FKA viðurkenningarnar 2010 afhentar
Vilborg í Mentor, Marín í Practical, Bára í JSB og Stiki
Mikið var um dýrðir í Perlunni þann 21. janúar þegar Félag kvenna í atvinnurekstri afhenti í dag sínar árlegu viðurkenningar við hátíðlega athöfn.
Veislustjóri var Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík.
Formaður FKA; Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri World Class ávarpaði gesti og verðlaunin afhentu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra.
FKA viðurkenninguna 2010 hlaut Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors.
Mentor var stofnað árið 2000 og var Vilborg Einarsdóttir einn af stofnendum félagsins. Óhætt er að segja að tilkoma fyrirtækisins hafi gerbylt öllu skólastarfi og auðveldað til muna samskipti kennara, foreldra og nemenda. Fyrirtækið hefur hlotið fjölmörg verðlaun á liðnum árum og nægir þar að nefna Vaxtarsprotann bæði 2008 og 2009 – en sú viðurkenning er veitt fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Tölurnar tala líka sínu máli og má benda á að félagið jók veltu sína um 160% árið 2008 – og er áætlað að veltuaukningin 2009 hafi verið u.þ.b. 30%.
Árið 2007 urðu straumhvörf í starfseminni þegar Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins keypti 20% hlut í félaginu. Í kjölfarið sameinaðist Mentor sænska fyrirtækinu PODB, sem sérhæfir sig í upplýsingakerfum fyrir kennara – með sérstakri áherslu á einstaklingsmiðað nám. Að sögn Vilborgar var þessi sameining mikið heillaspor fyrir báða aðila. Þarna hafi sannast að í samruna geti 1 + 1 orðið 3 .. eða jafnvel 4. Bæði fyrirtækin hafi búið yfir mikilli þekkingu, hvort á sínu sviði og við samrunann hafi starfsemin í báðum löndum eflst til muna. Mentor hyggur á frekari landvinninga og nú er stefnan tekin á Sviss og Þýskaland.
Vilborg situr einnig í stjórn Samtaka sprotafyrirtækja. og segir mikla bjartsýni ríkja meðal þeirra sem starfa í nýsköpun. Hún telur menn reiðubúnari að hlusta á nýjar hugmyndir í dag en oft áður. Það leynist fjölmörg tækifæri í þeim aðstæðum sem uppi eru í dag – enda búi þjóðin yfir ótrúlegum auðæfum; náttúru, þekkingu og hugviti.
Hvatningarviðurkenningu FKA 2010 hlaut Marín Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Practical.
Marín Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Practical var alltaf staðráðin í að stofna eigin fyrirtæki. Það var samt ekki fyrr en hún var að ljúka fjögurra ára háskólanámi í Ástralíu sem hún ákvað hvers konar fyrirtæki hún ætlaði að setja á fót. Henni fannst vanta fyrirtæki á markaðinn sem tæki að sér að skipuleggja markvissa starfsdaga fyrir vinnustaði – þar sem fróðleik og skemmtun væri blandað saman svo úr yrði öflugur dagur sem skilaði sér í bættum afköstum og aukinni starfsánægju. Hún stofnaði því Practical, sem sérhæfir sig í að hanna starfsdaga, hvataferðir og hvers kyns viðburði fyrir innlend og erlend fyrirtæki.
Árangurinn hefur ekki látið á sér standa – því nýverið hlaut Practical Site Crystal verðlaunin – ein virtustu verðlaun sem ferðaþjónustufyrirtæki getur fengið. Þessa viðurkenningu hlaut fyrirtækið fyrir „Hvataferð ársins“ – eða Exceptional Motivational Travel Program . Marín veitti verðlaununum viðtöku á Aruba ... en viðurkennir að hún hafi ekki alveg gert sér grein fyrir hversu mikill heiður verðlaunin í raun og veru eru. Practical hafi fundið fyrir miklum meðbyr í kjölfar verðlaunanna og erlendum fyrirspurnum fjölgað til muna. Það sé því engin ástæða til að óttast framtíðina. Þvert á móti sé nú tími til að blása vindi í seglin og gefa allt í botn.
Þakkarviðurkenningu FKA 2010 hlaut Bára Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Dansræktar JSB.
Bára Magnúsdóttir er óumdeildur brautryðjandi á sviði danslistar og heilsuræktar á Íslandi.
Fimm ára hóf hún nám í Ballettskóla Þjóðleikhússins – ekki að eigin frumkvæði – heldur lét náganni hennar; Rúrik Haraldsson innrita hana í skólann. Og eftir það varð ekki aftur snúið.
Fimmtán ára hélt hún í dansnám til London og útskrifaðist með glæsibrag úr hinum virta listaskóla Art Educational. Þegar heim kom byrjaði hún að kenna ballett hjá Sigríði Ármann ... en fór síðan fljótlega að kenna í eigin nafni þessa áður óþekktu dansgrein hérlendis; jazzballett.
Í gegnum hefur Bára setið í stjór Danskennarafélags Íslands og í áratug var hún forseti Dansráðs Íslands.
Bára lagði snemma metnað sinn í það að danskennarar hennar gætu haft fulla atvinnu af kennslu í skólanum og til að nýta sumurin; „dauða tímann“ í dansinum; bætti hún leikfimi og heilsuræktinni við starfsemi skólans.
Bára hefur nú rekið eigið fyrirtæki í áratugi ... og nemendurnir skipta tugþúsundum. Árlega stendur JSB fyrir glæsilegum nemendasýningum í Borgarleikhúsinu þar sem stíga á svið 600-700 nemendur og dansa af hjartans list. Allir eru nemendurnir í búningum ... sem flestir eru saumaðir af skólastýrunni sjálfri; Báru Magnúsdóttur.
Árið 2006 fékk Listdansbraut JSB viðurkenningu menntamálaráðuneytisins – sem gerir fólki kleift að stunda listdans sem valgrein til stúdentsprófs. Í vor mun Bára útskrifa fyrst nemendurna af Listdansbraut.
Bára er hvergi nærri hætt. Hún er enn að kenna og er nýbúin að fjárfesta í stóru húsnæði í grennd við höfuðstöðvarnar í Lágmúla.
Gæfusporið 2010 hlaut fyrirtækið Stiki.
Stiki býður upp á heildarlausnir í upplýsingaöryggismálum; hugbúnað til að meta gæði starfsemi og þjónustu, áhættu í rekstri, greina verkferli og bæta verklag. Viðskiptavinir fyrirtækisins hér heima eru aðallega opinberir aðilar og stærri fyrirtæki – en félagið lumar einnig á alls kyns lausnum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki; lausnum sem gera þau samkeppnishæfari, skilvirkari og öruggari en ella.
Stiki er nú í eigu þriggja aðila; Svönu Helenar Björnsdóttur, rafmagnsverkfræðings, Bjarna Þórs Björnssonar, stærðfræðings og tæknilegs framkvæmdastjóra félagsins og Nýsköpunarsjóðs. Það vekur hinsvegar athygli að af fimm framkvæmdastjórum fyrirtækisins eru fjórar konur. Ekki síst er þetta athygli vert þar sem framboð er mun minna af konum en körlum í tæknigeirnaum. Að sögn Svönu er það hinsvegar ekki yfirlýst stefna félagsins að ráða konur umfram karla. Þau telji sig einfaldlega hafa ráðið hæfasta fólkið hverju sinni.
Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika er einnig formaður Samtaka sprotafyrirtækja.
Stiki hlýtur Gæfusporið 2010 fyrir að hafa skarað fram úr við að virkja kraft kvenna innan sinna raða.
FKA viðurkenningin 2009
Ráðherra – heiðraða samkoma
\Fyrir hönd FKA - félags kvenna í atvinnurekstri – býð ég ykkur hjartanlega velkomin - og lýsi jafnframt yfir mikilli ánægju okkar með það, hversu margir eru mættir hér í dag.
