Beint í efni
Mínar Síður

Ráðstefna FKA framtíðar 2026 í Sjóvá - Framtíðar þú!

FKA Framtíð
AÐGENGI
Opið fyrir allar félagskonur
DAGUR OG TÍMI
Byrjar:
11. mars 17:00
Endar:
11. mars 19:00
STAÐSETNING
Sjóvá, Kringlunni 5
Verð:
Innifalið í félagsgjaldi
Lokað er fyrir skráningu

Description

Takið daginn frá!!!

 

FKA Framtíð mun halda ráðstefnu þann 11.mars 2026 kl.17 sem engin má láta fram hjá sér fara.

Hvar: Sjóvá, Kringlunni 5

Hvenær: 11. mars kl. 17:00, léttar veitingar í boði.

 

Ráðstefna FKA Framtíðar 2026 ber heitið Framtíðar þú! Fjallað verður um hvaða hæfni við þurfum til að eflast í takt við hraða tækniframþróunar og breytt landslag vinnuumhverfisins. 

Við fáum einstaklega flottar konur úr atvinnulífinu til að segja okkur frá því sem framtíðin ber í skauti sér og hvaða styrkleika er gott að hafa í þessu breytta landslagi.

 

Þær sem koma fram eru:

  • Sigríður Vala Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Upplýsingatækni og fjármála og Elín Þórunn Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri Tjónasviðs hjá Sjóvá sem bjóða ráðstefnugesti velkomna og segja frá lífi og starfi í rúmlega 100 ára gömlu tryggingafyrirtæki í erindinu Framtíðin er núna“. 

 

  • Höfundar bókarinnar Völundarhús tækifæranna Árelía Eydís Guðmundsdóttir háskólaprófessor og Herdís Pála Pálsdóttir eigandi Dokkunnar og sjálfstætt starfandi ráðgjafi með erindið Hvernig getur þú gert framtíðarsjálfi þínu á vinnumarkaði greiða í dag?“. Í erindinu fjalla þær um helstu breytingar fram undan og þau tækifæri sem felast í fjölbreyttari vinnumarkaði. Hugsunin verður að finna réttu verkefnin út frá því hvað hentar lífi hvers og eins og að taka sér reglulega tímabil til að endurhlaða sig og huga að því hvernig hægt er að halda starfsþreki og gleði yfir langan starfsaldur. 

 

  • Anna Katrín Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Alfreð með erindið „Framtíðin byrjar í dag – tengsl, sýnileiki, hæfni og netið þitt“. Erindið fjallar á hagnýtan og gagnvirkan hátt um hvernig raunveruleg tækifæri verða til í dag og hvernig þátttakendur geta markvisst aukið líkurnar á spennandi tækifærum og verkefnum.

 

  • Anna Margrét Gunnarsdóttir, markaðs-og kynningarstjóri Almannaróms með erindið Lipur samskipti, ríkt innsæi, lausnamiðuð hugsun og lyktarlaust prump: „Kvenlegu“ stjórnendaeiginleikarnir sem verða forskot í framtíðinni.

 

Við hlökkum til að sjá sem flestar konur á viðburðinum í Sjóvá þann 11.mars kl 17:00. Aldrei of seint að skrá sig í félagið en 50% afsláttur er af félagsgjöldum kvenna undir 30 ára.

 

Stjórn FKA Framtíðar 2025-2026

Brynja Þorsteinsdóttir|| Kristín Amy Dyer ||Magnea Friðriksdóttir|| Margrét Hannesdóttir || Sandra Sif Stefánsdóttir||Saga Úlfarsdóttir||