english     leit  




  • 16. 09. 2010 - FKA konur til Stokkhólms.

  • 14. 09. 2010 - Tæklum Internetið

  • 9. 09. 2010 - Fyrsta samkoma haustsins



  • 24. júní 2010

    Kæru félagskonur.

     

    Ný stjórn og allar nefndir hafa haldið sinn fyrsta fund og munu allar nýta sumarið til að hlaða niður hugmyndum fyrir nýtt starfsár félagsins sem hefst í september.   

     

    Glæsilegt og vel heppnað golfmót FKA er afstaðið þar sem 48 konur spiluðu 9 holur í blíðskaparveðri í Hveragerði eftir ánægjulega heimsókn í FKA fyrirtækið Kjörís.  Allar fórum við glaðar heim hlaðnar vinningum eftir góðan kvöldverð í golfskálanum.                     

    Meira



     
    Nýjar FKA konur í júlí og ágúst:

     

    Yrki arkitektar ehf

    Sólveig Berg

    Volcano Iceland

    Steinunn Ketilsdóttir

    Ás Holding aps

    Ragnhildur Gottskálksdóttir

    Sædís gullsmiðja

    Sædís Bauer Halldórsdóttir

    Englahár

    Harpa Barkar Barkardóttir

    Pelsinn

    Ester Ólafsdóttir

    Jóhann Helgi & Co ehf

    Margrét Ormsdóttir 

     

    Helga Jóihanna Úlfarsdóttir



    Föstudagur 25. júní 2010
    "Takk fyrir að vera til fyrirmyndar". Hvatningarátak tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni. FKA er einn bakhjarla verkefnisins.

    Kæru félagskonur FKA. \

    Síðastliðinn vetur hafa nokkrar konur úr Exedra, FKA og LeiðtogaAuði undirbúið verkefni sem hlotið hefur nafnið „Til fyrirmyndar“.  Verkefnið felst í því að sameina þjóðina í að staldra við og horfa til þess sem vel er gert í samfélaginu og slást í hópinn með Vigdísi Finnbogadóttur og fleiri Íslendingum og skrifa bréf til þeirra einstaklinga/verkefna sem eru til fyrirmyndar á einn eða annan hátt.  Opnuð hefur verið heimasíða verkefnisins  www.tilfyrirmyndar.is  sem hefur m.a. að geyma pistla, viðtöl og greinar um gildi fyrirmynda ásamt MS rannsóknarverkefni nema við HR.

     

    Verkefnið minnir okkur á mikilvægi fyrirmynda og á mikilvægi þess að vera til fyrirmyndarSýn okkar er að virkja fjölskyldur landsins í áframhaldandi vexti, velferð og virðingu og efla einstaklinga á umbrotatímum.  Þannig má endurvekja kraftinn, minna á ábyrgð hvers og eins og tengjast enn sterkari böndum.  Með þessu viljum við einnig ýta undir jákvætt hugarfar og mikilvægi hvers og eins þar sem allir geta verið til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. 

     

    Þann 29. júní hvetjum við ykkur til að senda bréf sem ber yfirskriftina Takk fyrir að vera til fyrirmyndar til allra sem þið teljið hafa verið til fyrirmyndar, t.a.m. fjölskyldu, vina, vinnustaða, félagasamtaka eða annarra.  Þennan dag verður bréfsefni dreift inn á öll heimili landsins.  Þau má setja ófrímerkt í póst.  Einnig verður hægt að fá fleiri bréf á heimasíðunni http://www.tilfyrirmyndar.is,  á pósthúsum landsins og á bensínstöðvum N1.

     

    Í hádeginu þann 29.júní verður haldinn hátíðarfundur þar sem Laura Liswood, framkvæmdastjóri Council of Women World Leaders, mun fjalla um sögulegt kjör Vigdísar og þýðingu þess fyrir baráttu kvenna víðs vegar um heim. Fyrirlesturinn verður haldinn í Öskju, Háskóla Íslands, Sturlugötu 7, og hefst hann kl. 12:00. Fundarstjóri verður Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Vonumst við til að þið getið allar mætt á fundinn.

     

    Vefur átaksin  http://www.tilfyrirmyndar.is.  Þar er hægt að benda á einstaklinga og verk sem fólki finnst vera til fyrirmyndar og væri gaman að fá ábendingar frá ykkur inn á síðuna.  Á síðunni er einnig fjallað um gildi fyrirmynda í pistlum og viðtölum auk þess sem þar er að finna fróðleikskorn úr tveimur meistaraprófsritgerðum um fyrirmyndir. 

