english     leit  




  • 16. 09. 2010 - FKA konur til Stokkhólms.

  • 14. 09. 2010 - Tæklum Internetið

  • 9. 09. 2010 - Fyrsta samkoma haustsins



  • 24. júní 2010

    Kæru félagskonur.

     

    Ný stjórn og allar nefndir hafa haldið sinn fyrsta fund og munu allar nýta sumarið til að hlaða niður hugmyndum fyrir nýtt starfsár félagsins sem hefst í september.   

     

    Glæsilegt og vel heppnað golfmót FKA er afstaðið þar sem 48 konur spiluðu 9 holur í blíðskaparveðri í Hveragerði eftir ánægjulega heimsókn í FKA fyrirtækið Kjörís.  Allar fórum við glaðar heim hlaðnar vinningum eftir góðan kvöldverð í golfskálanum.                     

    Meira



     
    Nýjar FKA konur í júlí og ágúst:

     

    Yrki arkitektar ehf

    Sólveig Berg

    Volcano Iceland

    Steinunn Ketilsdóttir

    Ás Holding aps

    Ragnhildur Gottskálksdóttir

    Sædís gullsmiðja

    Sædís Bauer Halldórsdóttir

    Englahár

    Harpa Barkar Barkardóttir

    Pelsinn

    Ester Ólafsdóttir

    Jóhann Helgi & Co ehf

    Margrét Ormsdóttir 

     

    Helga Jóihanna Úlfarsdóttir



    Pistill - frá FKA konu!

    Ætlunin er að fá félagskonur til að munda pennana og skrifa um það sem þeim liggur á hjarta hverju sinni. Allt kemur til greina s.s. þjóðfélagsumræða, þankagangur hversdagsleikans, góð ráð í hraða nútímans, bestu uppeldisaðferðirnar, góðar dæmisögur o.s.frv.

    Áhugasamar FKA konur snúi sér til félagsins fyrir frekari upplýsingar með því að senda póst á  fka@fka.is 


    Ágúst 2007

     

    UMRÆÐAN......................
    Höfundur Linda Björk Gunnlaugsdóttir

     

    Íaugum útlendinga eru Íslendingar fullir af sjálfsöryggi, jákvæðni, orku og framkvæmdasemi, enda hefur útrás Íslendinga í fjárfestingum og landvinningum erlendis vakið mikla athygli. Litla Ísland sem eitt sinn var alls ekki á heimskortinu hefur á stuttum tíma orðið mikið tískuland og margir hverjir vilja feta í fótspor okkar enda erum við afburðafólk á flestum sviðum; eigum afburða íþróttafólk, listafólk, fjárfesta og svo mætti lengi telja.\

    Það er því gaman að vera Íslendingur erlendis og vera í viðskiptum í útlöndum þar sem við höfum skapað okkur nafn og þurfum ekki lengur að taka með okkur kort af Evrópu til að sýna hvar við erum í heiminum.

    Það er samt eins og Íslendingum finnist ekki gaman að vera Íslendingar – í það minnsta ekki ef miðað er við fréttir og umræðuna sem er í landinu flesta daga. Einhverra hluta vegna höfum við tileinkað okkur að segja flestar fréttir og ræða flesta hluti á neikvæðan hátt þannig að úr verður einhvers konar „Gróu á Leiti-umræðumenning“.

    Ég held að flestir geti verið sammála um að þetta er gífurlega þreytandi og erfið umræða. Eðlilega erum við ekki öll alltaf sammála og auðvitað á að ræða hlutina á raunsæjan hátt, en þurfum við ekki að taka okkur saman í andlitinu og byrja að vera jákvæðari – bæði í fréttaflutningi og almennri umræðu?

    Skattakóngar og -drottningar

    Ef litið er til umræðunnar undanfarna daga má finna fjölmörg dæmi um þessa almennu neikvæðni. Nægir hér að nefna hina endalausu umræðu um skattakónga og -drottningar

    landsins. Ekki ætla ég að taka afstöðu til þess hér hvort álagningarskrá RSK eigi yfir höfuð að vera opin almenningi, enda sýnist sitt hverjum í þeim efnum. En umræðan er bæði hörð og fyrirferðarmikil – og mikið fjallað um hina „nýju stétt“ sem gjarnan er kölluð „nýríka“ fólkið.

