14. janúar 2026
Draumasmiðjan haldin fyrir fullu húsi í höfuðstöðvum Deloitte.
Fræðslunefnd FKA stóð fyrir Draumasmiðju fimmtudaginn 8. janúar sl.
Skipulagning Draumasmiðjunnar var í höndum Þórdísar Yngvadóttur sem var fundarstjóri og Hjördísar Drafnar Vilhjálmsdóttur sem leiddi smiðjuna en hún er jafnframt formaður fræðslunefndar og leiðtoga- og teymisþjálfi hjá Taktu flugið.
Áður en draumavinnan hófst, bauð Guðrún Ólafsdóttir eigandi og sviðstjóri Tækniráðgjafar hjá Deloitte hópinn velkominn og sagði í stuttu máli frá starfsemi Deloitte. Lilja Oddsdóttir kynnti ilmkjarnaolíuna Dream Catcher og gaf þátttakendum bók um kjarnaolíur.



Fljótlega eftir að viðburðurinn var auglýstur fylltist skráningin og var húsfyllir í stórglæsilegum sal í höfuðstöðvum Deloitte á Dalveginum.
Það þurfti ekki að sækja vatnið yfir lækinn þegar fræðslunefnd tók þá ákvörðun síðastliðið haust að halda Draumasmiðju á nýju ári, þar sem Hjördís Dröfn og Þórdís hófust strax handa að þróa efnistök smiðjunnar. Hjördís Dröfn leiddi smiðjuna með glæsibrag og setti þátttakendur í þau spor hvernig draumurinn gæti raungerst og ímynda sér skrefin í áttina að honum. Allar þær sem tóku þátt fengu draumabók til að vinna eftir.
Undirtektir þátttakenda fóru framar björtustu vonum og ljóst er að mörgum þykir gott að byrja árið á að staldra við, líta inn á við og hugsa til framtíðar með þeim aðferðum sem Hjördís Dröfn kynnti.



Fræðslunefnd vill sérstaklega þakka Guðrúnu Ólafsdóttur og Maríu Skúladóttur hjá Deloitte fyrir að veita FKA konum framúrskarandi aðstöðu, gómsætar veitingar og hlýlegar móttökur.



Nokkrir punktar sem komu fram í endurgjöf þátttakenda eftir Draumasmiðjuna þegar spurt var „Það dýrmætasta sem ég tek með mér af námskeiðinu?“:
- Vera óhrædd við að byrja og taka drauminn alvarlega. Námskeiðið aðstoðaði mig við að demba mér í verkefnið og vinna að draumnum. Það sem ég tek með mér af námskeiðinu er að byrja að taka drauminn minn alvarlega.
- Innspýting og kraftur. Löngun til að gera betur og meira.
- Þegar ég byrjaði þá fannst mér eins og draumurinn væri ómögulegur en núna get ég ekki beðið eftir að byrja. Takk kærlega fyrir mig.
- Frábært námskeið og leiðbeinandinn miðlaði af ástríðu og innsæi.
- Stíga inn í óttann og hið óþekkta þó svo það sé óþægilegt.
- Djarfur leiðangur til að skoða hvaða skref ég þurfi til að taka og breyta lífi mínu til hins betra.
- Ég ætla að leyfa mér að dreyma og leyfa draumunum að rætast.
- Hjördís var frábær fyrirlesari og hjálpaði mér að flysja laukinn og komast að kjarnanum. Til hvers eru draumar ef maður ætlar ekki að lifa þá?!
- Hugsa út frá sigrum, ekki hindrunum.
- Mjög gott hvernig draumabókin leiddi námskeiðið. Mun nota hana í fleiri verkefnum.



Fræðslunefnd FKA 2025-2026
Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir - formaður
Dóra Eyland
Hrefna Haraldsdóttir
Lilja Oddsdottir
Þórdís Hadda Yngvadóttir