10. ágúst 2025
Fræðslunefnd FKA starfsárið 2025-2026 gerir gott starfsár enn betra.
„Hjördís Dröfn hafði frumkvæði að því að hóa fræðslunefndinni saman í lok júní,“ segir Lilja úr Fræðslunefnd FKA starfsárið 2025-2026 sem er full tilhlökkunnar fyrir komandi starfári.
Tvisvar á ári heldur Fræðslunefndin nýliðakynningar fyrir nýjar félagskonur og þær sem vilja taka virkan þátt í starfi félagsins. Nefndin skipuleggur einnig fjölbreytta viðburði eins og vinnustofur, málþing og fræðslufundi. Hér er um að ræða leiðandi afl er kemur að miðlun þekkingar og stuðningi við félagskonur til að ná árangri í atvinnulífinu.
Það eru mörg tækifæri til að gera gott starfsár enn betra og það gerum við með öflugum nefndum eins og þessari:
Í Fræðslunefnd FKA starfsárið 2025-2026 eru þær:
- Dóra Eyland
- Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir
- Hrefna Haraldsdóttir
- Lilja Oddsdottir
- Þórdís Hadda Yngvadóttir

MYND: Frá vinstri þær Hjördís Dröfn, Dóra, Lilja og Þórdís. Á myndina vantar Hrefnu.
Takk fyrir ykkur!