Fréttir
FKA og Íslandsbanki undirrita áframhaldandi samstarf
Íslandsbanki og Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) hafa undirritað nýjan samstarfssamning en bankinn hefur verið aðalstyrktaraðili félagsins frá árinu 2010. Samningurinn er til þriggja ára.
Markmið samningsins er að stuðla að því að efla félagið og leggja áherslu á að miðla fjármálatengdri þekkingu og reynslu til félagskvenna í formi samvinnuverkefna, viðburða og fræðslu.
Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA:
„Stuðningur Íslandsbanka hefur verið félaginu afar mikilvægur síðustu árin, enda hefur félagið eflst mjög hin síðustu ár og stendur nú sem eitt mikilvægasta hreyfiafl kvenna í atvinnulífinu á Íslandi. Meginmarkmið félagsins er að auka á hlutdeild kvenna í stjórnunarstöðum og þétta raðirnar okkar sem öflugt tengslanet. Þar hefur Íslandsbanki verið til fyrirmyndar í samstarfi, enda bankinn leiðandi í jafnréttismálum og þá ekki síst í því markmiði að réttur kynja í ráðningum og til starfsþróunar sé jafn. Áframhaldandi samstarf FKA við Íslandsbanka er því mikið fagnaðarefni og felur í sér stuðning við okkar starf í víðtækri merkingu.“Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:
„Við höfum unnið markvisst að því að jafna hlut kynjanna hjá okkur í Íslandsbanka og uppskerum við í dag eftir því. Það er okkur mikilvægt að sýna gott fordæmi þegar kemur að jafnréttismálum enda skiptir það öll fyrirtæki máli að fleiri konur stýri peningum og sitji í stjórnunarstöðum á Íslandi. Farsælt og gott samstarf við FKA hefur verið okkur mikilvægt í þeirri vegferð.“