


24. júní 2010 Kæru félagskonur. Ný stjórn og allar nefndir hafa haldið sinn fyrsta fund og munu allar nýta sumarið til að hlaða niður hugmyndum fyrir nýtt starfsár félagsins sem hefst í september. Glæsilegt og vel heppnað golfmót FKA er afstaðið þar sem 48 konur spiluðu 9 holur í blíðskaparveðri í Hveragerði eftir ánægjulega heimsókn í FKA fyrirtækið Kjörís. Allar fórum við glaðar heim hlaðnar vinningum eftir góðan kvöldverð í golfskálanum. Meira

Nýjar FKA konur í júlí og ágúst:
Yrki arkitektar ehf
Sólveig Berg
Volcano Iceland
Steinunn Ketilsdóttir
Ás Holding aps
Ragnhildur Gottskálksdóttir
Sædís gullsmiðja
Sædís Bauer Halldórsdóttir
Englahár
Harpa Barkar Barkardóttir
Pelsinn
Ester Ólafsdóttir
Jóhann Helgi & Co ehf
Margrét Ormsdóttir
Helga Jóihanna Úlfarsdóttir
|

|
 |
|
16. 09. 10 FKA konur til Stokkhólms. |
Ferðin er komin í sölu hja Practical.
|
 |
|
14. 09. 10 Tæklum Internetið |
Auglýst fljótlega 3 klst námskeið um notkun samskiptasíðna á netinu, markaðssetningu o.fl.
Áætlaður tími kl. 16:00 - 19:00 |
 |
|
9. 09. 10 Fyrsta samkoma haustsins |
Auglýst fljótlega Við hittumst á áhugaverðum stað og svo borðum við saman á öðrum áhugaverðum stað á eftir - þær sem vilja. Reiknum með að hittast kl. 17:00 |
 |
|
2. 09. 10 FKA á Norðurlandi hittast á VÍNBAR á Akureyri |
Haustfundur F.K.A. á Norðurlandi
Fimmtudaginn 2. September kl. 18:00 ætlum við að hittast á VÍNBAR, nýja kósýstaðnum við Strandgötu (Vélsmiðjuhúsinu). Júlía tekur vel á móti okkur og verður með léttar veitingar á vægu verði.
Spáum í vetrarstarfið og "Dömulega dekurdaga" og hvetjum konur til að mæta og leggja í hugmyndapúkkið.
Endilega taka vinkonur með.
Styrkjum tenglsanetið
|
 |
|
10. 06. 10 Golfmót FKA |
3ja kylfu mót í Hveragerði, 9 holur. Lagt af stað úr bænum kl. 13:00 með rútu, komið til baka milli kl. 21:00 og 22:00.
Nánar auglýst síðar. |
 |
|
19. 05. 10 Aðalfundur FKA |
Hótel Loftleiðir, kl. 16:00
|
 |
|
7. 05. 10 101 tengslarölt og VOR-Gleðistund |
Pizza Hut og miðbærinn Viðskiptanefnd FKA hefur skipulagt 101 tengslarölt. Við byrjum efst á Laugavegi og síðan verður haldið í miðbæinn þar sem heimsækja á hin ýmsu fyrirtæki á leiðinni niður í Aðalstræti. Kvöldverður verður síðan snæddur í miðbænum.
Nánar auglýst síðar. |
 |
|
27. 04. 10 Þjófnaðir og öryggismál í verslunum. Morgunverðarfundur á Loftleiðum. |
Erindi um öryggismál og þjófnað í verslunum. Flytjandi Eyþór Víðisson, öryggisfræðingur MSc.
|
 |
|
13. 04. 10 Hádegisverðarhittingur |
Kaffi Loki, Skólavörðuholti Hádegisverðarhittingur á Kaffi Loka, Skólavörðuholti.
12 konur komast að.
Plokkfiskur, kaffi og pönnukaka á 1.500 krónur. |
 |
|
8. 04. 10 Gleðistund í bara DESIGN, Garðatorgi |
Garðatorgi Fimmtudaginn 8. apríl frá klukkan 16:30 – 18:30 verður Gleðistund í bara DESIGN, Garðatorgi
Nánar auglýst síðar
|
 |
|
18. 03. 10 Morgunverðarfundur - Viðskiptasiðferði |
Kaffi Nauthóll
|
 |
|
5. 03. 10 Vetrarferð FKA norður í dýrðina |
Akureyri og nágrenni Gist verður á Hótel Kea, dagsferð í Mývatnssveit, fuglasafnið skoðað og skellt sér í jarðböðin. Einnig verðar Dimmuborgir skoðaðar.
Nánari upplýsingar og skráning er á www.aktravel.is |
 |
|
4. 03. 10 Happy Hour |
Nánar auglýst síðar |
 |
|
25. 02. 10 Örugg framkoma í fjölmiðlum - með Sirrý |
16:15 til 18:15
Nánar auglýst síðar |
 |
|
10. 02. 10 Virkjum karla og konur - ráðstefna |
Nordica hótel Miðvikudaginn 10. febrúar 2010 efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands, Leiðtoga-Auður, iðnaðarráðuneytið, efnahags- og viðskiptaráðuneyti og Creditinfo til tímamótafundar á Hótel Nordica. Þar verður greint frá því hvernig viðskiptalífið hyggst fjölga konum í stjórnum fyrirtækja. Fundurinn er haldinn til að fylgja eftir samstarfssamningi SA, FKA og VÍ sem undirritaður var 15. maí 2009 um að fjölga konum í forystusveit íslensk atvinnulífs til loka ársins 2013 þannig að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40%. Allir stjórnmálaflokkar sem sæti eiga á Alþingi skrifuðu undir samninginn og veita honum stuðning sinn.
Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér : http://www.sa.is/malefni/virkjum-karla-og-konur/ |
 |
|
3. 02. 10 Gleðistund hjá Munda |
Laugavegur 12, efri hæð Mundi býður FKA konum á næstu Gleðistund miðvikudaginn 3. febrúar kl. 17-19
Mundi er ungur og upprennandi fatahönnuður.
Sigyn og Munda er sönn ánægja að taka á móti FKA konum í verslun fyrirtækisins MUNDI´s butique með léttum veitingum.
Staður: Laugavegur 12, efri hæð. Gengið er inn frá Bergstaðarstræti |
 |
|
21. 01. 10 FKA viðurkenningin 2010 |
Perlunni FKA viðurkenningin verður veitt í ellefta sinn fimmtudaginn 21. janúar 2010 í Perlunni kl. 16:30 - 18:30.
Kynnir verður Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur. Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra og Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka afhenda viðurkenningarnar.
Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu.
Léttar veitingar verða í boði FKA og Íslandsbanka.
|
 |
|
19. 01. 10 Morgunverðarfundur- Hefur þinn vinnustaður ímynd trausts og heilinda? |
Hótel Lofleiðir Hefur þinn vinnustaður ímynd trausts og heilinda?
Morgunverðarfundur á Hótel Lofleiðum þriðjudaginn 19.janúar kl 8:30 til 09:45
Fyrirlesari er Þórhildur Þórhallsdóttir, Þekkingarmiðlun
Íslendingar hafa fundið á eigin skinni undanfarið hversu afdrifaríkt það er að missa traust mikilvægra aðila. Í bókinni The Speed of Trust fjallar Stephen Covey um hvað gera þurfi til að viðhalda trausti og endurheimta glatað traust. Í fyrirlestrinum er farið yfir helstu niðurstöður Covey og þær settar í samhengi við íslenskan veruleika.
Húsið opnar kl 8:00 fyrir morgunmat.
Verð krónur 2.500 krónur
Skráningu lýkur á hádegi mánudaginn 18.janúar |
 |
|
25. 11. 09 Jólakvöldverður FKA |
Nánar auglýst síðar |
 |
|
6. 11. 09 Morgunverðarfundur - Fjármál og staða fyrirtækja |
Fjármál og staða fyrirtækja.
Morgunverðarfundur föstudaginn 6. nóvember
Hótel Loftleiðir, Víkingasalur
kl. 08:00 – 09:30
Rakel Sveinsdóttir framkv.stjóri CreditInfo kynnir nýjar upplýsingar um stöðu fyrirtækja þar sem sérstaklega er horft til fyrirtækja í rekstri kvenna. .
Erindi flytja:
Gylfi Magnússon ráðherra viðskipta- og efnahagsmála
Ásmundur Stefánsson bankastjóri NBI
Vilhelm Már Þorsteinsson yfirmaður fyrirtækjasviðs Íslandsbanka
Umræður og spurningar.
Fundarstjóri Þóranna Jónsdóttir.
Verð kr. 2.500
Skráningu lýkur kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 5. nóvember.
|
 |
|
4. 11. 09 Happy hour hjá Forvali - Vínkaup |
Grandagarði 8 Forval - Vínkaup býður FKA konum á Happy hour miðvikudaginn 4.nóvember frá klukkan 17 - 19 að Grandagarði 8.
Þar gefst kostur á að sjá nýjustu ilmina, bragða á nýjum vínum á markaðnum, þiggja léttar veitingar, hittast, spjalla og eiga góða stund. |
 |
|
22. 10. 09 Hádegishittingur |
Lækjarbrekka Hádegishittingur FKA er hugsaður til að félagskonur FKA geti hist yfir hádegisverði og rætt málefni líðandi stundar hvort sem þau tengjast rekstrinum eða ekki. Skráningu er lokað þegar tíu konur hafa skráð sig, en afboðað er ef ekki skrá sig a.m.k. fjórar konur. Á hvern fund mætir ein úr tengslanefnd félagsins til að fylgjast með umræðum og leiða þær ef þurfa þykir. Umræðuefnið er ekki ákveðið fyrirfram, enda hverri og einni fjálst að bera upp umræðuefni og mega þess vegna mörg málefni vera til umræðu á hverjum fundi.
Fundarstaður Lækjarbrekka, herbergi til hægri við inngang. Fundartími 12:00-13:30. Fiskur og súpa dagsins 2.350- krónur.
Hámark 10 konur.
|
 |
|
16. 10. 09 Morgunverðarfundur hjá Nýja Kaupþingi, greiðsluúrræði fyrirtækja og fleira. |
Greiðsluúrræði fyrir fyrirtæki á Íslandi í dag:
Farið verður yfir hvað tekur við að loknum frystingum lána. Hvaða úrræði hafa stjórnvöld sett fram fyrir einstaklinga og kynnt leið Skuldaaðlögunar sem Kaupþing hefur sett fram til viðbótar. Hvaða lausnir hefur Kaupþing fyrir of skuldsett minni og meðalstór fyrirtæki með heilbrigðan undirliggjandi rekstur (jákvætt og eðlilegt „cash flow“).
Lífeyrissjóðsmál lítilla og meðalstórra fyrirtækja:
Farið verður yfir íslenska lífeyriskerfið, mismunandi tegundir lífeyrissjóða, hvað skiptir máli og hvað hefur áhrif á réttindi sjóðfélaga.
|
 |
|
7. 10. 09 Happy hour á Pisa |
Happy hour á Pisa í Lækjagötu |
 |
|
25. 09. 09 Morgunverður hjá Auði Capital |
Það er okkur hjá Auði Capital sönn ánægja að bjóða félagskonum FKA í heimsókn til okkar, föstudaginn 25. september kl 8:30.
Eins og ykkur er e.t.v. kunnugt var Auður Capital stofnað árið 2007 með það að markmiði að koma með kvenlæg gildi inn í fjármálageirann og stuðla að því að konur fari í auknu mæli fyrir fé. Við viljum því gjarnan kynna stafsemi Auðar fyrir öflugum athafnakonum í nýju húsnæði okkar að Borgartúni 29, 3. hæð. Boðið verður upp á léttan morgunverð, Kristín Pétursdóttir forstjóri Auðar og Þóranna Jónsdóttir framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar munu bjóða gesti velkomna og kynna starfsemina og að því búnu tekur við létt spjall. Við vonumst til að sjá sem allra flestar.
|
 |
|
10. 09. 09 Haustferð FKA til Berlínar |
Haustferð FKA verður til Berlínar dagana 10.-13.september.
Dagskrá ferðarinnar er í vinnslu en verður að vanda skemmtileg, blanda af menningu, viðskiptafróðleik, skemmtun, skoðunarferðum og sameiginlegum kvöldverðum.