Hver hefði trúað því þegar við hittumst hér fyrir ári – þegar veislan stóð sem hæst – bæði hjá okkur og þjóðinni - að við yrðum í þessum sporum ári seinna. Fjármálakerfið að mestu hrunið og það viðskiptalíf sem við þekktum og rómuðum mörg, stæði frammi fyrir byltingu sem ekki sér fyrir endann á.
Á undanförum vikum og mánuðum höfum við hjá FKA verið margspurðar, hvort að hlutirnir væru ekki allt aðrir, ef konur hefðu í ríkari mæli verið við völd í bönkunum og útrásarfyrirtækjunum. Hvort að okkar gildi og sýn hefðu ekki tryggt okkur aðra niðurstöðu - en við í dag stöndum frammi fyrir. Við höfum sagt - að ómögulegt sé að svara svona “hvað ef” spurningum, því það getur enginn sagt með vissu hver staðan væri, ef konur hefðu verið við stjórnvölin í ríkari mæli. Við höfum aftur á móti sagt – og um það er ekki deilt - að við erum í þessum drullupytti, af því strákarnir réðu flest öllu.
Þakkarviðurkenning FKA 2009
Guðrún Birna Gísladóttir forstjóri Grundar
Það má segja að konan sem hlýtur heiðursverðlaun FKA árið 2009 hafi verið á elliheimili í meira og minna sex áratugi. - Og miðað við það er hún ótrúlega ern. Hún lærði að drekka kaffi hjá gamalli konu aðeins 6 ára gömul … og þó hún hafi vissulega ekki farið varhluta af Presley og pínupilsunum frekar en jafnöldrur hennar … þá voru peysuföt og polka mun ríkari þáttur í hennar daglega lífi.
Guðrún Birna Gísladóttir fæddist nefnilega á elliheimilinu Grund … árið 1944, ólst upp ýmist á elliheimilinu eða við hlið þess og hefur unnið þar alla tíð síðan … með örfáum og stuttum hléum. Síðastliðin 15 ár hefur hún gegnt starfi forstjóra Grundar – og hlúð að heimilisfólkinu þar, rétt eins og faðir hennar gerði á undan henni og faðir hans þar á undan.
Guðrún segist aldrei hafa orðið fyrir neinu aðkasti í æsku vegna tengsla sinna við Grund – þvert á móti hafi þetta þótt bara dáldið “kúl”. Margar stelpur hafi dauðöfundað þær systurnar af stóra föndurherberginu … og öllum þessum öfum og ömmum sem laumuðu að þeim kandís og öðru gotteríi í tíma og ótíma. Að ekki sé nú talað um tæknibyltingu þess tíma: …lyftuna. Í henni gátu litlar stelpur dundað sér tímunum saman. Svo kom sundlaugin 57 eða 8“ segir Guðrún ….. og um helgar var enginn að nota hana ….… nema við“.
Guðrún er ein af fjórum dætrum hjónanna Helgu Björnsdóttur og Gísla Sigurbjörnssonar, sem jafnan var kenndur við Grund – enda rak hann heimilið frá 27 ára aldri og þar til hann lést árið 1994. Fyrri eiginmaður Guðrúnar var séra Páll Þórðarson, prestur í Neskaupsstað og síðar Njarðvík. Hann lést árið 1978 – aðeins 35 ára að aldri. Seinni eiginmaður hennar er Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóri Grundar. Guðrún á fjóra syni: þá Gísla, Þórð og Halldór Pálssyni og Kjartan Örn Júlíusson. En þrátt fyrir að þeir beri allir falleg nöfn … kallar hún þá alla sem einn, Dengsa. „Það er bara einfaldara“ segir hún … og vissulega er töluvert til í því.
Grund er elsta dvalar- og hjúkrunarheimili landsins. Það var stofnað árið 1922 fyrir samskotafé sem safnað var á nokkrum mánuðum meðal Reykvíkinga … og hefur frá upphafi verið sjálfseignarstofnun.
Húsakynnin hafa stækkað jafnt og þétt og má í raun segja að á reitnum við Hringbrautina sé rekið lítið þjóðfélag undir merkjum Grundar. Þar er að finna alla almenna læknaþjónustu, tannlæknaþjónustu, fullkomna hárgreiðslustofu, kaffihús, leikfimisal, sundlaug, bókasafn, danssali og tómstundaherbergi. Einnig rekur Grund dvalarheimilið Ás í Hveragerði.
Sennilega hefur Guðrún lært meira af gamla fólkinu en bara kaffidrykkju og hannyrðir – því aðra eins hógværð rekst maður sjaldan á í dag. Hún leggur ríka áherslu á frumkvöðlastarf afa sins og föður – og þá einlægu umhyggju sem þeir báru fyrir heimilisfólkinu við Hringbrautina. Minna gerir hún úr eigin framlagi … þó flestir sem til þekkja viti, að hún hefur ekki bara borið kyndilinn áfram … heldur bætt í hann sínum hugsjónaeldi … og hugsað til framtíðar.
Starfsfólk hennar færðist hins vegar ekki undan þegar við inntum það eftir kostum og göllum Guðrúnar. Öllum bar þeim saman um að hún bæri einlæga umhyggju fyrir heimilisfólki jafnt sem starfsmönnum. Það væri hún sem gæfi Grund þennan hlýja heimilisbrag. „Og það eru ekki margir forstjórar sem allir geta leitað til … með eiginlega öll sín vandamál” sagði einn. „Enda hefur reynslan sýnt, að þegar starfsfólkið sjálft verður gamalt, vill það hvergi annars staðar eyða ævikvöldinu en á Grund“ sagði annar og sýndi okkur mynd af 20 einstaklingum … sem allir eru fyrrverandi starfsmenn … og núverandi heimilisfólk Grundar. Þetta segir allt sem segja þarf um hversu vel hún hugsar um sitt fólk“
„En hún er líka ákveðin“ bætti einn við. „Ef hún er búin að bíta eitthvað í sig … þá er það alveg á hreinu að hún ræður …og þannig bara er það“. En hvað með lestina … einhverja leynda lesti hlýtur konan að hafa. Jú … ein kona trúði okkur fyrir því að Guðrún væri templari … smakkaði ekki áfengi … en hins vegar væri hún brjáluð í litlu flöskurnar í Nóa konfekt-kössunum, og þeim safnar hún í skrifborðsskúffuna sína“ fullyrti konan og hló.
En hvað sem allri hógværð líður – þá er nokkuð ljóst að Guðrún Birna Gísladóttir er vel að þakkarverðlaunum FKA 2009 komin. Hún hefur áratugum saman hlúð að þeim, sem byggðu þetta land – fólkinu, sem lifað hefur tímana tvenna … og gafst aldrei upp. Þetta hefur hún gert með hugsjón, reisn og mannvirðingu að leiðarljósi. Og fyrir það ber að þakka.
FKA hefur undanfarin ár veitt viðurkenningu sem við köllum Gæfusporið og er veitt fyrirtæki sem hefur skarað fram úr við að nýta kraft kvenna. Í ár var valið einstaklega auðvelt – enda ber fyrirtækið af sínum samkeppnisaðilum eins og gull af eir – en gæfuspor FKA árið 2009 hlýtur fjármálafyrirtækið Auður Capital.
Auður Capital var stofnað árið 2007 af þeim Kristínu Pétursdóttur og Höllu Tómasdóttur. Kristín er forstjóri Auðar og Halla starfandi stjórnarformaður. Af 10 einstaklingum í stjórn og varastjórn eru 7 stjórnarmenn konur - og 6 af 6 framkvæmdastjórum fyrirtækisins eru konur. Meirihluti eigenda Auðar eru konur og af 20 starfsmönnuð Auðar eru 16 þeirra konur.
