Beint í efni
Mínar Síður

Mentorverkefni FKA Framtíðar fer af stað!

FKA Framtíð
AÐGENGI
Opið fyrir allar félagskonur
DAGUR OG TÍMI
Byrjar:
10. nóvember 17:30
Endar:
10. nóvember 20:00
STAÐSETNING
Deloitte - Dalvegur 30
Verð:
Innifalið í félagsgjaldi

Description

Kæra FKA konur!

 

Þann 10. nóvember hittumst við hjá Deloitte og setjum mentorárið formlega af stað!

 

Kvöldið verður fullt af tengslamyndun, innblæstri og skemmtilegum samtölum þar sem þátttakendur fá einstakt tækifæri til að kynnast áður en pörun fer fram.

 

Á viðburðinum kynnum við Mentorverkefni FKA Framtíðar, förum yfir dagskrá vetrarins og segjum frá þeim fjölbreyttu tækifærum sem bíða þátttakenda. Framundan eru spennandi viðburðir, ný tengsl og dýrmætt tækifæri til að læra af reynslu annarra og deila eigin reynslu.

 

Skráning sem mentor eða mentee er opin HÉR.
Segðu okkur frá þér, bakgrunni þínum, áhugasviðum og hvað þú vonast til að fá út úr mentorverkefninu.


Að viðburðinum loknum verður opnað fyrir óskir um pörun mentor og mentee. Þátttakendur sem mæta á viðburðinn fá jafnframt forgang við pörun í verkefnið í ár.

 

Komdu með opinn huga, góða skapið og smá forvitni. Þú veist aldrei hvaða kynni, samtal eða tenging getur orðið upphafið að nýjum tækifærum, frábæru mentorsambandi eða jafnvel ævilangri vináttu.

 

HVAR: Deloitte
HVENÆR: 10. nóvember

 

Takmarkað pláss í boði!

 

Tryggðu þér sæti sem fyrst og vertu með frá upphafi. Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast öflugum konum, stækka tengslanetið og leggja grunninn að afar gefandi mentorári.

 

Við hlökkum til að sjá þig og hefja mentorárið með krafti, gleði og fullt af nýjum tengingum!