Beint í efni
Mínar Síður

Verum sýnilegri. Tengjumst betur.

Það tekur aðeins örfáar mínútur að uppfæra upplýsingarnar en áhrifin geta verið langtíma. Margar konur í FKA vilja beina viðskiptum sínum til annarra FKA kvenna. Með skýrum upplýsingum um starfsemi þína, hæfni og þjónustu eykur þú líkurnar á nýjum viðskiptatækifærum.

Ef við ætlum að versla við félagskonur, kjósa þær og mæla með þeim þá þurfum við að þekkja þær.

Aðgangur og prófíllinn þinn

Hvernig fer ég inn á prófílinn minn á fka.is?

Smelltu á Innskráning" efst í horninu vinstra megin. Gluggi opnast þar sem þú skráir símanúmer eða velur auðkennisappið í innskráningarglugganum og staðfestu upplýsingarnar sem birtast. Eftir að þú hefur skráð þig inn smellirðu á „Mínar síður“ efst til hægri á síðunni.

Hvert fer ég til að breyta upplýsingum á prófílnum mínum?

Undir „Mínar síður“ smellirðu á „Stillingar“ þá kemur upp síða sem þú þarft að fylla inn upplýsingar um þig.

Hvaða valmöguleikar eru í boði á prófílsvæðinu?

Vinstri hliðarvalmyndin sýnir:

Hversu lengi er innskráning gild?

Innskráning gildir í allt að 7 daga ef þú skráir þig ekki út á sama tæki.

Hvernig skrái ég mig út?

Smelltu á „Útskráning“ í vinstri hliðarvalmyndinni. Mælt er með útskráningu ef notandi skráir sig inn á tæki sem fleiri notendur hafa aðgang að.

Yfirlit

Í yfirliti má finna skráningar fyrir væntanlega og liðna viðburði sem félagskonur hafa skráð sig á.

Hvar sé ég frekari upplýsingar varðandi viðburðina?

Hægt er að smella á valinn viðburð til að fá allar frekari upplýsingar varðandi viðburðinn.

Get ég samstillt viðburð við dagatalið mitt?

Hægt er að samstilla viðburð við dagatal bæði við skráningu sem og í yfirlitinu með því að smella á dagatalstáknið í væntanlegum viðburðum.

Athugið að ef breytingar verða á fyrirkomulagi uppfærast þær ekki á dagatalinu. Félagskonur fá hins vegar tölvupóst með upplýsingum um breytingar, til dæmis á tímasetningu eða staðsetningu.

Ég finn ekki viðburð sem ég skráði mig á. Hvað geri ég?

Kannaðu hvort þú hafir fengið staðfestingarpóst við skráningu eða hvort viðburður sé enn auglýstur. Ef viðburður er ekki lengur sýnilegur undir undirsíðunni Viðburðir þá kann hann aðnhafa fallið niður.

Ef þú hefur fengið staðfestingarpóst en sérð hann ekki í yfirliti þá telst staðfesting mótekin.

Ég kemst ekki á viðburð. Get ég afskráð mig?

Ef félagskona kemst ekki á viðburð mælum við með afskráningu með því að smella á X-merkið hjá væntanlegum viðburði.

Með því að afskrá eða tilkynna forföll í tíma er hægt að gera ráðstafanir. Mætingarfjöldi getur haft t.d. áhrif á magn veitinga, fjölda sæta, stærð rýmis og rútna.

Einnig getur verið biðlisti á viðburði.

Þarf að greiða sérstaklega fyrir viðburði?

Flestir viðburðir innan FKA eru innifaldir í félagsgjöldum. Það kemur fram í viðburðalýsingum ef sérstaklega þarf að greiða fyrir viðburði.

Greiðsluvalmöguleika má sjá hér.

Stjórnun persónuupplýsinga

Hvar get ég uppfært persónuupplýsingarnar á prófílnum?

Persónuupplýsingar birtast í "Stillingum" undir liðnum grunnupplýsingar.

Hvaða upplýsingum er hægt að breyta í grunnupplýsingum?

Til dæmis getur þú breytt:

Get ég breytt netfanginu sem er tengt við prófílinn minn?

Já, þú getur breytt því undir grunnupplýsingar”.

