Beint í efni
Mínar Síður

3. maí 2023

Framboð til stjórnar FKA – Gangi þér vel Erla Björg!

KYNNUM:

Erlu Björgu Eyjólfsdóttur hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu Cohn & Wolfe á Íslandi, stundakennara Háskólanum á Bifröst og stjórnarkonu í Menntasjóði Námsmanna sem býður sig fram til stjórnar FKA.

,,Kæru félagskonur FKA

Ég heiti Erla Björg Eyjólfsdóttir og hef ég boðið mig fram til stjórnarsetu fyrir FKA á næsta kjörtímabili.

Ég er 42 ára, fimm barna móðir og starfa sem ráðgjafi í almannatengslum hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu Cohn & Wolfe á Íslandi.

Ég er einnig stundakennari við Háskólann á Bifröst ásamt því að vera skipuð af Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem stjórnarmaður í Menntasjóði Námsmanna fyrir hönd Bandalags íslenskra sérskólanema. Ég er einnig formaður faghóps almannatengsla og samskiptastjórnunar hjá Stjórnvísi.

Ég hef lokið BA í Miðlun og almannatengslum ásamt MA í Forystu og stjórnum með áherslu á verkefnastjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Enn fremur hef ég lokið námskeiðinu Ábyrgð og árangur stjórnarmanna frá Háskólanum í Reykjavík.

Ég hef lengi fylgst vel með félagsstörfum FKA og hef bæði mikinn og einlægan áhuga á því sem viðkemur stjórnarstarfi hjá FKA og tel þetta tvímælalaust vera félag þar sem ég gæti nýtt hollustu mína og drifkraft í þágu félagsins.

Ég hef verið ötul liðskona FKA og það væri mér mikill heiður og sönn forréttindi að öðlast tækifæri til að taka þátt í því starfi FKA og fá að leggja mitt af mörkun til að leiða áfram starf þess og stuðla að frekari vexti og styrkingu innviða félagsins.

Mitt markmið er ávallt að gera betur í dag en í gær og það á einnig við í tilfelli stjórnarstarfa FKA.

Markmiðið er því að nota mína reynslu og þekkingu FKA og félagskonum þess til góða og koma félaginu á frekara framfæri í þágu sterkari vaxtar þess.

Það er mér hjartans mál að við konur í atvinnulífinu eflum okkur við hvert skref sem við tökum og stöndum saman að enn frekari samstarfi okkar á milli.

Ég er tilbúin að takast á við þetta mikilvæga starf í okkar þágu til að styðja enn frekar við bakið á félagskonum og þeim sem eiga eftir að koma í okkar frábæra og framúrskarandi félag þegar til framtíðarinnar er litið.

Virðingarfyllst og með von um þitt atkvæði og frábært samstarf í framtíðinni, Erla Björg Eyjólfsdóttir."

//

FKA óskar Erlu Björgu alls hins besta og minnir á að allir frambjóðendur til stjórnar FKA verða með kynningu og sitja fyrir svörum á TEAMS föstudaginn 5. maí 2023 klukkan 12-13.

Viðburðurinn og hlekk má finna HÉR

Stjórn félagsins skal skipuð sjö konum og þremur til vara. Hver stjórnarkona skal kjörin til tveggja ára í senn. Í varastjórn veljast til eins árs, þær þrjár konur sem næst því komust að hljóta kosningu í stjórn og nánar um málið má nálgast í lögum félagsins HÉR

Unnur Elva Arnardóttir sem gengt hefur hlutverki varaformanns FKA býður sig fram til formanns og Guðrún Gunnarsdóttir og Dóra Eyland stjórn­ar­kon­ur eru hálfnaðar með kjör­tíma­bil sitt í stjórn og halda áfram.

Kjörgengi og kosningaréttur
Þær einar eru kjörgengar og hafa atkvæðisrétt á aðalfundi félagsins og í kosningum í aðdraganda aðalfundar, sem eru skuldlausar við félagið einni viku fyrir aðalfund.

Aðalfundur 10. maí 2023 á viðburðadagatali HÉR. Hvetjum allar félagskonur að kjósa og mæta raun eða raf!

Gangi ykkur sem allra best!

Kær kveðja!

FKA

#hreyfiafl #fka #sýnileiki #tengslanet #FKAkonur @Erla Björg Eyjólfsdóttir

Dagsetning
3. maí 2023
Deila