english     leit  




  • 16. 09. 2010 - FKA konur til Stokkhólms.

  • 14. 09. 2010 - Tæklum Internetið

  • 9. 09. 2010 - Fyrsta samkoma haustsins



  • 24. júní 2010

    Kæru félagskonur.

     

    Ný stjórn og allar nefndir hafa haldið sinn fyrsta fund og munu allar nýta sumarið til að hlaða niður hugmyndum fyrir nýtt starfsár félagsins sem hefst í september.   

     

    Glæsilegt og vel heppnað golfmót FKA er afstaðið þar sem 48 konur spiluðu 9 holur í blíðskaparveðri í Hveragerði eftir ánægjulega heimsókn í FKA fyrirtækið Kjörís.  Allar fórum við glaðar heim hlaðnar vinningum eftir góðan kvöldverð í golfskálanum.                     

    Meira



     
    Nýjar FKA konur í júlí og ágúst:

     

    Yrki arkitektar ehf

    Sólveig Berg

    Volcano Iceland

    Steinunn Ketilsdóttir

    Ás Holding aps

    Ragnhildur Gottskálksdóttir

    Sædís gullsmiðja

    Sædís Bauer Halldórsdóttir

    Englahár

    Harpa Barkar Barkardóttir

    Pelsinn

    Ester Ólafsdóttir

    Jóhann Helgi & Co ehf

    Margrét Ormsdóttir 

     

    Helga Jóihanna Úlfarsdóttir



    Félag kvenna í atvinnurekstri

    Félag kvenna í atvinnurekstri var stofnað 9. apríl 1999.

    Félagið er opið öllum þeim konum sem eiga og reka, reka eða hafa átt og rekið fyritæki, einar eða með öðrum. Félagskonur eru tæplega  600.

     

    FKA er ekki starfrækt í hagnaðarskyni.

      

    FKA – SKÝRSLA STJÓRNAR\

    starfsárið 2006 - 2007

     

    Ný stórn FKA hittist á sínum fyrsta stjórnarfundi  9 júní 2006 og skipti með sér verkum.   Á starfsárinu hittist stjórnin formlega á 11 stjórnarfundum þar af einum hálfs dags stefnumótunarfundi.

     

    Starf félagsins var mjög öflugt á árinu og skilaði sér í því að við göngum inn á þennan aðalfund með um 580 félagskonur.

     

    SEPTEMBER

    • Vetrarstarfi FKA hófst með Happy Hour á Hótel Nordica.   Kynnir var Helga Braga Jónsdóttir leikona

     

    • Vetrarstarf FKA Norðurlandi hófst með óvissuferð á veitingastaðinn Halastjörnuna í Öxnardal

     

    • Morgunverðarfundur var haldinn á Hótel Nordica.  Hafdís Jónsdóttir í World Class kynnti fyrirtæki sitt og hugmyndafræðina á bak við velgengni þess.

     

    • FKA tók aftur þátt í verkefninu “Útflutningsaukning og hagvöxtur” með því að styrkja eina félagskonu - Maríu K. Magnúsdóttur hjá MKM footwear design til að taka þátt í fræðsluverkefni á vegum Útflutningsráðs

     

    • FKA ákvað í samvinnu við Krabbameinsfélag Íslands að leggjast  á árarnar við að auka dreifingu á bleiku slaufunni með því að hvetja félagskonur til að hafa bleiku slaufuna til sölu í fyrirtækjum sínum.  

    OKTÓBER

    ·         Fyrsta hópferð FKA erlendis var farin til Kaupmannahafnar en tæplega 50 konur tóku þátt í 3 daga ferð þangað.   Voru útrásarfyrirtækin í borginni heimsótt m.a. Magasin du Nord og Nyhedsavisen.   Einnig voru fyrirtæki tveggja FKA kvenna heimsótt, JKE Design og líkamsræktarkeðjan EXXXXXXX.

     

    • Morgunverðarfundur var haldinn í samvinnu við fræðslunefnd félagsins á Hótel Loftleiðum.  Sigurður Skúlason kynnti bókina “Um hjartað liggur leið”.

     

    • Happy Hour var haldið á Hótel Nordica. 

     

    • Morgunarverðarfundur var haldinn hjá FKA Norðurlandi.  Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir flutti fyrirlesturinn “Draumar hafa tilhneigingu til að rætast”.

     

    • Heimsþing FCEM var haldið í Slóveníu

     

    • FKA Suðurlandi hélt morgunverðarfund í Rauða Húsinu, Eyrarbakka.   Margrét Ákadóttir flutti erindið “Áhrif takts á skapandi hugsun.”

     

     

    • Kvöldnámskeið var haldið í samvinnu við fræðslunefnd félagsins í vöruframsetningu.   Kennari var Margrét Ingólfsdóttir frá Iðnskólanum í Hafnarfirði.

     

    • Morgunverðarfundur var haldinn hjá Glitni, Kirkjusandi.   Steinunn Þórðardóttir framkvæmdastjóri Glitnis í London fjallaði um “Konur í útrás”

    NÓVEMBER

    ·         Happy Hour var haldið á Hótel Nordica.

     

    ·         FKA Norðurlandi fór í fyrirtækjaheimsóknir til nokkurra félagskvenna fyrir norðan.

     

    ·         Þóranna Jónsdóttir hélst tvö námskeið um skyldur stjórnarmanna í fyrirtækjum.

     

    ·         Námskeið var haldið á Hótel Loftleiðum í samvinnu við fræðslunefnd félagsins um bætt tölvupóstssamskipti.  Margrét Reynisdóttir ráðgjafi hélt námskeiðið.

     

    ·         Hádegisverðarfundur var haldinn á Hótel Holti.  Gestur fundarins var Hendrikka Waage skartgripahönnuður sem hefur vegna mjög vel í Bretlandi og víðar í Evrópu.  Hendrikka fjallaði m.a. um hvaða þættir hefðu skipt mestu í hennar velgengni.