Hjá Auði segja þau: “það er ekki HVAÐ við gerum heldur HVERNIG við gerum hlutina - sem greinir okkur frá öðrum fjármálafyrirtækjum.” Þau eru meðvituð um áhættu og óhrædd við að beita kvenlægari nálgun – sem kannski væri réttara að kalla mannlegri nálgun. Þrátt fyrir að hagnaður sé hafður að leiðarljósi - þá er þeim ekki sama hvernig þau hagnast. Auður var rekið með hagnaði í fyrra og tókst jafnframt að verja viðskiptavini sína fyrir fjárhagslegu tjóni í október þegar hrunið mikla gekk yfir.
FKA er stolt að veita Auði Capital Gæfuspor félagsins árið 2009 og býð ég Kristínu Pétursdóttur forstjóra félagsins velkomna ásamt föruneyti sínu.
FKA viðurkenninguna 2009 hlaut Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík.
Rannveig hefur frá því hún tók við stjórnartaumunum í Straumsvík fyrir 12 árum, þá aðeins 35 ára, stýrt fyrirtækinu af mikilli festu og öryggi. Hún hefur staðið vörð um hagsmuni og menntun starfsmanna sinna og rekið félagið með hagnaði. Meðfram störfum sínum í Straumsvík var Rannveig einnig stjórnarformaður Símans um árabil; tók við því fyrirtæki í flókinni og erfiðri stöðu þegar Síminn var enn í eigu ríkisins. Enn er Rannveig varaformaður Skipta; móðurfélags Símans auk þess sem hún situr í stjórnum ýmissa annarra fyrirtækja.
Hvatningarviðurkenningu FKA 2009 hlaut Agnes Sigurðardóttir, Bruggsmiðjunni á Árskógssandi.
Það voru ekki margir sem höfðu trú á því að Agnesi og fjölskyldu hennar tækist að reisa alvöru bruggsmiðju á Árskógsströnd, þegar hún fyrst viðraði hugmyndina árið 2006. Nú fyrir jólin seldist afurð þeirra; hinn alíslenski Kaldi, hinsvegar upp í vínbúðum landsins. Bjórinn er ógerilsneyddur og sykurlaus – og 1. febrúar mun fyrsti farmurinn af Kalda leggja úr höfn til Færeyja. Mánuði síðar er gert ráð fyrir að útflutningur hefjist til Noregs. Agnes er lifandi sönnun þess hverju ástríða, áræði og þrautseigja fá áorkað – ekki síst þegar gefur á bátinn.
Þakkarviðurkenningu FKA 2009 hlaut Guðrún Birna Gísladóttir, forstjóri dvalarheimilisins Grundar.
Guðrún Birna Gísladóttir fæddist á elliheimilinu Grund; dóttir hjónanna Helgu Björnsdóttur og Gísla Sigurbjörnssonar, sem jafnan var kenndur við Grund – enda rak hann heimilið frá 27 ára aldri og þar til hann lést 1994. Eftir hans dag tók Guðrún við stjórnartaumunum enda Grund sjálfseignarstofnun. Af sömu hugsjón og mannkærleika hefur Guðrún leitast við að bæta aðstöðu íbúanna og efla starfið innan heimilisins. Árangurinn hefur heldur ekki látið á sér standa. Trúlega segir það þó meira en mörg orð að þegar starfsmenn Grundar eldast sækja þeir flestir fast að gerast heimilismenn á Grund. Það má segja að Guðrún Gísladóttir hafi helgað líf sitt umönnun þeirra eldri borgara sem búa á Grund.
Þetta er í tíunda sinn sem FKA veitir ofangreindar viðurkenningar. Fyrir þremur árum var bryddað upp á þeirri nýjung að veita einnig einu fyrirtæki, sem þykir hafa skarað fram úr við að virkja kraft kvenna innan sinna raða, viðurkenningu – hið svokallaða „Gæfuspor“.
Gæfusporið 2009 hlaut Auður Capital.
Formaður FKA; Margrét Kristmannsdóttir, forstjóri Pfaff ávarpaði gesti og Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra afhenti verðlaunin.
Steinunn hlýtur FKA viðurkenninguna 2008
Steinunn Sigurðardóttir, fatahönnuður, hefur hlotið FKA viðurkenninguna 2008, sem Félag kvenna í atvinnurekstri veitir konu fyrir athyglisvert framlag til íslensks atvinnulífs ár hvert. Steinunn er hönnuður á heimsmælikvarða, sem vann um árabil mjög náið með meðal annars Calvin Klein, Tom Ford hjá Gucci og Ralph Lauren.
Árið 2000 stofnaði hún eigið fyrirtæki og hóf að framleiða tískufatnað undir eigin merki. Fötin segir Steinunn vera dramatísk eins og íslenska náttúran og víða má sjá skírskotanir til íslenska þjóðbúningsins í hönnun hennar. Hún þykir hafa hafið íslenskt handverk til vegs og virðingar á ný, og sýnt og sannað að útrásin er ekki bundin við fjármálafyrirtæki heldur eru íslenskt handverk og hugvit einnig verðmætar útflutningsvörur, að sögn talsmanna félagsins.
Þá hlaut Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, Þakkarviðurkenninguna fyrir eftirtektarvert ævistarf og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Landnámsseturs Íslands, Hvatningarviðurkenninguna, fyrir athyglisvert frumkvæði. Eins hreppti Veritas Capital, Gæfusporið 2008, viðurkenning til fyrirtækis sem hefur skarað fram úr við að virkja kraft kvenna innan sinna raða.
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, og Birna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Glitni, afhentu viðurkenningarnar í heilmiklu hófi í Perlunni í dag, en þetta er í níunda sinn sem þær eru veittar.
Ræður Margrétar Kristmansdóttur
Fyrir hönd FKA - félags kvenna í atvinnurekstri – býð ég ykkur hjartanlega velkomin - og lýsi jafnframt mikilli ánægju okkar með það, hversu margir eru mættir hér í dag.
Við munum veita 4 viðurkenningar hér í dag – og þar sem við erum með mikið af konum í salnum, sem sumar hafa ekki hist lengi - veit ég að mikið þarf að spjalla þ.a. ég hef þennan formála ekki lengri og vind mér í dagskrána.
Í fyrra var í fyrsta skipti veitt viðurkenning sem við ákváðum að kalla "Gæfuspor" . Þessi verðlaun eru veitt til eins af stærstu fyrirtækjum landsins, sem skarar fram úr við að virkja kraft kvenna innan sinna raða. Er litið til ýmissa þátta svo sem fjölda kvenna í stjórn, framkvæmdastjórn eða annarra þátta sem fyrirtæki geta haft áhrif á til að virkja kraft kvenna til jafns á við karla. Það er ekki að ástæðulausu að ákveðið var að nefna þessa viðurkenningu "Gæfuspor" því við teljum að þau fyrirtæki sem bera gæfu til þess að nýta til jafns þann auð sem í kynjum býr - standi mun traustari fótum þegar til langs tíma er litið.
Steinunn Sigurðardóttir
FKA verðlaunin árið 2008 hlýtur Steinunn Sigurðardóttir, fatahönnuður.
Þetta er langt frá því að vera fyrsta ... eða stærsta ... viðurkenningin sem Steinunn hlýtur fyrir framúrskarandi hæfileika sína og sköpunarverk. „Ég fékk alltaf 9.8 í handavinnu hérna í gamla daga" segir hún og hlær, þegar hún er spurð út í verðlaun og viðurkenningar … en gleymir að geta þess, að í þá daga var bannað að gefa einkunnina 10.
Við erum heldur ekkert vissar um að handavinnukennarinn í Laugarnesskóla hafi gert sér grein fyrir því, að þessi stelpa ætti fáum árum seinna, eftir að gefa Ralph Lauren góð ráð, vinna við hlið Calvin Klein og Tom nokkurs Ford hjá Gucci. Við erum hinsvegar handvissar um það - að hefði blessaða konuna órað fyrir því - að prjónaprinsessan myndi fá svokölluð "Gínu" verðlaun, helstu norrænu hönnunarverðlaunin ásamt íslensku fálkaorðunni í fyrra fyrir framúrskarandi hönnun og handbragð ... þá hefði hún gefið henni 10 í einkunn....... burtséð frá öllum boðum og bönnum.
