Beint í efni
Mínar Síður

Jafnréttislundur

Eitt tré er gróðursett fyrir hvern viðurkenningarhafa Jafnvægisvogarinnar í Jafnréttislundi FKA við rætur Heiðmerkur. Markmiðið er að gróðursetning sé árleg og að lundurinn vaxi samhliða auknu jafnrétti í íslensku atvinnulífi.

Bein áhrif á umhverfið

Fjölbreytni skiptir máli við gróðursetningu og því er lögð áhersla á að velja ólíkar trjátegundir sem styrkja vistkerfið og endurspegla þau gildi sem Jafnvogisvogin vinnur að.

Viðurkenningarhafar planta sjálfir sínu tré og leggja þannig sitt af mörkum til kolefnisjöfnunar og jafnréttis um leið og Jafnréttislundurinn vex og dafnar.

43

6

358

Jafnréttislundur lifnar við

með jafnrétti og þinni þátttöku!

Á viðurkenningarhátíð Jafnvægisvogar FKA eru veittar viðurkenningar til fyrirtækja, sveitarfélaga og opinberra aðila sem hafa jafnað kynjshlutfall í efsta lagi stjórnunar.

Árið 2020, á tímum heimsfaraldurs, var ekki unnt að halda hefðbundna athöfn. Þá hófst samstarf við Skóræktarfélag Reykjavíkur um gróðursetningu. FKA fékk úthlutað svæði í Heiðmörk við Vífilsstaðahlíð og þar varð Jafnréttislundur FKA til. Gróðursetning varð í kjölfarið hluti af viðurkenningarhátíðinni og er haldin í tengslum við hana ár hvert.