     

    ·         Happy Hour var haldið hjá FKA Norðurlandi

    DESEMBER

    ·         Happy hour með jólaívafi var haldið á lífstílsstaðnum PIKKNIKK í Héðinshúsinu.  Flosi Ólafsson leikari flutti erindi um samskipti kynjanna.

     

    ·         Morgunverðarfundur var haldinn hjá FKA Suðurlandi á Selfossi.   Rósa Traustadóttir flutti erindi um jóga og slökun í streitu nútímans

    JANÚAR

    ·         FKA stóð að hálfs dags námsstefnu undir heitinu “Virkjum kraft kvenna” á Hótel Nordica í samvinnu við SA - Samtök atvinnulífsins og Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið.  Fjallað var um konur og stjórnun fyrirtækja út frá ýmsum sjónarhornum og þótti námstefnan takast frábærlega í alla staði en um 400 manns sóttu námstefnuna.

     

    ·         FKA viðurkenningarhátiðin var haldin á Hótel Sögu. 

    * FKA viðurkenningin:        Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs

    * Þakkarviðurkenningin:     Guðrún Erlendsdóttir, fyrrverandi hæstaréttardómari

    * Hvatningarviðurkenningin:  Guðbjörg Glóð Logadóttir, framkvæmdastjóri Fylgifiska

    * Ný verðlaun sem hlaut nafnið Gæfuspor voru veitt í fyrsta skipti, en þau hlaut fyrirtækið Atorka fyrir framgang kvenna innan raða fyrirtækja sem Atorka á.  En af 5 framkvæmdastjórum innan þeirra fyrirtækja eru 4 konur.

    Mjög góður rómur var gerður að viðurkenningarhöfunum og var öll umgjörð í kringum hana vel heppnuð.   Áætlað er að hátt í 300 manns hafi sótt hátíðina.

     

    ·         Stefnumótunarfundur stjórnar var haldinn á Hótel Borg.

    FEBRÚAR

    ·         Happy Hour var haldið á Akureyri og Reykjavík

     

    ·         FKA Norðurlandi – heimsókn til Glitnis á Akureyri – kynning á fyrirtækjaþjónustu bankans og ýmsar fjármögnunarleiðir voru kynntar

     

    ·         Morgunverðarfundur var haldinn í Landsbankanum, Bankastræti í samvinnu við fræðslunefnd félagsins.  Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur bankans ræddi um krónuna vs evruna, fjármögnun erlendis vs hérlendis ofl.

     

    ·         FKA bauð til landsins í samvinnu við SVÞ – samtök verslunar og þjónustu Lisu Johnson frá fyrirtækinu The Reachgroup í Bandaríkjunum.  Lísa er annar tveggja höfunda að bókinni “Don´t think pink” sem fjallar um hvernig fyrirtæki geta betur skilið og styrkt markaðsstarf sitt gagnvart konum.   Lísa hélt opinn fyrirlestur í Salnum í Kópavogi en einnig hélt hún einkaerindi fyrir helstu styrktaraðila FKA og SVÞ m.a. Glitni

    MARS

    ·         Happy Hour var haldið á Domo.

     

    ·         Morgunverðarfundur var haldinn á Hótel Loftleiðum með Svöfu Grönfeldt rektor HR en Svafa hélt erindi um leiðtogafræði.  

     

    ·         Morgunverðarfundur var í forvarnarhúsi Sjóvá-Almennra í samvinnu við fræðslunefnd félagsins þar sem nýr samningur FKA og Sjóvár var undirritaður, en hann felur í sér sérlausnir á liftryggingum fyrir félagskonur og starfsmenn þeirra.

    APRÍL

    ·         Happy hour var haldið á Domo þar sem ný framtíðarsýn og slagorð FKA var kynnt.  Sirry Arnardóttir sjónvarpskona sá um kynninguna, en hátt í 130 konur voru viðstaddar.    Félagskonur fengu einnig afsláttarmiða frá fyrirtækjum í eigu félagskvenna, gjafapoka frá félaginu ofl.

     

    ·         FKA blaðið kom út en í fyrsta skipti í sögu félagsins var blaðinu úthýst.  Ritstjórar voru FKA konurnar Inger Anna Aikman og Margrét Blöndal og um útlit sá FKA konan Bryndís Óskarsdóttir hjá Stíl

     

    ·         Alþjóðanefnd félagsins sendi út könnun til félagskvenna um m.a. væntingar þeirra til alþjóðastarfs félagsins.

     

    ·         Formaður og framkvæmdastjóri FKA heimsóttu FKA Norðurland á hádegisverðarfundi á Parken, Skipagötu undir yfirskriftinni “Afhverju á ég að vera í FKA?”

    MAÍ

    ·         Happy Hour í boði Prentmets á Lyngási.    Um 80 félagskonur kynntu sér starfsemi fyrirtækisins.

     

    ·         FKA Suðurlandi fór í fyrirtækjaheimsókn til Ullarhúss Dóru.

     

    ·         Aðalfundur FKA.  Á undan aðalfundinum hélt Margrét Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Icepharma erindi um kaup lykilstjórnenda á fyrirtækjum sem þeir vinna hjá.

     

     

    JÚNÍ

    ·         Golfmótið FKA Open verður haldið 7. júní n.k. í Borgarnes og er opið fyrir bæði vanar konur og byrjendur.

     

     

    Önnur viðfangsefni

     

     

    ·         Ákveðið hefur verið að nýta sumarið til að gera endurbætur á heimasíðu félagsins.   Tilgangur með þessum endurbótum er að gera síðuna notendavænni og auka notagildi hennar fyrir félagskonur.

     

    ·         Styrktarsamningur FKA  við Glitni rann úr núna í vor og vinnur stjórn félagsins að því að semja við nýjan styrktaraðila, en félagið þykir vera góður styrktarkostur fyrirtækja.

     

    ·         Þjónustusamningur við Impru verður endurnýjaður á allra næstu dögum.

     

     

     

     

    TENGSL – STYRKUR – VELGENGNI

    Við hvetjum þig alla leið

     

     

    FKA\

     

    Skýrsla stjórnar 2005 – 2006

     

     

     

    Fyrsti fundur nýrrar stjórnar var haldinn 25. maí 2005 í höfuðstöðvum Glitnis þar sem undirritaður var samstarfssamningur milli FKA og Glitnis um styrk að upphæð kr. 2.000.000.- til tveggja ára.