Nánari upplýsingar er að fá á fka@fka.is |
 |
|
4. 09. 09 Vörumerkið þú-fyrirlestur |
Hótel Loftleiðir- Bíosalur Fyrir hvað stendur þú? Hvað einkennir þig og þitt fyrirtæki? Hvað gerir þig sérstaka í þínu fagi?
Mary Schnack blaðamaður, almenningstengslasérfræðingur og rithöfundur flytur fyrirlestur um það hvernig þú getur komið ÞÉR sem vörumerki frekar á framfæri. (Sjá www.maryschnack.com)
Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Verð kr 3.000 fyrir félagskonur og 4.500 fyrir aðra.
Skráningu lýkur á hádegi fimmtudaginn 3.september |
 |
|
3. 09. 09 Vetrarstarf FKA hefst. Heimsókn í Seðlabankann kl 17:00 |
Vetrarstarfið hefst með heimsókn í Seðlabankann kl 17:00. Kynning á bankanum og starfsemi hans. Már Guðmundsson seðlabankastjóri og starfsfólk bankans taka á móti okkur.
Kvöldverður á Pisa, Lækjargötu, á eftir fyrir þær sem vilja. |
 |
|
11. 06. 09 Golfmót FKA |
GS Golfklúbbur Suðurnesja Golfmót FKA 11. júní, GS Golfklúbbur Suðurnesja. Kl. 14:00. 9 holur í skemmtilegum leik. |
 |
|
15. 05. 09 Aðalfundur og 10 ára afmæli FKA |
|
 |
|
6. 05. 09 Námskeið um samningatækni - Morgunverðarfundur |
Nánar auglýst síðar |
 |
|
21. 04. 09 Morgunverðarfundur |
Ingrid Kuhlman verður með námskeið og "3 fúlar á móti" koma í heimsókn og sýna úr leikritinu |
 |
|
7. 04. 09 Hádegishittingur |
Hótel Holt Næsti hádegishittingur þriðjudaginn 7. apríl n.k.
Hádegishittingur félagskvenna FKA er liður í að efla tengsl. Félagskonur hittast yfir hádegisverði og ræða málefni líðandi stundar hvort sem þau tengjast rekstrinum eða ekki. Umræðuefnið er ekki ákveðið fyrirfram, enda hverri og einni frjálst að bera upp umræðuefni og mega þess vegna mörg málefni vera til umræðu á hverjum fundi.
Hámarksfjöldi 10.
Skráning á heimasíðu FKA www.fka.is – TENGSL – hádegishittingur eða skráning hér
Skráningu er lokað þegar tíu konur hafa skráð sig, en afboðað er ef ekki hafa skráð sig a.m.k. fjórar konur tveimur dögum fyrir fund. Á fundinn mætir ein úr tengslanefnd félagsins. Ef afturkalla þarf skráningu af einhverjum ástæðum vinsamlega sendið póst á sofiaj@simnet.is
Fundarstaður Hótel Holt, herbergi inn af matsal. Hádegismatseðill kr. 3.500.
Skráning hér á fundinn 7. apríl
Tengslanefnd FKA
|
 |
|
2. 04. 09 Happy hour |
nánar auglýst síðar |
 |
|
25. 03. 09 FKA á Norðurlandi |
Akureyri
|
 |
|
18. 03. 09 Morgunverðarfundur með viðskiptaráðherra Hr. Gylfa Magnússyni |
Frá kl. 8.00-9.45
|
 |
|
27. 02. 09 Morgunverðarfundur "Er ekkert jákvætt að frétta? |
Hótel Loftleiðir Morgunverðarfundur á Hótel Loftleiðum
Fjölmiðlafundur: "Er ekkert jákvætt að frétta?"
|
 |
|
26. 02. 09 FKA á Norðurlandi |
Friðik V - Akureyri Þjónn í súpunni á Friðrik V. Takmarkaður sætafjöldi. Bókanir á fridikv@fridrikv.is |
 |
|
19. 02. 09 Morgunverðarfundur |
Reykjavík Náðu meiri áhrifum með því að beita tungumálinu rétt, þannig nærðu meiri athygli.
Margrét Jónsdóttir forstöðumaður alþjóðaskrifstofu HR
|
 |
|
12. 02. 09 Morgunverðarfundurhjá Glitni Kirkjusandi |
Kirkjusandur - Reykjavík Morgunverðarfund hjá Glitni Kirkjusandi - fimmtudaginn 12. febrúar kl. 8.15 - 9.30.
Hvað eru nýju bankarnir að gera? Hvaða möguleikar eru í núverandi stöðu? Starfsmenn frá fjölmörgum sviðum bankans svara spurningum félagskvenna |
 |
|
5. 02. 09 Happy hour |
Gullfoss
|
 |
|
29. 01. 09 FKA á Norðurlandi |
Friðik V - Akureyri Sjá mætingu
á þessari slóð |
 |
|
25. 01. 09 Fundur |
http://www.fka.is/vidburdir |
 |
|
22. 01. 09 FKA - viðurkenningin |
FKA viðurkenningin haldin í Perlunni 16:30 - 18:30
|
 |
|
20. 01. 09 Morgunverðarfundur 20. janúar í samvinnu við SA. |
Hótel Saga Sunnusalur kl. 8 - 10 Úr vörn í sókn: Hvað gerðu finnsku fyrirtækin?
Þriðjudaginn 20. janúar 2009 efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri og Finnsk-íslenska viðskiptaráðið til morgunfundar um hvernig finnskt atvinnulíf snéri vörn í sókn með því að bregðast við efnahagsþrengingunum í Finnlandi á árunum 1991-1994. Fulltrúar finnskra fyrirtækja og atvinnulífssamtaka sem stóðu í eldlínunni munu lýsa því hvað finnsku fyrirtækin gerðu. Staðsetning og nánari dagskrá verður birt í byrjun janúar.
|
 |
|
4. 12. 08 Jólahappy |
Iðnó frá kl. 17:30 - 20:00
|
 |
|
3. 12. 08 Morgunverðarfundur með Eddu Rós Karlsdóttur |
Miðvikudaginn 3. desember kl. 8:15 - 9:45á Hótel Loftleiðum
|
 |
|
13. 11. 08 Námskeiðið "Endurskipulagning fyrirtækja |
Námskeiðið "Endurskipulagning fyrirtækja" kl. 8.00 -12.00 í samvinnu við fræðslunefnd félagsins
|
 |
|
6. 11. 08 Gleðistund á Friðriki V á Akureyri |
|
 |
|
6. 11. 08 Happy hour á Gullfos |
|
 |
|
16. 10. 08 FCEM WORLD CONGRESS – World Business Women in Brussels |
Brussel 16. - 18. október
|
 |
|
16. 10. 08 Morgunverðarfundur á Hótel Loftleiðum kl. 8:15 - 9:45 |
Hótel Loftleiðir 8:15 - 9:45 Í því umróti sem íslenskt viðskiptalíf gengur í gegnum boðar stjórn FKA til morgunverðarfundar á morgun fimmtudag kl. 8:15 – 9:45 á Hótel Loftleiðum. |
 |
|
6. 10. 08 Morgunverðarfundur: Theresa Strand frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn heldur fyrirlestur um |
Hótel Nordica kl 8:15 - 9:30 Theresa Strand frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn heldur fyrirlestur um "Konur í stjórnum fyrirtækja á Norðurlöndunum". |
 |
|
2. 10. 08 Happy hour kl. 17:30 |
Nánar auglýst síðar |
 |
|
26. 09. 08 FKA ferð tl Helsinki 26.- 29.september |
Helsinki
|
 |
|
19. 09. 08 Stjórnarseta kvenna - ráðstefna |
Ráðstefna 19. september "Stjórnarseta kvenna" í samvinnu við Háskólann á Bifröst og fleiri aðila er komu að verkefninu um "jafnréttiskennitöluna"
Sérstakur gestur; Elanor Tabi Haller-Jorden framkvæmdastjóri Catalyst-Europe
http://www.bifrost.is/default.asp?sid_id=907&tId=2&fre_id=75294&meira=1
|
 |
|
12. 09. 08 Gleðistund á Friðriki V á Akureyri |
Friðriki V á Akureyri
|
 |
|
9. 09. 08 Vetrarstarf hefst |
Þjóðminjasafnið Fyrsti fundur haustsins verður haldinn í Þjóðminjasafninu þriðjudaginn 9. september kl. 17 |
 |
|
24. 06. 08 Golfmót FKA Open á Flúðum á Jónsmessu. |
Flúðum Golfmót FKA verður þriðjudaginn 24. júní á Jónsmessu á Flúðum.
Setja á heimasíðu:
|
 |
|
5. 06. 08 Stjórnarfundur FCEM, alþjóðlegs félags kvenna í atvinnurekstri. |
5.-7. júní. Stjórnarfundur FCEM, alþjóðlegs félags kvenna í atvinnurekstri.
Opin dagskrá fyrir félagskonur 5. júní, og skoðunarferð um vesturland með erlendu gestunum þann 7. júní. |
 |
|
20. 05. 08 Aðalfundur FKA |
Hádegisfundur í Turninum Kópavogi
|
 |
|
15. 05. 08 Alþjóða dagur kvenna í atvinnurekstri |
ÁRANGUR – ÍMYND - TENGSL Þann 15. Maí n.k. heldur FKA uppá alþjóðadag kvenna í atvinnurekstri.
Að því tilefni býður alþjóðanefnd FKA athafnakonum að kynna fyrirtæki sín fyrir öðrum konum í atvinnurekstri og jafnframt hlýða á áhugaverða fyrirlestra og vera virkur þáttakandi í vinnustofum.
Tveir erlendir fyrirlesarar – Vinnustofur – Fyrirtækjakynning athafnakvenna - B2B -
Allt sama daginn!
Taktu frá fimmtudaginn 15.maí –Tími: 12:00 – 18:00 Staður: Laugardalshöll
|
 |
|
6. 05. 08 Gleðistund á Friðriki V á Akureyri |
|
 |
|
30. 04. 08 Námskeið um samningatækni |
Nánar auglýst síðar |
 |
|
30. 04. 08 Happy Hour |
|
 |
|
10. 04. 08 Gleðistund á Friðriki V á Akureyri |
|
 |
|
7. 04. 08 Lestur ársreikninga, lykiltölur, hádegisverðarfundur |
Hótel Loftleiðir
|
 |
|
4. 04. 08 Hádegisverðarfundur með Icelandic American Business Forum |
Café Sólon Icelandic American Business Forum býður þér á hádegisfund.
Hádegisfundurinn verður að Café Sólon, annari hæð
föstudaginn 4. apríl klukkan 12:30 til 13:30.
Gestur fundarins að þessu sinni er
Edda Rós Karlsdóttir,
forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans.
Boðið verður upp á tveggja rétta hádegisverð (súpa og fiskur) með kaffi fyrir 1550 krónur. Þetta er sérstakt tilboð sem við höfum fengið en það verður einnig hægt að panta af matseðli.
Það er takmarkað sætaframboð og biðjum við þig þvi um að þú skráir þig hjá iabf@iceabf.c
|
 |
|
3. 04. 08 Happy hour á Gullfos |
Gullfoss
|
 |
|
28. 03. 08 Virkjum fjármagn kvenna |
sjá auglýsingu á forsíðu |
 |
|
4. 03. 08 Námskeið um ábyrgð og skyldur stjórnarmanna |
Háskólinn í Reykjavík
|
 |
|
28. 02. 08 Leikhúsferð í Landnámssetrið, Borgarnesi, á sýninguna Brák |
|
 |
|
15. 02. 08 Morgunverðarfundur á Akureyri |
Heimsókn í SAGACAPTAL
|
 |
|
7. 02. 08 Happy hour |
Gullfoss, barinn á hótel 1919, Pósthússtræti. Happy Hour Gullfoss, barinn á Hótel 1919
Pósthússtræti (gamla Eimskip)
kl. 17:00-19:00
|
 |
|
31. 01. 08 Hádegisverðarfundur með viðskiptaráðherra |
Hótel Nordica kl 12:00 - 13:30
|
 |
|
17. 01. 08 FKA viðurkenningin í Perlunni |
Kl. 16:30 í Perlunni Meira síðar |
 |
|
6. 12. 07 Happy hour með jólaívafi 17.30 - 20.00. Gestur Þorgrímur Þráinsson rithöfundur |
Pikknikk, Grandagarði 6. desember Happy hour með jólaívafi 17.30 - 20.00. Gestur Þorgrímur Þráinsson rithöfundur. |
 |
|
24. 11. 07 FCEM – HEIMSÞINGIÐ 2007 |
ÆVINTÝRAFERÐ TIL Kairo Nú gefst FKA konum tækifæri til að kynnast þessu að eigin raun.
