Beint í efni
Mínar Síður

29. október 2024

Félagskonur FKA á viðburði FKA-DK í Kaupmannahöfn // Forystukonur – Seigla og Sigrar.

Mikil stemning ríkti þegar 120 íslenskar konur komu saman til að heiðra framúrskarandi fyrirmyndir á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn laugardaginn 26. október 2024. Tilefnið var ráðstefna Félags kvenna í atvinnulífinu í Danmörku (FKA-DK): Forystukonur – Seigla og Sigrar. Þetta er í annað sinn sem félagið heldur ráðstefnu af þessu tagi og komust færri að en vildu. 

Félagskonur FKA á viðburði FKA-DK.

,,Innblástur og orka hafi fyllt salinn á Norðurbryggju þegar fjórar áhrifakonur úr atvinnulífinu héldu erindi, konur sem allar hafa rutt veginn með þrautseigju og þekkingu hver á sínu sviði. Það voru þær Fida Abu Libdeh stofnandi og forstjóri GeoSilica, Gerður Arinbjarnar, stofnandi og forstjóri Blush, Guðný Lára Árnadóttir, verkefnastjóri hjá Moon og Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, stofnandi og framkvæmdastjóri Öldu sem allar héldu kröftug erindi fyrir ráðstefnugesti. Laufey Karítas Einarsdóttir Langkjær, eigandi Karitas Flow, bauð upp á stutta hugleiðslu og einnig nutu gestir örtónleika með Katrínu Helgu Ólafsdóttur, K.óla, listakonu og tónskáldi."

Hamingjuóskir frá FKA til Félags kvenna í atvinnulífinu í Danmörku (FKA-DK).

Nánar HÉR

@Fida Abu Libdeh #GeoSilica @Gerður Arinbjarnar #Blush @Guðný Lára Árnadóttir #Moon @Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé #Alda @Laufey Karítas Einarsdóttir Langkjær #KaritasFlow @Katrín Helga Ólafsdóttir #K.óla #FélagKvennaÍatvinnulífinuÍDanmörku #FKA-DK

Dagsetning
29. október 2024
Deila