     

    Ný stjórn FKA hittist síðan á stefnumótunarfundi í lok júní 2005.   Þar var lagður grunnur að dagskrá vetrarins og áherslur nýrrar stjórnar ákveðnar.   Var ákveðið að formaður hitti alla nefndir á fyrsta fundi hverrar nefndar til að fara yfir starf vetrarins hjá nefndum.  Einnig var sú nýbreytni tekin upp að senda formönnum allra nefnda skipunarbréf.

     

     

    SEPTEMBER:

    • Fyrsti viðburður vetrarins var sameiginlegur fundur með VÍ – Viðskiptaráði Íslands undir heitinu “Eykur breidd í forystu hagnaðinn”.   Valgerður Sverrisdóttir ráðherra opnaði fundinn en framsögumenn voru þær Lisa Levey frá Catalyst í Bandaríkjunum og Þóranna Jónsdóttir stjórnendaráðgjafi hjá Kaliber Consulting. Að framsögum loknum var pallborðsumræða undir yfirskriftinni Viðhorf lykilmanna í íslensku viðskiptalífi. Þar tóku þátt þeir Ari Edwald framkvæmdastjóri SA, Erlendur Hjaltason forstjóri Exista, Hreggviður Jónsson forstjóri Vistor, Jón Karl Ólafsson forstjóri Icelandair og formaður stjórnar VÍ og Steinn Logi Björnsson forstjóri Húsasmiðjunnar.   Var fundurinn gríðarlega vel sóttur og mættu um 160 manns á fundinn – mikill meirihluti konur.

     

    • Fréttablað FKA 11 tbl. kom út – samtals 16 síður

     

     

    OKTÓBER

    • Ákveðið var að fylgja eftir fyrsta fundi vetrarins með öðrum fundi undir heitinu “Konur eru tilbúnar”.   Var efnið einnig valið þar sem á þessum tímapunkti voru 30 ár liðin frá Kvennafrídeginum.   Var Þórönnu Jónsdóttur falið að kynna nýútkomna skýrslu, sem unnin var af nefnd á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis um hlut kvenna í forystu íslensks atvinnulífs.   Síðan hélt Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur SI erindið “Konur eru tilbúnar”.   Á eftir fóru fram pallborðsumræður um næstu skref og í pallborði tóku þátt Hanna Birna Kristjánsdóttir stjórnmálafræðingur og borgarfulltrúi, Hanna Katrín Friðriksson framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs Eimskips, Jón G. Hauksson ritstjóri Frjálsrar verslunar,  Martha Eiríksdóttir stjórnarformaður EJS og Sigurður G. Guðjónsson lögfræðingur og útgefandi.

     

    • Í stefnumótunarvinnu stjórnar var ákveðið að láta sérsmíða námskeið um skyldur og hlutverk stjórnarmanna í fyrirtækjum.   Var ákveðið í samráði við fræðslunefnd FKA að fá Þórönnu Jónsdóttur og Þórdísi Sigurðardóttur til að semja námskeið fyrir FKA.   Þátttaka í námskeiðinu var slík að halda þurfti 2 námskeið og sóttu hátt í 50 konur námskeiðin.   Var greinilegt að mikill áhugi var á efninu og mikill þörf að kynna hvað felst í því að setjast í stjórnir fyrirtækja.

     

     

    NÓVEMBER

    • Haldinn var hádegisverðarfundur þar sem Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir var með framsöguerindi um starf prests í nútímasamfélagi.  Einnig kynnti Kristbjörg Kristmundsdóttir blómadropasérfræðingur hugmyndafræðina á bak við blómadropa.   Góð mæting var á fundinn.

     

    • Aðalheiður Karlsdóttir stjórnarkona sótti heimsþing FCEM í Argentínu þar sem endanlega var samþykkt innganga FKA í samtökin.

     

     

    DESEMBER

    • Jólafundur var haldinn 1. desember í Iðu.   Þar las Guðrún Alfreðsdóttir leikkona og FKA kona hugvekju og Ragnhildur Gísladóttir tónlistarkona skemmti.  

     

     

    JANÚAR

    • FKA viðurkenningin var haldin 26. janúar á Hótel Sögu og fengu eftirtaldir aðilar viðurkenningu:

    * FKA viðurkenningin:           Ásdís Halla Bragadóttir, forstjóri BYKO

    * Þakkarviðurkenningin:         Rakel Olsen, forstjóri Sigurðar Ágústssonar

    * Hvatningarviðurkenningin:  Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar Verslunar

    Mjög góður rómur var gerður að viðurkenningarhöfunum og var öll umgjörð í kringum hana vel heppnuð.   Áætlað er að í kringum 250 manns hafi sótt hátíðina.

     

     

    FEBRÚAR

    • Púltfundur var haldinn á Loftleiðum þar sem FKA viðurkenningarhafi 2006, Ásdís Halla Bragadóttir flutt fyrirlesturinn “Stjórnandi eða leiðtogi?”.

     

    • Ráðstefna var haldinn í Bláa Lóninu undir heitinu “Náðu taki með mörkun”.   Aðalfyrirlestari var Sigurður Þorsteinsson frá Design Group Italia en einnig fluttu erindi Gerður Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjóri Útilífs og Atli Freyr Sveinsson, meðeigandi í Íslensku auglýsingarstofunni.   Ráðstefnan var glæsileg í alla staði og voru þátttakendur rúmlega 40

     

     

     

    MARS

    • Félagið keypti hálfs dags fyrirlestur af Stjórnendaskóla HR þar sem Prof. Joe M. Pons kennari við MBA nám HR flutti fyrirlestur um markaðsmál – “Advertising creativity”

     

    • Fræðslunefnd stóð fyrir fyrirtækjaheimsókn og kynningu í Maður Lifandi.

