20. september 2020
,,FKA áfram í alþjóðlegu samstarfi,“ Margrét Jónsdóttir Njarðvík stjórnarkona FKA í upphafi starfsárs.
,,Tilhlökkun er eitt af því sem ég vona að hverfi aldrei úr lífi mínu. Hún kitlar, hún gleður og hún skerpir á litunum í tilverunni. Haustið, nei annars – allar árstíðir eru mitt uppáhald en ég get ekki beðið þess að sjá hvort okkur takist nú ekki – þrátt fyrir Covid að koma FKA áfram í alþjóðlegu samstarfi svo allt sé klárt fyrir 2021. Eins er ég spennt fyrir því að gera eitthvað stórkostlegt með landshlutadeildunum á Vesturlandi, Norðurlandi og Suðurlandi. Þar er blómstrandi kvenorka, orka sem mig langar að virkja og bjóða í heimsókn hingað á Bifröst og gera eitthvað skemmtilegt saman."
Margrét Jónsdóttir Njarðvík
Stjórnarkona FKA, eigandi Mundo og rektor Háskólans á Bifröst.
Stjórn FKA tók yfir lyklaborðið í örskutstundu til að segja okkur frá sínum áherslum, slá tón og taktinn í upphafi starfsárs. Að öllu saman lögðu, ef við pökkum stemningunni inn í eina setningu þá er það ,,BORÐUM ÞENNAN FÍL!"
Saman borðum við fíl – einn bita í einu!