55. heimsþing FCEM, alþjóðlegs félags kvenna í atvinnurekstri, sem FKA er aðili að, verður haldið í Kairo í Egyptalandi dagana 24.-28. nóvember nk.
Öll umgjörð verður hin glæsilegasta. Þingið verður á 5stjörnu glæsihótelinu Mena House Oberoi.
Dagskráin verður með áherslu á styrkja konur í atvinnurekstri með áherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki, skilgreina hlutverk viðskiptakonunnar í efnahags- og samfélagsþróun og skapa tækifæri til tengslamyndunar og nýrra viðskiptasambanda. Boðið verður upp á aðstöðu fyrir konur að kynna fyrirtæki sín og vörur.
Eftir þingið gefst þátttakendum kostur á að framlengja dvöl og skoða menningarundur Egyptalands í skemmtilegum hóp.
Alþjóðanefnd hefur gert lauslega kostnaðaráætlun:
Flug (í gegnum Amsterdam): 63.000.- kr
Gisting á 5stjörnu glæsihóteli Mena House Oberoi: 5.000.- kr/nóttin
80 USD á mann/pr.nótt, 2 í herbergi
Þinggjaldið 400 EUR 34.000.- kr.
Innifalið er öll dagskrá, þ.m.t.þinggögn, aðgangur að fundum, fyrirlestrum, kynningu á fyrirtækjum, veitingar á meðan á þingi stendur, fordrykkur og gala kvöldverður.
Nánari upplýsingar veita;
Aðalheiður, ak@simnet.is, Edda, flex@mmedia.is og Rúna, runa@tengjumst.is
|
 |
|
15. 11. 07 Hádegisverðarfundur með Steinunni Sigurðardóttur fatahönnuði |
Rúbín frá kl. 12 - 14 Rúbín er nýr staður við hliðina á Keiluhöllinni í Öskjuhlíð - einstök hönnun, einstök upplifun. |
 |
|
1. 11. 07 Happy hour |
|
 |
|
25. 10. 07 Hádegisverðarfundur og þjónustunámskeið með Eddu Björgvinsdóttur |
|
 |
|
18. 10. 07 Parísarferð 18. - 21. október |
París Og nú er það París ……………
Parísarferð FKA er ákveðin dagana 18. – 21. október n.k.
Flug út með Icelandair fimmtudaginn 18.10 kl. 07:40, lent 13:05
Heimflug sunnudaginn 21. október kl. 14:15, lent 15:45
Gist verður á Novotel Paris Est. 3ja stjörnu hótel staðsett um 15 mín. frá miðborginni og flugvellinum. www.novotel.com
Þar sem mikið er um að vera í París á þessum tíma reyndist ekki unnt að fá hótel nær miðborginni
Dagskrá ferðarinnar er í vinnslu en fimmtudeginum og föstudeginum verður varið í viðskiptaheimsóknir og fyrirhugað er að hafa sameiginlega kvöldverði á fimmtudag og föstudag. Laugardagur verður frjáls en við munum vinna úr og stinga upp á nokkrum áhugaverðum kostum. Þátttaka í dagskrá er ekki innifalin í neðangreindum verðum en þau verð munu liggja fyrir þegar dagskráin er fullmótuð.
Verð: Flug og gisting með morgunverði kr. 65.000 m.v. 2 í herbergi
Aukagjald fyrir eins manns herbergi kr. 23.000
Aukagjald fyrir konur utan FKA kr. 10.000
Vegna mikillar eftirspurnar eftir hótelrými í París þessa helgi mun þurfa að staðfesta hótelbókun fyrir 8. ágúst og því er skammur tími til ákvarðana.
Pantanir berist Sofíu Johnson á sofiaj@simnet.is sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma 897-0711
Flug og gisting er unnið í samvinnu við Surprize Travel, Hörpu Einarsdóttur, og munu endanlegar ferðabókanir fara í gegnum hana.
Staðfestingargjald kr. 20.000 (25.000 ef eins manns herbergi) þarf að greiða fyrir 8. ágúst
Staðfestingargjaldið þarf að staðgreiða en eftirstöðvar ferðar mega greiðast með kreditkorti.
|
 |
|
16. 10. 07 Morgunverðarfundur - Halla Tómasdóttir og Kristín Pétursdóttir kynna Auður Capital |
Hótel Nordica kl 8:00 - 9:45
|
 |
|
4. 10. 07 Happy hour |
|
 |
|
4. 10. 07 Hádegishittingur á Akureyri |
Á staðnum, Sikpagötu Akureyri milli 12 -13
|
 |
|
27. 09. 07 Morgunverðafundur á Akureyri - Orka og heilsa, Guðrún Gísladóttir |
Átak kl. 8:15 Fimmtudaginn 27. september kl. 08.15 hefst vertrarstarf FKA á
Norðurlandi aftur eftir sumarið, Guðrún Gísladóttir í Átaki ætlar að
taka á móti okkur, sýna okkur stöðina og gefa okkur góð ráð til að
halda orkunni og vera í góðu formi í allan vetur.
|
 |
|
10. 09. 07 Heimsókn til Alþingis |
|
 |
|
23. 08. 07 Kynningafundur |
GAR CAFÉ – WorldClass FCEM í Kairó Egyptalandi 24.-28.nóvember n.k.
Vert er að vekja athygli á að í framhaldi af heimsþinginu verður sérstakur fundur FCEM-OECD undir yfirskriftinni: Women Business Leaders Forum hér er um einstakt tækifæri til að tengjast öflugum kven leiðtogum heimsins.
|
 |
|
20. 06. 07 FKA - Golfmót |
|
 |
|
22. 05. 07 Aðalfundur FKA |
|
 |
|
3. 05. 07 Fyrirtækjaheimsókn í Prentmet |
Nánar auglýst síðar |
 |
|
27. 04. 07 Hádegisverðarfundur á Akureyri |
Akureyri Hádegisverðarfundur á Akureyri 27. apríl kl. 12.00 Formaður og framkvæmdastjóri FKA í heimsókn á Akureyri |
 |
|
12. 04. 07 Happy Hour- með nýrri framtíðarsýn |
|
 |
|
29. 03. 07 Morgunverðarfundur hjá FKA á NORÐURLANDI |
Amtbókasafnið kl. 8:00 - 9:45 Unnur Vilborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri Dale Carnegie, gestur fundarins. |
 |
|
22. 03. 07 Morgunverðarfundur - SJÓVÁ |
Fundur með Sjóvá um tryggingarmál |
 |
|
13. 03. 07 PÚLTFUNDUR - Svafa Grönfeld |
HÓTEL LOFTLEIÐIR Púltfundur á Hótel Loftleiðum kl. 8:15 -9:45, gestur Svafa Grönfeld. |
 |
|
1. 03. 07 Happy Hour- Reykjavík og nágrenni |
Hótel Nordica - kl. 17 -19 Happy Hour á barnum á Hótel Nordica milli 17.00 - 19.00. Styrkjum tengslanetið, kynnumst betur. 2 fyrir 1 á barnum.
|
 |
|
1. 03. 07 Fyrirtækjaheimsókn í Fylgifiska. |
Fylgifiskar kl. 8:15 Fyrirtækjaheimsókn til Fylgifiska kl. 8.15. Guðbjörg Glóð Logadóttir handhafi hvatningarviðurkenningar FKA tekur á móti félagskonum og kynnir fyrirtæki sitt.
|
 |
|
20. 02. 07 Hádegisverðarfundur í samvinnu við SVÞ |
Hádegisverðarfundur í samvinnu við SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu. Lisa Johnsson, bandarískur markaðsráðgjafi heldur fyrirlestur um markaðsstarf gagnvart konum en þær eyða um 80% af tekjum heimilanna.
Nánar auglýst þegar nær dregur.
|
 |
|
15. 02. 07 Heimsókn í Landsbankann |
Heimsókn í Landsbankann. Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur bankans ræðir um krónuna vs. evruna, fjármögnun erlendis vs. hérlendis o.fl.
|
 |
|
14. 02. 07 FKA - Norðurland - GLITNIR AKUREYRI |
Hjá Glitni Ágústa Kristinsdóttir hjá Glitni kynnir fyrirtækjaþjónustu og góðar leiðir til fjármögnungar í innlendum og erlendum gjaldmiðlum. |
 |
|
1. 02. 07 FKA - Norðurland - HAPPY HOUR |
Kaffi Karólína milli 17 -19 Styrkjum tengslanetið,fjölgum í hópnum og kynnumst betur. |
 |
|
17. 01. 07 FKA- viðurkenningin |
Hótel Sögu 16.30 - 18.30
|
 |
|
11. 01. 07 Námstefna í samvinnu við SA og IVR "Virkjum kraft kvenna" |
Hótel Nordica 8.00 - 11:45 11. janúar 2007
Námstefna í samvinnu við SA og IVR
"Virkjum kraft kvenna"
Hótel Nordica 8.00 - 11.45 |
 |
|
7. 12. 06 Happy Hour- Reykjavík og nágrenni |
Pikknikk, Héðinshúsinu Verður haldið á Pikknikk, Héðinshúsinu, gengið inn frá Mýrargötu. Kl. 17-20
|
 |
|
23. 11. 06 HAPPY HOUR - NORÐURLAND |
Strikið kl.18
|
 |
|
21. 11. 06 Námskeið: Skyldur stjórnarmanna í fyrirtækjum |
Kennarar:
Þóranna Jónsdóttir hjá Vistor og Jóhanna Waagfjörð stjórnarkona í yfir 10 fyrirtækjum heima og erlendis
Tímasetning:
Námskeiðið verður haldið þriðjudaginn 21. nóvember kl. 13.00 - 17.00
Staðsetning: Bæði námskeiðin fara fram hjá Námstækni, Ármúla 40 - 2. hæð
Verð: kr. 5.900.- fyrir FKA konur en kr. 7.900 fyrir utanfélagskonur
Skráning: fka@fka.is |
 |
|
16. 11. 06 Hádegisverðarfundur, gestur Hendrikka Waage |
Þingholti Frá kl.12 -13:30
Verð á hádegisverði 3000 kr.
Skráning á fka@fka.is |
 |
|
14. 11. 06 Námskeið: Bætt tölvusamskipti |
Markmið: Stjórna tímanum sem fer í tölvupóstinn
Fyrir hverja? Alla þá sem vilja bæta tölvupóstssamskipti við viðskiptavini og samstarfsmenn, nýta tíma sinn betur, senda markvissari tölvupóst og tryggja að tími viðtakanda nýtist einnig vel.
Kennt á Hótel Loftleiðum , frá kl 8 - 10
Verð 2500 kr.
Leiðbeinandi: Margrét Reynisdóttir
|
 |
|
9. 11. 06 FYRIRTÆKJAKYNNING - NORÐURLAND |
Örkin hans Nóa Kynnt verða fyrirtækin Ice and fire, Hágé og Örkin hans Nóa í Örkinni hans Nóa kl. 20 -22 |
 |
|
8. 11. 06 Námskeið: Skyldur stjórnarmanna í fyrirtækjum |
Þetta námskeið var haldið í fyrra og komust færri að en vildu. Í ár getum við boðið upp á tvo námskeið og komast rúmlega 20 konur á hvort námskeiðið.
