Beint í efni
Mínar Síður

9. mars 2025

Sinna.is er nýtt markaðstorg Ingu Tinnu i Dineout. Yfirskriftin er heilsa, útlit og vellíðan. Nánar í Viðskiptablaðinu.

Nýjasta verkefni Ingu Tinnu Sigurðardóttur sameinar hugvit og tækni til að bæta þjónustugeirann.

Sinna.is er nýtt markaðstorg undir fyrirtækinu Dineout, sem hefur yfirskriftina: heilsa, útlit og vellíðan.

Ingu Tinnu þekkjum við sem kraftmiklum frumkvöðli sem lætur ekkert stoppa sig, hvort sem það er í nýsköpun, viðskiptum eða lífinu sjálfu.

Á síðasta ári hlaut Inga Tinna hvatningarviðurkenningu FKA og gaman að sjá um það fjallað: „Ég hef alltaf brunnið fyrir því að hvetja konur til að fara í eigin rekstur og láta til sín taka. Það er ekkert sem ætti að hamla okkur – það snýst um að hafa trú á sér, halda fókus og gefast aldrei upp.“

Það voru fjölmargar ástæður fyrir því að dómnefnd valdi Ingu Tinnu til að heiðra á Viðurkenningarhátíð FKA 2024. Ánægjulegt að lesa viðtal í Viðskiptablaðinu og áhugaverða sögu úr nýsköpunar- og hugbúnaðargeiranum sem hefur í gegnum tíðina verið karllægt umhverfi, en Inga Tinna hefur ekki látið það stoppa sig. „Hún segir það hafa verið bæði áskorun og hvatningu að sanna sig í þessum bransa, og að hún hafi alltaf viljað vera hún sjálf í öllu sem hún gerir.“

Nánar HÉR

@Inga Tinna Sigurðardóttir #Sinna #Dineout @Magnús Björn Sigurðsson

MYND #Viðskiptablaðið

Dagsetning
9. mars 2025
Deila