Aðalfundur FKA 2010 - haldinn 19. maí
Ræða formanns, skýrsla stjórnar og skýrslur nefnda.
Ræða formanns FKA Hafdísar Jónsdóttur í Laugum:
Fundarstjóri, kæru FKA konur.\
Skýrsla stjórnar verður sett í fullri lengd inn á heimasíðuna eftir fundinn og á borðinu fyrir framan ykkur er úrdráttur úr henni, ég ætla ekki að fara yfir hvert og eitt atriði starfsársins – en má til með að nefna í stuttu máli þau helstu.
Starfsár okkar hófst í Seðlabankanum og þar lögðum við línuna fyrir veturinn.
Eitt af markmiðum okkar er að fjölga konum í ábyrgðarstörfum í atvinnulífinu, þess vegna þurfum við að segja JÁ þegar til okkar er leitað. Alltof oft heyrum við að það sé leitað til kvenna en þær mikli verkefnið svo fyrir sér að það sé miklu auðveldara að leita til karla. Við tökum verkefni að okkur af mikilli ábyrgð sem er gott - en þurfum líka að vera til í að taka slaginn. Við trúum að íslenskt atvinnulíf hafi ekki efni á að sniðganga konur í efstu lögum atvinnulífsins. Þess vegna þarf að virkja konur og karla til starfa í eldlínunni.
Fyrir ári síðan hóf FKA formlega krossferð við undirritun samnings Félags kvenna í atvinnurekstri við Samtök Atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands að viðstöddum fulltrúum allra stjórnmálaflokka á Íslandi, að hvort kyn hefði ekki undir 40% í forystu viðskiptalífsins í árslok 2013. Í febrúar stóð FKA ásamt SA, VÍ, CreditInfo og Leiðtoga-auði fyrir ráðstefnu með svokölluðu Date fyrirkomulagi þar sem lagt var upp með að jafnt kynjahlutfall yrði á fundinum ásamt því að fá nokkur stórfyrirtæki með okkur í að undirrita samskonar samning þar sem að þeir myndu stefna á að hvort kyn hefði ekki undir 40% í stjórn þeirra fyrirtækja. Fyrirkomulag fundarins tókst frábærlega – en á fundinn mættu um 300 manns og var hlutfallið 43% karlar á móti 57% konum. Er þetta í fyrsta skipti sem tekst að halda fund um „jafnréttismál“ og í salnum sitja ekki eingöngu konur heldur einnig sátu þarna margir af helstu forstjórum íslensks viðskiptalífs og létu sig málið varða.
En árangur undirritunarinnar var ekki eins góður. Fyrst stefndum við á að fá 10 fyrirtæki, síðan 5 en því miður þá varð það þannig undir það síðasta að við þökkuðum fyrir að fá tvö fyrirmyndarfyrirtæki með okkur, Verkfræðistofan Mannvit og Edda útgáfa tóku slaginn með okkur. Eftir fundinn bættust strax tvö fyrirtæki við listann, Landsbankinn og Saltkaup. Nýlegar tölur sýna tuttugu og tvö fyrirtæki með 40/60 kynjahlutfall.
En 600 kvenna félag gerir meira en að standa í baráttu þ.á.m. er árlegt golfmót sem golfnefndin stendur fyrir og hvet ég ykkur hér með til þáttöku þann 10.júní.
Árleg utanlandsferð sem ferðanefndin sér um og fóru síðast 40 ánægðar konur til Berlínar þar sem góðum tengslum var á komið milli íslenskra og þýskra hönnuða. Ný ferðanefnd er komin til starfa og er þegar búin að senda út auglýsingu vegna fyrirhugaðrar ferðar til Stokkhólms 16-19 september n.k.
Tengsla- og nýliðanefnd hefur verið stór þáttur í starfi FKA síðastliðið ár eins og fyrri ár. Hlutverk nefndarinnar er eins og nafnið gefur til kynna að halda utan um viðburði og verkefni sem hafa það að markmiði sínu að efla tengslanetið og styrkja nýjar konur í starfi félagsins.
Sýnilegasta verkefni nefndarinnar hefur verið að taka á móti nýjum konum á viðburðum FKA og næla blóm í barm þeirra.
Tilgangur þess er þar með að gera þær sýnilegri á viðburðum og ekki síst að auðvelda eldri félagskonum að nálgast þær, kynnast og kynna áfram.
Metnaðarfyllsta verkefnið sem nefndin átti hugmynd að, hrinti í framkvæmd og stýrði var Mentor verkefnið. Þátttaka var góð og mikil ánægja, stefnt er að því að halda því áfram af fullum krafti næsta haust.
