english     leit  




  • 16. 09. 2010 - FKA konur til Stokkhólms.

  • 14. 09. 2010 - Tæklum Internetið

  • 9. 09. 2010 - Fyrsta samkoma haustsins



  • 24. júní 2010

    Kæru félagskonur.

     

    Ný stjórn og allar nefndir hafa haldið sinn fyrsta fund og munu allar nýta sumarið til að hlaða niður hugmyndum fyrir nýtt starfsár félagsins sem hefst í september.   

     

    Glæsilegt og vel heppnað golfmót FKA er afstaðið þar sem 48 konur spiluðu 9 holur í blíðskaparveðri í Hveragerði eftir ánægjulega heimsókn í FKA fyrirtækið Kjörís.  Allar fórum við glaðar heim hlaðnar vinningum eftir góðan kvöldverð í golfskálanum.                     

    Meira



     
    Nýjar FKA konur í júlí og ágúst:

     

    Yrki arkitektar ehf

    Sólveig Berg

    Volcano Iceland

    Steinunn Ketilsdóttir

    Ás Holding aps

    Ragnhildur Gottskálksdóttir

    Sædís gullsmiðja

    Sædís Bauer Halldórsdóttir

    Englahár

    Harpa Barkar Barkardóttir

    Pelsinn

    Ester Ólafsdóttir

    Jóhann Helgi & Co ehf

    Margrét Ormsdóttir 

     

    Helga Jóihanna Úlfarsdóttir



    Fyrirtækjakynning:  FKA-Fyrirtækið -- þessa vikuna!

    Hér verður kynnt fyrirtæki FKA konu. Hægt er að kynna vörur, þjónstu, nýjungar o.s.frv.

    Þetta er góð ókeypis auglýsing sem félagskonur ættur að notfæra sér.

    Áhugasamar FKA konur snúi sér til félagsins fyrir frekari upplýsingar.  fka@fka.is

    _________________________________________________________________________

    Eldri FKA-Fyrirtæki vikunnar


    Snyrtimiðstöðin Lancome 

    Snyrtimiðstöðin Lancome er ein af elstu og jafnframt glæsilegustu snyrtistofum landsins. Fegrun  var stofnuð af Rósu Þorvaldsdóttur í Búðargerði 1979, en hefur verið starfrækt undir nýju nafni og í núverandi mynd  síðastliðin 10 ár.

    Á stofunni starfa að jafnaði 6-10 fagmenn sem ávallt eru í fararbroddi með nýjungar og nýjustu tækni, enda Snyrtimiðstöðin ein af þremur bestu stofum yfir snyrtistofu ársins 2007-2008.

    Jafnframt því að bjóða upp á almennar snyrtimeðferðir bjóðum við ýmsar sérmeðferðir s.s fótaaðgerðir, húðflúr (tattoo), heitsteinanudd, IPL ljósgeislameðferðir, augnháralengingu, gelneglur, brúnkumeðferðir, háreyðingu og margt fleira.

    Snyrtimiðstöðin er eina snyrtistofan á landinu sem að býður upp á tryggðarkort, þar sem þú safnar punktum og færð spennandi gjafir og friar meðferðir. Með því viljum við umbuna tryggum viðskiptavinum.

    Í öllum andlits- og líkamsmeðferðum fylgir húðgreining og ráðleggingar um umhirðu húðar og val á snyrtivörum. Lögð er áhersla á þægilegt andúmsloft, kertaljós og sérsamin slökunartónlist er í hverri meðferð frá Lancome.

    \ 

    Við erum í Húsi Verzlunarinnar

     kringlunni 7,103 Reykjavík

     Sími: 588-1990

    Opnunartími

    Mánudagar  9-18

    Þriðjudagar-föstudagar  8-18

     

    Fáðu mun meiri upplýsingar um okkur undir www.snyrtimidstodin.is

     

    31.10.2006

    Ráðningarþjónustan ehf.

    Mannauðurinn sífellt dýrmætari hverju fyrirtæki.

     

    Ráðningarþjónustan  er fyrirtæki vikunnar hjá FKA.  Ráðningarþjónustan er framsækið fyrirtæki, á traustum 11 ára grunni, sem sérhæfir sig í persónulegri þjónustu á sviði ráðninga, jafnt til fyrirtækja sem og umsækjenda.  Eigandi þess og framkvæmdastjóri er María Jónasdóttir sem nú hefur rekið fyrirtækið síðan í apríl í fyrra.  Fyrirtækið hefur vaxið mjög, en mikil veltuaukning varð á síðasta ári og stefnir í enn meiri veltuaukningu hjá fyrirtækinu í ár. 