    Sú „stétt“ sætir oft óvæginni gagnrýni fyrir að geta leyft sér að eyða sínum eigin peningum og fyrir að „hafa það gott“. Jafnvel er þetta fólk sakað um að stuðla að aukinni stéttskiptingu í landinu. Í allri þessari umræðu gleymast gjarnan snjóboltaáhrif velgengninnar. Menn horfa fram hjá því að vel heppnaðar fjárfestingar – hérlendis og erlendis – leiða til þess að meiri peningar verða til á Íslandi. Það eykur atvinnuöryggi og velmegun, sem gerir enn frekari fjárfestingar mögulegar. Fyrir einungis örfáum árum hefði kvótaskerðing á borð við þá skerðingu sem boðuð var fyrir skemmstu þýtt að Ísland hefði riðað á barmi gjaldþrots. Það er hinsvegar vegna gífurlegrar velgegni annarra atvinnuvega undanfarin ár sem áfallið á þjóðarbúið er mun minna nú en það hefði verið þegar fiskveiðar voru aðalatvinnuvegur þjóðarinnar. Auk þessa hefur undanfarnar vikur mikið verið rætt um hversu fáar „skattadrottningar“ eru í landinu. Af umræðunni hefur mátt ráða að þar sé um að kenna gífurlegri afturhaldssemi íslenskra karlmanna – það sé þessum körlum að kenna að konur séu ekki ofar á listum yfir þá sem greiða hæstu skattana. Nú skal skýrt tekið fram að ég er mikill jafnréttissinni og vil veg kvenna mikinn, ekki síður

    en karla. Ég vil jafnrétti í launum og að allir fái jöfn tækifæri til að nýta hæfileika sína og sitji við sama borð þegar kemur að stöðuveitingum, burtséð frá kyni. Þetta eru grundvallar mannréttindi. Hins vegar skil ég ekki þessa umræðu um skattadrottningar og -kónga.

    Frábærir hestar og knapar

    Til að bæta gráu ofan á svart var nýverið mikil umræða í „gúrkutíð“ fjölmiðlanna um útflutning á hestum. Þar var það blásið upp í fjölmiðlum að sala á íslenska hestinum erlendis væri orðin gífurlega erfið þar sem ekki væri búið að selja alla þá hesta sem eru nú á leið til útlanda til að keppa fyrir hönd Íslands á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi. Þetta er lýsandi dæmi um þetta neikvæða sjónarhorn. Aðalatriði þessarar fréttar hefði að sjálfsögðu átt

    að vera að frábærir hestar og knapar væru nú á leið til Hollands til að halda uppi heiðri Íslands. Og bara svona til að upplýsa fólk – þá er rétt að benda á að oftar en ekki er það með vilja sem hestar eru ekki seldir áður en haldið er á HM. Því oftast fæst mun betra verð fyrir hestana EFTIR að þeir ná árangri á mótinu. Þessar fréttir eru hinsvegar enn athyglisverðari þegar haft er í huga að aldrei

    hefur eins hátt hlutfall hesta verið selt áður en haldið er á stórmót og einmitt nú.

    Rauði þráðurinn í þessu öllu saman er sá að við höfum gersamlega steingleymt hvernig við eigum að samgleðjast öðrum og vera jákvæð. Mikið voðalega væri nú gaman ef við færum nú að koma auga á jákvæðu og skemmtilegu hliðarnar á því sem við erum að gera; færum að vera stolt

    af því að vera Íslendingar. Við búum í frábæru landi, höfum meira að segja fengið frábært sumar, og erum bara upp til hópa fullkomlega frábær.

     

    Höfundur er forstjóri A. Karlssonar og Besta ehf. og meðlimur

    í FKA; Félagi kvenna í atvinnurekstri.
    Grein sem birtist í Morgunblaðinu 9. ágúst 2007

     

     

     

     

     

     

     

    Eldri Pistlar

     


    Nýsköpunarmiðstöð Íslands
    Félag kvenna í atvinnurekstri - Pósthólf 8683 - 128 Reykjavík - fka@fka.is - Sími 897-0711