Beint í efni
Mínar Síður

13. september 2025

Sex maríulaxar á land hjá Félagi Aflakvenna – FKA. Hafðu samband til að tryggja þér pláss í næstu ferð.

FKA konur í laxveiði – kraftur, gleði og maríulaxar.

Dagana 8.-10. júlí hélt Félag Aflakvenna - FKA í tveggja daga ævintýri við Ytri Rangá. Alls tóku 28 konur á öllum aldri og með ólíka veiðireynslu þátt í ferðinni, og útkoman var glæsileg: 35 laxar komu á land, þar af 6 maríulaxar!

Snertiflötur áhugamála eða starfsvettvangs.
Í FKA er höndlað með það sem sameinar konur og þar starfa deildir, ráð og verkefnadrifnar nefndir með sérstakt hlutverk en innan félagsins má einnig finna nokkra óformlega hópa þar sem konur tengjast á grundvelli sameiginlegra áhugamála (sbr. gönguhóp) eða starfsvettvangs. „Mig langar að kynnast og tengjast konum í FKA í byggingariðnaði,“ sagði ein félagskona haustið 2021 og úr varð hópur FKA kvenna í mannvirkjaiðnaði sem hefur heldur betur látið til sín taka. Nýjasta viðbótin af óformlegum hópum, utan skipurits, er Félag Aflakvenna – FKA sem stofnað var sumarið 2024. Farið var í veiðiferð í Ytri Rangá 2024 og tókst ferðin einstaklega vel, ákveðið var að bóka holl 2025, í tveggja daga ævintýri við Ytri Rangá. Svona rúlla þessar konur!

Andinn í hópnum var einstakur, mikið hlegið, samvinna, hvatning og ný vinátta spruttu upp á milli veiðikvenna. 

Við höfum þegar tryggt okkur sömu dagsetningar 2026, þannig að allar félagskonur sem vilja vera með 2026 ættu að hafa samband við Hörpu eða Maríu sem fyrst. Einnig hvetjum við allar konur sem hafa áhuga á veiði eða langar að byrja að veiða að skrá sig í Facebook-hópinn Félag Aflakvenna til að fylgjast með næstu viðburðum. Hér í félagatali FKA: Harpa Hlín Þórðardóttir & María Anna Clausen

Takk María og Harpa fyrir að gera gott félag enn betra!

Félagið var stofnað af Hörpu og Maríu á síðasta ári og hefur aðsóknin sannað að mikill áhugi var fyrir veiðifélagi innan FKA. Harpa rekur Iceland Outfitters, ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í veiðiferðum og rekur m.a. Ytri Rangá. María á Veiðihornið í Síðumúla – stærstu veiðibúð landsins. Þær eru báðar ástríðufullar veiðikonur sem nýta hvert tækifæri til að komast í veiði.

Fyrir frekari upplýsingar:
María / maria@veidihornid.is & Harpa Hlín harpa@harpa-hlin-thordardottir
Félag Aflakvenna – Veiðifélag FKA HÉR á Facebook.

Ef þú ert félagskona í FKA og langar að upplifa veiði, samveru og eignast nýja veiðifélaga, þá er þetta kjörin ferð fyrir þig. Engin veiðireynsla nauðsynleg en við munum hittast nokkrum sinnum fyrir ferðina og æfa okkur.

Hafðu samband og taktu þátt í næsta ævintýri!

Facebook hópurinn HÉR
Nánar // Harpa Hlín Þórðardóttir & María Anna Clausen

Dagsetning
13. september 2025
Deila