Beint í efni
Mínar síður

14. nóvember 2021

Vertu hreyfiafl, hafðu áhrif á val á FKA viðurkenningarhöfum.

Hvaða kona/konur ættu að þínu mati að fá viðurkenningar FKA?

FKA Viðurkenningarhátíðin er haldin árlega við hátíðlega athöfn þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar. Að vanda verða veittar viðurkenningar á hátíðinni til þriggja kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd.

Hægt er að tilnefna í einum flokki, tveimur eða öllum til og með 25. nóvember 2021.

Tilnefna HÉR

Dómnefnd skipuð sjö aðilum fer yfir allar tilnefningar og verða úrslit kynnt á FKA Viðurkenningarhátíðinni þann 20. janúar 2022 á Grand Hótel Reykjavík.

FKA kallar eftir tilnefningum frá félagskonum, almenningi og atvinnulífinu sem dómnefnd mun meta og á endanum velja konur sem hljóta viðurkenningu.

Á FKA viðurkenningarhátíðinni 2022 verða þrjár viðurkenningar veittar:
FKA viðurkenningin
FKA þakkarviðurkenningin
FKA hvatningarviðurkenningin

Konurnar sem tilnefndar eru þurfa ekki að vera félagskonur FKA heldur hvaðan sem er úr samfélaginu.

Taktu frá fimmtudaginn 20. janúar 2022 fyrir FKA Viðurkenningahátíðina.

Góðar stundir!

Árið 2021 fór FKA Viðurkenningarhátíðin fram á Hringbraut á tímum heimsfaraldurs, hátíðin varð sjónvarpsþáttur sem vakti athygli. Þar fékk Fida Abu Libdeh FKA Hvatningarviðurkenningu 2021, Bryndís Brynjólfsdóttir FKA þakkarviðurkenningu 2021 og María Fjóla Harðardóttir FKA Viðurkenninguna 2021. Með þeim á myndinni eru þær Áslaug Gunnlaugsdóttir fyrrum stjórnarkona FKA, Hulda Ragnheiður Árnadóttir þá formaður FKA, Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Viðurkenningarhafar 2020 Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, Anna Stefánsdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir sem tóku við FKA viðurkenningunni, FKA þakkarviðurkenningunni og FKA hvatningarviðurkenningunni.

#hreyfiafl #fka #sýnileiki #tengslanet #FKAViðurkenningarhátíðin2022

Dagsetning
14. nóvember 2021
Deila