3. mars 2022
Sigríður Hrund formaður FKA á vefráðstefnu WoT / Upptaka.
Sigríður Hrund formaður FKA á vefráðstefnu WoT.
Sigríður Hrund Pétursdóttir formaður FKA sat í „eldstæðis“ spjalli á vefráðstefnu WoT ásamt Anita Krohn Traaseth frá Noregi – þið finnið hana undir Arne Krohn Traaseth á LinkedIn því hún breytti prófílnum sínum til að vekja athygli á kynjaójafnvægi í efstu stöðum. Skörp og góð skilaboð frá Skandinavíu til vöggu lýðræðisins Grikklands.

WoT, Women on Top eru grísk hreyfiaflssamtök sem einbeita sér að jafnrétti kynjanna í grísku atvinnulífi. Helstu leiðir sem WoT notar er t.d. mentor prógramm, fræðslusetur, tengslamyndun, tengingar við fyrirtæki og stofnanir í Grikklandi. Sýn þeirra er „Changemaking“.
„Our vision is to boost female employment and equality in the workplace. Our goal is to eliminate the obstacles that women encounter in their equal participation in the economy, both by empowering them and by contributing to a change in the social, labor and political environment around them.“
Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA hefur verið í stöðugu sambandi við WoT síðan síðastliðið haust og að þær munu koma til Norðurlandanna í vor til að fylgja þessari frábæru vegferð eftir.
Spennið beltið!

#FKA#FKAkonur#Hreyfiafl#Sýnileiki#Tengslanet @Sigríður Hrund Pétursdóttir #womenontop @Stella Kasdagli @Anita Traaseth #WoT