Steinunn Sigurðardóttir er dóttir hjónanna Sigurðar Árnasonar, skipherra hjá Landhelgisgæslunni og Eddu Jónsdóttur, húsmóður. Hún á tvo bræður; þá Jón Viðar, sem er doktor í sagnfræði við Háskólann í Óslo og Magnús Viðar, framkvæmdastjóra Saga Film. Hún fæddist í Reykjavík þann 18. mars 1960 ... og í afmælisdagabókinni okkar er henni lýst, sem glóandi hrauni sem aldrei kólnar. Þar segir ennfremur: Þú elskar lífið, ert ástfangin af ástinni, rómantísk og listræn með eindæmum. - Og ekki nóg með það. - Ef keppt væri í greinum eins og metnaði, eldmóði, vandvirkni og þrautseigju ... þá myndir þú vinna bikarinn til eignar. Og ekki orð um það meir."
Þeir sem til Steinunnar þekkja segja þetta nokkuð raunsanna lýsingu ... en sjálfri finnst henni að verið sé að leita langt yfir skammt með þessum vangaveltum Listræna hæfileika sína og handbragð hafi hún frá mömmu sinni og ömmu ... skipulagið og sjálfsagann beint frá föður sínum. - „Og svo skiptir líka máli að hafa réttu verkfærin" bætir hún við, en ég eignaðist góða saumavél mjög snemma á lífsleiðinni. sem fór með mér til New York, þaðan Ítalíu ... og svo alla leið heim aftur." Og sé þetta rétt eftir Steinunni haft, vil sú sem hér stendur misnota aðstöðu sína, og góðfúslega benda henni á – að það sé fyrir löngu komið að endurnýjun.
Steinunn stundaði, fyrst Íslendinga, nám við Persons School of Design í New York – þar sem hún bjó í hartnær 13 ár. Að námi loknu vann hún fyrst fyrir Carmelo Pomodoro – en 1987-8 vann hún náið með Ralph Lauren og um tíma hannaði hún flestar peysur sem komu frá þeim tískugúrú.
Árin þar á eftir starfaði hún sem senior designer hjá Calvin Klein ... þannig að hafir þú á þeim árum átt flík merkta Collection, CK -nú eða einfaldlega Calvin Klein jeans – þá eru allar líkur á að Steinunn hafi einmitt komið að hönnun á þeim.
Árið 1995 færði hún sig yfir til Gucci þar sem hún hafði sömu starfsheiti; Director and Senior designer. Þar hannaði hún ásamt Tom Ford tískufatnað fyrir bæði karla og konur, nærföt og sundfatnað, svo eitthvað sé nefnt. Um síðustu aldamót kvaddi Steinunn Gucci fyrirtækið og tók við sem Creative Director hjá La Perla á Ítalíu– auk þess sem hún stýrði tískusýningum í Mílanó og lagði grunninn að eigin fyrirtæki.
Sjálf segist Steinunn hún hafa lært mest hjá Calvin Klein. „Það var í rauninni mitt meistaranám" segir hún. „Hann krafðist 170% aga, hafði mjög skýra og sterka sýn – og þar lærði ég allt um dýr efni, einfaldleika og handbragð sem honum einum er lagið."
Eiginmaður Steinunnar er Páll Hjaltason, arkitekt, sem ásamt konu sinni setti upp sýningarnar Óm í Þjóðminjasafninu og Transforme í París. Saman eiga þau einn son; Alexander sem er 12 ára, sem margir þekkja úr heimildarmyndinni "Alexander" sem sýnd er samhliða myndlistarsýningunni "Undrabörn" í Þjóðminjasafninu. Hún opnaði á síðasta ári og var valin ein af betri myndlistarsýningum ársins - og hefur vakið mikla athygli og komið af stað mikilvægri umræðu. En í myndinni er fjallað um málefni fatlaðra barna – út frá sjónarhóli foreldra en ekki fræðimanna. „Ég er ákaflega stolt að hafa fengið að taka þátt í þessu verkefni og stolt af þeim börnum sem þarna koma fram" segir Steinunn. „Þetta er erfitt og viðkvæmt málefni – en engu að síður bráðnauðsynlegt að opna þennan heim"
Árið 2000 stofnaði Steinunn sitt eigið fyrirtæki og fór að hanna föt undir eigin nafni og merki. Fatalína hennar vekur athygli fyrir frammúrskarandi handbragð; dramatísk föt þar sem vönduð og sérstök smáatriðin gegna lykilhlutverki. Steinunn gengst strax við dramatíkinni og segir: "Þetta er Ísland ... í fataformi. - Eldgos, jarðskjálftar, litabrigðin í náttúrunni og jöklarnir. Draminn er al-íslenskur; sterkur og blíður í senn."
Steinunn Sigurðardóttir hefur sýnt fram á að útrásin er ekki bundin við fjármálafyrirtæki. Með vönduðum vinnubrögðum, hugmyndaflugi og viðskiptaviti hefur hún hafið handverkið til vegs og virðingar á ný ... og minnt okkur á að hugvit og handverk eru verðmætar útflutningsvörur.
Okkur er því sannur heiður að veita Steinunni Sigurðardóttur, fatahönnuði - FKA viðurkenninguna árið 2008.
Guðrún Agnarsdóttir
Þakkarviðurkenning FKA 2008
Það er skógarbóndi í Svarfaðardal sem hlýtur þakkarviðurkenningu FKA að þessu sinni. ---- Hún er kannski ekki þekktust fyrir þau störf sín … en þegar vel er að gáð
, má kannski segja að hún hafi samt alla tíð unnið við þetta: að sá fræjum, sem mörg hafa – og eiga eftir að blómstra, okkur hinum til heilla.
Hún var dúx í Verzlunarskóla Íslands – en þó langt frá því að vera einrænn og sérvitur kúristi – því hún tók virkan þátt í félagslífi skólans. Var m.a ritstjóri Verzlunarskólablaðsins, lék í fjölda leikrita, og fór létt með að dansa Can Can uppi á sviði á einu af nemendamótum skólans.
Guðrún Agnarsdóttir ólst upp í miðbæ Reykjavíkur, dóttir hjónanna Birnu Petersen, húsmóður og Agnars Guðmundssonar, skipstjóra. Sumir myndu segja að um tíma hefði hún á vissan hátt fetað í fótspor beggja foreldra sinna – því vissulega hefur Guðrún verið húsmóðir … og í tvö sumur var hún til sjós. Hún vann í gjafavöruverslun um borð í Gullfossi, og seldi þar eftirsóttustu vörur þess tíma: ilmvötn, Mackintosh og Cadburys. Sjálf segist hún stolt hafa verið - "eina súkkulaðipían í flotanum" á þeim tíma.
Eftir að hún kom í land … lá leiðin fyrst í Háskóla Íslands þar sem hún lagði stund á læknisfræði – og síðar til London þar sem hún bæði nam og vann við veiru- og ónæmisfræði við Hammersmith spítalann og Royal Postgraduate Medical School í höfuðborg Englands. Hún hlaut sérfræðingsréttindi 1978 og nokkrum árum seinna sneri Guðrún heim aftur og réðist til starfa sem sérfræðingur í veirufræði við Tilraunastöð Háskólans á Keldum.
Skömmu síðar fór hún hinsvegar á fund hjá baráttuglöðum konum … og áður en hún vissi af var hún komin í framboð til Alþingis. Hún segir að þetta hafi verið eitthvert skemmtilegasta tímabil ævi minnar" – og bætir við brosandi: „enda vorum við að breyta heiminum". --- Og víst hefur hún breytt ýmsu. Guðrún var skipuð í nefnd sem rannsakaði meðferð nauðgunarmála og kom með tillögur til úrbóta. Í kjölfarið var henni falið að skipuleggja og koma á fót neyðarmóttöku vegna nauðgunar – sem hún og gerði - af einstakri fagmennsku og nærgætni.