Í mars var tengslaferð FKA kvenna til Akureyrar. Ferðin var í alla staði vel heppnuð og vel tekið á móti okkur þar.
Fræðslunefnd FKA stóð fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni Fjármál og staða fyrirtækja. Fundurinn var vel sóttur og vakti ágætis athygli fjölmiðla. Yfirskrift frétta blandaðist þar saman við mikilvægi þess að auka hlutdeild kvenna í atvinnulífinu og því má segja að áherslur fræðslunefndar þennan vetur hafi svolítið smitast inn á það verksvið að reyna að auka hlutdeild og sýnileika kvenna í atvinnulífinu. Þar lá áherslan í haust á heimsóknir og morgunverðarfundi í alla stæðstu bankana ásamt því að fá fulltrúa þeirra á fundi til okkar.
Viðskiptanefndin setti sér þau markmið að standa fyrir markaðssetningu á FKA fyrirtækjunum innan félagsins. Slagorð fyrir þá hvatningu varð
– Mundu mig - ég man þig –. Og hinsvegar að nýta vefinn á aðgengilegan hátt. Konur voru hvattar til að skrá fyrirtæki sín undir starfsviði og með leitarorði inn á FKA vefnum.
Viðskiptanefndin kom fram með þá hugmynd að hvetja konur til að versla hvor hjá annarri með því að hafa happdrætti þar sem dregið var úr kvittunum sem konur höfðu haldið til haga eftir að hafa verslað hjá FKA fyrirtækjum. Þessi hugmynd hefur verið nýtt í tvígang.
Til þess að gefa konum kost á að kynna fyrirtæki sín enn frekar var brotið upp á þeirri nýbreytni að mánaðarlegar gleðistundir félagsins yrðu fyrirtækjaheimsóknir sem hafa gefist mjög vel.
Á jólagleði félagsins höfðu allar félagskonur líka möguleika á að vera með kynningarborð fyrir sínar vörur og þjónustu.
Hápunktur starfs viðskiptanefndarinnar var að undirbúa tengslarölt milli FKA fyrirtækja í miðbæ Reykjavíkur í byrjun maí. Hugmyndin kom í framhaldi af velheppnaðri ferð FKA kvenna til Akureyrar þar sem Norðankonur höfðu skiplagt skemmtilegt rölt milli FKA fyrirtækjanna á Akureyri. Móttökur fyrirtækjanna voru einstaklega hlýjar og rausnarlegar.
Alþjóðanefnd.
Heimsþing FCEM var haldið daganna 23. til 30 október 2009 í 57 sinn. Að þessu sinni varð borgin Yaoundé í Kamerún fyrir valinu og var þema þingsins: “World Women entrepreneurs faced with the International financial crisis"
Markmið heimsþingsins voru:
Að styrkja tengslin á milli FCEM og ríkisstjórna, opinbera stofnanna, fyrirtækja, fjármálastofnanna og fjárfestinga.
Að efla samstarf milli landa og heimshluta.
Að efla tæknilegt samstarf á milli þróunarlanda og efnaðra landa.
Að undirstrika þætti sem leiða til aukinnar sameinigu í verkefnaþróun.
Að styðja við kennslu, nýsköpun, fjölbreytni og notkun grænnar orku.
Að hvetja konur til að endurnýja alþjóðlega efnahaginn með athafnasemi sem er byggt á siðferði, vistfræði með tillit til loftslagsbreytingar, gegnsæi, jafnrétti og góðra stjórnunarhætta.
Alþjóðanefnd tók að sér að endurskoða aðild FKA að erlendum félögum kvenna í atvinnurekstri. Fjölmörg félög voru skoðuð. Tillaga er um að stjórn félagsins skoði áframhaldandi félagsaðild hjá FCEM eða/og gerast félagi hjá TIAW.
Alþjóðanefnd FKA og Útflutningsráð Íslands skoðuðu í lok 2009 möguleikann á að skipuleggja viðskiptasendinefnd í tengslum við ráðstefnuna Global Summit of Women sem haldin verður í Bejing í Kína og skoðunarferð á heimssýninguna EXPO í Shanghæ.
FKA á Suðurlandi héldu 5 kaffifundi þar sem mættu 15 – 18 konur sem er auðvitað frábært miðað við að þær eru rétt rúmlega 30 sem eru í félaginu þar á svæðinu. Vetrarstarfinu luku þær svo með dýrindis kvöldboði í verslun einnar félagskonu.
