6. maí 2023
Andrea Ýr, Bergrún Lilja, Erla Björg, Grace, Guðlaug Hrönn, Helga, Ingibjörg Salóme og Unnur Elva með kynningu – upptaka.
Hér má sjá upptöku af kynningarfundinum með frambjóðendum til stjórnar FKA 2023 sem fór fram á TEAMS föstudaginn 5. maí 2023.

Upptaka HÉR kynning í tímaröð:
01:30 mín - Andrea Ýr
05:30 mín - Bergrún Lilja
08:39 mín - Erla Björg
13:35 mín - Gulla/Guðlaug Hrönn
18.30 mín - Grace
23:36 mín - Helga
27:06 mín - Inga/Ingibjörg Salóme
31:05 mín - Unnur Elva (formaður)


Sæti 1-3 til tveggja ára í aðalstjórn, 4. sætið til eins árs í aðalstjórn og sæti 5-7 til eins árs í varastjórn.
Að þessu sinni eru kosnar þrjár konur í aðalstjórn til tveggja ára, sú kona sem lendir Í fjórða sæti eftir atkvæðatalningu tekur sæti í aðalstjórn til eins árs og þrjár konur í varastjórn til eins árs. Í varastjórn veljast þær þrjár konur sem næst því komust að hljóta kosningu í stjórn. Stjórnarkonur og varakonur taka sæti í þeirri röð sem þær eru kosnar, fyrst sú sem flest atkvæði hefur að baki sér.
Spennandi að fylgjast með hvernig raðast í stjórn og varastjórn!
Unnur Elva Arnardóttir, sem gengt hefur hlutverki varaformanns, er eina konan sem bauð sig fram til formanns og er því sjálfkjörin og ekki þarf að kjósa um formann. Unnur er hálfnuð með kjörtímabil sitt í stjórn og við kjósum því eina konu í aðalstjórn til eins árs. Guðrún Gunnarsdóttir og Dóra Eyland stjórnarkonur eru einnig hálfnaðar með kjörtímabil sitt í stjórn og halda áfram.
Frambjóðendur í félagatali í stafrófsröð og skrifleg kynningu frambjóðenda má finna hér:
Andrea Ýr Jónsdóttir – KYNNING HÉR!
Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir – KYNNING HÉR!
Erla Björg Eyjólfsdóttir – KYNNING HÉR!
Grace Achieng – KYNNING HÉR!
Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir – KYNNING HÉR!
Helga B. Steinþórsdóttir – KYNNING HÉR!
Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir – KYNNING HÉR!
Unnur Elva Arnardóttir – KYNNING HÉR!


Kjörgengi og kosningaréttur
Þær einar eru kjörgengar og hafa atkvæðisrétt á aðalfundi félagsins og í kosningum í aðdraganda aðalfundar, sem voru skuldlausar við félagið einni viku fyrir aðalfund.
Gott svigrúm til að kjósa! Opnað verður fyrir rafræna kosningu til stjórnar mánudaginn 8. maí 2023 kl. 09.00 að morgni. Kosningu lýkur miðvikudaginn 10. maí kl 15.00. Gefst þannig gott svigrúm til að kjósa og rafræn kosning tryggir jafnt aðgengi félagskvenna að kjósa, hvar svo sem þær eru staddar eða staðsettar í lífinu.
Aðalfundur FKA verður raun og raf 10. maí 2023 HÉR
Að loknum aðalfundarstörfum verður boðið í hanastél og vorstemningu - hlökkum til að sjá ykkur sem flestar á gleðistund!
Kær kveðja!
FKA