     

     

    APRIL

    • Birna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri markaðsviðs Glitnis hélt fyrirlestur um nafnabreytingu Íslandsbanka yfir í Glitni – sem er ein stærsta markaðsherferð sem sést hefur á Íslandi.   Fundurinn var mjög vel sóttur og þótti konum áhugavert að kynnast hversu umfangsmikil vinna liggur að baki slíkri markaðsherferð.

     

    • Formaður FKA skrifaði undir samning um Janfréttiskennitöluverkefni, sem er 2ja ára samstarf Janréttisstofu, Jafnréttisráðs, SA, Viðskiptaháskólans á Bifröst og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins.   Felur verkefnið í sér að rannsóknarsetrið á Bifröst vinnur upplýsingar hjá 100 stærstu fyrirtækjum landsins og greinir árangur þeirra í jafnréttismálum s.s. fjölda kvenna í stjórnum, æðstu stöðum o.s.frv.

     

    • Gjaldkeri félagsins heimsótti félag sunnlenskra kvenna og kynnti FKA.

     

    • Fréttablað FKA 12 tbl. kom út – stærsta blað hingað til – samtals 24 síður.

     

     

    MAÍ

    • Fyrsti framkvæmdastjóri FKA – Sofía Johnson var ráðin í hlutastarf.   Sofía mun hefja störf 1. ágúst n.k.

     

    • Spurningarkönnun send til félagskvenna frá alþjóðanefnd þar sem reynt verður að kortleggja helstu viðskiptalönd FKA ásamt eðli samskipta þeirra við útlönd.

     

    • Námskeið fyrir FKA um “fjárfestingar í fasteignum erlendis”.   Fyrirlesari var Brynhildur Sverrisdóttir.

     

    • Morgunverðarfundur frá fræðslunefnd hjá KPMG um lestur ársreikninga.

     

    • Morgunverðarfundur frá fræðslunefnd hjá Glitni um lífeyrismál.

     

    • Alþjóðadagur var haldinn 19. maí í Glym, Hvalfirði þar sem m.a. Hansína B. Einarsdóttir kynnti “All Senses” samstarf á alþjóðamarkaði.  Að auki sagði Edda Sverrisdóttir frá ferð sinni til Kanda þar sem hún sótti heim félag kvenna í atvinnurekstri.

     

    • Félagskona nr. 500 - Guðfinna Theodórsdóttir frá Seafood Union – var tekin inn í félagið við hátíðlega athöfn.

     

    • Aðalfundur FKA.  Á undan sjálfum aðalfundinum flytur Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor við HÍ fyrirlesturinn “Hvernig leiðtogi ertu í eigin lífi?”

     

     

    JÚNÍ

    • Golfmót FKA Open haldið 8. júní og er opið fyrir bæði vanar konur og byrjendur.  Golfmótið verður haldið undir merkjum “Bleika bikarsins” – til styrktar brjóstakrabbameinsrannsóknum Krabbameinsfélagsins.

     

     

    ÖNNUR HELSTU VIÐFANGSEFNI

    • Stofnuð voru svæðisfélag FKA bæði á Norðurlandi og Suðurlandi á árinu.   Þörfin og drifkrafturinn að þessum félögum koma frá heimakonum á hverjum stað og telur stjórn FKA að það sé forsenda fyrir því að svæðisfélögin verði öflug og dafni.   Í vinnslu eru samningur starfsreglna fyrir svæðisfélög.

     

    • Dögg Pálsdóttur hjá DP og Láru Pétursdóttur Congress var falið að gera drög að lagabreytingum fyrir FKA sem lagðar verða fyrir á aðalfuni 2006.   Lagabreytingar eru einkum gerðar vegna þess að upphaflegu lög FKA eru síðan 1999 og hefur frá þeim tíma verið samþykktar nokkrar lagabreytingar og lögin farin að bera merki þess að vera “plástuð”.   Einnig hefur í  nokkrum tilfellum, þegar reynt hefur á lögin, þau ekki þótt nógu ítarleg og skýr.

     

    • Stjórn ákvað að standa fyrir “Happy hour” einu sinni í mánuði þar sem engin dagskrá væri, en konum gefið tækifæri til að hittast í lok vinnudags og efla tengslin.

     

    • Frjálsri verslun sent formlegt erindi þar sem hvatt er til birtingar á fjölda kvenna í framkvæmda- og stjórnum fyrirækja um leið og safnað er saman upplýsingum um “300 stærstu fyrirtæki ársins.”

     

    • Sirrý Hallgrímsdóttir hjá Sjá tilnefnd í rýnihóp varðandi enduropnum vefsins www.kvennaslodir.is

     

    • Dagný Halldórsdóttir frá 112 Neyðarlínunni tilnefnd í nefnd, sem endurskoða á starfsgrundvöll Lánatryggingasjóð kvenna.

     

    • Eftir að auglýst hafði verið eftir þátttöku meðal félagskvenna í verkefnið “Útflutningsaukning og hagvöxtur” var Elínóra Sigurðardóttir hjá Elás valin í verkefnið í samráði við Útflutningsráð.  Taldi Elínóra að verkefnið hefði skipt gríðarlega miklu fyrir sig og sitt fyrirtæki.

     

    • Heimasíða félagsins var yfirfarin í upphafi starfsárs og ýmsar endurbætur gerðar á henni.

     

    • Þjónustusamningur við Ipmru var endurnýjaður til eins árs og gildir til vors 2007.  

     

    • Alls hélt stjórn 13 formlega stjórnarfundi

    Skýrsla stjórnar árið 2005 -2006

    Margrét Kristmansdóttir, formaður

     

    Skýrsla stjórnar árið 2004-2005.

     Fundarstjóri,

     

    Ágætu FKA konur. 

     Það er mér sönn ánægja að flytja ykkur skýrslu stjórnar og rekja það helsta úr starfinu á þessu starfsári.  Starfsárið hefur gengið gríðarlega vel og það er ekki síst að þakka ykkar góðu þátttöku og öflugu nefndarstarfi.  Félagið hefur eflst og dafnað og vakið verðskuldaða athygli.  