FKA á Norðurlandi héldu nokkrar gleðistundir í vetur, fyrirlestra og Dömulega dekurdaga sem lukkuðust með eindæmum vel og skipulögðu þær og tóku á móti okkur sunnankonum á eftirminnilegan hátt.
FKA blaðið kemur út eftir tvo daga í mun stærra upplagi en nokkru sinni áður, eða 15.000 eintökum í stað 1000. Blaðið er hið allra glæsilegasta og er markmið þess að gera FKA konur sýnilegri, vekja áhuga og vera hvatning fyrir ungar konur í atvinnurekstri að gerast félagar, því sameinaðar eru við sterkastar.
En hvar erum við núna í ferð okkar sem við störtuðum síðastliðið vor með undirritun samstarfssamningssins. Cretitinfo tók að sér að mæla árangurinn árlega og á eftir fáum við að vita tölur úr þeirri rannsókn sem Cretitinfo vann í síðustu viku . Gaman verður að heyra hversu hátt prósentuhlutfall kvenna er í stjórnum á Íslandi í dag miðað við tölur fyrir ári síðan.
Takk fyrir.
Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið haust 2009 - vors 2010
Ný stjórn FKA hittist á sínum fyrsta formlega stjórnarfundi 8. júní 2009 og skipti með sér verkum. \Svava Johansen var kjörin varaformaður og Bryndís Emilsdóttir ritari. Á starfsárinu hittist stjórnin formlega á 11 stjórnarfundum en þar fyrir utan voru mörg mál afgreidd í gegnum tölvupóst, síma og samhliða öðrum viðburðum félagsins. Að auki hittust formaður og framkvæmdastjóri reglulega á milli stjórnarfunda.
Starf félagsins var mjög öflugt á árinu og skilar sér í því að við göngum inn á þennan aðalfund með um 600 fullgildar félagskonur.
SUMAR
· Vel heppnað þriggja kylfu golfmót FKA fór fram á Hólmsvelli í Leiru í júní.
SEPTEMBER
· Vetrarstarf FKA hófst með heimsókn í Seðlabankann. Már Guðmundsson seðlabankastjóri tók á móti félagskonum og fræddi þær um starfsemi bankans. Að því loknu var sameigin-legur kvöldverður á veitingastaðnum Pisa.
· Vetrarstarf FKA á Norðurlandi hófst.
· Vetrarstarf FKA á Suðurlandi hófst.
· Tengslanefnd bauð upp á skemmtilega nýbreytni - morgunkaffi alla þriðjudaga.
· „Við segjum JÁ“ listinn var endurunninn í samvinnu við LeiðtogaAuði þar sem yfir 100 rekstrarkonur lýstu sig reiðubúnar til að taka þátt í endurreisninni af fullum þunga. Var listanum dreift ásamt samningi FKA, SA, VÍ og CreditInfo til hinna nýju banka, bankaráða, ráðuneyta, stjórnmálaflokka, hagsmunasamtaka s.s. ASÍ, VR og víðar. Einnig var unnin ensk útgáfa af samningnum sem hefur verið sendur víða. Samningurinn og listinn hafa vakið mikla athygli og skilað árangri.
· En með bjartsýnina að vopni fóru 38 FKA konur til Berlínar þar sem þær skoðuðu m.a. leikhús Helga Björnssonar og fengu að heyra framtíðaráform þeirra sem eru mjög stór. Einn virtasti hönnunarskóli í Evrópu DESMOD er m.a. í Berlín og þar opnuðust skemmtilegar umræður um hversu mikil og lík gróskan í fatahönnun er á Íslandi og í Berlín. Þeir hönnuðir sem voru í ferðinni komust í gott tengslanet og einnig var ákveðið að vinna að því að á næsta ári myndu íslenskir hönnuðir vera á meðal þeirra þýsku á sýningu á vegum skólans sem hefur hlotið mikla alþjóðlega athygli og viðurkenningu.
· Auður Capital bauð félagskonum á morgunverðarfund um lífeyrismál og séreignarsparnað.
· Sent var á allar félagskonur og birt á heimasíðunni skjal á ensku um stöðu Íslands sem hægt var að senda á erlendra birgja.