Árið 1988 settist Guðrún í framkvæmdastjórn Krabbameinsfélags Íslands, og fjórum árum seinna - tók hún við sem forstjóri – og gegndi því starfi fyrst í stað, meðfram störfum sínum á Keldum og við Neyðarmóttökuna.
Öflug starfsemi Krabbameinsfélagsins hefur ekki farið fram hjá neinum. Fagmennskan er ráðandi í fræðslu, forvörnum og eftirfylgni - og félagið er sýnilegra en nokkru sinni fyrr. Þeir sem til þekkja - vita að viðmót starfsfólksins og andrúmið sjálft, ber svipmót forstjórans. Það einkennist af einlægum mannkærleika, virðingu og löngun til að láta gott af sér leiða.
Eiginmaður Guðrúnar er Helgi Þröstur Valdimarsson, prófessor í ónæmisfræði við læknadeild Háskóla Íslands – og eiga þau þrjú börn saman: Birnu Huld, blaðakonu í London, Agnar Sturlu, mannfræðing og Kristján Orra, lækni. Fyrir átti Helgi tvo syni: þá Ásgeir Rúnar, sálfræðing og Valdimar, aðstoðarskólastjóra. Barnabörnin eru 11, og það tólfta er á leiðinni og það þarf því engan að undra þó Guðrún segist vera gæfusöm manneskja – og telji fjölskylduna sinn stærsta fjársjóð.
Guðrún Agnarsdóttir hefur hlúð að þessari þjóð – bæði körlum og konum – árum saman. Hún hefur helgað starf sitt því að rétta hlut þeirra sem standa höllum fæti … bæði með lagasetningum og læknisfræðilegum úrræðum. Hún hefur vakið okkur til umhugsunar með því að setja spurningamerki við eitt og annað sem áður þótti sjálfsagt – með því að sá fræjum hér og þar … fræjum sem munu blómstra í fyllingu tímans.
Því eins og þessi skógarbóndi úr Svarfaðardal segir sjálf: „ Það er með þetta eins og skógræktina. Við gróðursetjum tré þó það sé nokkuð ljóst, að við munum ekki njóta þeirra sjálf. Við gerum það hinsvegar í von um að aðrir muni njóta þeirra síðar meir."
Okkur er það sannur heiður að fá að veita Guðrúnu Agnarsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélags Íslands þakkarviðurkenningu FKA árið 2008.
Hvatningarverðlaun FKA 2008
Sigríður Margrét Guðmundsdóttir
Konan sem fær hvatningarverðlaun FKA árið 2008 hefur lifað afar ævintýraríku lífi, svo ekki sé nú meira sagt. Flest munum við fyrst eftir henni þar sem hún sat og spjallaði vikulega við vin sinn … Pál nokkurn Vilhjálmsson, afar trúverðuga tuskudúkku i Stundinni okkar. Og nú síðast birtist hún okkur á skjánum sem fréttamaður ... en þá talaði hún reyndar við alvöru fólk.
Í millitíðinni fréttist reyndar af henni í svaðilför á seglskútu … hún galdraði fram ógleymanlegar leiksýningar í gamla, góða Kaffileikhúsinu, stofnaði Listaklúbb í Þjóðleikhúskjallaranum, var formaður UNIFEM um árabil … og slapp naumlega lifandi þegar henni og eiginmanni hennar var rænt í vopnuðu ráni, vegna tengsla þeirra við uppreisnarindíána í frumskógum Mexíkó.
Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Landnámsseturs Íslands – ólst upp í Hlíðunum í Reykjavík, miðjubarnið í hópi sjö systkina. Faðir hennar var Guðmundur Jensson og móðir hennar Aðalheiður Jóhannesdóttir. Móður sína missti Sigríður í bílslysi þegar hún var aðeins 2 ½ árs … en eins og hún segir sjálf: "Ég eignaðist hinsvegar dásamlega stjúpmóður; Guðmundu Magnúsdóttur og hún er náttúrulega bara mamma mín".
Leiklistarbakterían sem laumaði sér inn hjá Sigríði Margréti í Kennaraskólanum lét hana ekki í friði - og fyrr en varði var hún komin í nám í leikhúsfræðum í Bretlandi. Það nám hefur heldur betur nýst henni í því brautryðjendastarfi sem hún og eiginmaður hennar; Kjartan Ragnarsson hafa unnið í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þar hefur þeim, með ótrúlegri útsjónarsemi, hugmyndaauðgi og ástríðu tekist að blása lífi í söguna – gera hana aðgengilegri en nokkru sinni fyrr
Afraksturinn er ævintýri sem hefur vakið verðskuldaða athygli bæði innan lands og utan – og nú síðast hlaut Sigríður nýsköpunarverðlaun Alþjóðasamtaka kvenna í atvinnurekstri. Þau verðlaun voru veitt í Kairó, sem Sigríður segir að sé óneitanlega skrýtin tilviljun. "Við höfum svo oft talað um að Borgarfjörðurinn sé eiginlega pýramídasvæði Íslands, þar gerast svo margar af okkar merkustu sögum… og þessar sögur eru okkar pýramídar. Það á bara eftir að gera þær sýnilegri fyrir þá sem ekkert þekkja til – útskýrir Sigríður
En hvað þarf til að láta svona ævintýri ganga upp? - Og ekki stendur á svarinu „Bullandi bjartsýni - og svo lærði ég það í gamla daga; að biðja bara besta fólkið. Sú regla hefur reynst mér vel. -- Og svo kenndi Kjartan mér annað; að treysta fólki fyrir því sem því er falið … með öðrum orðum: að hætta að reyna að stjórna öllu. Það er nefnilega svo ótrúlega þreytandi að vera ómissandi"
Sigríður Margrét er gift Kjartani Ragnarssyni, leikara og forstjóra Landnámssetursins ... og þau eiga ... "fullt af börnum og barnabörnum" eins og Sigríður orðar það. Með fyrrum eiginmanni mínum, átti ég fyrir Svavar Orra, tölvuforritara og Guðmund Karl, sem virðist vera að hneigjast að því að læra arkitektúr. Svo á Kjartan, Ragnar fjöllistamann með fyrrum eiginkonu sinni - og eiginlega líka Sigrúnu Eddu Björnsdóttur, leikkonu og Leif Björn Björnsson, tölvufræðing. Allur þessi hópur er sameign okkar allra ... fullt af foreldrum og fullt af börnum ... "
Í Landnámssetrinu hefur með eldmóði, bjartsýni og elju tekist að dýpka hugtakið - menningartengd ferðaþjónusta og hefja sagnalistina upp á hærra plan.
Okkur er því sannur heiður að því að veita Sigríði Margréti Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi hvatningarverðlaun FKA árið 2008.
Gæfuspor FKA árið 2008 hlýtur fyrirtækið - Veritas Capital
Veritas Capital sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu og er með rúmlega 60% hlutfall í dreifingu lyfja og um 50% í sölu- og markaðssetningu þeirra - með hátt í 10 milljarða í veltu.
Forstjóri Veritas Capital er Hreggviður Jónsson og í 3ja manna stjórn þess sitja Jón Helgi Guðmundsson – oftast kenndur við Byko og Halla Tómasdóttir og Kristín Pétursdóttir – í dag kenndar við Auði Capital. Hlutfall kvenna í stjórn Veritas Capital er því 67% - og gæti það því auðveldlega hafið starfsemi í Noregi strax í dag.
Eigendur Veritas Capital ættu einnig að sofa rólega vitandi það, að samkvæmt nýjustum könnunum CreditInfo er svo til stjarnfræðilegur möguleiki á því - að fyrirtæki þar sem meirihluti stjórnarmanna eru konur, lendi í fjárhagsvandræðum. Því það er reginn misskilningur að konur séu áhættufælnar – konur eru áhættumeðvirkar, og það er sko allt önnur Ella.