    Hér á eftir ætla ég að minnast á starfið í nokkrum orðum.  Fundargerðin verður síðan birt á heimasíðu félagsins.   

    Stjórn kom saman að loknum aðalfundi þann 4. júní 2004 og skipti með sér verkum.  Jafnframt var haldinn 1. stefnumótunarfundur nýkjörinnar stjórnar í kjölfarið.  Þar var unnið að starfsáætlun og markmiðasetningu fyrir komandi starfsár. 

    Samþykkt var að leggja áherslur á eftirfarandi:  Tryggja rekstur FKA,  öflugt nefndarstarf, samstarf og samskipti við önnur félög, s.s. Auður í krafti kvenna, fagfélög ýmis konar, samstarf við landsbyggðarkonur, erlend samstarf – Heimsþing FCEM,  5 ára afmæli FKA, auka virkni félagskvenna og vinna að breyttum áherslum í dagskrá starfseminnar.   Umræðu um opnun félagsins gagnvart æðstu stjórnendum fyrirtækja var samþykkt að hafa á dagskrá vetrarins og var henni vísað til Erindreka félagsins til frekar umfjöllunar og þróunar.  Því miður hefur því verkefni miðað frekar hægt. 

    Á starfsárinu hafa verið haldnir þrír stefnumótunar- og samráðsfundir með þátttöku Erindreka félagsins til að ræða um starf félagsins í nánustu framtíð.  Þótti það eðlilegt til að tryggja sem bestan undirbúning undir hugsanlegar breytingar og til að endurskoða starf félagsins á fimm ára starfsafmæli þess. 

    Alls voru haldnir 12 stjórnarfundir á árinu og hefur stjórnin hist þar á milli á óformlegum fundum eftir verkefnum sem í gangi hafa verið hverju sinni.

    Félagskonur eru í dag um 400 talsins og frá síðustu áramótum hefur þeim fjölgað um um 68 sem sýnir vaxandi áhuga fyrir félaginu.   

     

    Nefndarstörf:

    Innan félagsins eru nú starfandi sex nefndir; alþjóðanefnd, félaga- og kynningarnefnd, fræðslunefnd, heimasíðunefnd, ritnefnd og uppstillingarnefnd.   Má segja að nú sem aldrei fyrr hefur nefndarstarfið verið blómlegt og skilað félaginu miklum árangri.  Munu nefndarformenn gera betur grein fyrir störfum nefndanna hér á eftir.  En ég vil þó nefna hér nokkur atriði:   

    Alþjóðanefndin hefur unnið einstakt starf og í nefndinni eru saman komnar sannkallaðar valkyrjur.  Nefndin leiddi öfluga sendinefnd með frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands í forsæti á Heimsþing FCEM sem haldið var í Glasgow í október sl. Það er hreint út sagt frábært starf sem nefndin hefur unnið.   Og enn í dag fáum við að njóta krafta þeirra með því að þiggja heimsókn frá tveimur erlendum gestum, Bola Olabisi og Avril  Owton,  sem sérstaklega eru komnar til að taka þátt í Alþjóðadegi kvenna í atvinnurekstri. 

    Ég gat þess á síðasta aðalfundi að þáttur Aðalheiðar Karlsdóttur, stjórnarkonu í FKA og tengiliðs stjórnar við alþjóðanefnd væri mikill í uppbyggingu alþjóðatengsla félagsins og nú hefur henni hlotnast sá heiður fyrir hönd félagsins að vera fulltrúi FKA í alþjóðlegri nefnd FCEM Tarsk Force Europe, sem vinnur að útbreiðslu FCEM í Evrópu og á Norðurlöndunum.   

     

    Félaga- og kynningarnefnd stóð fyrir kynningarfundi þann 13. mars s.l. í Iðnó.  Var fundurinn sæmilega sóttur og ljóst er að undirbúningur og eftirfylgni þarf að vera meiri.  Það er mikill áhugi fyrir félaginu og gleðilegt að þó nokkuð margar konur skrá sig af eigin frumkvæði í félagið eftir að hafa heyrt af því í fjölmiðlum eða eftir ábendingum FKA kvenna.  Talsverð vinna er fyrir nefndarkonur að nálgast upplýsingar um konur í atvinnurekstri.  Því þurfa allar félagskonur að leggjast á eitt að miðla upplýsingum til nefndarkvenna.  Tengiliður stjórnar við nefndina var Hildur Petersen.  Hennar starf verður seint þakkað fyrir félagið og er reynsla hennar og þekking ókaflega dýrmæt okkur öllum. 

     

    Fræðslunefndin hefur staðið fyrir mjög áhugaverðum morgunfundum í samstarfi við Íslandsbanka og KB Banka.   Er ljóst að mikill áhugi er innan félagsins á slíkum fundum og var efni og framsetning starfsmanna Íslandsbanka og KB Banka áhugavert og upplýsandi, jafnframt sem móttökur voru glæsilegar.  Sótti þessa fundi stór hópur félagskvenna.  Má segja að formaður nefndarinnar, Sigrún Böðvarsdóttir hafi barist eins og hetja við að brydda uppá nýjungum og í vinnslu eru áhugaverð verkefni fyrir næsta starfsár.   

     

    Heimasíðunefndin hefur leitast við að kynna og hvetja konur til að nota heimasíðuna okkar vel.  Ljóst er þó að enn má gera betur og nauðsynlegt er að birta áhugavert efni um viðskipti á síðunni.  Þá þarf að skoða sérstaklega af stjórn og heimasíðunefnd hvort ritskoða þurfi það efni sem sent er undir heitinu ,,Pistillinn”.  Mikill munur er á fjölpósti félagsins sem er ætlaður til innri málefna félagsins en ,,Pistillinn” er ætlaður meira fyrir ytri málefni.   

