13. ágúst 2025
Helga Jóhanna endurkjörin formaður FKA Suðurland.
Aðalfundur FKA - Suðurland var haldinn 12. ágúst 2025 á Hraunvöllum og í mildu verði á fallegu kvöldi var kosin ný stjórn sem við óskum innilega til hamingju. Hlökkum til að starfa með ykkur öllum!

MYND // Stjórn FKA Suðurlandi 2025-2026 frá vinstir: Helga Jóhanna, Ingunn, Helga Björg, Íris Brá, Dagný og Gunnhildur.


















Í stjórn FKA Suðurlandi starfsárið 2025-2026 eru þær:
- Helga Jóhanna Úlfarsdóttir - Formaður til 2ja ára
- Íris Brá Svavarsdóttir - Gjaldkeri til 1 árs
- Gunnhildur Valgeirsdóttir - Ritari til 2ja ára
- Ingunn Jóns - Varamaður til 1 árs
- Dagný Jóhannsdóttir - Varamaður til 1 árs
- Helga Björg Þorgeirsdóttir - Varamaður til 2ja ára
,,Það var góð mæting, sérstaklega var gaman að sjá formann og varaformann aðalstjórnar FKA, þær Ingibjörgu Salóme Sigurðardóttur og Guðlaugu Hrönn Jóhannsdóttur, og framkvæmdastjóra félagsins Andreu Róbertsdóttur," segir Helga Jóhanna Úlfarsdóttir sem var endurkjörin formaður og nú til tveggja ára.
Boðið var uppá veitingar og áttu félagskonur gæðastund saman og ræddu spennandi starfsár sem er fram undan og mikil tilhlökkun að kortleggja betur og kynna fyrir konum í deildinni.
Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár er gott yfirlit yfir metnaðarfullt og fjölbreytt starfsár þar sem haldnar voru hraðkynningar, nýliðakvöld á Ölverki, Jólarölt var haldið á Selfossi, Spa kvöld var í Skeiðalaug, fjallkonan virkjuð í tveggja daga ferð í Hólaskóg við Búrfell og viðburðurinn ,,Rómantík og vellíðan" var með Auði Ottesen svo dæmi séu tekin.

Suðurlandsdeild FKA telur tæplega áttatíu konur og taka þær þátt í öflugu starfi FKA á svæðinu en einnig á höfuðborgarsvæðinu enda fjölmargar nefndir, deildir og ráð sem halda úti öflugri dagskrá hjá FKAog félagið með hreyfiaflsviðburði og verkefni sem konur sækja úr öllum landsbyggðunum.



Konur á Suðurlandi eru hvattar til að skrá sig í FKA Suðurland og konur hvattar til að skrá sig í FKA í öllum landsbyggðum.


DFS HÉR
Sunnlenska HÉR
Verið velkomnar!
MYNDASYRPA frá aðalfundi 2025 // Andrea Róbertsdóttir