Get ég uppfært upplýsingar um heimilisfang?

Já, reitir fyrir heimilisfang og póstnúmer eru sýndir í prófílstillingum.

Birting upplýsinga

Af persónuverndarástæðum birtast símanúmer og netfang félagskvenna ekki sjálfkrafa á félagatalinu. Hver og ein ræður sjálf hvort hún birtir sínar upplýsingar almennum vefgestum.

Hvar stjórna ég því hvernig upplýsingarnar á prófílnum eru birtar?

Stillingar fyrir birtingu birtast undir hlutanum Birting upplýsinga".

Til hvers er hlutinn „Birting upplýsinga“ notaður?

Þessi hluti inniheldur hak sem tengist því hvernig upplýsingar eru birtar á prófílnum. Ef þú ert með hakað í hann geta ytri aðilar séð upplýsingar þínar án þess að vera skráðir inn.

Starfsupplýsingar

Hvar get ég uppfært starfsferil minn á prófílnum?

Upplýsingar tengdar starfi eru í Stillingum" undir starfsupplýsingar. Þú getur uppfært þær þar.

Hverju get ég breytt undir starfsupplýsingum?

Þú getur uppfært upplýsingar um starfstitil, fyrirtæki, starfsferil, stjórnarsetu og ábyrgðarstöður innan FKA.

Get ég skrifað lýsingu eða kynningartexta?

Það er hægt að setja inn lengri lýsingar undir t.d. Starfsferill eða Stjórnarseta.

Tenglar og samskiptaupplýsingar

Get ég bætt LinkedIn, Facebook og Instagram prófílnum mínum við?

Já, á stillingarsíðunni er reitur fyrir LinkedIn og samfélagsmiðla. Tilvalið fyrir tengslamyndun og sýnileika á starfsemi.

Get ég bætt við persónulegri vefsíðu eða vefsíðu fyrirtækis á prófílinn?

Já, reitur fyrir vefsíðu er sýndur í prófílstillingum.

Get ég bætt við Google Location tengli? 

Já, á stillingarsíðunni er reitur þar sem þú getur sett inn tengil á staðsetningu fyrirtækis í Google (Google Business Profile). Sjá frekar hér.

Kaffibollinn

Á prófílnum þínum á Mínum síðum er hægt að haka við „Ég er til í að hitta FKA konu yfir kaffibolla“ Með því að kveikja á þessum lið þá ert þú að opna fyrir að vera tilbúin að hitta aðra FKA á einstaklingsfundi, kannski til að ræða sameiginlega hagsmuni, kanna samstarf eða bara kynnast.

Á Félagatalssíðunni sjálfri getur þú kveikt á síunni „Til í kaffibolla“ og fengið þannig yfirlit yfir allar FKA konur sem eru til í að hittast yfir bolla. Þú getur einnig síað á hæfni eða aðra þætti sem takmarka úrvalið. Þegar þú hefur fundið konu sem þig langar að hitta og spjalla við þá opnar þú prófílinn hennar, finnur tengiliðaupplýsingar og sendir henni skilaboð.

Skilaboðin gætu t.d. verið á þessa leið:

„Hæ hæ. Ég sá í FKA félagatalinu að þú ert opin fyrir því að hittast yfir kaffibolla. Mig langar mikið að hitta þig og ræða … (t.d. sameiginlegt viðfangsefni út frá upplýsingum úr félagatali, sameiginlega hagsmuni eða félagsstarf) Ertu til í að hitta mig? Kær kveðja, [ég]".

Þarna getur opnast á mikilvægt samtal sem gæti nýst báðum aðilum.

Hafa þarf í huga að:

Atvinnugeiri og hæfni

Í félagatalinu er hægt að leita að félagskonum með síum sem gera auðveldara að finna rétta sérfræðinginn.

Við mælum með að þú skráir hæfni þína og í hvaða starfsgrein þú starfar. Það auðveldar öðrum að finna þig í leitinni.

Get ég bætt við upplýsingum um þekkingu mína og atvinnugeira?

Já, þú getur gert það undir Stillingar" í hlutanum Atvinnugeiri og hæfni. Þar getur þú valið ýmsa geira og hæfni.