     

    Ritnefndin gaf út tvö glæsileg fréttabréf þetta starfsárið.  Afmælisblað félagsins var mjög vandað og ritnefndinni til sóma í hvívetna.  Því er einnig dreift til fyrirtækja og stofnana.  Því miður verður að segjast eins og er að félagskonur eru ekki nógu duglegar að nota þennan góða miðil til að koma fyrirtækjum sínum á framfæri, bæði með auglýsingum og eins með greinum um áhugavert efni.  Prentsmiðjusystur, þær Guðrún og Ingibjörg hjá Prentsmiðju Hafnarfjarðar báru hitann og þungan af útgáfu blaðsins eins og fyrri daginn og hafi þær þökk fyrir. 

     

    Uppstillingarnefnd hefur síðan unnið að undirbúningi aðalfundar hvað varðar auglýsingu eftir framboðum til stjórnar FKA.  Nýr formaður, Dagný Halldórsdóttir sem var áður í nefndinni  tók við stjórn nefndarinnar aðeins tveimur dögum fyrir þennan aðalfund af Hansínu B. Einarsdóttur, formanni uppstillingarnefndar sem ákvað með stuttum fyrirvara að bjóða sig fram til formanns félagsins. 

     

     Dagskrá vetrarins, stutt yfirlit. 

     Í byrjun júní sl.  fóru þrjár stjórnarkonur ásamt tveimur félagskonum til Akureyrar þar sem haldinn var fundur með konum búsettum á Akureyri og í nágrenni.  Var fundurinn vel sóttur og stóð til að honum yrði fylgt eftir með aðstoð frá stjórn.  Var Elínu Reynisdóttur falið að annast þau tengsl.  Því miður hefur þetta ekki gengið eins vel og skyldi en sjálfsagt er að halda áfram að byggja upp meiri tengsl á svæðum utan Reykjavíkursvæðisins milli kvenna í rekstri.  Það er þó ljóst að ekkert gerist í þessum málum nema að konur búsettar á svæðinu taki virkan þátt. 

     

    Haustfundur FKA (kvöldfundur) var haldinn í Laugum SPA í Laugardalnum, fimmtudaginn 16. september 2004.  Jafnframt var fimm ára afmælis FKA minnst.   Var konum boðið að skoða hina glæsilegu aðstöðu hjá Laugum undir leiðsögn Hafdísar Björnsdóttur, eiganda og þáðu að lokum léttar veitingar.  Vetrardagskrá FKA og glænýtt fréttablað var kynnt og lög voru flutt úr söngleiknum um  Edit Piaff við góðar undirtektir.  Á eftir var farið í Kaffi Flóru í Grasagarðinn og snæddur léttur kvöldverður í yndislegu umhverfi.  Vetrardagskráin byrjaði því af miklum krafti.

     

    Heimsþing FCEM – Glasgow var haldið þann 10. -15. október sl.

    Þingið sóttu 16 FKA konur ásamt frú Vigdísi Finnbogadóttur sem fór fyrir hópnum.  Hélt Vigdís ræðu á opnunarhátíðinni og var glæsilegur fulltrúi okkar.  Á þinginu var lögð áhersla á samskipti og tengslamyndun í heimi nútímans.  Það var afar fróðlegt og gagnlegt að sækja þingið og kynnast konum alls staðar að úr heiminum, víkka þannig sjóndeildarhringinn.  En nánar um það síðar.   

     

    Púltfundur (kvöldfundur)  var haldinn 20. október á Hótel Borg og var gestur fundarins Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi og sjónvarpsmaður.   Fundurinn var mjög skemmtilegur, fróðlegur og sérlega vel sóttur.  Einnig var sagt frá Heimsþingi FCEM í máli og myndum.   

     

    Jafnframt var morgunverðarfundur hjá KB Banka þennan sama dag og var hann mjög vel sóttur. Þessi dagur var því sannkallaður FKA dagur !  

     

    Púltfundur (morgunverðarfundur)  var haldinn þann 10. nóvember

    á Loftleiðum og var aðalgestur fundarins Thomas Möller, ráðgjafi sem ræddi um tímastjórnun.   Jafnframt kynntu tvö fyrirtæki starfsemi sína, Pfaff-Borgarljós og Bergís ehf. 

     

    Jólafundur (kvöldverðarfundur) var haldinn 2. desember í Iðnó.  Glæsileg dagskrá með söng söngsveitarinnar Maliku og upplestri Jóhönnu Kristjánsdóttur auk þess sem Tenórinn tók nokkur lög sem var gjöf frá Margréti Rósu framkvæmdastjóra Iðnós til FKA.

    Einnig flutti sr. Lena Rós Matthíasdóttir hugvekju.  Guðrún Alfreðsdóttir, sem rekur fótaaðgerðarstofu í eigin nafni var veislustjóri og gerði það með hreinustu prýði.  Félagskonur fjölmenntu og í hópnum voru þó nokkrar konur utan af landi.   

     

    FKA Viðurkenningin var veitt í sjötta sinn þann 20. janúar 2005 á RadissonSAS, Hótel Sögu, Súlnasal.  að viðstöddum fjölda gesta. 

    Viðurkenningarhafar voru: 

    FKA-viðurkenninguna hlaut Katrín Pétursdóttir, Lýsi hf, Edda Jónsdóttir, Gallerí i8 hlaut hvatningarviðurkenninguna og þakkarviðurkenninguna hlaut Guðrún Steingrímsdóttir,  Lífstykkjabúðinni. 

     

    Viðurkenningarnar afhentu að þessu sinni,  frú Vigdís Finnbogadóttir, FKA-viðurkenninguna og þakkarviðurkenninguna en Einar Sveinsson, stjórnarformaður Íslandsbanka afhenti hvatningarviðurkenninguna. 

    Íslandsbanki var jafnframt styrktaraðili og bakhjarl félagsins að þessu sinni vegna FKA-viðurkenningarinnar. 

    Jóhanna Vigdís Arnardóttir söng nokkur lög við undirleik Karls Olgeirssonar en hófinu stýrði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. 

     Að lokum var glæsilegur kvöldverður í Grillinu sem var mjög vel sóttur.   

