Beint í efni
Mínar Síður

11. mars 2025

,,Mitt heilræði til kvenna á Suðurnesjum er að halda í frumkraftinn,“ segir Hólmfríður Árnadóttir.

Hólmfríður Árnadóttir er fædd á Grenivík en flutti til Suðurnesja 2016. Hún segist hafa heillast af samfélaginu, fjölmenningunni og kraftinum í fólkinu á Suðurnesjum. Hún er dugleg í margvíslegum félagsmálum og situr í nokkrum stjórnum fyrirtækja og stofnana. Hólmfríður er kona mánaðarins hjá FKA Suðurnes.

,,Ég er mjög ánægð með félagsskapinn í FKA enda samanstendur hann af kraftmiklum konum sem einsetja sér að lyfta upp verkum annarra kvenna og það finnst mér allra góðra hluta vert enda hikaði ég ekki við að skrá mig og mæta á stofnfundinn um árið. FKA á Suðurnesjum er dásamlegur hópur allskonar kvenna og það er svo dýrmætt, það eru einfaldlega allar konur úr atvinnulífinu velkomnar og hér er engin dregin í dilka. Mitt heilræði til kvenna á Suðurnesjum er að halda í frumkraftinn, vera óhræddar við að taka þátt í félagsstarfi, sjálfboðastörfum og prófa eitthvað nýtt. Síðast en ekki síst verið velkomnar í FKA!"

Lesa viðtal HÉR við Hólmfríði.

#FKA Suðurnes #FKAkonur #hreyfiafl #fka #sýnileiki #tengslanet #Kona mánaðarins í FKA Suðurnes #Víkurfréttir @Páll Hilmar Ketilsson @Hólmfríður Jenný Árnadóttir

Dagsetning
11. mars 2025
Deila