnað 51 fyrirtæki sem veittu 217 ný störf.

FramtíðarAUÐUR bauð 13-16 ára ára stúlkum árlega til þriggja daga dvalar að Skógum undir Eyjafjöllum. Þeim voru kynnt helstu hugtök viðskipta og settu þær sig í spor frumkvöðla og skilgreindu, skrifuðu og kynntu viðskiptaáætlanir. Þær tóku þátt í fyrirtækjaleik í hópum, þar sem þær ráku nýstofnuð fyrirtæki sín. Þetta varð einn skemmtilegasti hluti AUÐAR, sem 75 stúlkur tóku þátt í. AUÐUR samdi einnig námsefnið Látum drauminn rætast – sem fellur vel að námsgreininni Lífsleikni, og er ætlað að gera nemendum kleift að sjá stofnun fyrirtækis sem einn af möguleikum til atvinnu í framtíðinni. Námsefnið er boðið skólum endurgjaldslaust.

LeiðtogaAUÐUR leiddi saman kvenstjórnendur íslensks atvinnulífs. Markmiðið var að styrkja konurnar sem stjórnendur og efla innbyrðis tengsl þeirra. Með heimsþekktum sérfræðingi voru greindir meginþættir í stjórnunarstíl og tekið á þeim margþætta vanda sem stjórnendur mæta. Námskeiðið var haldið hvert haust að Mývatni og tóku 60 konur þátt. Þessar konur mynduðu öflugt tengslanet og hittast reglulega til að fræðast og gleðjast saman.

AUÐARdætur með í vinnuna, var árleg hátíð þar sem fyrirtæki buðu ungum dætrum landsins til sín. Markmiðið var að víkka sjóndeildarhring telpna og gera þeim ljóst hvað atvinnulífið býður marga möguleika. Óhætt er að fullyrða að þessi nýbreytni mæltist vel fyrir og að þúsundir stúlkna hafi notið gestrisni atvinnulífsins þessa daga.

AUÐARverðlaunin voru veitt árlega þremur konum, sem skarað hafa fram úr í íslensku atvinnulífi. Verðlaunin voru afhent á hinni árlegu AUÐAR-hátíð, þar sem öllum AUÐARkonum var boðið að taka þátt, fagna, og njóta bæði fróðleiks og skemmtunar.

AUÐUR lítur stolt yfir farinn veg. Starf hennar og yfirbragð allt hefur einkennst af bjartsýni og vissu um að kraft kvenna eigi að virkja þjóðfélaginu öllu til hagsældar.