     

    Gerðu fjölmiðlarnir FKA-viðurkenningunni góð skil bæði fyrir og eftir hátíðina.   Ljóst er að viðurkenning sem þessi hefur mikið auglýsingagildi fyrir það fyrirtæki og konu sem hlýtur hana hverju sinni.  Má með sanni segja að Katrín Pétursdóttir, FKA viðurkenningarhafi hafi svo sannarlega komið,  séð og sigrað en hún hefur margoft síðan birst í fjölmiðlum eða verið þátttakandi í  

    pallborðsumræðum, m.a. á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins. 

     

    Púltfundur (morgunverðarfundur) var haldinn á Loftleiðum þann 3. febrúar 2005 og var gestur fundarins Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis hf, FKA-viðurkenningarhafi.  Flutti hún skemmtilegan fyrirlestur um rekstur sinn, tækifæri og framtíðarhorfur. 

     

    Heimsókn í Iðnskóla Hafnarfjarðar var á dagskrá þann 23. febrúar 2005.  List- og hönnunardeild skólans var heimsótt, hlustað á fyrirlestur um nýjustu strauma í framsetningu á vörum og gluggaútstillingum.  Einnig var kíkt í kennslustundir.  Þetta var sérlega vel heppnuð heimsókn. 

     

    Morgunverðarfundur í Íslandsbanka var á dagskrá þann 1. mars 2005 þar sem kynntar voru nýjungar í Fyrirtækjabankanum, rætt um gjaldeyrirsvarnir og ávöxtun í verðbréfasjóðum, skammtímaávöxtun og uppbyggingu eignasafns.  Hægt var að fylgjast með fundinum í útibúi Íslandsbanka á Akureyri.  Því miður var þátttakan nær engin fyrir norðan en mjög góð þátttaka hér í Reykjavík. 

    Kynningarfundur var haldinn síðan haldinn í apríl og hefði þátttakan mátt vera betri í þetta sinnið. 

     

    Í tilefni 75 ára afmælis Vigdísar Finnbogadóttur var haldin alþjóðleg ráðstefna á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur.  Nokkrar konur úr stjórn og félaginu sátu undirbúningsfundi með starfsmönnum stofnunarinnar á meðan á undirbúningi ráðstefnunnar stóð.  Einnig sóttu  FKA konur fyrirlestra og hátíðardagskrá í tengslum við afmælið. 

    Samkeppnishæfni í breyttri heimsmynd var yfirskrift ráðstefnu sem haldin var á Nordica Hóteli í samvinnu FKA og Auður í krafti kvenna.  Þarna komu þessi tvö félög saman í fyrsta sinn og skipuðu ráðstefnunefnd, þrjár konur frá hvoru félagi.  Ráðstefnan tókst mjög vel.  Því er einkum að þakka góðri samvinnu áhugasamra kvenna frá báðum félögunum  sem létu hendur standa fram úr ermum.  Einnig voru fyrirlesarar áhugaverðir,  ráðstefnan var mjög vel kynnt í fjölmiðlum og hana sótti fjöldi manns. 

     

    Boðað var til almenns félagsfundar sem haldinn var á Grand Hótel

    þann 26. apríl sl.  Tilgangur fundarins var að kynna framkomna tillögu til breytingar á 3. gr. samþykkta félagsins.  Vildi stjórn með þessum fundi gefa félagskonum tækifæri á að ræða framkomna tillögu áður en gengið yrði til atkvæðagreiðslu á aðalfundi.  Því miður var afar léleg mæting á þessum fundi en þær konur sem mættar voru skiptust á skoðunum eins og eðlilegt er.

     

    Og hér erum við mættar í dag á aðalfund og Alþjóðadag kvenna í atvinnurekstri í framhaldi af aðalfundinum.   

     

    Eins og ég sagði ég fyrr í orðum mínum hefur stjórn haldið 12 stjórnarfundi á árinu fyrir utan nokkra óformlega fundi þess á milli.  Til að gefa ykkur örlitla mynd af þeim verkefnum sem stjórn hefur verið að vinna að vil ég nefna þetta helst:

     

    Gengið var frá samningi til eins árs við Impru um áframhaldandi stuðning og þjónustu við FKA. Þessi stuðningur er gríðarlega mikilvægur og léttir um leið starf félagsins verulega. Jafnframt skuldbindur FKA sig til að kynna Impru og starfsemi þá sem Impra stendur fyrir þar sem hægt er að koma því við.   Sigríður Ingvarsdóttir, upplýsingafulltrúi Impru hefur starfað með stjórn FKA síðasta árið og eru henni hér þökkuð góð störf og samskipti.  Vona ég að FKA megi áfram njóta starfskrafta hennar.

     

    Við höfum verið að skoða samstarf við önnur félög, s.s. Auður í krafti kvenna, ýmis fagfélög o.s.frv.  Allar erum við sammála því að konur eru sterkari ef við störfum saman heldur en hver í sínu horni.  Þannig náist meiri árangur til að efla og hvetja konur til frekari dáða.  Vonandi verður áfram unnið að því að byggja upp gott samstarf við þessi félög.   Nú þegar eru margar Auðarkonur jafnframt félagar í FKA.

     

    Þá má nefna það hér að í framhaldi af FKA-viðurkenningarhátíðinni kom fulltrúi Íslandsbanka, Sigrún Kjartansdóttir að máli við formann FKA og óskaði eftir áframhaldandi samstarfi við FKA og skyldu viðræður fara fram fljótlega.  Íslandsbanki hefur nú þegar ákveðið að beiðni Eddu Sverrisdóttur, að styrkja FKA konur, sem ætla að fara á Global Summit ráðstefnu sem haldin verður í Mexico í júní n.k. um 1.500.000.-  Þessi styrkur er veittur í framhaldi af samtali Eddu Sverrisdóttur og Sigrúnar Kjartansdóttur sem staddar voru erlendis samtímis. Jafnframt bauð Sigrún að Íslandsbanki myndi styrkja FKA-viðurkenningarhátíðina um 500.000.- 

     

    Ekki liggur fyrir undirskrifaður samningur þessu til staðfestingar en stjórn félagsins hefur lagt til uppkast af skriflegum samningi milli FKA og Íslandsbanka þar sem kveðið er á um meðferð þessara fjármuna, ef um framhald verður að ræða,  samkvæmt reglum sem lagðar hafa verið til. Þessi samningur hefur verið kynntur fyrir Íslandsbanka.  Í samtali mínu við Sigrúnu Kjartansdóttur 19. maí 2005 sem hún hafði frumkvæði að,  harmaði hún að ekki náðist að ganga frá samningi til undirskriftar fyrir þennan aðalfund en ítrekaði að viðræðum yrði haldið áfram.   

