Konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar á FKA Viðurkenningarhátíð 2027.
Description
FKA viðurkenningarhátíðin fer fram miðvikudaginn 20. janúar 2027.
Viðurkenningarhátíðin er opinn viðburður og gjaldfrjáls.
Hátíðinni verður einnig streymt á mbl.is.
FKA Viðurkenningarhátíðin er haldin árlega þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar. Fylgjumst með hver hlýtur FKA Viðurkenninguna, Þakkarviðurkenninguna og Hvatningarviðurkenninguna.
HÉR má sjá upptöku frá síðustu Viðurkenningarhátíð sem var haldin á Hótel Reykjavík Grand þann 28. janúar 2026.
Bæði gefandi og hvetjandi að kynnast konum í atvinnulífinu á degi Viðurkenningarhátíðar og sérblað 2026 má lesa HÉR

FKA viðurkenningin 2026 fór til Evu Maríu Þórarinsdóttur Lange, framkvæmdastjóra Pink Iceland, en hún hefur byggt upp stöndugt ferðaþjónustufyrirtæki sem byggir í grunninn á því að leyfa hinseginfólki að njóta sjálfsagðra mannréttinda og öryggis.
Það var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem hlaut þakkarviðurkenningu FKA 2026 en hún hefur verið leiðandi í réttindabaráttu kvenna og verið öðrum fyrirmynd í störfum sínum jafnt innanlands sem erlendis.
Síðast en ekki síst fékk Erna Magnúsdóttir hvatningarviðurkenningu FKA, en hún stofnaði Ljósið og hefur stýrt frá upphafi. Þar er unnið ómetanlegt starf í þágu krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra, og aðdáunarvert hvað Ernu hefur tekist að byggja þar upp.
Það var árið 1999 sem Hillary Rodham Clinton fékk FKA Viðurkenninguna og hefð hefur skapast fyrir því að heiðra þrjár konur. Mynd Silla Páls.
HVAÐ: FKA Viðurkenningarhátíðin er haldin árlega þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar.
HVENÆR: 20. janúar 2027.
HVAR: Hótel Reykjavík Grand og streymi á mbl.is - kort HÉR
KLUKKAN: 17-19. Að lokinni athöfn fögnum við með FKA og viðurkenningarhöfum - léttar veitingar.
SKRÁNING: FKA Viðurkenningarhátíðin er opinn viðburður og gjaldfrjáls.
Hátíð verður í bæ þegar við heiðrum þrjár konur.
Sérstök dómnefnd fer yfir allar tilnefningar sem berast frá almenningi og atvinnulífinu og spennandi að sjá þær sem hljóta FKA þakkarviðurkenningu, FKA viðurkenningu og FKA hvatningarviðurkenningu 2027. Framlína íslensks viðskiptalífs og félagskonur FKA fagna með viðurkenningarhöfum og þeirra fólki á nærandi stundu.
FKA Viðurkenningin er veitt fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið eða er konum í atvinnulífinu sérstök hvatning og fyrirmynd.
Hvatningarviðurkenning FKA er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar í atvinnurekstri.
Þakkarviðurkenning FKA er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu.
Kær kveðja frá FKA
