Ganga, gleði og OsteoStrong.
Description
Hópur félagskvenna sem fílar súrefni hittist reglulega og næst er á dagskrá hressandi viðburði fyrir sumarfrí.
Laugardaginn 26. september tökum við létta göngu sem hefst við Ögurhvarf 2 og förum til félagskonunnar Svanlaugar í OsteoStrong í ,,recovery session” í bekkjunum hjá henni eftir gönguna.
,,Mörg þúsund manns hefur nú þegar fengið frábæran árangur með OsteoStrong og við heyrum daglega sögur af því hvernig OsteoStrong hefur bætt lífsgæði fólks. Það gefur okkar lífi gildi og kraft til þess að halda áfram," segir Svanlaug sem hefur verið virk í FKA til margra ára.
Mæting kl. 10.30 hjá OsteoStrong heilsustöð Ögurhvarfi 2 Kópavogi HÉR
Gengið er í tæpa klukkustund og þá fer hópurinn beint til Svanlaugar en þær sem vilja mæta beint þangað og sleppa göngunni er velkomið að gera það.
,,OsteoStrong er tækifæri til að bæta almenna heilsu á stuttum tíma einu sinni í viku. Einstakt kerfi til að auka styrk vöðva, liða og beina," segir á heimasíðu. Nánar HÉR
FKA Konur eru hvattar til að skrá sig í hópinn FKA - Ganga og gleði á fjöllum og ferðinni … hópurinn á Facebook er HÉR. Nánari upplýsingar um hópinn og gönguna: Jóhanna Jónsdóttir
„Þessi hópur er fyrir reyndar göngukonur, minna reyndar og óreyndar FKA útivistar konur sem eiga það sameiginlegt að fíla ferskt loft og vilja viðra útivistafatnaðinn. Þetta er liður í því að eiga samtal, hittast, næra andann og kroppinn á alls konar undirlagi og mis krefjandi verkefnum. Mætum allar á eigin ábyrgð og það má bjóða vinkonu með…“






