Beint í efni
Mínar Síður
Ingibjörg Magnúsdóttir
Starfstitill
Viðskiptastjóri
Fyrirtæki
Lota verkfræði og ráðgjafastofa
Gef kost á mér til stjórnarsetu fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana
Tilbúin að koma fram í fjölmiðlum
Ég er stjórnandi í fyrirtæki
Stjórnarseta
Barnaheill mars 2024- áframhaldandi seta
Starfsferill
Viðskiptastjóri Lota, mar. 2024 - núverandi Ber ábyrgð á mótun og framkvæmd viðskiptastefnu fyrirtækisins, bæði út á við og í innri ferlum og gæðastarfi. Stýri markaðs- og kynningarmálum, ímynd og samskiptum fyrirtækisins við viðskiptavini og hagaðila. Sinni greiningarvinnu á viðskiptavinum, forgangsraða tækifærum og þróa markvissa eftirfylgni til að styrkja langtímasambönd og vöxt. Stýri þjónustukönnunum til viðskiptavina, greini niðurstöður og leiði umbótaverkefni til að tryggja stöðugar umbætur í þjónustu og gæðum. Sit í framkvæmdastjórn og tek virkan þátt í stefnumótun, forgangsröðun verkefna og ákvörðunum sem snúa að rekstri, vexti og ásýnd fyrirtækisins. Túlkur Þýðandi – Synergium Sweden AB, mar. 2019 - núverandi Þýði sérhæfð gögn, m.a. læknis- og lögfræðitexta og efni fyrir stafrænar þjónustur/viðmót Fjáröflunarstjóri UNICEF Á Íslandi, mar. 2020 - mar. 2024 Mótaði og framkvæmdi heildstæða fjáröflunarstefnu og herferðir, með áherslu á vöxt og mælanlegan árangur. Stýrði fjáröflunarteymi og þróaði ferla, markmiðasetningu og eftirfylgni sem bættu framkvæmd. Byggði upp og ræktaði lykilsambönd við styrktaraðila, gjafa og samstarfsfyrirtæki; leiddi samningaviðræður og samstarf. Skilaði reglulegri skýrslugerð til framkvæmdastjórnar og stjórnar um framvindu, árangur og tækifæri til umbóta. Veitti höfuðstöðvum UNICEF í New York og Genf stefnumótandi ráðgjöf um þróun fjáröflunarstarfs og studdi breytingar á stefnu og verklagi á yfir 100 skrifstofum UNICEF um allan heim. Verkefnastjóri UNICEF Á Íslandi, jan. 2018 - mar. 2020 Þróaði og stýrði áheita- og styrktarverkefnum frá hugmynd að framkvæmd, með skýrri ábyrgð, tímalínum og árangursmælingum. Stýrði símateymi (telemarketing), byggði upp og ræktaði sambönd við áheitagjafa/samstarfsaðila og samdi áheitatillögur; bar jafnframt ábyrgð á fjárhagsáætlunum og rekstraryfirsýn verkefna. Verkefnastjóri UNICEF Á Íslandi, feb. 2017 - jan. 2018 Mótaði og framkvæmdi markaðs- og kynningaráætlun, stýrði fjárhagsáætlun/kostnaðareftirliti og skilaði stöðuskýrslum og árangursyfirlitum með tillögum að vexti og aukinni sýnileika. Þróunaraðili– FitSuccess Iceland Fitsuccess Iceland, jan. 2015 - jan. 2017 Þróaði sérhæft netþjálfunarprógramm fyrir konur með áherslu á lífsstíl, heilsu og vellíðan. Leiddi þróun á þjálfunarappi/kerfi sem studdi notendur í framvindu og eftirfylgni. Hannaði og skipulagði efni, ferla og upplifun sem bætti þátttöku og árangur.