


24. júní 2010 Kæru félagskonur. Ný stjórn og allar nefndir hafa haldið sinn fyrsta fund og munu allar nýta sumarið til að hlaða niður hugmyndum fyrir nýtt starfsár félagsins sem hefst í september. Glæsilegt og vel heppnað golfmót FKA er afstaðið þar sem 48 konur spiluðu 9 holur í blíðskaparveðri í Hveragerði eftir ánægjulega heimsókn í FKA fyrirtækið Kjörís. Allar fórum við glaðar heim hlaðnar vinningum eftir góðan kvöldverð í golfskálanum. Meira

Nýjar FKA konur í júlí og ágúst:
Yrki arkitektar ehf
Sólveig Berg
Volcano Iceland
Steinunn Ketilsdóttir
Ás Holding aps
Ragnhildur Gottskálksdóttir
Sædís gullsmiðja
Sædís Bauer Halldórsdóttir
Englahár
Harpa Barkar Barkardóttir
Pelsinn
Ester Ólafsdóttir
Jóhann Helgi & Co ehf
Margrét Ormsdóttir
Helga Jóihanna Úlfarsdóttir
|

|
Miðvikudagur 25. ágúst 2010
Við heimsækjum Ráðhús Reykjavíkur og hittum nýja borgarstjórann.
Fimmtudagur 19. ágúst 2010
Faroexpo 2010 fer fram í Runavík í Færeyjum dagana 25.-28. október, nú í 6. sinn. Um er ræða ráðstefnu og tvíhliða viðskiptafundi, með það að markmiði að styrkja viðskiptasambönd milli íslenskra og færeyskra fyrirtækja.
Fimmtudagur 19. ágúst 2010
Kynningarfundur um hótel- og veitingahúsasýninguna IGEHO í Basel í Sviss fer fram miðvikudaginn 25. ágúst kl. 13.30-16.00, Borgartúni 35, 6 hæð.
Fimmtudagur 12. ágúst 2010
FCEM, alþjóðasamtök kvenna í atvinnurekstri, haldfa sitt árlega heimsþing í Florence þetta árið.
Mánudagur 5. júlí 2010
Íslandsstofa tók til starfa 1. júlí 2010 og sameinar starfsemi Útflutningsráðs, Fjárfestingarstofu og erlent markaðsstarf Ferðamálastofu. Íslandsstofa verður þó annað og meira en einföld samlagning þeirrar starfsemi sem þegar var fyrir hendi, því henni er ætlað víðtækara starf sem snýr m.a. að því að styrkja ímynd og orðspor Íslands og styðja við kynningu á íslenskri menningu erlendis. Íslandsstofa er til húsa í Borgartúni 35, Reykjavík, í Húsi atvinnulífsins.
Fimmtudagur 24. júní 2010
FKA er komið á Facebook.
Sunnudagur 20. júní 2010
Frá 1991 hefur Félags- og tryggingamálaráðuneytið úthlutað styrkjum til kvenna sem hafa nýjar hugmyndir að vöru og eða þjónustu. Markmið styrkjanna er að draga úr atvinnuleysi kvenna, efla atvinnulíf og auðvelda aðgengi kvenna að fjármagni. Styrkir þessir hafa oft á tíðum skipt sköpum fyrir viðkomandi styrkhafa og gert þeim kleift að sjá drauma sína um fyrirtækjarekstur rætast.
Fimmtudagur 17. júní 2010
Síða 1 af 80: | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80
|

|