· Formaður ásamt Mörtu Eiríksdóttur fóru á fund Viðskiptaráðherra og komu fram áhyggjum af að skilanefndir ríkisbankanna skuli ekki virða þann samstarfssamning sem FKA, Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og CreditInfo ásamt fulltrúum allra stjórnmálaflokkanna skrifuðu undir í vor þar sem stefnt var að því að auka hlut kvenna í atvinnulífinu. Í ljósi frétta um nýskipaðar stjórnir í ágúst og september þar sem ríkisbankarnir eru með stærstu hluthöfum þá vakti það furðu að konur væru ekki á meðal þeirra sem skipaðar voru í þessar nýju stjórnir. FKA kom þeim skilaboðum til ráðherra og aðstoðarmanna hans að það væri hagsmunamál þjóðfélagsins að nýta krafta beggja kynja og skýlaus krafa að konum verði falin aukin ábyrgð á öllum vígstöðvum við endurreisn þjóðfélagsins því Ísland þarf að nýta sér þann mannauð sem í konum býr. Við teljum að þessi fundur hafi verið árangursríkur því rétt á eftir var skipuð stjórn í Landsbankanum sem í voru eingöngu konur. Einnig sendi formaður út fréttatilkynningu á alla fjölmiðla sem fékk ágæta umfjöllun um sama mál.
OKTÓBER
· FKA konur tók þátt í sölu á Bleiku slaufunni í samstarfi við Krabbameinsfélagið.
· Marín Magnúsdóttir frá Practical var styrkt til þátttöku í verkefninu „Útflutningsaukning og hagvöxtur – ÚH 20“ hjá Útflutningsráði.
· Gleðistundin var haldin á Pisa. Hönnunarfyrirtækjum á 101 svæðinu var sérstaklega boðið þar sem FKA upplýsti þau um heimsókn sína og tengsl í DESMOD hönnunarskólann í Berlín.
· Kaupþing bauð á morgunverðarfund þar sem rætt var um greiðsluúrræði fyrirtækja.
· FKA á Norðurlandi hélt Dömulega dekurdaga sem stóðu yfir í 3 daga.
NÓVEMBER
· Ákveðið var að bjóða upp á þá nýbreytni að Gleðistundin sem alltaf er fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði verði fyrirtækjaheimsóknir, þ.e. fyrirtækjum gefinn kostur á að bjóða félagskonum til sín og halda kynningu á fyrirtæki sínu. Fyrsta fyrirtækjaheimsóknin af fjórum var í Forval þar sem Fjóla og starfsmenn hennar kynntu allt það sem fyrirtæki hennar býður upp á.
· Morgunverðarfundur á Loftleiðum með bankastjóra Nýja Landsbankans, yfirmanni viðskiptasviðs Íslandsbanka og viðskiptaráðherra. Þóranna Jónsdóttir var fundarstjóri.
· Félagskonur FKA tóku þátt í Athafnaviku sem haldin var í annað sinn á vegum Innovit, frumkvöðla og framkvæmdaseturs.
· Á jólagleði félagsins var sú nýjung hjá FKA að bjóða félagskonum enn meiri sýnileika með fyrirtækjakynningu á Hótel Loftleiðum. Félagskonur komu með sýnishorn af því sem fyrirtæki þeirra bjóða upp á í þjónustu og vörum áður en haldið var inn í aðalsal hótelsins þar sem hið rómaða jólahlaðborð Marentzu Poulsen er ávallt á sínum stað. Segja má að leiðsögn hennar um borðið gerði upplifunina ógleymanlega. Einnig var sú nýjung að félagskonur settu kassakvittanir frá félagskonum í pott þar sem dregið var úr mörgum glæsilegum vinningum. Ellen Kristjánsdóttir flutti nokkur af sínum fallegu lögum og má segja að konur hafi gengið út í nóttina saddar af kræsingum og tónlist.
· FKA og Íslandsbanki undirrituðu samkomulag um að bankinn styddi félagið með einnar milljón króna framlagi árið 2010.
JANÚAR
· Morgunverðarfundur á Loftleiðum. Rúna Magnúsdóttir, Connected-women, hélt þrumuhvatningarerindi þar sem allir fundarmenn voru þátttakendur.
· Morgunverðarfundur á Loftleiðum og fyrirlesturinn „Hefur þinn vinnustaður ímynd trausts og heiðarleika“ sem Þórhildur Þórhallsdóttir frá Þekkingarmiðlun hélt.
· FKA viðurkenningarhátíðin var haldin í Perlunni.
*FKA viðurkenningin: Vilborg Einarsdóttir frá Mentor
*Þakkarviðurkenningin: Bára Mágnúsdóttir frá JSB
*Hvatningarviðurkenningin: Marín Magnúsdóttir frá Practical
*Gæfuspor: STIKI, Svana Helen Björnsdóttir
Borgarstjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, setti hátíðina í Perlunni. Viðurkenningin þótti mjög vel heppnuð og almenn ánægja var með val á viðurkenningarhöfum. Um 300 manns sóttu hátíðina. Á eftir snæddu um 80 konur kvöldverð í Perlunni.