Kennarar:
Þóranna Jónsdóttir hjá Vistor og Jóhanna Waagfjörð stjórnarkona í yfir 10 fyrirtækjum heima og erlendis
Tímasetning:
Fyrra námskeiðið verður haldið miðvikudaginn 8. nóvember kl. 08. 30 - 12.30
Staðsetning: Bæði námskeiðin fara fram hjá Námstækni, Ármúla 40 - 2. hæð
Verð: kr. 5.900.- fyrir FKA konur en kr. 7.900 fyrir utanfélagskonur
Skráning: fka@fka.is |
 |
|
2. 11. 06 Happy Hour- Reykjavík og nágrenni |
Hótel Nordica - kl. 17 -19 Gott tækifæri til að sýna sig og hitta aðrar konur í skemmtilegu umhverfi. |
 |
|
27. 10. 06 Morgunverðarfundur með Glitni, gestur Steinunn Þórðardóttir |
Október Gestur: Steinunn Þórðardóttir framkvæmdastjóri Glitnis í London
|
 |
|
24. 10. 06 Námskeið: Vöruframsetning |
|
 |
|
20. 10. 06 Heimsþing FCEM |
Ljubljana í Sloveníu 20. – 24. okt.2006 54. Heimsþing FCEM, Ljubljana í Slóveníu 21.-24. október 2006:
,,FRAMTÍÐIN ER Í HÖNDUM FRUMKVÖÐLA”
Ungt fólk með ferskar og góðar hugmyndir
+
Alþjóðanet kvenna í atvinnurekstri með reynslu og sambönd
=
Frábær uppskrift fyrir atvinnurekstur framtíðarinnar.
Á heimsþingi FCEM, alþjóðlegu félagi kvenna í atvinnurekstri, gefst tækifæri til að læra af reynslu annarra, miðla af eigin reynslu og taka þátt í stefnumörkun til framtíðar.
Íslenskar konur í atvinnurekstri standa vel að vígi á sumum sviðum en eru styttra á veg komnar á öðrum sviðum. Á heimsþingi FCEM er áhersla lögð á alþjóðlega tengslamyndun og fræðslu til að styrkja atvinnurekstur félagskvenna.
- Með því að taka þátt verðum við hæfari til að reka fyrirtækin okkar betur.
- Við fáum nýjar hugmyndir, aðgang að nýjum mörkuðum og verðum því samkeppnisfærari.
Á heimsþingi FCEM fáum við ómetanleg tækifæri til að eignast nýja vini um allan heim, vini sem stunda atvinnurekstur eins og við og gaman er að hitta aftur og aftur, hvort heldur sem er á heimsþingum FCEM eða að eigin frumkvæði, jafnt í viðskiptalegum tilgangi sem og persónulegum.
Viðskiptasambönd og alþjóðleg tengslamyndun.
Fræðsla og skemmtun. Ný reynsla og spennandi upplifun.
Ljubljana í Slóveníu er falleg borg með mikla sögu. Þar eru frábærir veitingastaðir og verslanir og lágt verðlag.
Ljubljana er nýr áfangastaður í Evrópu sem nauðsynlegt er að heimsækja núna – áður en ferðamannaiðnaðurinn verður þar of yfirþyrmandi.
Dagskráin og skráningarblað er í viðhengi.
Hægt er að fá ódýrt flug. Upplýsingar um hótel eru í viðhengi.
Allar nánari upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, ak@simnet.is.
|
 |
|
17. 10. 06 Morgunverðarfundur á Akureyri |
Amtsbókasafnið kl 8:15-10:00 Draumar hafa tilhneigingu til að rætast.
Séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir, segir frá því hverning hún hefur sjálf byggt upp líf sitt og leyft draumum sínum að rætast. |
 |
|
12. 10. 06 Standandi gleði |
Hótel Nordica
|
 |
|
11. 10. 06 Morgunverðarfundur -- Um hjartað liggur leið |
Hótel Loftleiðir kl. 8:00 -0:30
|
 |
|
5. 10. 06 Viðskipta- og skemmtiferð FKA til Köben |
Stjórn FKA er að undirbúa ferð til Kaupmannahafnar fyrir félagskonur þar sem að okkur gefst kostur á að heimsækja
m.a.
Magasin du Nord, áhugaverða danska hönnuði og fleiri vaxandi og áhugaverð fyrirtæki, bæði lítil og stór.
Þetta verður tvímælalaust ferð sem mun nýtast félagskonum vel og opna þeim sem áhuga hafa mörg ný tækifæri.
Auk þess sem að við munum auðvitað njóta þessa að tengjast enn betur innbyrðis og skemmta okkur vel í borginni
sem iðar af mannlífi og skemmtunum.
· Ferðin verður farin 5. - 8. október
· Kostnaður verður um kr. 60.000 á mann með hóteli og flugi, m.v. tvær í herbergi
· Gist verður á Hotel Petri og flogið með Icelandair
· Í lok ágúst þurfum við að vita fjölda þeirra sem ætla með.
· Dagskrá mun verða kynnt í ágúst og verður lögð áhersla á að hafa allt skipulag
sem sveigjanlegast, þ.a konur geti flogið út og heim þegar þær vilja og mætt á þá
viðburði í ferðinni sem þær telja áhugaverða.
Látið ekki þetta einstæða tækifæri fram hjá ykur fara og takið frá þessa daga í byrjun október.
Meira síðar og hafið það gott í sumarblíðunni.
Kveðja frá stjórn FKA |
 |
|
26. 09. 06 Morgunverðarfundur |
Hótel Nordica kl. 8:15 KONUR Í ÚTRÁS
Morgunverðarfundur á Nordica hóteli þriðjudaginn 26. september kl. 8.15
Hafdís Jónsdóttir í Laugum segir frá stórkostlegri uppbyggingu fyritækis síns og nýlegri útrás til Danmerkur. |
 |
|
7. 09. 06 Vetrarstarf hefst- Höfuðborgarsvæði |
Hótel Nordica VETRARSTARFIÐ HEFST:
Standandi gleði á Nordica hóteli fimmtudaginn 7. september 17.00 - 19.00
Dagskrá vetrarins kynnt - Helga Braga skemmtir
|
 |
|
2. 09. 06 FKA- norðurlandi |
Öxnadalur FKA á norðurlandi
Kl. 17:00 Rúta úr bænum (Akureyri) á Halastjörnuna (veitingahús í Öxnadal) sjá www.halastjarna.com Kl. 17:30 Fordrykkur hjá frú Guðveigu Kl. 18:00 Gengið upp að Hraunsvatni (og aftur til baka) Kl. 19:30-20:00 Þriggja rétta óvissu seðill á Halastjörnunni Kl. ca 24:00 rúta í bæinn aftur
Fyrirlesari 1: Guðveig segir sögu sína af Halastjörnuævintýrinu Fyrirlesari 2: Margrét Blöndal kennir okkur hvernig á að klappa fjölmiðlafólki, hvað virkar og hvað ekki.
Verð: 6000 kr. fyrir FKA félagskonur 7000 kr. fyrir aðrar ____________________________________________________________
ATHUGIÐ að einungis eru 25 sæti í boði þannig að nauðsynlegt er að tilkynna þáttöku strax, fyrstir koma fyrstir fá.
Skráið ykkur strax í ferðina á disa@concept.is eða í síma 552 5200 / 895 5200
p.s. þær sem ekki eru búnar að skrá sig í FKA, félag kvenna í atvinnurekstri og hafa það í huga ættu endilega að skella sér inn á www.fka.is og gera það.
Endilega áframsendið þetta á konur á Norðurlandi sem ykkur finnst eiga erindi í FKA
Mbk Bryndís Óskarsdóttir Gsm. 895 5200 disa@concept.is ..................................... CONCEPT Munkaþverárstræti 3 600 Akureyri Sími. 552 5200 www.concept.is
|
 |
|
24. 08. 06 Stefnumótunarfundur stjórnar FKA |
|
 |
|
8. 06. 06 Golfmót FKA |
Setbergsvöllur Staðsetning, Setbergsvöllur, völlurinn er á mörkum Garðabæjar og Hafnarfjarðar.
Fyrirkomulag, spilaðar verða 9 holur á par þrjú velli. Eingöngu leyfilegt að leika með sömu kylfuna allan völlinn t.d. 7 járn.
Bleiki bikarinn er golfmót ætlað konum þar sem markmiðið er ekki að vinna heldur að koma saman í góðum kvennahóp, leika golf og leggja jafnframt góðu málefni lið. Mótsgjald er kr. 3.500.- og renna kr. 2.500 óskiptar til brjóstakrabbameinsrannsókna á Rannsóknastofu Krabbameinsfélagsins .
Hægt verður að kaupa veitingar hjá hússtýrunni eftir leik.
Félagskonum gefst kostur á því að auglýsa vörur sínar og þjónustu með því að gefa verðlaun í mótið.
Mótsstjóri er Anna Día hjá Golfleikjaskólanum
annadia@centrum.is
|
 |
|
23. 05. 06 Aðalfundur FKA |
Sunnusalur Hótel Saga Kl. 12:00
Fyrirlestur og hádegisverður
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Ph.D og lektor við HÍ flytur skemmtilegan fyrirlestur "Hvernig leiðtogi ertu í eigin lífi" á meðan snæddur er léttur hádegisverður.
kl.12:45
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins |
 |
|
19. 05. 06 Alþjóðadagur kvenna í atvinnurekstri |
Hótel Glym Hvalfirði
|
 |
|
19. 05. 06 FKA- Norðurland |
Kaffi Akureyri Lokafundur |
 |
|
11. 05. 06 Morgunverðarfundur |
Borgartún 27, 8 hæð KPMG Endurskoðun hf býður til morgunverðarfundar.
Á þessum fundi mun Anna Þórðardóttir, Margrét Flóvenz og Auður Þórisdóttir, partnerar hjá KPMG fara yfir hvernig lesa skuli ársreikninga ásamt að vera með kynningu á KPMG og spjall.
Ársreikningar eru mikilvægt tæki í viðskiptalífinu og því er nauðsynlegt fyrir aðila þess að skilja samhengi einstakra liða í ársreikningum og vita hverjar eru helstu kennitölur hans.
Við vonum sem flesta konur sjái sér fært um að mæta.
Vinsamlega látið vita um þátttöku í e-mail sigrunbodvars@simnet.is
|
 |
|
4. 05. 06 Happy Hour |
Apótekið
|
 |
|
26. 04. 06 Morgunverðarfundur |
Húsnæði Glitnis að Kirkjusandi kl. 8.15 EFNI: Birna Einarsdóttir framkvæmdastjóri markaðssviðs Glitnis fjallar um umbreytinguna frá Íslandsbanka til Glitnis - Frá hugmynd að framkvæmd.
|
 |
|
19. 04. 06 FKA - Suðurland |
Fulltrúar frá Íslandsbanka ætla að mæta og kynna þá þjónustu sem bankinn býður fyrirtækjum. |
 |
|
6. 04. 06 Happy Hour /Akureyri |
Parken Happy hour” á Parken (Gamla Fiðlaranum) við Skipagötu á Akureyri fimmtudaginn 6.apríl kl. 17-19 og matur á eftir fyrir þær sem vilja, ef stemmningin verður þannig. Þar er um að gera fyrir konur að mæta og spjalla þar sem tími gefst sjaldan til þess á styttri fundum. Óþarfi er að skrá sig á Happy hour, bara mæta og "mingla". |
 |
|
6. 04. 06 Happy Hour- Reykjavík og nágrenni |
Apótekið Kæru FKA konur hér er tækifærið til að kynnast og efla tegslanetið. |
 |
|
16. 03. 06 Fyrsti fundur FKA- Suðurland |
Rauða Húsið á Eyrarbakka Fyrsti fundur FKA á Suðurlandi verður haldinn fimmtudaginn 16. mars nk. kl. 9-10, í Rauða Húsinu á Eyrarbakka.
Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona ætlar að fjalla um hvernig á að koma sér á framfæri í fjölmiðlum og hvernig á að koma fram í fjölmiðlum.
Yfirskrifin er :
FRAMKOMA Í FJÖLMIÐLUM - ERTU SJÁANLEG? |
 |
|
10. 03. 06 FKA - Akureyri |
Friðriki V Næsti fundur FKA á Norðurlandi (félags kvenna í atvinnurekstri) verður haldinn á Friðriki V föstudaginn 10. mars. kl. 12.00-13.30
Fyrirlesari:
Jón Ásgeir Hreinsson Studiobility. Við hvetjum ykkur til að kíkja á heimasíðuna hans www.bility.is, en Jón hefur komið víða við og notað ýmsar aðferðir við markaðssetningu.
Við hvetjum allar konur í atvinnurekstri á Norðurlandi og víðar til að mæta á skemmtilegan og fræðandi fund.
Verð:
Kr. 1500.- Fyrir félagskonur FKA en 2.300.- fyrir aðra.
