Fyrirtækjakynning Atvinnurekenda AUÐS – hádegisverðarfundur.
Atvinnurekenda AUÐUR
AÐGENGI
Atvinnurekenda AUÐUR
DAGUR OG TÍMI
Byrjar:
13. febrúar 12:15
Endar:
13. febrúar 13:30
STAÐSETNING
Satt Icelanderhótelinu Nauthólsvegi Reykjavík.
Verð:
Product information
Lokað er fyrir skráningu
Description
Kæra félagskona,
fyrstu fyrirtækjakynningar Atvinnurekenda AUÐS 2025 verða fimmtudaginn 13. feb. n.k. og að þessu sinni á hádegisverðarfundi frá kl. 12:15 - 13:30 á Satt veitingastað á Icelanderhótelinu, Nauthólsvegi 52, 102 Reykjavík. Salur 7 (Blómasalurinn). Staðsettur inn af veitingastaðnum - og við hvetjum þig til að taka þátt. Nánar um skráningu hér fyrir neðan.
fyrstu fyrirtækjakynningar Atvinnurekenda AUÐS 2025 verða fimmtudaginn 13. feb. n.k. og að þessu sinni á hádegisverðarfundi frá kl. 12:15 - 13:30 á Satt veitingastað á Icelanderhótelinu, Nauthólsvegi 52, 102 Reykjavík. Salur 7 (Blómasalurinn). Staðsettur inn af veitingastaðnum - og við hvetjum þig til að taka þátt. Nánar um skráningu hér fyrir neðan.
Þessar fjórar félagskonur kynna sig og sinn rekstur:
Ingibjörg Valdimarsdóttir – Ritari ehf. - https://www.ritari.is/
Alhliða ritara- og skrifstofuþjónustu fyrir fyrirtæki s.s. símsvörun, umsjón með
tímabókunum, vöktun á tölvupósti og netspjalli, úthringingar, læknaritun, bókhald
og flest allt annað sem viðkemur ritaraþjónustu og rekstri skrifstofunnar.
Kristín Ýr Pálmadóttir – Afltak ehf. - https://afltak.is/
Byggingaverktaki og trésmíðaverkstæði sem sinnir allra handa og fjölbreyttum
verkefnum – og hefur verið rekið í 30 ár!
Elisabet Granneman – Svartberg ehf. - https://svartberg.is/
Flytur inn og selur AJP mótorhjól, bakpoka og aðrar sportvörur frá USWE, aukahluti frá Crosspro og Giant loop ásamt öðru.
Ingibjörg Reynisdóttir - P2P slf - www.hugarfarsthjalfun.is
Hugafars- og frammistöðu markþjálfi – „ Hvað er það besta sem getur gerst ?“

----
Félagskonum er velkomið að taka með sér gesti; vinkonu, systur, móður, dóttur … en passa að skrá þátttöku viðkomandi (greiða tvöfalt ef einn gestur o.s.frv.).
Hádegisverður er andasalat, kaffi/te og sætur biti.
Fyrirfram skráning nauðsynleg - í síðasta lagi f.h. 10. feb.;
Þú skráir þig með greiðslu á kr. 4.000 fyrir hádegisverðinn - inn á reikning A-AUÐS: 0133-26-200898, kt. 621019-1390 - Passa að nafn þitt komi fram í athugasemd ef fyrirtækið / önnur kt. greiðir og líka láta vita af matarofnæmi eða – óþoli í skýringu með greiðslu.
Sem fyrr hlökkum við til að sjá ykkur sem allra flestar,
Stjórn Atvinnurekenda AUÐS

Með hlýjum félagskveðjum,
Stjórn Atvinnurekenda AUÐS 2024 – 2025
Aðalheiður Karlsdóttir, Eignaumboðið slf. || Jónína Bjartmarz, Okkar konur í Kína – OK ehf. / Iceland Europe Travel || Katrín Rós Gýmisdóttir, Metropolitan || Kristín Björg Jónsdóttir, Polarn O. Pyret ehf.|| Kristín Ýr Pálmarsdóttir, Afltak ehf. || Margrét Reynisdóttir, Gerum betur ehf. ||Ragnheiður Ásmundsdóttir, Misty – Gott Á.R. ehf.
Í varastjórn:
Anna M. Björnsdóttir, Sýningakerfi ehf. || Ásta Sveinsdóttir, Pípulagnir Samúels og Kára
#FKA #FKAtvinnurekendaAUÐUR #FKAkonur #Hreyfiafl #Sýnileiki #Tengslanet