     

    Þjónusta Ráðningarþjónustunnar er á öllum sviðum ráðninga og tekur fyrirtækið að sér umsjón ráðninga í allar stöður frá stjórnendum til almennra starfsmanna, ráðningar erlends starfsfólks sem og einstaklingsskönnun ( e. headhunting ).  Viðskiptavinir Ráðningarþjónustunnar eru allar tegundir fyrirtækja um allt landið.  Hjá Ráðningarþjónustunni starfa ráðgjafar með sterkan faglegan bakgrunn á sviði mannauðsfræða sem og víðtæka reynslu af íslenskum vinnumarkaði en Ráðningarþjónustan er einnig með þjónustu túlka vegna erlends vinnuafls.  Markmið ráðgjafa fyrirtækisins er að veita framúrskarandi faglega og persónulega þjónustu.  Gríðarlegur fjöldi umsækjenda er á skrá hjá Ráðningarþjónustunni en styrkur fyrirtækisins er að hafa mikla hæfni starfsfólk innanborðs sem og mjög fjölbreyttann umsækjendahóp.

     

    Þjónusta Ráðningarþjónustunnar felst í eftirfarandi þáttum :

    Aðstoð við gerð starfslýsinga, gagnagrunnsleit, birting auglýsinga á heimasíðu Ráðningarþjónustunnar, hönnun og gerð auglýsinga í dagblöð, svörun fyrirspurna frá umsækjendum, fagleg ráðgjöf og þátttaka í ráðningarviðtölum,  stöðluð viðtöl hjá ráðgjafa, sérhæfð viðtalstækni; hegðunartengd viðtöl, öflun umsagna, hæfnismat, persónuleikamat, fundaraðstaða, aðstoð við gerð ráðningarsamninga, túlkun og þýðingar fyrir ensku- og pólskumælandi starfsmenn, ráðningarferli lokað og umsækjendum svarað.  Ráðningarþjónustan sér þannig um allt ráðningarferlið, frá upphafi til enda.

     

    Töluverðar breytingar hafa orðið á starfsemi fyrirtækisins en fyrirtækið flutti í vor að Krókhálsi 5a, 110 Reykjavík en var áður til húsa að Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík.  Einnig hefur verið bætt við nýjum þjónustuþáttum sem og uppfærðir og endurbættir eldri þjónstuþættir. 

     

    Ráðningarþjónustan er með sem valkost í sínu greiningarferli persónuleikamat, Insights DiscoveryPersonal Profile © (IDPP)  frá Insights Learning and Development©  en það próf er víða notað af ráðningaskrifstofum.   IDPP  er notað bæði við ráðningar sem og starfsþróun og gefur lýsandi niðurstöður með þarfir vinnumarkaðarins í huga en það metur m.a.  starfstengda eiginleika á borð við almenna  styrkleika og veikleika í starfi, samskiptahæfni sem og stjórnunar-og leiðtogahæfni.   En það er ekki síður mikilvægt að horfa til eiginleika og persónuleika fólks en fyrri starfa og menntunar.     

     

    Ráðningarþjónustan hefur gengið frá samningum við erlendar ráðningarmiðlanir og bætt þar enn frekar þjónustu sína í ráðningum á erlendu vinnuafli.    Bæði er því um að ræða ráðningar erlendis frá sem og ráðningar á erlendu vinnuafli sem núþegar er á Íslandi.

     

    En af hverju er Ráðningarþjónustan að bjóða núna upp á ráðningar á erlendu starfsfólki? 

     

    Í dag er atvinnuleysi mjög lítið eða um 1% og því mjög erfitt fyrir atvinnurekendur að fá fólk í lægst launuðu störfin.   Atvinnurekendur eru oft ráðþrota þegar þeir standa frammi fyrir slíkri stöðu. Reynslan hefur sýnt að erlendir starfsmenn hafa haldið ákveðnum stöðugleika hér á landi þar sem atvinnurekendur hafa getað haldið meira jafnvægi í launakostnaði. Við teljum því þjónustu okkar jákvæða fyrir íslenskt atvinnulíf.  Atvinnurekendur geta treyst því að þeir séu að fá hæfa starfsmenn í fullu samræmi við lög á íslenskum vinnumarkaði og erlendir starfsmenn geta treyst að þær væntingar sem þeir hafa í upphafi ráðningar til íslenskra fyrirtækja standist með milligöngu Ráðningarþjónustunnar. 

     

    Sérstaklega vel verður tekið á móti félagskonum FKA þegar þær leita nánari upplýsinga hjá Ráðningarþjónustunni  en fyrirtækið telur það mikilvægt að styðja við framgang kvenna og fyrirtækja þeirra í íslensku viðskiptalífi. 

     

    Að lokum má geta þess að inn á heimasíðu Ráðningarþjónustunnar, www.radning.is

    er að finna nánari upplýsingar um fyrirtækið og starfsemi þess.


    Nýsköpunarmiðstöð Íslands
    Félag kvenna í atvinnurekstri - Pósthólf 8683 - 128 Reykjavík - fka@fka.is - Sími 897-0711