Innifalið:
Súpa, brauð og kaffi.
Skráning á fka@fka.is og í síma 570 7267
|
 |
|
8. 03. 06 Fyrirlestur í samvinnu við Stjórnendaskóla HR |
Háskólnn í Reykjavík, Ofanleiti FKA heldur fyrirlestur í samvinnu við Stjórnendaskóla HR
Fyrirlesari:
Prof. Joe M. Pons sem margoft hefur komið hingað til lands og kennt í MBA náminu í HR og Stjórnendaskólanum.
Hann ferðast út um allan heim til að vinna, bæði sem ráðgjafi og kennari.
Efni:
Advertising creativity: some examples in the framework of effective marketing communications
Staður:
Húsnæði Háskólans í Reykjavík, Ofanleiti - 3. hæð í húsnæði Stjórnendaskólans
Tími:
Miðvikudagurinn 8. mars kl. 8.30 - 10.30
Verð:kr. 4.900.- fyrir félagskonur FKA - kr. 6.900.- fyrir aðra
Innifalið:
Fyrirlestur á ensku og morgunverður
Skráning: fka@fka.is
|
 |
|
3. 03. 06 Kynnign á fyrirtæki- Maður Lifandi |
Hæðarsmára 6 Kópavogi Sjá kynningu undir fréttir á heimasíðnni. |
 |
|
2. 03. 06 Happy Hour |
Apótekið
|
 |
|
16. 02. 06 Ráðstefna um mörkun ( branding ) |
Bláa Lónið Ráðstefna um mörkun ( branding )
Verður haldin í Bláa Lóninu,
fimmtudaginn 16.febrúar kl 11:30 / 13:15 - 16:30
Frekari upplysingar þegar nær dregur. |
 |
|
8. 02. 06 Morgunverðarfundur |
Hóltel Loftleiðir Fundurinn er frá kl. 8:15 - 9:45 |
 |
|
2. 02. 06 Happy Hour |
Apótekið Fimmtudaginn 2. febrúar 2006. Happy hour á Apótekinu frá kl, 17:00 - 19:00. Gott tækifæri til að hittast og spjalla saman. |
 |
|
26. 01. 06 FKA - VIÐURKENNINGIN |
Súlnasalur Hótel Sögu Fimmtudaginn 26. janúar 2006. |
 |
|
16. 11. 05 Hádegisverðarfundur FKA |
Hótel Holt, Þingholt. Kl. 12-13.30, "Standandi" hádegismatur - spjall og hlegið -
Fluttir verða tveir fyrirlestrar sem slógu í gegn á tengslaráðstefnunni á Biföst í vor:
Katrín Fjeldsted læknir:
"Það bjargaði öllu þegar maðurinn fór að búa til mat upp úr sextugu!"
- Það sem vinnandi konur vantar alltaf er eiginkona!" - Jóna Hrönn Bolladóttir miðborgarprestur: “Er gott að vinna fyrir Guð?"
Verð kr. 2.000.- Til að flýta fyrir skráningu á sjálfum fundinum er gott að koma með reiðufé!
Munið eftir að skrá ykkur á fka@fka.is
Takið með ykkur félagsskírteinin og nafnspjöld |
 |
|
7. 11. 05 Setið í stjórnum fyrirtækja |
Stjórnendaskóli HR, Ofanleiti 2 Námeksiðið er haldið í húsakynnum Stjórnendaskóla HR, Ofanleiti 2 kl. 8.30-12.30. Um er að ræða sérsniðið námskeið fyrir FKA,
Leiðbeinendur eru Þórdís Sigurðardóttir og Þóranna Jónsdóttir frá Stjórnendaskóla HR og verður námskeiðið haldið í húsakynnum skólans. Verð: kr. 4.900.
Námskeiðið miðar að því að undirbúa þátttakendur fyrir stjórnarsetu og auka þekkingu þeirra á hlutverki stjórna sem og á þáttum sem tengjast ábyrgð og skyldum stjórnarmanna. Námskeiðið er tvíþætt; annars vegar innlegg um faglegan- og lagalegan ramma og aðra hagnýta þætti, hins vegar umræður um störf í stjórnum fyrirtækja þar sem leiðbeinendur miðla af reynslu sinni af stjórnarstörfum.
Meðal efnisþátta eru:
• Hlutverk stjórna
• Straumar og stefnur í stjórnarháttum (e. corporate governance)
• Leiðbeiningar Kauphallar Íslands og Verslunarráðs um stjórnarhætti
• Skyldur og ábyrgð stjórnarmanna
• Val á stjórnarmönnum
• Mat á störfum stjórna
• Konur í stjórnum
• Hagsmunaárekstrar og afsögn
• Stjórnarformenska
Skráningar á www.fka.is eða í síma 570-7267.
Fræðslunefnd FKA
|
 |
|
3. 11. 05 Happy hour |
Apótekið kl. 17-19 Við minnum á "Happy Hour" í dag.
Fyrstu tvö skiptin hafa heppnast mjög vel og hafa konur verið mjög ánægðar með að fá tækifæri til að hittast og spjalla saman í rólegheitunum.
Við vonumst til að sjá ykkur sem flestar!
f.h. stjórnar FKA
Bestu kveðjur
Margrét Kristmannsdóttir
formaður |
 |
|
31. 10. 05 Setið í stjórnum fyrirtækja |
Stjórnendaskóli HR - Ofanleiti 2 Fullbókað er á námskeiðið Setið í stjórnum fyrirtækja sem haldið verður 31.október.
Skráning er hafin á annað námskeið sem haldið verður 8. nóvember í húsakynnum Stjórnendaskóla HR, Ofanleiti 2.
Þriðjudaginn 8. nóvember kl. 8.30-12.30 verður haldið sérsniðið námskeið fyrir FKA, Setið í stjórnum fyrirtækja. Leiðbeinendur eru Þórdís Sigurðardóttir og Þóranna Jónsdóttir frá Stjórnendaskóla HR og verður námskeiðið haldið í húsakynnum skólans. Verð: kr. 4.900.
Setið í stjórnum fyrirtækja
Námskeiðið miðar að því að undirbúa þátttakendur fyrir stjórnarsetu og auka þekkingu þeirra á hlutverki stjórna sem og á þáttum sem tengjast ábyrgð og skyldum stjórnarmanna. Námskeiðið er tvíþætt; annars vegar innlegg um faglegan- og lagalegan ramma og aðra hagnýta þætti, hins vegar umræður um störf í stjórnum fyrirtækja þar sem leiðbeinendur miðla af reynslu sinni af stjórnarstörfum.
Meðal efnisþátta eru:
• Hlutverk stjórna
• Straumar og stefnur í stjórnarháttum (e. corporate governance)
• Leiðbeiningar Kauphallar Íslands og Verslunarráðs um stjórnarhætti
• Skyldur og ábyrgð stjórnarmanna
• Val á stjórnarmönnum
• Mat á störfum stjórna
• Konur í stjórnum
• Hagsmunaárekstrar og afsögn
• Stjórnarformenska
Skráningar á www.fka.is eða í síma 570-7267.
Með bestu kveðju,
Fræðslunefnd FKA
|
 |
|
27. 10. 05 Morgunverðarfundur: Kynning á Netbókhaldi.is |
Íslandsbanki v. Kirkjusand Kæri FKA félagi!
Íslandsbanki býður þér til morgunverðarfundar þar sem Netbókhald.is verður kynnt. Netbókhald.is er fullkomið, einfalt og aðgengilegt bókhaldskerfi sem er sérhannað fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Fundurinn verður í Íslandsbanka við Kirkjusand fimmtudaginn 27. október kl. 8.15-9.30.
Dagskrá:
Setning fundar.
Birna Einarsdóttir framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Íslandsbanka
Netbókhald.is
Guðmundur Kristjánsson framkvæmdastjóri Netbókhalds.is
Nýjungar í Fyrirtækjabankanum
Sveinn Friðrik Sveinsson sérfræðingur markaðs- og sölusviðs Íslandsbanka
Umræður
Vinsamlega staðfestið þátttöku með tólvupósti á netfangið@helgag is, eða í síma 570-7267 fyrir hádegi.
|
 |
|
21. 10. 05 Ráðstefna í tilefni 10 ára afmælis kvennaráðstefnunnar í Peking |
Háskóli Íslands - aðalbygging UNIFEM á Íslandi og Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands boða til ráðstefnu föstudaginn 21. október kl. 9.15-16.15 í hátíðarsal Háskóla Íslands, aðalbyggingu.
Ráðstefnan er haldin í tilefni af því að í haust eru liðin 10 ár frá kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Peking en þar var samþykkt framkvæmdaáætlun í málefnum kvenna – Pekingáætlunin – sem nær yfir tólf málaflokka, allt frá fátækt kvenna og stöðu þeirra á átakasvæðum til menntunar, heilsu og aukinna valda. Árið 2000 var haldið sérstakt aukaallsherjarþing í New York til að mæla hvernig gengið hefði og um mánaðarmótin febrúar/mars á þessu ári var haldinn sérstakur fundur kvennanefndar SÞ til að kanna hver staðan er nú í málefnum kvenna á heimsvísu. Þar er skemmst frá að segja að miðað hefur áfram í sumum málum en í öðrum hefur verið um afturför að ræða. Í stórri skýrslu frjálsra félagasamtaka sem kynnt var í byrjun árs 2005 kemur fram að aukin hervæðing, alþjóðavæðing, nýkapítalismi og bókstafstrú eigi hvað stærstan hlut í versnandi stöðu kvenna víða um heim og er fullyrt að ekki hafi verið staðið við Pekingáætlunina í veigamiklum atriðum.
Á ráðstefnunni flytja þekktar erlendar fræðikonur og baráttukonur erindi. Þar er fyrst að nefna prófessor Anne Phillips frá London School of Economics, sem hefur einkum rannsakað og skrifað um lýðræðishallann. Osnat Lubrani er svæðisstjóri UNIFEM í Austur-Evrópu, með aðsetur í Bratislava, Rosa Logar er frá samtökunum Women Against Violence Europe (WAVE) and Domestic Abuse Intervention Centre í Austurríki, Jane Bayes er prófessor í stjórnmálafræði við California State University, Flora Macula kemur frá UNIFEM í Kosovo og Mieke Verloo, er prófessor við Háskólann í Nijmegen í Hollandi og ráðgjafi framkvæmdarstjórnar ESB og Evrópuráðsins um stefnumótun jafnréttismála. Meðal fyrirlesara frá Íslandi eru Rachel Lorna Johnstone lektor við Háskólann á Akureyri, Lilja Mósesdótti prófessor við Viðskiptaháskólann á Bifröst, Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum og Jónína Einarsdóttir lektor við Háskóla Íslands.
Að loknum opnunarfyrirlestrum verða pallborðsumræður með þátttöku fyrirlesara og þeirra Sólveigar Pétursdóttur forseta Alþingis, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns Samfylkingarinnar, Þorgerðar Einarsdóttur dósents í kynjafræðum og Kristínar Ástgeirsdóttur sagnfræðings. Umræðunum stýrir Sigríður Lillý Baldursdóttir vísindasagnfræðingur sem flutti ræðu Íslands og var varaformaður íslensku sendinefndarinnar í Peking.
Eftir hádegi verður unnið í þremur málstofum sem fjalla um: Konur og ofbeldi, lýðræði og opinbera stefnumótun í jafnréttismálum og efnahagsleg og félagsleg réttindi kvenna.
Málþingið er ókeypis og öllum opið.
Icelandair, utanríkisráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, bandaríska sendiráðið og Reykjavíkurborg styðja ráðstefnuna.
www.rikk.hi.is |
 |
|
21. 10. 05 Ráðstefna í tilefni Kvennafrídagsins |
Háskóli Íslands,hátíðasalur UNIFEM á Íslandi og Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands boða til ráðstefnu föstudaginn 21. október kl. 9.15-16.15 í hátíðarsal Háskóla Íslands, aðalbyggingu.