Veritas Capital er móðurfélag fyrirtækjanna Vistor, Artasan og Distica og af þremur framkvæmdastjórum, sem stýra þessum fyrirtækjum eru tvær konur, þannig að þar er hlutfallið einnig 67% Starfsmenn fyrirtækisins eru 170 og eru konur 40% í framkvæmdastjórn, 55% millistjórnenda og 52% af öllum stjórnendum, þ.a. það kemur okkur ekkert á óvart að Hreggviður Jónsson, forstjóri Vertias Capital sé ánægður í vinnunni og að fyrirtækið gangi vel.
Ég vil biðja Hreggvið Jónsson, forstjóra Veritas Capital að koma hingað upp á svið ásamt sínum kvennauði og veita Gæfuspori viðtöku.
FKA verðlaun 2007
Verðlaun FKA afhent í áttunda sinn
Halla Tómasdóttir framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands hlaut árlega viðurkenningu Félags Kvenna í Atvinnurekstri (FKA) sem afhend voru í þann 17. janúar við mikið fjölmenni í súlnasal Hótel Sögu.
Hvatningarverðlaun fyrir áhugavert frumkvöðlastarf hlaut Guðbjörg Glóð Logadóttir, stofnandi og einn eigenda Fylgifiska, og heiðursverðlaun fyrir árangursríkt ævistarf fékk Guðrún Erlendsdóttir, fyrrum forseti Hæstaréttar.
Aukaverðlaun fékk Atorka fyrir framgang kvenna innan fyrirtækja sem félagið á. Þorsteinn Vilhelmsson veitti þeim verðlaunum viðtöku.
Halla sem hóf störf hjá Viðskiptaráði í upphafi síðasta árs hlaut viðurkenninguna fyrir frammúrskarandi frammistöðu í starfi sínu á síðasta ári en hún er jafnframt fyrsta konan til að gegna þessari stöðu. "Óhætt er að segja að Halla hafi ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur því strax á upphafsdögum hennar í starfi tóku helstu fjölmiðlar og greiningardeildir heims að spá og fjalla ítarlega um yfirvofandi efnahags- og fjármálakrísu á Íslandi. Halla einhenti sér í það verkefni að mennta alþjóðlega fjölmiðla, fjármálagreinendur og fjárfesta um íslenska hagkerfið, en svokölluð Mishkin skýrsla Viðskiptaráðs og alþjóðleg kynning og dreifing á henni var lykilþáttur í þeim viðsnúningi sem varð í neikvæðri umræðu síðastliðið vor. Í kjölfar kynningarfunda í New York, London og Kaupmannahöfn gekk til baka sú mikla hækkun sem orðið hafði á vaxtakjörum banka og fyrirtækja," sagði Margrét Kristmannsdóttir formaður FKA og framkvæmdastjóri Pfaff Borgarljósa í rökstuðningi.
Þá voru einnig veitt hvatningarverðlaun fyrir áhugavert frumkvöðlastarf sem féllu í hlut Guðbjargar Glóðar Logadóttur stofnanda og einn eiganda Fylgifiska. Fyrirtækið Fylgifiskar var stofnað í júlí 2002 og hefur síðan vaxið og dafnað. Framan rak fyrirtækið aðeins eina verslun á Suðurlandsbraut en er nú búið að opna aðra á Skólavörðustíg og fyrr en varir glæsilegur sjávarréttabar líta dagsins ljós í Leifsstöð.
Þá hlaut Guðrún Erlendsdóttir eina konan sem hefur gegnt stöðu forseta hæstaréttar á Íslandi fyrr og síðar sérstaka þakkarviðurkenningu fyrir árangursríkt ævistarf.
Þá var bryddað upp á þeirri nýjung að veita í fyrsta sinn verðlaunin gæfuspor sem verða héðan í frá veitt á hverju ári. Að sögn Margrétar Kristmannsdóttur er verðlaununum ætlað að heiðra það fyrirtæki sem hefur staðið sig best í jafnréttismálum og verið óhrætt við að ráða konur í stjórnunarstöður og gert konum þannig hátt undir höfði.
Fyrsta fyrirtækið til að hljóta verðlaunin er fjárfestingafélagið Atorka sem á fimm fyrirtæki og í fjórum af þeim fyrirtækjum eru konur forstjórar. Ragnhildur Geirsdóttir er forstjóri Promens, Linda Björk Gunnlaugsdóttir er forstjóri A.Karlsson, Margrét Guðmundsdóttir forstjóri Icepharma og Guðný Rósa Þorvarðardóttir framkvæmdastjóri Parlogis. Áætlað er að veita þessi nýju verðlaun árlega héðan í frá.
Þorsteinn Vilhelmsson Stjórnarformaður sagði þegar hann veitti verðlaununum móttöku: Ég get vottað það við hvern sem er hvar og hvenær sem er að það að ráða konur sem stjórnendur hafi færst nýja sýn og viðhorf inn í okkar fyrirtæki sem hefur reynst okkur afar vel,.
MyndirFKA verðlaunin
2006
FKA VIÐURKENNINGUNA 2006 HLÝTUR ÁSDÍS HALLA BRAGADÓTTIR – FORSTJÓRI BYKO.
Ásdís Halla hóf starfsferil sinn sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1991. Árið 1993 var henni falið fyrst allra kenna að vera framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna. Því starfi gegndi hún í tvö ár – eða þar til hún tók við sem aðstoðarmaður menntamálaráðherra. Háskólinn í Reykjavík naut einnig starfskrafta hennar um tíma á árinu 2000 þegar hún gegndi starfi framkvæmdastjóra nýsköpunar- og þróunarsviðs skólans.
Í október árið 2000 varð Ásdís Halla fyrsta konan til að taka við starfi bæjarstjóra í Garðabæ. Hún var afar farsæl í starfi sínu sem bæjarstjóri og naut bæði virðingar og vinsælda. Þann 27. maí 2005 skipti Ásdís Halla um starfsvettvang og tók við sem forstjóri BYKO.
„Ásdís Halla hefur sýnt mikla leiðtogahæfileika. Þó að hún hafi ekki stundað hefðbundin viðskipti stýrði hún rekstri eins af stærstu sveitarfélögum landsins farsællega í mörg ár. Að stýra stórveldi eins og BYKO krefst leiðtogahæfileika – að fá ólík fyrirtæki, hundruð starfsmanna sem starfa á mörgum stöðum til að ganga í takt og stefna að sama markmiði.
Ásdís Halla Bragadóttir er fyrir löngu búin að ávinna sér virðingu og traust bæði í viðskiptum og stjórnmálum. Hún er okkur öllum hvatning og fyrirmynd – alls óhrædd að takast á við ný og óvænt tækifæri - og því afar vel að því komin að hljóta FKA viðurkenningu 2006.” segir í rökstuðningi FKA
Rakel Olsen og Jón G. Hauksson verðlaunuð
FKA veitti jafnframt tvær aðrar viðurkenningar, fyrir eftirtektarvert ævistarf og hvatningarviðurkenningu.
Hvatningarviðurkenningu FKA hlaut Jón G. Hauksson ritstjóri Frjálsar verslunar.
Jón hefur til margra ára gert verslun og viðskiptum góð skil. Hall hefur fylgst vel með framgangi kvenna í atvinnurekstri og hefur Frjáls verslun undanfarin ár fjallað mest allra fjölmiðla um hlut kvenna við stjórnun fyrirtækja. Umfjöllunin hefur verð mikil, fagmannleg og vönduð.
Þakkarviðurkenningu FKA hlaut Rakel Olsen, stjórnarformaður Sigurðar Ágústssonar í Stykkishólmi.
Í lok árs 1966 hóf Rakel störf hjá fyrirtækinu, sem þá var útgerð báta, rekstur frystihúss, saltfisks- og skreiðarverkun, fiskimjölsverksmiðja, bifreiðastöð og reyndar ýmislegt fleira. Rakel og Ágúst, eiginmaður hennar ráku fyrirtækið saman allt til ársins 1993 eða þar til Ágúst felur frá.