FEBRÚAR
· FKA hefur síðast liðin 4 ár lagt áherslu á að viðskiptalífið nýti krafta kvenna í stjórnum og við stjórnun fyrirtækja. Til þess að vekja athygli á því var að frumkvæði FKA þar sem FKA, Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og CreditInfo ásamt fulltrúum stjórnmálaflokanna skrifuðu undir tímamótasamning um að auka hlutfall kvenna í forystusveit íslensks atvinnulífs. Markmið samningsins er að í lok árs 2013 verði hlutfall hvors kyns ekki undir 40%.
Næsta skref var að fá fyrirtækin með okkur í lið og var mjög vel heppnuð ráðstefna haldin 10. febrúar. Þar mættu yfir 300 karlar og konur úr íslensku atvinnulífi og það ánægjulegasta var að kynjaskipting var nokkuð jöfn enda lagt upp með það í sérstöku „Date“ fyrirkomulagi – 43% gestanna karlar og 57% konur.
Tveir karlmenn tóku af skarið fyrir hönd sinna fyrirtækja, þeir Jón Axel Ólafsson eigandi Eddu útgáfu og Sigurður Arnalds, stjórnarformaður Mannvits, skrifuðu undir samstarfssamninginn um að leggja sitt af mörkum til að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs. Síðan hafa bæst við fleiri fyrirtæki.
· Gleðistund / fyrirtækjaheimsókn í tískuverslun Munda á Laugavegi.
· Sirrý sjónvarpskona hélt erindi í Iðnó um örugga framkomu í fjölmiðlum.
MARS
· Gleðistund / fyrirtækjaheimsókn í Kaffi Loka og textilsýningu Hrannar Vilhelmsdóttur.
· FKA Akureyri tók á móti félagskonum frá hinum landshornunum. Dísa, Margrét, Ragnheiður og Bryndís skipulögðu móttökurnar á sinn ógleymanlega hátt og leiðsögn Lóu um Mývatnssveit var þvílík að sveitin verður ávallt sveipuð rósrauðum bjarma í huga okkar.
· Morgunverðarfundur á Nauthól þar sem Guðrún Árnadóttir viðsk.fr. og lögg. fasteignasali var með erindi um vitundarvakningu og bætt siðferði.
APRÍL
· FKA tók þátt í undirbúningsvinnu fyrir 80 ára afmæli Frú Vigdísar Finnbogadóttur og félagskonur tóku að sér að selja kortin frá Konu til Konu þar sem öll upphæðin rennur í byggingasjóð alþjóðlegrar tungumálamiðstöðvar.
· Gleðistund / fyrirtækjaheimsókn í Bara Design á Garðatorgi þar sem Bjargey tók á móti félagskonum og fræddi okkur og skemmti á sinn einstaka hátt.
· Morgunverðarfundur um búðaþjófnað og öryggismál á Hótel Loftleiðum. Eyþór Víðisson var með góða fræðslu um allt sem varðar öryggi og þjófnað á vinnustöðum, heimilum og sumarbústöðum.
MAÍ
· 101 tengslarölt þar sem FKA konur á miðbæjarsvæðinu tóku glæsilega á móti okkur og endað með vorgleðistund á Thorvaldsen við Austurstræti þar sem gleði ríkti langt fram eftir kvöldi. Mundu mig · ég man þig nefndin (viðskiptanefndin) stóð fyrir kvittana-happdrættinu þar sem nokkrar hlutu skemmtilega vinninga.
· FKA blaðið kemur út eftir tvo daga (21. maí) í mun stærra upplagi en nokkru sinni áður, eða um 15.000 eintökum. Bryndís Torfadóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir héldu utan um verkefnið, ritstjórar voru FKA konurnar Inger Anna Aikman og Margrét Blöndal. Um útlit og umbrot sá FKA konan Bryndís Óskarsdóttir, Markfell sá um söfnun auglýsinga og Prentmet prentar. Blaðið er hið allra glæsilegasta og er markmið þess að gera FKA konur sýnilegri, vekja áhuga og vera hvatning fyrir ungar konur í atvinnurekstri að gerast félagar, því sameinaðar erum við sterkastar.
