Beint í efni
Mínar Síður
Stjórnarseta
2021 Excel nefnd hjá Stjórnvísi (stjórn) 2021 Þjónustu- og markaðstjórnar nefnd hjá Stjórnvísi (stjórn)
Starfsferill
Ark Solutions ehf (anikaros.is) (Eigandi) Tara Shop (tara.is) 2007-2017 ( Eigandi)
Ábyrgðarstöður innan FKA
2024 Í nefnd Sýnileikadagsins 2023 Nýsköpunarnefnd FKA, Formaður 2021, 2022, Nýsköpunarnefnd FKA Framboðsyfirlýsing: Aníka Rós Pálsdóttir Framboð til eins árs stjórnarsetu í Atvinnurekenda AUÐI FKA Sælar, kæru félagskonur. Ég gef hér með kost á mér til eins árs stjórnarsetu í Atvinnurekenda AUÐI. Með framboði mínu vil ég leggja fram mína reynslu, menntun og brennandi áhuga á að efla samfélag okkar kvenna í atvinnurekstri um allt land. Í dag starfa ég sem sjálfstæður ráðgjafi fyrir konur í rekstri, þar sem ég sérhæfi mig í rekstrar- og þjónusturáðgjöf. Starfið veitir mér daglega innsýn í þær áskoranir og tækifæri sem konur í atvinnulífinu standa frammi fyrir. Ég hef sjálf víðtæka reynslu af atvinnurekstri en ég átti og rak Tara Shop ehf. í 10 ár. Þá er ég með BS í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og MS í stjórnun og hönnun þjónustu frá Háskóla Íslands. Félagsstarf FKA er mér mjög kært, en ég hef verið virkur félagi frá árinu 2019: Sat í Nýsköpunarnefnd í 3 ár og var formaður nefndarinnar árið 2023. Þar stóðu upp úr vel heppnaðir viðburðir sem við héldum í Grósku við frábærar undirtektir. Sat í nefnd Sýnileikadagsins 2024, þar sem ég sá meðal annars um öflun gjafa í lukkuhjólið. Hef haldið úti föstudagshittingum á netinu fyrir konur í Atvinnurekenda AUÐI. Helstu áherslur og framtíðarsýn Félagskonur í Atvinnurekenda AUÐI eru staðsettar um allt land og það eru ekki alltaf hæg heimatök fyrir alla að mæta á staðbundna viðburði. Ég tók frumkvæði að því að koma á net-hittingum innan deildarinnar, sem sýndi okkur hve mikil tækifæri felast í stafrænni tengingu. Mitt helsta markmið í stjórn er að brúa bilið á milli landshluta og efla stafræna þátttöku. Með því að flétta saman persónulega fundi og öfluga net-hittinga getum við skapað aðgengilegra, sveigjanlegra og sterkara tengslanet fyrir okkur allar – óháð búsetu. Með víðtæka sérhæfingu í rekstri og þjónustuhönnun, ásamt dýrmætri reynslu úr innra starfi FKA, tel ég mig geta verið mjög öfluga viðbót í stjórn Atvinnurekenda AUÐS næsta árið. Ég leita eftir ykkar stuðningi og hlakka til að starfa með ykkur!