4. apríl 2023
Framhaldsfundur um lagabreytingatillögur, aðalfundur FKA o.fl. // Sjá hér.
// Lagabreytingatillögur – Framhaldsfundur á TEAMS – Tillögurnar, hlekkur, dagsetningar o.fl.
Kæra félagskona!
Þriðjudaginn 11. apríl 2023 verður framhaldsfundur þar sem farið verður yfir lög FKA og lagabreytingatillögur sem við hvetjum ykkur til að kynna ykkur fyrir fundinn HÉR.
Athugið að síðasti séns til að koma með athugasemdir og ábendingar fyrir aðalfund FKA í maí, er varða lagabreytingatillögurnar, er 15. apríl nk.
Aðalfundur FKA verður 10. maí nk. þar sem lagabreytingar verða bornar undir félagskonur.
HVAÐ: Kynningar á lagabreytingum.
HVAR: TEAMS – hlekkur HÉR
HVENÆR: Þriðjudaginn 11. apríl 2023 kl. 17 – 19ishSkráning á fundinn hér fyrir neðan.Fyrir hönd stjórnar
FKA:Stefnumótunarhópur FKA 2022-23:
Elín Þóra Ellertsdóttir
Helga Björg Steinþórsdóttir
Hildur Magnúsdóttir
Sigríður Hrund Pétursdóttir
Stephanie Nindel#FKA #FKAkonur #Hreyfiafl #sýnileiki #Tengslanet

Hlökkum til að sjá þig á aðalfundi kæra félagskona!
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins og skal hann haldinn fyrir lok maí ár hvert samkvæmt lögum félagsins sem má nálgast HÉR.
AÐALFUNDARBOÐ FKA 2023 hlekkur er á markpósti á félagskonur 15. mars 2023 //
Skráið ykkur til leiks og hafið áhrif! SKRÁNING HÉR Á VIÐBURÐI!
HVAÐ: Aðalfundur FKA
HVENÆR: 10. maí 2023
KLUKKAN HVAÐ: 17.00-18.30
HVAR: Nauthóli, Nauthólsvegi 106, 102 Reykjavík HÉR & í streymi.
Kjörgengi og kosningaréttur
Þær einar eru kjörgengar og hafa atkvæðisrétt á aðalfundi félagsins og í kosningum í aðdraganda aðalfundar, sem eru skuldlausar við félagið einni viku fyrir aðalfund.

Dagskrá fundarins HÉR.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár kynntur og borinn upp til samþykktar.
Ákvörðun félagsgjalds.
Skýrslur starfsnefnda.
Lagabreytingar ef einhverjar.
Lýsing á kjöri formanns, stjórna, nefnda og ráða.
Kosning skoðunarmanns reikninga og eins til vara.
Önnur mál.
Kær kveðja!
Stjórn FKA 2022-2023