Morgunkaffi Mentorverkefnisins
Description
Við bjóðum öllum konum sem hafa verið paraðar saman í Mentorverkefninu 2026–2027 hjartanlega velkomnar í morgunkaffi og fræðslufund 26.nóvember kl 8:30-10:00 á Kjarval.
Verndari Mentorverkefnisins í ár, Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania, ætlar að deila með okkur reynslu sinni og góðum ráðum inn í starfsárið. Hún mun meðal annars fjalla um hvernig hægt er að nálgast mentorsambandið, byggja upp gott samstarf og fá sem mest út úr verkefninu, bæði sem mentor og mentee.
Þetta er frábært tækifæri til að eiga góðan morgun saman, fá innblástur og hvatningu frá öflugri fyrirmynd og koma Mentorverkefninu vel af stað.
Við hvetjum ykkur sérstaklega til að nýta morguninn til að hitta konuna sem þið hafið verið paraðar með og jafnvel skipuleggja fyrsta mentorhitting vetrarins.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Stjórn,
FKA Framtíð