Ráðstefnan er haldin í tilefni af því að í haust eru liðin 10 ár frá kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Peking en þar var samþykkt framkvæmdaáætlun í málefnum kvenna – Pekingáætlunin – sem nær yfir tólf málaflokka, allt frá fátækt kvenna og stöðu þeirra á átakasvæðum til menntunar, heilsu og aukinna valda. Árið 2000 var haldið sérstakt aukaallsherjarþing í New York til að mæla hvernig gengið hefði og um mánaðarmótin febrúar/mars á þessu ári var haldinn sérstakur fundur kvennanefndar SÞ til að kanna hver staðan er nú í málefnum kvenna á heimsvísu. Þar er skemmst frá að segja að miðað hefur áfram í sumum málum en í öðrum hefur verið um afturför að ræða. Í stórri skýrslu frjálsra félagasamtaka sem kynnt var í byrjun árs 2005 kemur fram að aukin hervæðing, alþjóðavæðing, nýkapítalismi og bókstafstrú eigi hvað stærstan hlut í versnandi stöðu kvenna víða um heim og er fullyrt að ekki hafi verið staðið við Pekingáætlunina í veigamiklum atriðum.
Á ráðstefnunni flytja þekktar erlendar fræðikonur og baráttukonur erindi. Þar er fyrst að nefna prófessor Anne Phillips frá London School of Economics, sem hefur einkum rannsakað og skrifað um lýðræðishallann. Osnat Lubrani er svæðisstjóri UNIFEM í Austur-Evrópu, með aðsetur í Bratislava, Rosa Logar er frá samtökunum Women Against Violence Europe (WAVE) and Domestic Abuse Intervention Centre í Austurríki, Jane Bayes er prófessor í stjórnmálafræði við California State University, Flora Macula kemur frá UNIFEM í Kosovo og Mieke Verloo, er prófessor við Háskólann í Nijmegen í Hollandi og ráðgjafi framkvæmdarstjórnar ESB og Evrópuráðsins um stefnumótun jafnréttismála. Meðal fyrirlesara frá Íslandi eru Rachel Lorna Johnstone lektor við Háskólann á Akureyri, Lilja Mósesdótti prófessor við Viðskiptaháskólann á Bifröst, Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum og Jónína Einarsdóttir lektor við Háskóla Íslands.
Að loknum opnunarfyrirlestrum verða pallborðsumræður með þátttöku fyrirlesara og þeirra Sólveigar Pétursdóttur forseta Alþingis, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns Samfylkingarinnar, Þorgerðar Einarsdóttur dósents í kynjafræðum og Kristínar Ástgeirsdóttur sagnfræðings. Umræðunum stýrir Sigríður Lillý Baldursdóttir vísindasagnfræðingur sem flutti ræðu Íslands og var varaformaður íslensku sendinefndarinnar í Peking.
Eftir hádegi verður unnið í þremur málstofum sem fjalla um: Konur og ofbeldi, lýðræði og opinbera stefnumótun í jafnréttismálum og efnahagsleg og félagsleg réttindi kvenna.
Málþingið er ókeypis og öllum opið.
Icelandair, utanríkisráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, bandaríska sendiráðið og Reykjavíkurborg styðja ráðstefnuna.
UNIFEM á Íslandi og Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands boða til ráðstefnu föstudaginn 21. október kl. 9.15-16.15 í hátíðarsal Háskóla Íslands, aðalbyggingu.
Ráðstefnan er haldin í tilefni af því að í haust eru liðin 10 ár frá kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Peking en þar var samþykkt framkvæmdaáætlun í málefnum kvenna – Pekingáætlunin – sem nær yfir tólf málaflokka, allt frá fátækt kvenna og stöðu þeirra á átakasvæðum til menntunar, heilsu og aukinna valda. Árið 2000 var haldið sérstakt aukaallsherjarþing í New York til að mæla hvernig gengið hefði og um mánaðarmótin febrúar/mars á þessu ári var haldinn sérstakur fundur kvennanefndar SÞ til að kanna hver staðan er nú í málefnum kvenna á heimsvísu. Þar er skemmst frá að segja að miðað hefur áfram í sumum málum en í öðrum hefur verið um afturför að ræða. Í stórri skýrslu frjálsra félagasamtaka sem kynnt var í byrjun árs 2005 kemur fram að aukin hervæðing, alþjóðavæðing, nýkapítalismi og bókstafstrú eigi hvað stærstan hlut í versnandi stöðu kvenna víða um heim og er fullyrt að ekki hafi verið staðið við Pekingáætlunina í veigamiklum atriðum.
Á ráðstefnunni flytja þekktar erlendar fræðikonur og baráttukonur erindi. Þar er fyrst að nefna prófessor Anne Phillips frá London School of Economics, sem hefur einkum rannsakað og skrifað um lýðræðishallann. Osnat Lubrani er svæðisstjóri UNIFEM í Austur-Evrópu, með aðsetur í Bratislava, Rosa Logar er frá samtökunum Women Against Violence Europe (WAVE) and Domestic Abuse Intervention Centre í Austurríki, Jane Bayes er prófessor í stjórnmálafræði við California State University, Flora Macula kemur frá UNIFEM í Kosovo og Mieke Verloo, er prófessor við Háskólann í Nijmegen í Hollandi og ráðgjafi framkvæmdarstjórnar ESB og Evrópuráðsins um stefnumótun jafnréttismála. Meðal fyrirlesara frá Íslandi eru Rachel Lorna Johnstone lektor við Háskólann á Akureyri, Lilja Mósesdótti prófessor við Viðskiptaháskólann á Bifröst, Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum og Jónína Einarsdóttir lektor við Háskóla Íslands.
Að loknum opnunarfyrirlestrum verða pallborðsumræður með þátttöku fyrirlesara og þeirra Sólveigar Pétursdóttur forseta Alþingis, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns Samfylkingarinnar, Þorgerðar Einarsdóttur dósents í kynjafræðum og Kristínar Ástgeirsdóttur sagnfræðings. Umræðunum stýrir Sigríður Lillý Baldursdóttir vísindasagnfræðingur sem flutti ræðu Íslands og var varaformaður íslensku sendinefndarinnar í Peking.
Eftir hádegi verður unnið í þremur málstofum sem fjalla um: Konur og ofbeldi, lýðræði og opinbera stefnumótun í jafnréttismálum og efnahagsleg og félagsleg réttindi kvenna.
Málþingið er ókeypis og öllum opið.
Icelandair, utanríkisráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, bandaríska sendiráðið og Reykjavíkurborg styðja ráðstefnuna.
www.rikk.hi.is
www.rikk.hi.is |
 |
|
18. 10. 05 Púltfundur FKA |
Hótel Loftleiðir Morgunverðarfundur FKA - 18.10.05
Hótel Loftleiðir kl. 8.00-10.00.
Dagskrá: "KONUR ERU TILBÚNAR"
Framsöguerindi: Þóranna Jónsdóttir stjórnendaráðgjafi kynnir niðurstöður úr skýrslu nefndar-iðnaðar- og viðskiptaráðherra um aukinn hlut kvenna í forystusveit atvinnulífsins
Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur Samtaka iðnaðarins - „Konur eru tilbúnar“
Pallborðsumræður: Næstu skref?
Hanna Birna Kristjánsdóttir stjórnmálafræðingur og borgarfulltrúi Hanna Katrín Friðriksson framkvæmdast. stjórnunarsviðs Eimskips
Jón G. Hauksson ritstjóri Frjálsrar verslunar
Martha Eiríksdóttir stjórnarformaður EJS
Sigurður G. Guðjónsson lögfræðingur og útgefandi.
Umræðustjóri: Þór Sigfússon framkvæmdastjóri VÍ
Skráning á fka@fka.is og í síma 570 7267
Fundurinn er öllum opinn, verð kr. 2000.- |
 |
|
10. 10. 05 Heimsþing FCEM 10.-15. október |
Argentína Heimsþing FCEM 2005, Alþjóðlegs félags kvenna í atvinnurekstri.
Haldið í Buenos Aires í Argentínu dagana 9 til 13 október nk.
Jafnframt verður boðið uppá ýmsa möguleika fyrir þær sem vilja framlengja ferðina.
Yfirskrif þingsins í ár er:
Tango, Training, Argentina, Networking FCEM, Global Communication FCEM, Opportunities.
Sl tvö ár hefur FKA verið til reynslu í FCEM en verður samþykkt sem fullgilt aðildarfélag á heimsþinginu í Argentínu.
Skráningargjald félagsins er 500 US $ til 10 ágúst en þá hækkar gjaldið í 600 US $.
Ráðstefnuhótelið heitir Crown Plaza Panamericano og kostar gisting þar frá 135 US$ nóttin fyrir einstaklingsherbergi.
Hægt er að fá gistingu á hóteli í næsta nágrenni ( sem er líka fjögurra stjörnu). Verðið þar er 33 US $ á mann ef gist er í tveggja manna herbergjum.
Hægt er a finna ýmsa flugmöguleika á netinu.
Nú þegar hafa nokkra FKA konur lýst yfir áhuga á að fara til Argentínu enda er þetta spennandi land sem án efa er gaman að heimsækja.
Til þess að auðvelda alþjóðanefnd allt skipulag væri gott að heyra frá þeim sem stefna á að fara. Vinsamlegast sendið tölvupóst á ak@simnet.is
Aðalheiður Karlsdóttir
Stjórn,FKA, Alþjóðleg samskip |
 |
|
6. 10. 05 Happy hour |
Apótekið Fimmtudagurinn 6. október "Happy Hour" á Apótekinu milli 17 - 19. Stund til að hittast, spjalla saman og kynnast betur.
|
 |
|
22. 09. 05 Opnunarhóf |
Apótekið Opnunahóf - Stjórn félagsins býður til hófs í Apótekinu milli kl. 17 - 19.
Starf vetrarins kynnt - fréttablaðið kemur út - léttar veitingar |
 |
|
22. 09. 05 Eykur breidd í forystu hagnað |
Nordica Sameiginlegur fundur með Viðskiptaráði Íslands
"Eykur breidd í forystu hagnað" - haldinn kl. 8.15 |
 |
|
7. 07. 05 Golfmót FKA-Open |
Setbergsvöllur Sælar golfkonur.
Því miður þurfum við að fresta FKA-OPEN vegna ónógrar þátttöku. Og ætlum við því að færa mótsdaginn til fimmtudagsins 7. júlí kl. 13.00, ræst út af öllum teigum kl. 13.30.
Við vitum að fjöldinn allur af golfmótum eru haldin á miðjum degi og hafa verið fullbókuð og biðlistar á mörg þeirra svo að þetta er hægt og vonumst við til þess að við fáum fleiri þátttakendur í FKA-OPEN fimmtudaginn 7. júlí kl. 13:00 á Setbergsvelli.
Við hvetjum fyrirtæki til þess að bjóða sínum starfsmönnum í mótið og endilega spyrjist fyrir um það á ykkar vinnustað.
Með því að taka þátt í FKA-OPEN hjálpum við ungum krabbameinssjúlkingum að komast í Heilunar- og heilsubótarferð fyrir félaga Krafts sem eru í meðferð og eða hafa lokið meðferð nýlega, og/eða fólk sem enn er á endurhæfingarlífeyri og ekki farið að vinna fulla vinnu.
Endilega hafið samband þið viljið halda skráningu ykkar.
Með golfkveðju,
Golfnefnd FKA |
 |
|
1. 07. 05 Golfmót FKA-Open |
Setbergsvöllur Golfnefnd FKA skipa Anna Día hjá Golfleikjaskólanum, Sigrún Böðvarsdóttir og Sofia Johnson |
 |
|
29. 06. 05 Stefnumótun stjórnar |
|
 |
|
20. 05. 05 Alþjóðadagur kvenna í atvinnurekstri |
Radison Sas hótel Saga Dagskrá:
18:00 Fyrirlestrar í Sunnusal:
Frú Bola Olabisi forseti GWIIN, alþjóðlegra samtaka hugvitskvenna: Mikilvægi nýsköpunar, frá hugmynd til framleiðsluvöru, tenging milli frumkvöðla, fjárfesta og framleiðenda.
Frú Avril Owton, varaforseti BAWE, bresku systursamtaka FKA, hóteleigandi í Suður-Englandi. Reynslusaga úr viðskiptalífinu, að snúa vörn í sókn.
19:00 Fordrykkur í Súlnasal.
Að fordrykk loknum verður þríréttaður hátíðarkvöldverður í Súlnasal.
Matseðill:
Forréttur: Blandað skelfisksspjót á basilþykkni og ofnbökuðum tómötum.