· Aðalfundur FKA haldinn á Hótel Loftleiðum. Aðalgestur fundarins Guðfinna Bjarnadóttir flytur erindi um muninn á að vinna í einkageiranum, háskólaumhverfinu og stjórnmálum. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf verða birtar niðurstöður úr nýrri könnun CreditInfo sem fyrirtækið gerði um konur í íslensku viðskiptalífi og er framhald könnunar þeirrar sem kynnt var í maí 2009. Höfum við gengið til góðs ................. ?
FRAMUNDAN
· 3ja kylfu FLOWER POWER golfmót FKA verður haldið 10. júní á golfvellinum í Hveragerði. Lagt verður af stað kl. 13:00 og stoppað hjá Kjörís þar sem við fáum að gægjast inn í heim ísgerðar ... og jafnvel smakka líka. Kvöldverður í golfskálanum að loknu golfmóti.
· 16. – 19. september munu FKA konur heimsækja Stokkhólm.
ÖNNUR VIÐFANGSEFNI
· FKA kom áfram að kynningum inn á Brautargengisnámskeiðum á vegum NMI og öllum þátttakendur boðið að vera félagsmenn FKA á meðan á náminu stóð.
· Heimasíða félagsins uppfærð og leitarvél efld til muna þar sem félagskonur eru hvattar til að setja inn leitarorð og réttar upplýsingar um fyrirtæki sín sem geta stækkað viðskiptamannahóp þeirra um allt að 600 manns á nokkrum mínútum.
· Félagið tók þátt í undirbúningi fyrir 80 ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur og er einnig að vinna að undirbúningi fyrir 30 ára kjörafmæli Vigdísar þann 29. júní n.k. þar sem lögð verður áhersla á samverustundir fjölskyldunnar og fyrirmyndir Íslendinga ásamt dagskrá og ljósmyndasýningu á Austurvelli ofl.
· Nýjum félagskonum undir 30 ára var boðin frí aðild að félaginu fyrsta árið.
· Reynt var eftir fremsta megni að halda félagskonum vel upplýstum um gang mála á þessum erfiðu tímum með ýmsum hætti og þeim send ýmis gögn sem þær gátu notað í rekstri sínum s.s. upplýsingar á ensku til að senda á erlenda birgja, upplýsingur um greiðslur fyrir starfsmenn í skertu starfshlutfalli o.fl. o.fl.
· 11 ára farsælu samstarfi FKA og Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands lauk í vetur og nýtur félagið ekki þjónustu þeirra lengur.
TENGSL - STYRKUR - VELGENGNI
Við hvetjum þig alla leið
Skýrslur starfsnefnda fyrir starfsárið haust 2009 - vors 2010
Viðskiptanefnd
Þegar viðskiptanefndin tók til starfa í byrjun árs 2009 setti hún sér þau markmið að standa fyrir markaðssetningu á FKA fyrirtækjunum innan félagsins. Tvö fyrstu verkefnin voru annars vegar að finna slagorð fyrir þá hvatningu og fyrir valinu varð
– Mundu mig · ég man þig – og hinsvegar að nýta vefinn til að finna hvað fyrirtækin eru að selja og geta leitað í hópnum á aðgengilegan hátt. Konur voru hvattar til að fara inn á sitt svæði í félagatalinu á heimasíðu FKA og skrá inn þau leitarorð sem þau vilja finnast undir. T.d. ef verið er að leita að fyrirtæki sem býður t.d. bókhaldsþjónustu eða kaffi er þeim orðum slegið inn og þá birtist listi yfir þau fyrirtæki sem hafa skráð þau leitarorð á sitt svæði í félagatalinu.
Viðskiptanefndin kom fram með þá hugmynd að hvetja konur til að versla hvor hjá annarri með því að hafa happdrætti þar sem dregið var úr kvittunum sem konur höfðu haldið til haga eftir að hafa verslað hjá FKA fyrirtækjum. Þessi hugmynd hefur verið nýtt í tvígang. Ýmis FKA fyrirtæki gáfu vinninga í það happdrætti og fengu þar með kynningu á sínum vörum í leiðinni.
Til þess að gefa konum kost á að kynna fyrirtækin sín var brotið upp á þeirri nýbreytni að
bjóða FKA fyrirtækjum upp á að bjóða konum til sín á mánaðarlegu Gleðistundunum sem haldnar hafa verið í félaginu á liðnum árum. Á jólagleði félagsins höfðu konur líka möguleika á að vera með kynningarborð fyrir vörur sínar og þjónustu.
