16. mars 2025
March Forward – Nú förum við áfram!
March Forward er yfirskrift alþjóðlegrar herferðar og vitundarvakningar UN Women. Þar er kastljósinu beint að því bakslagi sem hefur orðið í jafnréttismálum á heimsvísu á síðustu árum – og við öll hvött til að leyfa hlutunum ekki að færast aftur á bak, heldur snúa við blaðinu og halda áfram.
Áhugavert og einstakt að þau stýra heimsherferð frá Íslandi.
„Þau hafa verið mög spennandi verkefni á okkar borði til dæmis heimsherferð Un Women þar Ísland var að samstilla, stýra, hanna og vinna hugmynd fyrir herferð í fyrsta skipti í sögu Un Women National committees og Headquarters. Það er UN Women á Íslandi sem leiðir herferðina, í góðu samstarfi við landsnefndir UN Women um allan heim. Áhugavert og einstakt að fá að stýra heimsherferð frá Íslandi,“ segir Selma Rut Þorsteinsdóttir yfirhönnunarstjóri hjá Pipar\TBWA.



MYND // Guðmundur Pálsson framkvæmdastjóri Pipar\TBWA, Selma Rut Þorsteinsdóttir yfir hönnunarstjóri Pipar\TBWA @Silla Páls #MirrorRose.
Pipar\TBWA auglýsingastofa ársins annað áið í röð.
„Við hönnum, skrifum, skáldum, sköpum, hreyfum, myndum, vefum og markaðssetjum vörumerki á Íslandi, í Skandinavíu og um allan heim. Við erum hluti af TBWA-auglýsingastofukeðjunni sem telur yfir 300 auglýsingastofur víðsvegar um heiminn,“ segir Selma stolt af sínu fólki sem starfar hjá Pipar\TBWA sem er auglýsingastofa ársins annað áið í röð.
Herferðin March Forward heldur áfram út árið 2025.
„Við framleiddum kvikmyndaða auglýsingu í samstarfi við Atlavík og Allan Sigurðsson leikstjóra, þar sem Aldís Amah Hamilton túlkar bakslagið og viðsnúninginn eins og henni einni er lagið. Undir hljóma tónar GusGus & Vök, María Thelma Smáradóttir er íslenskur þulur, en mexíkóska leikkonan Karla Souza ljær alþjóðlegri útgáfu rödd sína. Auk hennar tókum við ljósmyndir sem birst hafa sem hluti af herferðinni víða um heim og framleiddum ýmiss konar markaðsefni á íslensku og ensku s.s. varning, vefborða, prentefni, samfélagsmiðlaefni, sniðmát og leiðbeiningar til að hægt sé að aðlaga efnið að mismunandi mörkuðum og margt fleira. Við höfum notið dyggrar aðstoðar kollega okkar á TBWAHelsinki við almannatengsl í erlendum miðlum, auk ómetanlegs framlags óteljandi sjálfboðaliða og þátttakenda í fjölmörgum löndum. Áhrifavaldar víða um heim slógu upptakt að herferðinni samhliða fréttaumfjöllun í ólíkum löndum. Kvikmyndaða auglýsingin var síðan frumsýnd í höfuðstöðvum Sameinuðu Þjóðanna í New York og í Kauphöll Íslands á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna, þar sem Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women Ísland, hringdi bjöllunni við opnun markaða,“ segir Selma en þess má geta að þema ársins hjá UN Women á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna er „Ring the Bell for ALL Women and Girls: Rights. Equality. Empowerment” - Aukið jafnrétti, jafnari aðgangur að tækifærum og valdefling. Kauphallarbjöllunni var hringt í tilefni af deginum árlegum og sameiginlegum viðburði Nasdaq Iceland, UN Women á Íslandi, UN Global Compact á Íslandi og Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA.
#FKAkonur @unwomenisland #MarchForward #MoveForward #ForAllWomenAndGirls #WomensRights #GenderEquality #Jafnrétti #Pipar\TBWA #ViðskiptanefndFKA @Gudmundur H. Palsson @Selma Rut Þorsteinsdóttir