english     leit  




  • 16. 09. 2010 - FKA konur til Stokkhólms.

  • 14. 09. 2010 - Tæklum Internetið

  • 9. 09. 2010 - Fyrsta samkoma haustsins



  • 24. júní 2010

    Kæru félagskonur.

     

    Ný stjórn og allar nefndir hafa haldið sinn fyrsta fund og munu allar nýta sumarið til að hlaða niður hugmyndum fyrir nýtt starfsár félagsins sem hefst í september.   

     

    Glæsilegt og vel heppnað golfmót FKA er afstaðið þar sem 48 konur spiluðu 9 holur í blíðskaparveðri í Hveragerði eftir ánægjulega heimsókn í FKA fyrirtækið Kjörís.  Allar fórum við glaðar heim hlaðnar vinningum eftir góðan kvöldverð í golfskálanum.                     

    Meira



     
    Nýjar FKA konur í júlí og ágúst:

     

    Yrki arkitektar ehf

    Sólveig Berg

    Volcano Iceland

    Steinunn Ketilsdóttir

    Ás Holding aps

    Ragnhildur Gottskálksdóttir

    Sædís gullsmiðja

    Sædís Bauer Halldórsdóttir

    Englahár

    Harpa Barkar Barkardóttir

    Pelsinn

    Ester Ólafsdóttir

    Jóhann Helgi & Co ehf

    Margrét Ormsdóttir 

     

    Helga Jóihanna Úlfarsdóttir



    Til hvers FKA?

    Markmið FKA:

    • Að sameina konur í atvinnurekstri. og efla samstöðu þeirra og samstarf.
    • Að stuðla að aukinni miðlun á viðskiptatengdum fróðleik milli félagskvenna, jafnt innlendum sem erlendum.
    • Að hvetja til viðskipta á milli FKA kvenna.
    • Að auka sýnileika og tækifæri kvenna í viðskiptalífinu, og einnig að stuðla að virðingu og  verðskuldaðri athygli samfélagsins á framlagi fyrirtækja sem rekin eru af konum.
    • Að hvetja konur til fumkvöðlastarfa.

    Starfsemi FKA:

    • Reglulegir fundir yfir vetrarmánuðina, þar sem boðið er upp á fyrirlestra um áhugaverð málefni, er nýst geta konum í atvinnurekstri. 
    • Vettvangsferðir t.d. í fyrirtæki og stofnanir, þar sem blandað er saman fróðleik og skemmtun.
    • Skipulagðar ráðstefnur með ýmsum viðskiptatengdum fróðleik og kynningum.
    • Útgáfa fréttablaðs með greinum um konur í atvinnurekstri.
    • FKA velur árlega aðila (einstakling, félag eða stofnun) sem skarað hefur framúr í störfum sínum í þágu kvenna og veitir þeim viðurkenningu við hátíðlega athöfn.
    • Rekin er heimasíða með ýmsum upplýsingum og fróðleik.
    • Upplýsingamiðlun milli félagskvenna.
    • Samstarf við alþjóðleg samtök kvenna í atvinnurekstri sem auðveldar aðgang að alþjóðlegum mörkuðum, ráðstefnum og tengslum við sambærileg félög um allan heim.

    Nýsköpunarmiðstöð Íslands
    Félag kvenna í atvinnurekstri - Pósthólf 8683 - 128 Reykjavík - fka@fka.is - Sími 897-0711