Beint í efni
Mínar Síður

24. október 2025

FESTI aðalstyrktaraðili Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA. 

Festi verður aðalstyrktaraðili Félags kvenna í atvinnulífinu á mögnuðu starfsári sem nú er hafið. Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir, formaður FKA, undirrituðu samning þess efnis í húsakynnum Festi í vikunni á sama tíma og minnst er 50 ára afmælis kvennafrídagsins. Við tilefnið var baráttunnar og áfangasigrum sem hún hefur skilað 50 árum síðar minnst. 

MYND // Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir, formaður FKA, undirrituðu samning í húsakynnum Festi á sama tíma og minnst er 50 ára afmælis kvennafrídagsins (@SillaPáls).

Jafnréttishugsjónin að leiðarljósi 
„Festi hefur markvisst unnið að því að brúa kynjabilið og það er draumi líkast að fá að stuðning og aðgang að fólki sem hefur jafnréttishugsjónina að leiðarljósi í allri stefnumótun og ákvarðanatöku,“ sagði Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir þegar samkomulagið var undirritað í húsakynnum Festi. „Festi samstæðan er til fyrirmyndar þegar kemur að jafnréttismálum þar sem skýr markmið tryggja að öll félögin ganga í takt. Þau átta sig á ábyrgð sinni í samfélaginu sem er svo fallegt.“ 

Markmið samstarfs Festi og FKA er að styðja við framþróun jafnréttismála og vera hreyfiafl til framfara. Ætlunin er að samstarfið feli í sér samtal og samvinnu þar sem opnað er á umræðu og aðgerðir um hvernig best er að vinna í átt að betra samfélagi fyrir alla þjóðfélagshópa. 

Mikilvægur vettvangur fyrir konur 
„Á 50 ára afmæli kvennafrídagsins minntumst við hvað samstaða kvenna og vitundarvakning var mikilvæg í baráttunni fyrir auknu jafnrétti – ekki bara hér á Íslandi heldur fyrir heiminn allan. Viðburðurinn sýndi fram á mikilvægi þess að konur hefðu vettvang til að láta í sér heyra, miðla af reynslu sinni og berjast fyrir breytingum. FKA hefur verið leiðandi í að skapa þannig vettvang þar sem konur miðla þekkingu og hvatningu til annarra kvenna, hvort sem þær eru að stíga sín fyrstu skref í atvinnulífinu, eru af erlendum uppruna eða hafa staðið í stafni á sínu sviði í áraraðir. Við í Festi viljum styðja við þessa vegferð FKA sem hefur með verkefnum á borð við Jafnvægisvogina stuðlað að aukinni umræðu um jafnréttismál í atvinnulífinu,“ segir Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi. 

„Stjórnendateymi Festi er til fyrirmyndar og leiðandi á fjölmörgum sviðum þar sem jafnréttismál í víðum skilningi er tvinnað saman við alla stefnumótun. Með skipulagðri eftirfylgni og skýrum mælikvörðum er stefnunni fylgt eftir í öllum félögum Festi. Við erum ánægð að fá aðgang að þessari þekkingu og reynslu og vinna saman að því að jafna tækifæri kynjanna í atvinnulífinu og opna umræðuna frekar,“ bætir Ingibjörg við. 

MYNDIR // (a) Bryndís Reynisdóttir verkefnastjóri Jafnvægisvogar, Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra g Dr. Ásta Dís Óladóttir, prófessor við Háskóla Íslands og formaður Jafnvægisvogarinnar (@Andrea Róbertsdóttir) og mynd (b) frá viðurkenningarathöfn Jafnvægisvogarinnar þar sem hópur frá Festi var að taka ó móti viðurkenningu (@Silla Páls).

Dagsetning
24. október 2025
Deila