Beint í efni
Mínar síður

9. október 2025

Jafnrétti er ákvörðun – Viðurkenningarhátíð Jafnvægisvogarinnar 2025 haldin við hátíðlega athöfn.

           9. október 2025

90 fyrirtæki, 22 opinberir aðilar og 16 sveitarfélög hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis FKA, árið 2025.

Frábær árangur á meðal þátttakenda í Jafnvægisvog FKA

Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt í dag sína árlegu viðurkenningarathöfn en athöfnin var fyrst haldin árið 2019. Í ár er fjöldi viðurkenningarhafa alls 128 en það eru þeir þátttakendur sem náð hafa markmiði verkefnisins um jöfn kynjahlutföll í framkvæmdastjórn / efsta lagi stjórnunar.

Dr. Ásta Dís Óladóttir, prófessor við Háskóla Íslands og formaður Jafnvægisvogarinnar opnaði hátíðina og hrósaði stjórnendum fyrir eftirtektarverðan árangur í jafnréttismálum. Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður greiningar og ráðgjafar hjá Creditinfo, flutti fræðandi erindi undir heitinu „Er þetta ekki komið?“ og dómsmálaráðherra, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, flutti áhugavert og hvetjandi ávarp.

Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til níutíu fyrirtækja, tuttugu og tveggja opinberra aðila og sextán sveitarfélaga úr hópi þeirra 253 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu.

Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði.

„Það er ánægjulegt að sjá hversu mörg fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög í Jafnvægisvog FKA sinna jafnréttismálum af metnaði. Þrátt fyrir þennan góða árangur er ljóst að enn er langt í land með að ná fullu jafnrétti. Það er mikilvægt að hvert og eitt fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag skoði stöðu sína og krefjist þess að kynjahlutfall í æðstu stjórnunarstöðum sé sem jafnast, því jafnrétti er ekkert annað en ákvörðun“  að sögn Bryndísar Reynisdóttur verkefnastjóra Jafnvægisvogarinnar.

Jafnrétti hefur bein áhrif á umhverfið

Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar árið 2020 var kynntur nýr Jafnréttislundur FKA, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur útvegaði Jafnvægisvoginni. Viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA fylgir tré að gjöf til gróðursetningar í Jafnréttislundi FKA, sem viðurkenningarhafar gróðursetja sjálfir í lundinum, föstudaginn 10. október. Með því geta þátttakendur lagt sitt af mörkum til að draga úr kolefnisfótspori og jafnframt sýnt stuðning við jafnréttismál með táknrænum hætti.

Við val á trjám í lundinn er horft til þess að velja margar ólíkar tegundir af trjám, sem tákn um þann fjölbreytileika sem Jafnvægisvogin stuðlar að. Það er markmið Jafnvægisvogarinnar að endurtaka þetta árlega og væri ánægjulegt að sjá hlíðina fyllast á næstu árum, með auknu jafnrétti.

Eftirfarandi fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í ár:

1912FSREOlís ehf
A4GG Verk ehfOrkan IS ehf
AGRGuðmundur Arason ehfOrkusalan
AkraneskaupstaðurHafnarfjörðurOrkuveita Reykjavíkur
AkureyrarbærHagstofa ÍslandsÓsar - lífæð heilbrigðis hf.
Alþjóðasetur ehf.HarpaPricewaterhouseCoopers ehf.
APRÓHáskóli ÍslandsRafal ehf
Atmonia ehfHáskólinn á AkureyriRangárþing eystra
atNorthHáskólinn í ReykjavíkRangárþing ytra
AwareGO ehfHeilbrigðisstofnun AusturlandsRarik
Bakkinn vöruhótelHirzlan ehfReir Verk ehf.
BananarHornsteinnRekstrarvörur ehf
Björgun_SementHreint ehfReykjafell ehf
BL ehfHS OrkaReykjanesbær
Bláa LóniðHúnabyggðRÚV ohf
BorgarbyggðIKEASamkaup hf.
BorgarleikhúsindóSeðlabanki Íslands
BrandenburgInkasso ehfSeltjarnarnesbær
Bústólpi ehf.Isavia ohfSjóvá
CarbfixÍslandsbankiSkatturinn
Ceo HuxunÍslandshótelSkrifstofa Alþingis
Coca-Cola Europacific Partners ÍslandÍslenska GámafélagiðSólar ehf
COWI á ÍslandiÍSORStrætó bs
Crayon Iceland ehfÍvera ehf.Sveitarfélagið Árborg
CreditinfoKrónanSveitarfélagið Fjallabyggð
Dagar hfLand og skógurSveitarfélagið Skagaströnd
Deloitte ehfLotaSveitarfélagið Ölfus
Destination Complete ehf.LSRSýn hf.
dk hugbúnaðurLyf og heilsaSýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
ECIT VirtusLyfjaTaktikal ehf.
EFLA hfLögreglan á höfuðborgarsvæðinuTixly
Eignarhald ehf. - Pipar\TBWAMatís ohfTravel Connect
Elkem ÍslandMaven ehf.Tryggja
ELKOMiðbæjarhótel/Center Hotels ehf.Vegagerðin
FastusMosfellsbærVeitur
Festi hf.MotusVerkís
Félagsbústaðir hf.MúlaþingVerzlunarskóli Íslands
FiskistofaNasdaq IcelandVesturbyggð
Five Degrees EHfNáttúruverndarstofnunVinnueftirlitið
Fjársýsla ríkisinsNorðurál ehf.VÍS tryggingar hf.
Fjölbrautaskóli SuðurlandsNorðurorka hf.Wise lausnir
Fjölbrautaskóli SuðurnesjaNovaÞjóðskrá
Fjölbrautaskólinn við ÁrmúlaNói Síríus hf

Allar helstu upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu verkefnisins: https://www.fka.is/verkefni/jafnvaegisvogin

Frekari upplýsingar veitir: Bryndís Reynisdóttir verkefnastjóri Jafnvægisvogar FKA í síma 868-4682 eða í gegnum netfangið: jafnvaegisvogin@fka.is

Dagsetning
9. október 2025
Deila