Beint í efni
Mínar síður

13. ágúst 2026

Ný stjórn, sama takturinn: FKA norðurland heldur áfram að efla konur í atvinnulífinu

Ný stjórn FKA í ört vaxandi félagi kvenna í atvinnulífinu á norðurlandi hefur verið kosin fyrir félagsárið 2026-27 í henni eru:
Aðalbjörg Kristín Snorradóttir
Arnheiður Jóhannsdóttir
Ásdís Sigurðardóttir
Bryndís Óskarsdóttir
Hanna Dögg Maronsdóttir
Jóhanna Hildur Ágústsdóttir, formaður.
Sif Jónsdóttir


Sterkt hreyfiafl kvenna í atvinnulífinu er ein af undirstöðum heilbrigðs og fjölbreytts
atvinnulífs á landsbyggðinni — það skapar rými fyrir konur til að stíga fram, taka pláss í
forystu og byggja upp tengslanet sem annars væri erfitt að finna utan.
,,Okkur hefur fjölgað núna um helming á nokkrum mánuðum sem sýnir okkur hvað þörfin
fyrir gefandi vettfang fyrir konur sem vilja næra sig og aðra.” Deildin hefur lagt aukna
áhersla á sýnileika og virkara samtal við félagskonur — skýr vísbending um að þörfin fyrir
slíkt afl er raunveruleg og vaxandi.


„Þetta er ekki saumaklúbbur með ársreikningi — þetta er hreyfiafl kvenna úr öllum greinum
atvinnulífsins, sem taka höndum saman, lyfta hver annarri upp og láta hlutina gerast. Við
höldum áfram að tengja, hvetja og gera 2026-27 að ári sem munar um," segir Jóhanna
Hildur, formaður en hún hefur sjálf verið í félaginu síðan 2019.


Þær konur sem hafa áhuga á að kynnast félaginu geta skoðað heimasíðu FKA.is, eða
skoðað instagram reikning fka norðurlands. Félagið telur um 1500 konur af öllu landinu
með ótal deildum og mikil tækifæri fyrir konur að láta gott af sér leiða og taka þátt í
hreyfiaflsverkefnum.


Nýja stjórnin er þegar farin að teikna upp vetrardagskrána og lofar að hún verði bæði fjörug
og gagnleg. Félagskonur eru hvattar til að fylgjast vel með og mæta hressar á næsta
viðburð.

Dagsetning
13. ágúst 2026
Deila