7. febrúar 2022
Gerður Huld Arinbjarnardóttir í Blush er Markaðsmanneskja ársins 2021.
Félagskonan Gerður Huld Arinbjarnardóttir í Blush er Markaðsmanneskja ársins 2021.
Til hamingju Gerður!
Valið var samhljóða álit dómnefndar en verðlaunin eru veitt þeim einstaklingi sem þykir hafa sýnt framúrskarandi árangur í markaðsstarfi á líðandi ári.
Gerður er félagskona FKA og er vel að titlinum komin en hún var aðeins 21 árs þegar hún setti verslunina Blush á laggirnar en fyrirtækið Blush hefur hlotið viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki og einnig verið tilnefnt sem besta íslenska vörumerkið á markaðnum í dag.

Félagsstarfið hefur reynst Gerði vel og segist hafa átt einstakt samband við félagskonur og leitar í jafningjahópinn til að spegla hugmyndir í. FKA konur sem hún er að tala svona fallega um í mf. viðtali segjum við „Vel gert!“ það er nákvæmlega svona sem netagerðin getur virkað í FKA.
„Ég hef oft sagt það að ég er svona street smart og margar af mínum aðferðum eru dálítið gettó en þær virka,“ segir Gerður glöð í bragði um sinn einstaka stíl og sérstöðu sem hefur fært henni samkeppnisforskot.
Gerður er búin að reka Blush í áratug og hefur á þeim tíma breytt ímynd kynlífstækja og stjórnenda. Það er kjarkur og þor sem einkennir hana og óhætt að segja að hún hafi breytt viðhorfi, aukið samtal og fræðslu í bransanum. Hún hefur mikið úthald og opnaði nýverið stærri verslun sem er 860 m2. Það er sjálfsagt hægt að nefna nokkrar ástæður fyrir því að Blush er á siglingu, heimsfaraldur spilaði/spilar pottþétt þar inní velgengnina en það mun enginn taka karakterinn, einlægnina og sérstöðuna af Gerði sem hefur skapað Blush samkeppnisforskot.
Gerður hafði skráð sig í FKA áður en hefur sagt að í fyrsta skiptið skorti hana hugrekkið. „Ég þorði ekki að taka þátt ég hugsaði alltaf með mér svona að ég myndi ekki passa þarna inn.“
Gerður segir brosandi hafa skrifað nafnið sitt vitlaust í mörg ár og skólagangan var brösótt, en hún hafði alltaf drauma og gafst ekki upp - Og hefur slegið í gegn alveg sjálf.
Vel gert Gerður!
#FKA #FKAkonur #Hreyfiafl #Sýnileiki #Tengslanet Gerður Huld Arinbjarnardóttir #Blush #Markaðsmanneskjaársins2021 Anna Fríða Gísladóttir #ÍMARK Árni Reynir Alfredsson #mbl