Aðalréttur: Salvíukryddaðar kalkúnabringur með kartöflumosaik og kampavíns-dijonsósu.
Eftirréttur: Balsamico og Tequila marineruð jarðarber með PinaColada kókosfroðu.
Glæsileg skemmtidagskrá:
Fabúla, Margrét Kristín Sigurðardóttir, syngur og leikur á flygil eigin tónlist.
Nýkrýndir Íslandsmeistarar í samkvæmisdönsum, Jón Eyþór Gottskálksson og Helga Soffía Guðjónsdóttir sýna frábæra takta á dansgólfinu, sígildir og suður-amerískir dansar.
Verð kr. 5.900.-.
Innifalið í verðinu er:
- Dagskrá alþjóðadagsins,
- Kokteill,
- Þríréttaður kvöldverður,
- Skemmtiatriði.
Þarna gefst gott tækifæri til að eiga saman góða stund og efla samstöðu og tengslanet kvenna.
Við hvetjum konur til að fjölmenna og taka með sér gesti.
Vinsamlegast skráið þáttöku fyrir 19. maí í fka@fka.is.
Alþjóðanefnd FKA. |
 |
|
20. 05. 05 Aðalfundur FKA |
Radison Sas Hótel Sögu Aðalfundur FKA
Fundarboð
Félag kvenna í atvinnurekstri heldur 6. aðalfund sinn föstudaginn 20. maí 2005 á RadissonSAS, Sunnusal kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Stjórn félagsins hafa borist tillögur að breytingum á samþykktum félagsins, einkum 3. gr. samþykktanna. Breytingartillögurnar fylgja hjálagðar ásamt samþykktum félagsins.
Stjórn félagsins hvetur konur til að gefa kost á sér til trúnaðarstarfa fyrir félagið, í stjórn eða starfsnefndir (alþjóðanefnd, fræðslunefnd, heimasíðunefnd, móttöku- og félaganefnd og ritnefnd).
Til að auðvelda undirbúning fyrir aðalfund er æskilegt að konur sem áhuga hafa á því að gefa kost á sér til stjórnarstarfa eða í starfsnefndir tilkynni framboð sitt til formanns kjörnefndar, Hansínu B. Einarsdóttur, info@hotelglymur.is eða Sigríðar á Impru, fka@fka.is í síðasta lagi fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 17. maí n.k.
Að loknum aðalfundi hefst dagskrá í tilefni Alþjóðadags kvenna í atvinnurekstri. Sérstakir gestir verða Bola Olabisi, forseti GWIIN sem eru alþjóðleg samtök kvenna í nýsköpun og frumkvöðlafræðum og Avril Owton, varaformaður BAWE.
Dagskránni lýkur með kvöldverði í Grillinu. Þær félagskonur sem hyggjast fara í kvöldverðinn verða að skrá sig fyrir 19. mai n.k. á fka@fka.is.
Matseðill og verð er birt á heimasíðunni www.fka.is.
Á aðalfundi gefst kostur á að endurmeta starf félagsins og hitta konur sem allar hafa það sameiginlega markmið að efla samstöðu og tengslanet kvenna.
Munið: Til að hafa atkvæðisrétt á aðalfundi þurfa félagskonur að vera skuldlausar við félagið.
Með góðri FKA kveðju
Stjórn FKA
|
 |
|
26. 04. 05 Almennur félagsfundur FKA Grand Hótel kl. 20:00 |
Grand Hótel 4. hæð Boðað er til almenns félagsfundar FKA þriðjudaginn 26. apríl 2005 kl. 20:00.
Dagskrá:
1. Breytingar á 3. gr. laga félagsins um inngöngu félagsmanna.
2. Uppstillinganefnd fyrir aðalfund. Leitað efitr framboðum í stjórn FKA.
3. Önnur mál |
 |
|
19. 04. 05 Samkeppnishæfni í breyttir heimsmynd |
Nordica hótel Dagskrá
14:00 Katrín Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs og formaður FKA setur ráðstefnuna
14.10 Valgerður Sverrisdóttir, iðnðar- og viðskiptaráðherra flytur ávarp
14:20 Þróun viðskiptahugmyndar og markaðsfærsla á EVEOnline
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP hf.
14:45 Avion Group, alþjóðlegur flugrekstur í breyttri heimsmynd
Hannes Hilmarsson, framkvæmdastjóri AVION GROUP
15:10 Fjármögnun fyrirtækja, hlutverk bankanna
Elín Sigfúsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Landsbankans
15:35 Kaffihlé
16:05 Mótlæti í viðskiptum
Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans
16:30 Að hitta sjálfan sig fyrir- leiðtogahlutverk kvenna í atvinnulífi framtíðar
Haukur Ingi Jónasson, sálgreinir og ráðgjafi hjá Nordica ráðgjöf ehf.
16:55 Sigrún Guðjónsdóttir, forstjóri Tæknivals og formaður félagsins Auður, slítur ráðstefnunni
Fundarstjóri er Helga Sigrún Harðardóttir
Skráning á fka@fka.is eða í síma 570-7267.
|
 |
|
13. 04. 05 Alþjóðleg ráðstefna |
Í tilefni af 75 ára afmæli frú Vigdísar Finnbogadóttur þann 15. apríl nk. býður Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum upp á mjög áhugaverða alþjóðlega ráðstefnu sem er öllum opin, dagana 13.-15. apríl nk. Þar gefst ómetanlegt tækifæri til að hlýða á framámenn og virta sérfræðinga víða að úr heiminum ræða um hnattvæðingu og fjölbreytileika og áhrif þess á menningu og tungumál, efnahagslíf, stjórnmál, tækniþróun og viðskipti.
Hægt er að bóka sig á ráðstefnuna í heild, eða hvorn daginn fyrir sig, einnig einstaka atburði.
Við viljum vekja sérstaka athygli FKA kvenna á dagskrá föstudagsins sem er mjög áhugaverð fyrir alla sem stunda viðskipti og vilja fylgjast með alþjóðlegum umræðum í því sambandi. Ef allur dagurinn er bókaður kostar hann kr. 6.500.- og er dagskráin eftirfarandi:
A. Viðskipti og menning – lykilfyrirlestur og málstofa: Hátíðarsalur HÍ, kl. 8.30-11.45
· Viðskipti og menning. Fyrirlestur Rufus H. Yerxa, varaframkvæmdastjóra Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO)
· Málstofan „Heimsviðskipti og menning“ (Global Trade and Culture)
Hádegisverður: Hótel Saga, Súlnasalur
B. Veljum Vigdísi - þrír lykilfyrirlestrar og málstofa: Háskólabíó, kl. 13.00-17.15
· Fyrirlestur Mary Robinson, forseta Írlands 1990-1997
· Málstofan „Veljum Vigdísi! Á forsetastóli 1980-1996“
· Fyrirlestur: Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur
· Fyrirlestur: Kristín Ingólfsdóttir, prófessor.
Einnig er hægt að velja á milli A og B og kostar þá kr. 3.000.- hvort um sig.
Sjá nánar um dagskrána og skráningu á vefslóðinni http://www.vigdis.hi.is/.
Nánari upplýsingar
Lára Sólnes: larasol@hi.is, Sigfríður Gunnlaugsdóttir: sigfrid@hi.is og Inga Sólnes: inga@yourhost.is.
|
 |
|
11. 04. 05 Stjórnarfundur FKA |
Humarhúsið
|
 |
|
15. 03. 05 Kynningarfundur FKA |
Félaganefnd FKA er að undirbúa kynningarfund fyrir væntanlega félaga og nýliða, þ.e. FKA félaga sem gengið hafa inn í félagið á síðustu 2 árum eða eldri félaga, sem vilja kynnast félaginu betur.
Dagskrá fundarins verður fyrst og fremst byggð upp á kynningu á FKA, hvað félagið getur gert fyrir þig og hvernig þú átt að grípa tækifærin þegar þau gefast. Nokkrir eldri félagar munu koma og deila FKA reynslu sinni með ykkur.
Fundurinn er fyrirhugaður um miðjan mars mánuð. Nánari tímasetning verður send út í byrjun mars
|
 |
|
2. 03. 05 Morgunverðarfundur í Íslandsbanka Kirkjusandi |
Kirkjusandi Íslandsbanki býður til morgunverðarfundar í Íslandsbanka, Kirkjusandi, miðvikudaginn 2. mars kl. 8:15 til 9:45.
Dagskrá:
1. Opnun
Birna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðss- og sölumála Íslandsbanka
2. Nýjungar í Fyrirtækjabankanum
Ragnar Svanur Vilhjálmsson, hugbúnaðarsérfræðingur hjá Íslandsbanka
3. Gjaldeyrisvarnir og hvernig fyrirtæki geta nýtt sér þær í viðskiptum
Katrín Oddsdóttir, sérfræðingur hjá Markaðsviðskiptum Íslandsbanka
4. Ávöxtun í verðbréfasjóðum, skammtímaávöxtun og uppbygging eignasafns. Hvaða ávöxtunarleiðir henta fyrirtækjum til skemmri og lengri tíma?
Helga Indriðadóttir, sjóðstjóri hjá Eignastýringu Íslandsbanka
Boðið verður upp á morgunverð að hætti hússins.
Hlökkum til að sjá þig.
Vinsamlegast staðfestu þátttöku með nafni þátttakanda og netfangi með því að senda tölvupóst til kynningarfundur@isb.is eða til Sigrúnar Böðvarsdóttur í síma 696-7531þ
AKUREYRI – Athugið að konum fyrir norðan stendur til boða að fylgjast með fundinum í útibúi Íslandsbanka á Akureyri. Þátttaka þar tilkynnist til fyrirtaeki@isb.is
|
 |
|
1. 03. 05 Fundarstjórn og meðferð tillagna |
Vesturgata 5 - 2. hæð Fræðslunefnd FKA í samstarfi við Þórhildi Gunnarsdóttir stendur fyrir tveggja kvölda námskeiði 1. og 8. mars í námskeiðasal hjá Eðalvínum Vesturgötu 5, önnur hæð kl. 19:30. Leiðbeinandi er Þórhildur Gunnarsdóttir. Námskeið þetta kostar kr. 4.500 og eru námskeiðisgjöld innifalin. Vinsamlega skráið ykkur hjá Þórhildi tmg@pfaff.is. Við hvetjum allar FKA konur sem hafa áhuga á þessu efni að skrá sig strax. Frábært námskeið fyrir alla þá sem hafa áhuga á að bæta sig í fundarstjórn og meðferð tillagna.
|
 |
|
23. 02. 05 Heimsókn í Iðnskóla Hafnarfjarðar |
Flatahraun 12, Hafnarfirði Spennandi heimsókn í list- og hönnunardeild skólans. Stuttur fyrirlestur um nýjustu strauma í framsetningu á vörum og gluggaútstillingum. Kíkt verður í kennslustundir og skoðað það sem nemendur í deildinni eru að vinna að. |
 |
|
3. 02. 05 Púltfundur |
Hótel Loftleiðir Aðalgestur fundarins verður Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis. |
 |
|
20. 01. 05 FKA - viðurkenningin |
Hótel Saga - Súlnasalur Fka viðurkenningin verður afhent í Súlnasal Hótel Sögu kl. 16:30 fimmtudaginn 20. janúar nk. |
 |
|
1. 12. 04 Jólafundur FKA - hlaðborð og huggulegheit |
IÐNÓ
|
 |
|
11. 11. 04 Morgunverðarfundur - Tímastjórnun með Thomasi Möller |
Hótel Loftleiðir - Víkingasalur Fyrirlestur um tímastjórnun sem Thomas Möller, framkvæmdastjóri Thorarensen Lyf annast.
Fyrirtækjakynning
Morgunverðarhlaðborð kr. 1500. |
 |
|
20. 10. 04 FKA fundur með Gísla Marteini |
Hótel Borg Hvernig á að koma fyrirtækinu á framfæri?
Gísli Marteinn Baldursson mun fjalla um fjölmiðla, framkomu og fleira í fyrirlestri og svara spurningum frá FKA konum.