Í öllu starfi viðskiptanefndarinnar hefur verið haft að leiðarljósi að gæta jafnræðis milli félagskvenna og sem dæmi um það voru þau fyrirtæki beðin um að gefa sig fram sem áhuga höfðu á að bjóða til Gleðistundar og síðan var dregið úr þeim hópi
Hápunktur starfs viðskiptanefndarinnar var að undirbúa tengslarölt milli FKA fyrirtækja í miðbæ Reykjavíkur í byrjun maí. Hugmyndin kom í framhaldi af velheppnaðri ferð FKA kvenna til Akureyrar þar sem Norðankonur höfðu skiplagt skemmtilegt rölt milli FKA fyrirtækjanna á Akureyri. Móttökur fyrirtækjanna voru einstaklega hlýjar. Rausnarlegar
veitingar og tilboð voru á boðstólum auk fróðlegra kynninga.
Mikið verk er enn óunnið við að kynna þau 550 FKA fyrirtæki innbyrðis sem skráð eru í félagið og liggja gríðarleg viðskiptatækifæri í því að efla konur til að muna eftir hvor annarri.
HP / 14.maí 2010
Tengsla – og nýliðanefnd
Tengsla- og nýliðanefnd hefur verið stór þáttur í starfi FKA síðastliðið ár eins og fyrri ár. Hlutverk nefndarinnar er eins og nafnið gefur til kynna að halda utan um viðburði og verkefni sem hafa það að markmiði sínu að efla tengslanetið og styrkja nýjar konur í starfi félagsins.
Sýnilegasta verkefni nefndarinnar hefur verið það að taka á móti nýjum konum á viðburðum FKA og næla blómi í barminn á þeim. Tilgangur þess er þar með að gera þær sýnilegri á viðburðum og þá að auðvelda eldri félagskonum að nálgast þær, kynnast og kynna áfram.
Happy hour er sá viðburður sem ávallt var í höndum nefndarinnar og þá var lagt upp með að hafa viðburðinn ávallt á sama tíma á sama stað – nú síðast á Piza. Á seinni hluta þessa starfsárs tók stjórn FKA yfir þennan viðburð og þá með breyttu sniði. Þátttaka hefur verið ágæt.
Aðrir viðburðir sem verið hafa á ábyrgð nefndarinnar eru morgunverðar- og hádegisverðarhittingur. Báðir þessir viðburður hafa að öllum líkindum runnið sitt skeið þar sem þátttaka hefur verið dræm undir það síðasta þrátt fyrir góða byrjun. Það ber þó að nefna að það hefur verið rætt innan nefndarinnar hvort grundvöllur sé fyrir því að bjóða upp á þessa viðburði áfram og þá eyrnamerkja þá ákveðnu umræðuefni hverju sinni í von um aukna þátttöku.
Metnaðarfyllsta verkefnið sem nefndin átti hugmynd að, hrinti í framkvæmd og stýrði var Mentora verkefnið. Þátttaka var góð og mikil ánægja með verkefnið og stefnt er að því að halda því áfram af fullum krafti næsta haust.
Þessari upptalningu viljum við ljúka með því að nefna nýlega ferð sem farin var til Akureyrar. Ferðin var í alla staði vel heppnuð og vel tekið á móti okkur þar. Þátttaka hefði mátt vera betri en aðeins 18 konur fóru – 18 mjög ánægðar konur ( - :
Starfsárið hefur verið frekar gott hvað varðar framboð en þátttaka hefur verið léleg eins og fyrr segir. Óhætt er að draga þá ályktun að þátttaka á viðburðum hafi að einhverju leyti verið lituð af efnahagsástandinu og er það vel skiljanlegt. Engu að síður viljum við hvetja konur til að sækja sér kraft til annara kvenna í FKA og hvergi er betra að gera það en á viðburðum félagsins. Við viljum að því sögðu leggja aukna ábyrgð í hendur félagskvenna og virkja þær til aukinnar þátttöku.
Að endingu viljum við koma með þá tillögu að starfandi nefndir skipi sér ávallt nefndarstjóra sem og að nefndarseta konu sé ekki lengur en 2 – 3 ár. Þannig teljum við að tryggja megi frekari skilvirkni og ferksleika innan nefndanna.
Alþjóðanefnd
1.) Heimsþing FCEM í Kamerún 23.-30.okt. 2009
2.) Aðild að erlendum félögum Kvenna í atvinnurekstri
3.) Global Summit of Women Bejing, Kína og Heimssýning í Shanghæ, Kína
1.) Heimsþing FCEM í Kamerún 23.-30.okt. 2009
Heimsþing FCEM var haldið dagana 23. til 30 október 2009 í 57. sinn.
Þingið var kynnt félögum í FKA en því miður náðist ekki að fylla í hóp til að taka þátt í ráðstefnunni.