Hvers vegna ætti ég að bæta við upplýsingum um atvinnugeira og hæfni?

Félagskonur og vefgestir geta notað það til að finna rétta aðilann í starf og fleira.

Hvernig vel ég atvinnugeira eða hæfni?

Þú getur valið atriði í þeim hluta með því að smella á þau.

Get ég valið fleiri en einn atvinnugeira eða hæfni á prófílinn?

Já, þú getur valið allt sem á við.

Get ég eytt atriðum sem ég hef skráð?

Já, þú getur ávallt eytt einstökum atvinnugeirum og hæfni og vistað uppfærsluna.

Ég finn ekki atvinnugeira minn né hæfni sem ég vil sýna?

Félagskonur geta ekki bætt nýjum atriðum við listann sjálfar.

  • Listinn er ekki endalaus, en hann er í stöðugri þróun og verður uppfærður eftir þörfum.
  • Sendu skilaboð á fka@fka.is til að koma með tillögu að hæfni á listann.

Deildir og umsóknir

Hvað er hlutinn „Deildir“?

Í Stillingum" undir hlutanum Deildir er hægt að sækja um aðild að mismunandi deildum innan FKA.

Hvernig sæki ég um í deild?

Hakaðu í boxið „Sækja um“ við hliðina á viðkomandi deild.

Get ég sótt um í fleiri en eina deild?

Já, það birtast margir valmöguleikar með kössum sem leyfa fleiri en eitt val.

Get ég sótt um LeiðtogaAuður á innra svæðinu?

Nei, LeiðtogaAuður er eina deildin sem tekur ekki á móti umsóknum rafrænt. Sjá frekar hér.

Get ég sótt um að vera í landsbyggðardeild?

Já, við mælum með að félagskonur skrái sig í landsbyggðardeild út frá búsetu. Ekki er mögulegt að skrá fleiri en eina landsbyggðardeild þó.

Er höfuðborgarsvæðið með sína eigin deild?

Nei, höfuðborgarsvæðið hefur ekki sér deild en er sett upp með þeim tilgangi að staðsetja félagskonur sem búa á því svæði.

Kostar að sækja um í deildir?

Það kostar ekki að skrá sig í deildir, nema það sé sérstaklega tekið fram. Félagsgjöld tengdum deildum greiðast samtíma félagsgjöldum FKA.

Prófílmynd

Við mælum með setja inn prófílmynd, helst nýlega, svo auðveldara sé að þekkja þig. Fjölmargir ljósmyndarar eru í FKA sem finna má í félagatali.

Hvernig breyti ég prófílmyndinni minni?

Smelltu á hnappinn „Breyta“ beint undir prófílmyndinni.

Hvar breyti ég prófílmyndinni minni?

Prófílmyndin birtist efst á síðunni undir Stillingar." Þú getur bæði eytt eða breytt henni þar.

Ég næ ekki að uppfæra prófílmyndina mína. Hvað geri ég þá?

Ef myndin sem hlaðin er upp er of stór eða í vitlausu formi þá getur það komið í veg fyrir að hægt sé að uppfæra hana. Vistaðu hana í minni gæðum og mundu að smella á “Uppfæra upplýsingar” eftir breytingar.

Vista breytingar

Þarf ég að vista breytingarnar eftir að ég breyti prófílnum?

Já, breytingar eru vistaðar með því að smella á hnapp neðst á síðunni.

Hvar er vistunarhnappurinn staðsettur?

Neðst á síðunni fyrir prófílstillingar.

Hvað heitir vistunarhnappurinn?

Hnappurinn er merktur „Uppfæra upplýsingar“.

Af hverju birtust uppfærslurnar á prófílnum mínum ekki? 

Gakktu úr skugga um að þú hafir smellt á „Uppfæra upplýsingar“ eftir að þú gerðir breytingar.

Efnisval

  • Aðgangur og prófíllinn þinn
  • Yfirlit
  • Stjórnun persónuupplýsinga
  • Starfsupplýsingar
  • Tenglar og samskiptaupplýsingar
  • Kaffibollinn
  • Atvinnugeiri og hæfni
  • Deildir og umsóknir
  • Prófílmynd
  • Vista breytingar