,,Að skapa sig og endurskapa," er yfirskrift Sýnileikadags árið 2026 í Arion banka og streymi // Save the date! FKA’s Visibility Day 2026.
Description
Sýnileikadagurinn er dagur sem er tileinkaður konum, okkur sem erum markvisst að vinna í áttina að því að setja okkur sjálfar á dagskrá. Tímar eru spennandi. Heimurinn er á hreyfingu. Og við með honum.
Sendum einnig frá deginum í streymi, minnum á að eftir viðburðinn geta félagskonur spjallað saman til klukkan 17, svo er planið að halda áfram í Happy hour.
HAPPY HOUR – það þarf að skrá sig sérstaklega í þennan hluta!
Það er erfitt að hætta eftir góðan dag og því höldu við ótrauðar áfram og skellum okkur í EFTIRPARTÝ til FKA konunnar okkar, hennar HREFNU á Bryggjuhúsinu. Hún, ásamt sínu góða fólki, tekur á móti okkur með dýrindis mat og drykk á sérstöku FKA tilboði. Ef þú hyggst mæta í þennan hluta dagsins biðjum við þig vinsamlegast að skrá þig HÉR
Við hlustum meðal annars á erindi frá konum sem eru á misjöfnum æviskeiðum og í mismunandi aðstæðum í lífi og starfi, hafa staðið frammi fyrir mismunandi áskorunum, hafa tileinkað sér hugrekki og skýra framtíðarsýn og verið óhræddar eða hræddar við að kanna sig, hvað þær vilja gera og vera. Allar getum við vonandi mátað okkur við sögurnar sem komum til með að heyra og tileinkað okkur það sem snertir við okkur.
„Að skapa sig og endurskapa“ er þema Sýnileikadags FKA í ár – yfirskrift sem fangar ferðalagið sem við konur förum í gegnum á ólíkum æviskeiðum.
- Þegar við erum ungar og leyfum okkur að láta vaða.
- Þegar gamla útgáfan dugar ekki lengur.
- Þegar eitthvað brotnar – og verður upphafið að endursköpun.
- Við tölum um óvissu, ótta og hugrekki.
- Um starfsferil, framafrí, símenntun og nýsköpun.
- Um áskoranir samtímans, lengra líf og þá staðreynd að við þurfum ekki að „tikka í öll boxin“.
- Þegar við finnum að eitthvað þarf að breytast.
- Þegar við sleppum því sem þjónar okkur ekki lengur.
- Þegar endursköpunin þarf að koma innan frá.
- Þegar við lærum að treysta ferlinu – og innsæinu.
- Besti dagurinn til að gera eitthvað er í dag.
Komdu og vertu með okkur á degi sem er helgaður sýnileika, samtali, innblæstri og hugrekki kvenna til að skapa sig – aftur og aftur.
Tryggðu þér sæti í þægilegustu fundarstólum sem hægt er að finna - við værum svo til í að geta boðið ykkur öllum en sætafjöldi er takmarkaður, því er að hrökkva eða stökkva!

Sýnileikanefnd FKA 2026
- Rósa Viggósdóttir stjórnandi og ritari FKA sem fer fyrir nefndinni
- Dagný Reykjalín sem er grafískur hönnuður FÍT og framkvæmdastjóri Blek á Akureyri
- Elín Bubba Gunnarsdóttir innkaupastjóri hjá Einingaverksmiðjunni
- Hera Björk Þórhallsdóttir tónlistarkona og löggiltur fasteignasali
- Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir leiðtoga- og teymisþjálfi Taktu flugið
- Margrét Reynisdóttir brautryðjandi í þjónustugæðum og eigandi Gerum Betur
- Nathalia Bardales frumkvöðull og samfélagsleiðtogi
- Sólveig Ragna Guðmundsdóttir arkitekt og meðeigandi THG Arkitektar
- Þórunn Hilda Jónasdóttir framkvæmdastjóri Magio viðburðasmiðju.