Einnig verður sagt frá nýafstöðnu FCEM heimsþingi o.fl. |
 |
|
20. 10. 04 Morgunverðarfundur KB banka |
Borgartúni 19 Dagskrá:
· KB banki og sérstaða hans
- Hreiðar Már Siguðsson, forstjóri
· Þjónusta í boði fyrir stærri fyrirtæki
- Björk Þórarinsd., aðstoðarframvstj. á Fyrirtækjasviði
· Þjónusta í boði fyrir smærri fyrirtæki
- Helena Jónsd. Forstöðumaður Sölu og þróunardeildar
Farið verður m.a. yfir hvaða þættir það eru sem skipta fyrirtæki mestu máli varðandi fjármálaþjónustu og hvernig KB banki mætir þeim þörfum.
|
 |
|
10. 10. 04 52. heimsþing FCEM |
Glasgow-Skotland Anna Bretaprinsessa mun setja þingið og er dagskrá þess að vanda mjög áhugaverð.
Á þinginu verður aðaláherslan lögð á samskipti og tengslamyndun í heimi nútímans. Erum við á réttri leið? Hvað getum við gert betur?
Sérstaklega verður unnið með tengslamyndun milli kvenna í atvinnurekstri, mikilvægi fjölmiðla við auka sýnileika og trúverðugleika og þjóðfélagslega ábyrgð kvenna.
Fjallað verður um frumkvöðla framtíðarinnar.
Einnig verður fjallað um tengslamyndun við hina nýju og stærri Evrópu og hvernig hægt sé að nýta stærri markaði.
Þetta ásamt ýmsu fleiru kemur til með að nýtast FKA konum í því sem þær eru að gera og er ómetanlegt tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn og ná sér í mikinn fróðleik og ógleymanlega skemmtun.
Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á netinu á slóðinni; www.bawescotland.org.uk. Þær sem þurfa á aðstoð að halda við skráninguna geta snúið sér til Aðalheiðar Héðinsdóttur, netfang ak@simnet.is
Þær sem nú þegar hafa skráð sig eru vinsamlegast beðnar um að senda Aðalheiði tölvupóst, ak@simnet.is, en það er NAUÐSYNLEGT vegna upplýsingaöflunar fyrir kynningarbækling og boðunar á undirbúnings- og kynningarfundi fyrir ferðina.
|
 |
|
16. 09. 04 5 ára afmæli og fyrsti fundur starfsársins |
Laugar Spa - Laugardal Fyrsti fundur starfsársins verður haldinn í húsnæði Lauga SPA í Laugardalnum, fimmtudaginn 16. septemer n.k. frá kl. 17:00 til 19:00. Þar verður m.a.fagnað 5 ára afmæli FKA en félagið var stofnað í apríl 1999.
Dagsdráin verður fjölbreytt að vanda.
- Farið verður yfir sögu félagsins í máli og myndum
- Vönduð og metnaðarfull vetrardagskrá kynnt
- Hafdís Björnsdóttir, eigandi Lauga Spa býður konum að skoða starfsemi sína
- Uppákomur
- Óvæntur glaðningur
- Léttar veitingar í föstu og fljótandi formi
- Hópmyndataka
Hefjum vetrarstarfið í glöðum hópi og taktu endilega með þér góða gesti.
Verð per mann er kr. 1000.
Að lokinni afmælishátið gefst konum kostur á að heimsækja Kaffi Flóru og snæða léttan dýrindis kvöldverð hjá Marenzu Poulsen. Verð kr. 2.390.-
Tilkynning um þátttöku í kvöldverði þar að berast á fka@fka.is fyrir 15. sept. nk.
|
 |
|
1. 07. 04 FKA-Open |
Vellir Golfklúbbs Setbergs Félaga kvenna í atvinnurekstri stendur fyrir opnu golfmóti fyrir félagskonur og aðrar áhugasamar konur.
Golfmótið er haldið til styrktar Golfsambandi Fatlaðra til að efla golfiðkun fatlaðra barna og unglinga.
Spilað verður á aðalvelli og par3 velli, 9 holur og ræst út af öllum teigum kl. 17.00
FLOTT VERÐLAUN OG GÓÐAR VEITINGAR
|
 |
|
23. 05. 04 Akureyrarferð |
Fyrirhuguð er hópferð FKA kvenna til Akureyrar m.a. til að hitta og kynnast betur norðankonum sem taka munu á móti hópnum. Nánar auglýst síðar. |
 |
|
21. 05. 04 Aðalfundur FKA og alþjóðadagur |
Aðalfundur FKA og Alþjóðadagurinn verða haldnir sameiginlega. Nánar auglýst síðar |
 |
|
29. 04. 04 Frumkvöðlaþing |
Grand hótel Frumkvöðlaþing undir yfirskriftinni Nýsköpun - sóknarfæri framtíðar, verður haldið 29. apríl nk. frá kl 9:00 til 13:30 á Grand Hótel Reykjavík.
Markmið Frumkvöðlaþings er að hvetja til umræðu um þátt frumkvöðla í nýsköpun, starfsskilyrði þeirra og stuðning.
Á þinginu er ætlunin að fá fram mismunandi sýn, álit og niðurstöður þeirra fjölmörgu hagsmunaaðila sem að umræðuefninu. Gert er ráð fyrir að þær niðurstöður sem fram koma muni gagnast hinu opinbera við aðkomu og stuðning við frumkvöðlastarf og nýsköpun. öllum opið. Þátttökugjald er 2000 kr.
Nánari upplýsingar og skráning eru á www.impra.is eða hjá Sigríði Ingvarsdóttur, upplýsingafulltrúa Impru í síma 570 7267 si@iti.is. |
 |
|
15. 04. 04 Púltfundur |
Hótel Loftleiðir
|
 |
|
23. 03. 04 Ráðstefna FKA |
Hótel Holt Ráðstefna FKA undir yfirskriftinni Tengsl eru tækifæri fer fram 23. mars 2004 á Hótel Holti, Þingholti. Tengslamyndun verður aðalefni ráðstefnunnar. Tekið verður á ýmiskonar tengslum svo sem tengsl kvenna innan FKA, öflun viðskiptatengsla, tengsl landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis, alþjóðleg tengsl og fleira. Ráðstefnan hefst kl. 13 og stendur til 17:30 og síðan er sameiginlegur málsverður að ráðstefnu lokinni..
|
 |
|
18. 02. 04 Febrúarpúltið - Heimsókn í Kaffitár |
Kaffitár í Njarðvík FKA kona ársins, Aðalheiður Héðinsdóttir, verður heimsótt í nýju kaffiverksmiðjuna. Ætlunin er að skoða verksmiðjuna, fá kynningu á fyrirtækinu og eiga saman skemmtilega stund. |
 |
|
29. 01. 04 FKA kona ársins 2004 |
NASA við Austurvöll FKA viðurkenningin 2003
Veitt verður FKA viðurkenningin, hvatningarviðurkenning og þakkarviðurkenning FKA
Haldið verðu hóf af því tilefni á skemmtistaðnum NASA við Austurvöll fimmtudaginn 29. janúar 2004 kl. 16:30-18:30 |
| Meira... |
 |
|
10. 12. 03 Jólafundur FKA 2003 |
Hótel Loftleiðir Jólafundur FKA verður að þessu sinni haldinn á Hótel Loftleiðum, miðvikudagskvöldið 10. desember. Í boði verður jólahlaðborð að hætti Marentzu Poulsen félagkonu í FKA.
|
 |
|
20. 11. 03 Happy Hour |
Nánari upplýsingar síðar. |
 |
|
12. 11. 03 Jólafötin og auglýsingar |
Iðnó-við Tjörnina Hádegisverðarfundur FKA verður haldinn í veitingahúsinu Iðnó við Tjörnina miðvikudaginn 12. nóvember 2003 kl. 12:00-14:00
Að þessu sinni ákvað stjórnin að hafa Púlitð með svolítið öðru sniði en venjulega.
Mun fundurinn verða sambland af tískusýningu og fræðslu um auglýsingamál. Ákveðið hefur verið að gefa fyrirtækjum sem rekin eru af félagskonum í FKA og eru í innflutningi á fatnaði, eða eru að framleiða eða hanna fatnað, tækifæri á að taka þátt í tískusýningu og kynna þar með fyrirtækin sín i leiðinni. Er ekki að efa að um stórglæsilega sýningu verður að ræða.
Halla Helgadóttir, grafískur hönnuður og verkefnisstjóri hjá auglýsingastofunni Fíton heldur erindi um hvernig best sé að nýta auglýsingaféð fyrir jólin á sem áhrifaríkastan hátt.
Sjáum það nýjasta í fatatískunni og hlýðum á fróðlegt innlegg sérfræðings í auglýsingamálum.
Hvetjum þig til að taka með nafnspjald þitt eða fyrirtækis þíns því við ætlum í skemmtilegan nafnspjaldaleik.
Þú ert hjartanlega velkomin og endilega taktu með þér gest. Skráning hjá Elínu á Impru fka@fka.is
Verð með hádegisverði kr. 2.000,-
Með kærri kveðju,
Stjórn FKA |
| Meira... |
 |
|
23. 10. 03 Kynningarfundur fyrir nýjar konur |
Apótekið, 5. hæð Haldinn verður kynningarfundur fyrir nýja konur. Gefinn hefur verið út skemmtilegur kynningarbæklingur um FKA. |
 |
|
2. 10. 03 WIN -alþjóðleg ráðstefna í Sviss fyrir konur í atvinnurekstri og stjórnunarstörfum |
Lausanne í Sviss 2.-6. október http://www.winconference.net |
 |
|
1. 10. 03 51 heimsráðstefna FCEM - World Association of Women Entrepreneurs |
Mauritius http://www.fcem-51st-worldcongress.com/ |
 |
|
29. 09. 03 Fundur um nýsköpun og fjármögnun verkefna |
Grand Hótel Morgunverður og nýsköpun í boði Impru
Áhugaverður fundur um nýsköpun og fjármögnun verkefna á Grand Hótel Reykjavík n.k.
mánudag 29. september kl. 8:30 til 12:00.
Morgunverður í boði Impru nýsköpunarmiðstöðvar.
Vonumst til að sjá þig og eða fulltrúa fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar:
Pdf skjal - http://www.iti.is/nyskopun.pdf
Vefslóð ? http://www.impra.is
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á veffangið innritun@iti.is |
 |
|
20. 08. 03 The Nordic Conference on Women entrepreneurs |
Radison SAS Gardemoen
|
 |
|
19. 06. 03 Hamhleypur-Konur í atvinnulífinu. |
|
| Meira... |
 |
|
28. 05. 03 Aðalfundur FKA |
Súlnasalur, Hótel Saga
|
| Meira... |
 |
|
17. 05. 03 Óvissuferð FKA 2003 |
Í ár verður ferðast með rútu í austurátt og verður m.a. farið í snjósleðasafari á Mýrdalsjökli. Sjón verður sögu ríkari.
Félagskonur eru hvattar til að taka þátt í óvissuferðinni. Það er reynsla þeirra félagskvenna sem tóku þátt í síðustu ferð að betri hópur og skemmtun er vandfundin auk þess sem að í óvissuferðinni kynnast félagskonur vel og bindast vinarböndum |
 |
|
1. 11. 02
|
|
 |
|
20. 03. 02 Happy Hour |
Apótekið
|
 |
|
20. 03. 02 Happy Hour |
Apótekið
|
 |
|
20. 03. 02 Happy Hour |
Apótekið
|
 |
|
20. 03. 02 Happy Hour |
Apótekið
|
 |
|
20. 03. 02 Happy Hour |
Apótekið
|
 |
|
20. 03. 02 Happy Hour |
Apótekið Fimmtudaginn 2. mars "Happy hour" á Apótekinu frá kl17:00 - 19:00. |
 |
|
20. 02. 02 "Happy Hour" |
Apótekið Fimmtudagurinn 2. febrúar "Happy Hour" á Apótekinu milli 17 - 19. Stund til að hittast, spjalla saman og kynnast betur. |
 |
|
20. 02. 02 Happy Hour |
Apótekið Fimmtudagurinn 2. febrúar "Happy Hour" á Apótekinu milli 17 - 19. Stund til að hittast, spjalla saman og kynnast betur. |
 |
|
20. 12. 01 Kvöldverðarfundur FKA - aðventugleði |
Nánari auglýst síðar. |
 |
|
20. 12. 01 Happy Hour - aðventugleði |
Iða Lækjargötu
|
 |
|
1. 11. 01 Októberfundur |
Hótel Loftleiðum: Dagskrá: "KONUR ERU TILBÚNAR"
|
|

|