    Við viljum einnig benda ykkur á söfnun Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur fyrir alþjóðlegri tungumálamiðstöð á Íslandi.  Hvetjum við ykkur til að leggja ykkar af mörkum og ýta þannig undir að draumur Vigdísar verði að veruleika. Nánari upplýsingar má finna á http://www.vigdis.hi.is.

     

    Að verkefninu standa m.a. Félag kvenna í atvinnurekstri, Exedra, LeiðtogaAuður, Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur.

     

    Eftirfarandi er fréttatilkynning um verkefnið.  Ég hvet ykkur allar til að kynna ykkur vel verkefnið og taka þátt að benda á það sem vel er gert í okkar samfélagi!

     

    Með kveðju

    Hafdís Jónsdóttir

    Formaður FKA.

     

    Fréttatilkynning

    „Takk fyrir að vera til fyrirmyndar“
    Hvatningarátak tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni


    Reykjavík, 24. júní 2010

    Til fyrirmyndar er yfirskrift hvatningarátaks sem tileinkað er frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni. Þann 29. júní nk. verða 30 ár liðin  frá því að Íslendingar voru fyrstir þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum – konu sem hefur verið fjölmörgum til fyrirmyndar allar götur síðan. Átakinu er ætlað að minnast þessara sögulegu tímamóta – og vísa til þess að íslenska þjóðin hafi með þessu móti verið til fyrirmyndar. Landsmenn eru hvattir til að gefa sér stund til að staldra við og huga að því sem vel er gert, jafnt stóru sem smáu.

    Þriðjudaginn 29. júní mun Vigdís Finnbogadóttir setjast niður og skrifa bréf sem ber yfirskriftina „Takk fyrir að vera til fyrirmyndar“. Allir landsmenn eru hvattir til að taka þátt og senda handskrifaða kveðju til  fjölskyldu, vina, vinnustaða, félagasamtaka eða annarra sem   þeir telja hafa verið til fyrirmyndar. Bréfsefni sem má setja ófrímerkt í póst verður dreift inn á heimili um allt land dagana 29. og 30. júní.

    „Með því að leiða hugann að því sem vel er gert og okkur þykir til fyrirmyndar auðveldum við okkur að finna hvaða leiðir við viljum velja til framtíðar sem einstaklingar, fjölskyldur, skólar, vinnustaðir og síðast en ekki síst sem þjóð. Lögð verður áhersla á samræður og þakklæti sem Vigdísi hefur verið hugleikið í gegnum tíðina. Átakið ýtir einnig undir samheldni og jákvætt hugarfar,“ segir Ingibjörg Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Til fyrirmyndar.

    Í hádeginu þann 29. júní verður hátíðarfundur með Lauru Lizwood, fulltrúa Council of Women World Leaders, en Vigdís er einn af stofnendum þeirra samtaka. Fundurinn verður haldinn í Öskju við Háskóla Íslands, Sturlugötu 7, og hefst hann kl. 12:00. Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, stýrir fundinum.
    Vefur átaksins verður opnaður í dag, 24. júní, á slóðinni: www.tilfyrirmyndar.is<http://www.tilfyrirmyndar.is/>.

    Á vefnum er fjallað um gildi fyrirmynda í pistlum og viðtölum. Hægt er að benda á einstaklinga og verk sem fólki finnst vera til fyrirmyndar og er óskað eftir að sem flestir sendi inn ábendingar.  Á vefnum eru einnig birt fróðleikskorn úr tveimur meistaraprófsritgerðum um fyrirmyndir.

    Að verkefninu standa m.a.Félag kvenna í atvinnurekstri, Exedra; LeiðtogaAuður, Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands og  Stofnun Vigdísar  Finnbogadóttur.  „Mestu skiptir að finna hugmyndum góðan og frjóan farveg þannig að þær fái tækifæri til að þróast og verða að veruleika. Fjölmargir einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir hafa gengið til liðs við hópinn sem hefur gert það að verkum að hugmyndin hefur mótast í farsæla átt. Allir hafa verið boðnir og búnir að leggja verkefninu lið og gefa vinnu sína til að það megi verða að veruleika og er sú samvinna sem hefur átt sér stað algjörlega til fyrirmyndar,“ segir Sigþrúður Ármann, formaður Exedra, en á vefsíðunni má sjá hverjir fleiri hafa lagt hönd á plóg.
    Nánari upplýsingar veitir:  Ingibjörg Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Til fyrirmyndar,  í síma 616 9770

     

     


    Nýsköpunarmiðstöð Íslands
    Félag kvenna í atvinnurekstri - Pósthólf 8683 - 128 Reykjavík - fka@fka.is - Sími 897-0711