Eftir andlát hans tók Rakel við rekstrinum og hefur séð um síðan.
„Dugnaður, áræði og kjarkur hefur einkennt Rakel Olsen og er hún sönnun þess hversu miklu þessir kostir geta skilað. Hún hefur helgað grundavallaratvinnuvegi þjóðarinnar starfskrafta sína og gert það á þann hátt að eftir hefur verið tekið.” segir m.a. í rökstuðningi dómnefndar FKA
2004
KATRÍN PÉTURSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRI LÝSIS HF HLAUT FKA VIÐURKENNINGUNA
Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands afhenti Katrínu Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Lýsis hf FKA-viðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri við hátíðlega athöfn í gær.
Katrín rak áður fyrirtækið Hnotskurn og fiskafurðir, hausaverkun og lýsisbræðslu. Hún er sögð hafa séð sóknarfæri í Lýsi hf og keypt fyrirtækið árið 1999 eftir langt ferli taprekstrar. Henni hefur tekist að snúa rekstrinum til betri vegar og með því að sameina fyrirtækin tvö náð fram samlegðaráhrifum og meiri hagkvæmni. Afurðir Lýsis hafa fengið góða umfjöllun og niðurstöður úr rannsóknum hafa nánast allar verið mjög jákvæðar. Stöðug þróunarvinna hefur átt sér stað sl. fimm ár og mun hún halda áfram. Nú er svo komið að 90% af framleiðslu fyrirtækisins er til útflutnings
„Katrín hefur tekist á við krefjandi rekstrarumhverfi, sem kallar á hugvitssemi, framkvæmdaelju og hæfileika til þess að sjá möguleika þar sem áður virtist aðeins uppgjöf blasa við. Þess vegna lítum við í Félagi kvenna í atvinnurekstri á hana sem verðuga fyrirmynd og árangur hennar sem hvatningu öðrum konum," segir í rökstuðningi FKA.
Markmiðið með FKA-viðurkenningunni er að heiðra einstakling, fyrirtæki, stofnun, félagasamtök eða stjórnvald sem að mati stjórnar félagsins þykir best að slíkri viðurkenningu komið fyrir vel unnin störf í þágu atvinnurekstrar kvenna eða hafi verið konum í atvinnurekstri sérstök hvatning eða fyrirmynd.
Áður hafa hlotið viðurkenninguna Hilary Clinton, þáverandi forsetafrú Bandaríkjanna, Þóra Guðmundsdóttir hjá Atlanta, Elsa Haraldsdóttir hjá Salon VEH, Svava Johansen í Sautján og Aðalheiður Héðinsdóttir hjá Kaffitári.
Edda og Guðrún verðlaunaðar
FKA veitti jafnframt tvær aðrar viðurkenningar, fyrir eftirtektarvert ævistarf og hvatningarviðurkenningu.
Hvatningarviðurkenningu FKA hlaut Edda Jónsdóttir í i8 galleríi fyrir að fara nýjar leiðir í galleríi sínu og fyrir dugnað og elju við að koma list og listamönnum á framfæri.
Þakkarviðurkenningu FKA hlaut Guðrún Steingrímsdóttir, eigandi Lífstykkjabúðarinnar. Guðrún sem hóf kaupmennsku í Kosta Boda og síðar Lífstykkjabúðinni, er sögð hafa óbilandi þrautseigju og dugnað og er það hvetjandi fyrir þær fjölmörgu FKA konur sem stunda verslunarstörf.
2003
Aðalheiður Héðinsdóttir, eigandi og forstjóri Kaffitárs var valin FKA kona ársins 2003
Mikill spenningur var á veitingahúsinu NASA við Austurvöll 29. janúar sl. þegar beðið var tilkynningar um val á FKA konu ársins 2003.
Mikill fjöldi gesta var á staðnum, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fjöldi þingkvenna og annarra gesta. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar nafn Aðalheiðar var tilkynnt, en hún er frumkvöðull af lífi og sál og hefur verið konum góð fyrirmynd í uppbyggingu fyrirtækis síns undanfarin ár. Félag kvenna í atvinnurekstri veitir þakkarviðurkenningu samhliða FKA viðurkenningunni, en að þessu sinni hlaut Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti þá viðurkenningu fyrir eftirtektarvert ævistarf og fyrir að vera fyrirmynd annarra kvenna um allan heim. Þegar nafn Vigdísar var tilkynnt ætlaði þakið af húsinu í öllum fagnaðarlátunum. Að síðustu var veitt hvatningarviðurkenning FKA en hana hlaut Freydís Jónsdóttir eigandi Gallery Freydís.

2002
FKA
viðurkenninguna 2002 hlaut Svava Johansen.
Svava Johansen hóf verslunarrekstur árið 1981, ásamt Ásgeiri Bolla Kristinssyni. Svava var þá sautján ára og ennþá nemandi í Verslunarskóla Íslands. Verslunin var á Laugavegi 51 og auk Svövu og Ásgeirs Bolla voru þar tveir aðrir starfsmenn. Árið 1984 var verslunin stækkuð og þremur árum síðar opnaði Verslunin 17 einnig í Kringlunni. Það sama ár hleypti Svava versluninni Smash í Kriglunni af stokkunum. Sautján verslunarhús opnaði síðan við Laugaveginn 1991 og ári síðar Sautján skór (nú GS-skór) í Kringlunni. Á árunum 1996 til 2000 bættust við Deres og Morgan í Kringlunni, verslunin Sautján í Kringlunni var stækkuð og breytt í Gallerí Sautján um leið og ákveðið var að bjóða upp á meiri breidd í vöruúrvali hvað aldur og stærðir snertir, Eva/Gallerí bættist í hópinn, InWear var opnuð í Kringlunni og Outlet 10 í Faxafeni. Auk verslananna er starfrækt saumastofa og NTC heildsala með fatnað og skó. Í dag eru fastir starfsmenn að jafnaði 120 til 140 og fer talan upp í 200 þegar mest lætur. Svava er gift Ásgeiri Bolla Kristinssyni og eiga þau saman soninn Ásgeir Frank. Svava á sæti í stjórn Kringlunnar og er meðlimur í Rotary miðborg.
FKA hvatningarviðurkenninguna 2002 hlaut Helga Ingimundardóttir.
Helga Ingimundardóttir hóf störf við ferðaþjónsutu fyrir alvöru árið 1992 þegar hún tók að sér móttöku erlendra ferðamanna í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli fyrir Samvinnuferðir-Landsýn. Áður hafði hún þó starfað sem leiðsögumaður á Sikiley og Lignano og sem svæðisleiðsögumaður á Reykjanesskaganum, auk þess að sækja sér stöðugt menntun á sviði ferðaþjónustu í Fjölbrautarskólanum á Suðurnesjum og í Ferðamálaskólanum í Kópavogi. Fram til ársins 1997 starfaði Helga við móttöku erlendra gesta og sem leiðsögumaður fyrir Sérleyfisbifreiðar Keflavíkur sem voru með sérstakar kynnisferðir um Suðurnesin. Á sama tíma tíma starfaði hún á ferðaskrifstofu Varnarliðsins. Árið 1997 var Helga ráðin í starf forstöðukonu Fræðasetursins í Sandgerði og gegndi hún því starfi í tvö og hálft ár. 1994 hún fór í samstarf með Bláa lóninu um hvalaskoðunarferðir á Suðurnesjum. Fljótlega dró Bláa lónið sig út úr þeirri útgerð, en Helga hélt henni áfram í samastarfi við bátseiganda. Allar götur síðan hefur útgerðin stækkað og í dag rekur Helga Ferðaþjónustu Suðurnesja í Keflavík sem sér um útgerðina á Moby Dick, hvalaskoðunarbátnum sem tekur níutíu farþega.
