Beint í efni
Mínar síður

2. október 2023

Helga Jóhanna nýr formaður FKA Suðurlandi í Sunnlenska.

Helga Jóhanna eigandi Heima Holiday Homes er nýr formaður FKA Suðurlandi.

Við óskum henni hjartanlega til hamingju!

FKA Suðurland er skipað ríflega 80 konum sem koma úr fjölbreyttum starfsgreinum á Suðurlandi og fer þeim ört fjölgandi. ,,Laufey Guðmundsdóttir stóð sig frábærlega og flestar úr fyrri stjórn halda áfram þannig að þetta verður frábært,“ segir Helga Jóhanna.

FKA Suðurlands í Sunnlenska HÉR

Komið með!

„Við komum til með að virkja fleiri konur á svæðinu en líka vera duglegar að sækja aðra viðburði hjá FKA. Laufey stóð sig frábærlega og flestar úr fyrri stjórn halda áfram þannig að þetta verður frábært. Höldum áfram góðu starfi FKA Suðurlands er kemur að sýnileika, tengslaneti og að hafa áhrif á samfélagsumræðuna,“ segir Helga Jóhanna sem var með framboðsræðu á netinu þar sem hún var stödd erlendis.

Í nýrri stjórn sitja ásamt Helgu Jóhönnu þær Íris Brá Svavarsdóttir, Íris Tinna Margrétardóttir, Ingunn Jónsdóttir, Ragna Gunnarsdóttir og ný inn í stjórn er Jessi Kingan og varakona ný í stjórn er Aníta Dís Káradóttir.

FKA Suðurland vill efla konur til ábyrgðar og þátttöku í atvinnulífinu með jákvæðri nálgun og gleði í fyrirrúmi. Haldnir eru áhugaverðir viðburðir, bæði í samvinnu við aðrar deildir FKA og viðburðir sérsniðnir að félagkonum á svæðinu. Farið er í heimsóknir í fyrirtæki kvenna, fræðsluviðburðir haldnir og fyrirlesarar bæði aðfengnir eða úr hópi félagskvenna á Suðurlandi.

MYND: Helga Jóhanna sem var með framboðsræðu á netinu þar sem hún var stödd erlendis.

Stjórn FKA Suðurlandi 2023-2024

Félag kvenna í atvinnulífinu þakkar fráfarandi formanni deildarinnar til tevggja ára Laufeyju Guðmundsdóttur og Sigríði Helgu Sveinsdóttur fyrir störf í þágu félagsins.

MYND: Ný stjórn FKA Suðurlandi með Laufey Guðmundsdóttir fráfarandi formanni FKA Suðurlands og Andrea Róbertsdóttur framkvæmdastýru FKA. Á myndirnar vantar Jóhönnu Helgu, nýkjörinn formann og Írisi Brá stjórnarkonu sem komust ekki á fundinn.

Hlökkum til að hitta ykkur sem oftast!

@Helga Jóhanna Úlfarsdóttir @Ingunn Jónsdóttir @Jessi Kingan @Íris Tinna Margrétardóttir @Íris Brá Svavarsdóttir @Ragna Gunnarsdóttir @Aníta Dís Káradóttir @Laufey Guðmundsdóttir@Sigríður Helga Sveinsdóttir #Heima Holiday Homes #FKASuðurland @Elínborg Telma Ágústsdóttir #hreyfiafl #fka #sýnileiki #tengslanet #FKAkonur #Sunnlenska

Dagsetning
2. október 2023
Deila