    Að lokum, góðir fundargestir.   

     Þegar litið er yfir starfsemi félagsins á þessu starfsári er ljóst að starfsárið hefur verið líflegt svo ekki sé meira sagt.  Ég get með sanni sagt að mikill metnaður hefur einkennt stjórn sem hefur lagt ofurkapp á að efla félagið og gera félagsstarfið sem áhugaverðast.  Það hefur endurspeglað þátttöku ykkar og vil ég þakka fyrir góðar undirtektir í flestum viðburðum félagsins.  Við höfum líka lagt ofurkapp á að mynda góð tengsl við félagskonur með ýmsu móti.

    Síðustu ár hefur verið leitað til félagsins í meira mæli af fyrra bragði.  Formaður félagsins hefur mætt í fjölda þátta og blaðaviðtala  til að ræða um FKA, auk þess sem þáttagerðarmenn hafa leitað eftir upplýsingum um félagskonur sem hugsanlega viðmælendur. 

     

    Þá má ekki gleyma því að félagið á fulltrúa í nefndum sem skipaðar eru af Alþingi auk þess sem við sjáum nú FKA konur sitja í pallborði á hinum ýmsu þingum sem hefði verið nær óhugsandi fyrir nokkrum árum. 

     

    En eins og ég sagði hér áðan eru leiðir til að nálgast og finna konur í eigin atvinnurekstri ekki auðvelt verkefni og því verða konur að vera tilbúnar að koma sjálfum sér á framfæri og taka þátt í umræðum.

     

    Ég ætla ekki hér að gera að umræðuefni enn og aftur rýran hlut kvenna í stjórnunarstörfum, stjórnarsetum o.s.frv. hjá stórum fyrirtækjum.  En það er alveg ljóst í mínum huga að FKA hefur hér mikið verk að vinna.  Við höfum markvisst unnið að því að gera konur sýnilegri í rekstri, m.a. með FKA viðurkenningunni  og  hún hefur verið ein sú besta fyrirmynd,  því hvað teljum við ekki margar viðurkenningarhátíðar sem hafa komið í kjölfarið?  Og okkar fulltrúar hafa vakið verðskuldaða athygli og oft fengið meiri umfjöllun en aðrir sambærilegir.  Þetta þakka ég ekki síst frábærum FKA konum sem við höfum dregið fram í dagsljósið og eru verðugar fyrirmyndir kvenna í rekstri. 

     

    Það er því einlæg ósk mín að félagskonur skynji mikilvægi og nauðsyn þess að vera virkur þátttakandi til að sækja styrk og hvatningu hver til annarrar, með því að hittast, deila reynslu, fræðast, skiptast á skoðunum og mynda viðskiptatengsl.  Konur þurfa að standa saman og hvetja hver aðra til dáða. 

     

    Ég tók þátt í að setja fram framtíðarsýn FKA fyrir árið 2010 ásamt stjórnarkonum mínum og tveimur fulltrúm Erindrekanna.  Mig langar að deila henni með ykkur. 

    Ég vil sjá FKA hafa aukin áhrif í viðskiptalífinu, sjá félagið okkar sterkara, opnara og stærra félag sem nýtur virðingar og er eftirtektarvert fyrir öflugt starf.  Ég vil einnig sjá okkur sýnilegri og öflugri á alþjóðavettvangi jafnt sem hér innanlands. 

    Ég vil einnig sjá FKA konur verða eftirsóttar í stjórnir fyrirtækja þar sem þær geta miðlað af reynslu og þekkingu. 

     

    Þetta eru metnaðarfull og ögrandi orð sem ég set hér fram og ég hef fulla trú á því að okkur takist að ná þessum markmiðum. 

     

    Framundan eru stjórnarskipti og ég hef tekið þá ákvörðun að bjóða mig ekki aftur fram í stjórn.  Ástæðan er einföld; ég á fyrirtæki sem heitir Hagvangur og það fær starfskrafta mína óskerta í framtíðinni. 

     

    Ég vil því nota þessa stund og þakka fyrir mig og það traust sem þið gáfuð mér með því að kjósa mig í stjórn fyrir fjórum árum og treysta mér síðan að leiða félagið síðustu tvö árin sem formaður. 

    Öllum mínum stjórnarkonum svo og nefndarkonum og öðrum félagskonum færi ég einlægar þakkir fyrir einstakt samstarf. 

     

    Þá vil ég líka þakka sérstaklega samstarfið við Impru, þeim Sigríði Ingvarsdóttur, upplýsingafulltrú IMPRU og samstarfskonu okkar í  FKA og Berglindi Hallgrímsdóttur, framkvæmdastjóra. 

     

    Það var gæfuspor að gerast stofnfélagi FKA.  Að starfa í stjórn hefur verið mér bæði ljúft og skylt.  Ég hef kynnst stórkostlegum konum, reynsluríkum konum í ólíkum rekstri sem mun verða mér veganesti til framtíðar.

     

    En ég hef ekki skilið við FKA og hlakka til að starfa áfram af fullum krafti sem öflug félagskona.  Ég hlakka til að starfa með nýrri stjórn og ykkur því allar eigum við sameiginlegt markmið: 

    Að gera gott félag enn betra. 

     

    Bestu þakkir fyrir samstarfið og ég óska ykkur öllum velfarnaðar í framtíðinni. 

    Katrín S. Óladóttir

    formaður FKA 2004-2005. 

     


    Nýsköpunarmiðstöð Íslands
    Félag kvenna í atvinnurekstri - Pósthólf 8683 - 128 Reykjavík - fka@fka.is - Sími 897-0711