FKA þakkarviðurkenninguna hlaut Jórunn Brynjólfsdóttir.
Jórunn Brynjólfsdóttir hóf fyrst störf við verslun þegar hún hafði lokið uppeldi fjögurra barna sinna. Það yngsta var komið í nám í Háskóla Íslands þegar Jórunn byrjaði að starfa hálfan daginn hjá kaupmanni sem rak sex verslanir í borginni. Smám saman fækkaði hann verslununum, allt þar til verslun hans við Grundarstíg var ein eftir og starfaði Jórunn þar. Árið 1974, eftir lát eigandans, keypti Jórunn ásamt einni dóttur sinni verslunina af erfingjunum. Eftir að dóttirin flutti út á land, rak Jórunn verslunina ein í nokkur ár en seldi hana að lokum að áeggjan fjölskyldunnar – sem Jórunn segir hafa tjáð sér að hún væri orðin alveg nógu gömul til þess að setjast í helgan stein og eiga náðuga daga. En þótt Jórunn losaði sig við reksturinn, var stöðugt leitað til hennar með afgreiðslustörfin, einkum á alls kyns mörkuðum. Hún hugsaði með sér að fyrst hún væri alltaf að stússa í afgreiðslustörfum, gæti hún allt eins verið með fyrirtæki sem hún ætti sjálf, ráðið vörunum og selt það sem henni þætti fallegt. Áttatíu og tveggja ára hóf hún rekstur á Verslun Jórunnar Brynjólfsdóttur við Skólavörðustíg 19, þar sem hún leggur áherslu á að bjóða upp á gæðavöru í sængurfatnaði og borðdúkum. Jórunn, sem er fædd árið 1910, segist hafa gengið með verslunarbakteríuna frá barnæsku og alltaf verið ákveðin í að vinna við verslun eftir að börnin yxu úr grasi. Hún býr á elliheimilinu Grund og ferðast til og frá vinnu með stöðvarbíl. Hún á fjögur börn, tíu barnabörn og ellefu barnabarnabörn.
2001
FKA viðurkenningin var afhent að viðstöddu fjölmenni þann 17. janúar 2002 á Radison SAS Hótel Sögu. Viðurkenningu hlutu Elsa Haraldsdóttir, Unnur Arngrímsdóttir, Íris Gunnarsdóttir og Soffía Steingrímsdóttir.
Elsa Haraldsdóttir
Greinargerð dómnefndar
Elsa starfar í krefjandi umhverfi þar sem ríkir mikil samkeppni og fagmennska. Á engan er hallað í þessari starfsgrein þótt sagt sé að Elsa hafi snemma orðið leiðandi í þessu umhverfi. Hefur hún verið með nokkrar hárgreiðslustofur í rekstri samtímis, farið nýjar leiðir í sínum rekstri, haft fjölda starfsfólks undir sinni umsjá og því orðið að starfa sem mjög virkur stjórnandi. Hún hefur einnig náð að hasla sér völl á erlendum vettvangi og verið verðugur fulltrúi Íslands í Alþjóðasamtökum hárgreiðslumeistara sem nefnast Intercoffure
Eftir henni hefur verið tekið bæði hér heima og erlendis og þykir Elsa góð fyrirmynd og hefur hún sýnt mikla fagmennsku í gegnum tíðina.
Unnur Arngrímsdóttir
Greinargerð dómnefndar
Unnur hefur sinnt eigin rekstri á fimmta áratug ásamt sínum fyrrverandi maka, Hermanni Ragnari Stefánssyni heitnum. Ásamt því að reka dansskóla stofnaði Unnur sérstakan snyrtiskóla fyrir konur til að kenna þeim almenna framkomu og snyrtimennsku. Í gegnum árin hefur Unnur verið fyrirmynd margra kvenna og er henni sérstaklega þakkað framlag sitt til atvinnureksturs kvenna.
Íris Gunnarsdóttir og Soffía Steingrímsdóttir
Greinargerð dómnefndar
Þessar ungu og kraftmiklu konur hafa tekið þátt í internetslagnum og um leið náð að marka sér sérstöðu og halda henni þegar uppgangur veffyrirtækja var sem bestur. Þær hafa verið að styrkjast jafnt og þétt þrátt fyrir samdrátt í greininni. Þær eiga og reka mjög sýnilegt fyrirtæki og hafa fengið góðar undirtektir frá almenningi. Þessar konur eru komnar til að vera!
2000
Viðurkenningarhafi FKA viðurkenningarinnar árið 2000 er Þóra Guðmundsdóttir, framkvæmdarstjóri og eigandi Flugfélagsins Atlanta. Þóra Guðmundsdóttir stofnaði Flugfélagið Atlanta árið 1986, ásamt eignmanni sínum Arngrími Jóhannssyni flugstjóra. Hún sá til margra ára um uppbyggingu og stjórnun flugfreyjudeildar félagsins og skipar nú stjórn þess auk Arngíms stjórnarformanns og Magnúsar Gylfa Þorsteinssonar forstjóra. Flugfélagið Atlanta hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á undanförnum árum og er skemmst að minnast útflutningsverðlauna forseta Íslands 1999. Flugfélagið Atlanta skipaði árið 1997, 29. sætið á lista Samtaka framsækinna frumkvöðla yfir framsæknustu fyrirtækin í Evrópu. 1998 bætti fyrirtækið um betur og varð í 20. sæti og jafnframt efst þeirra 7 íslensku fyrirtækja sem komust inn á listann það árið.
Samtök framsækinna frumkvöðla í Evrópu völdu árið 1999 Þóru Guðmundsdóttur framsæknasta frumkvöðulinn meðal evrópskra kvenna.
Þóra Guðmundsdóttir er að mati dómnefndar FKA viðurkenningarinnar sá aðili sem best er að þessum heiðri komin fyrir þá hvatningu og fyrirmynd sem hún er öðrum konum sem stunda eigin atvinnurekstur.
Þakkir og hvatning
Þakkarblómvöndur FKA er færður Báru Sigurjónsdóttur eiganda verslunarinnar Hjá Báru, sem fulltrúi þeirra kvenna sem hafa rutt og varðað brautina fyrir þær sem á eftir hafa komið.
Hvatningarblómvönd FKA hlýtur að þessu sinni Lára Vilbergsdóttir í Randalín – Handverkshúsi á Egilsstöðum. Hún hefur undanfarin 8 ár unnið að uppbyggingu atvinnutækifæra á héraði og rutt nýjar brautir í hönnun og hugviti.
1999
Sunnudaginn 10. október 1999 veitti Félag kvenna í atvinnurekstri í fyrsta sinn viðurkenningu félagsins en hana hlýtur sá einstaklingur, það fyrirtæki, stofnun, félagasamtök eða stjórnvald sem þykir hafa lagt atvinnurekstri kvenna lið og/eða hafi verið konum í atvinnurekstri sérstök hvatning eða fyrirmynd.
Fyrst til að hljóta viðurkenninguna var Hillary Rodham Clinton, lögmaður og forsetafrú Bandaríkjanna. FKA telur Hillary Clinton vera fyrirmynd kvenna í atvinnurekstri og í atvinnulífi almennt. Hún hefur með störfum sínum sýnt konum hvarvetna í heiminum að þær eru fullgildir og nauðsynlegir þátttakendur í atvinnulífi og atvinnurekstri sem og á öðrum sviðum þjóðlífsins. Hillary Clinton hefur sýnt að konur hafa annað gildismat en karlar. Reynsla þeirra og áherslur eru mjög mikilvægar í atvinnurekstri og þjóðlífinu almennt eins og hún hefur lagt áherslu á. Í Bandaríkjunum stofna konur nú fleiri fyrirtæki en karlar.
FKA-viðurkenningin er afhent árlega og sér sérstök dómnefnd innan félagsins um að velja viðtakanda hverju sinni. Það er von félagsins að þessi viðurkenning veki athygli á atvinnurekstri kvenna og verði henni til framdráttar.