Að þessu sinni varð borgin Yaoundé í Kamerún fyrir valinu og var þema þingsins: “World Women entrepreneurs faced with the International financial crisis" eins og eftirfylgni úr þingstarfinu frá Brussel í Belgíu og St. Petersburg, Rússland.
Tengslanet FCEM stækkaði á heimsþinginu þegar umsóknir frá Austurríki, Nikaragúa, Nigería, Rúanda, Úrúgúai o.fl.voru samþykktar.
Til að tryggja að hægt sé að sinna staðbundnum sérþörfum var ákveðið að sameina skrifstofurnar í FCEM-heimshluta-samtök fyrir Afríku, Asíu, Evrópu og Ameríku.
Markmið heimsþingsins voru:
- Að styrkja tengslin á milli FCEM og ríkisstjórna, opinbera stofnanna, fyrirtækja, fjármálastofnanna og fjárfestinga.
- Að efla samstarf milli landa og heimshluta.
- Að efla tæknilegt samstarf á milli þróunarlanda og efnaðra landa.
- Að undirstrika þættir sem leiða til aukinnar sameiningu í verkefnaþróun.
- Að styðja við kennslu, nýsköpun, fjölbreytni og notkun grænnar orku.
- Að hvetja konur til að endurnýja alþjóðlega efnahaginn með athafnasemi sem er byggt á siðferði, vistfræði með tillit til loftslagsbreytingar, gegnsæi, jafnrétti og góða stjórnunarhætti.
Samstaða þingsins var að forgangsraða bráðaaðgerðum til þjóða þar sem hefur skapast neyðarástand með því að bjóða fram sérfræði þekkingu á vegum FCEM.
Samhliða þingstarfinu fóru fram ótal fundir, ráðstefnur og vinnustofur. Dæmi eru
- the PanAfrican Conference,
- the Partnership in Progress conference,
- Projects and Partners and IT,
- e-business workshops.
Ban-Ki Moon, Secretary General of the United Nations hrósaði afreksvinnunna sem er unnin hjá FCEM með hliðsjón til aukinnar samvinnu við Sameinuðu Þjóðanna. FCEM Heimsforseti mun fara og heimsækja Ban-Ki Moon innan tíðar.
2.) Aðild að erlendum félögum Kvenna í atvinnurekstri
Alþjóðanefnd tók að sér að endurskoða aðild FKA að erlendum félögum kvenna í atvinnurekstri. Fjölmörg félög voru skoðuð. Nefndin ákvað að leggja til við stjórn að halda félagsaðild hjá FCEM og gerast félagi hjá TIAW.
- FCEM (World Association of Women Entrepreneurs) www.fcem.org
FCEM eru heimssamtök með aðildarfélög og tengdum aðilum í tæplega 50 löndum. Kostir FCEM eru sterk alþjóðatengsl á hæstum level sem eru nauðsynleg félagi eins og FKA, sérstaklega á tímum sem núna þar sem mikið reynir á samkeppnishæfni og lausnir við erfiðar markaðsaðstæður. FCEM er vel tengt á ýmsum áhrifastöðum og nýtur ákveðinnar virðingar í stjórnsýslunni og er þar skemmst að minnast mjög góðar undirtektir hér á landi þegar FKA skipulagði FCEM stjórnarfundinn 2008.
Næsta heimsþing verður í Flórens á Ítalíu og verður dagskráin þar meira sniðin inn á Evrópukonuna en oft áður. Síðla árs 2011 mun evrópskur formaður taka við og er gert ráð fyrir því að stjórnunarleg ítök Evrópu munu breytast.
- TIAW (The International Alliance of Women) www.TIAW.org
TIAW eru heimssamtök sem starfa í 40 löndum. Félagar geta verið bæði einstaklingar og félagasamtök kvenna. Tengslanetið TIAW er annars eðlis en FCEM, það byggir t.d. ekki á tengingum einstaklinga inn til stjórnvalda. Í boði eru þjálfunarprógrömm fyrir konur eftir því hvar þær standa í sínum viðskiptum – að byrja, komnar af stað og standa frammi fyrir stækkun og svo fyrir þær sem vilja fara í alþjóðlegt umhverfi.
Konur sem hafa áhuga á að kynna sér nánar starfsemi FCEM og TIAW eru beðnar um að hafa samband við Alþjóðanefndina.
3.) Global Summit of Women Bejing, Kína og Heimssýning í Shanghæ, Kína
Alþjóðanefnd FKA og Útflutningsráð Íslands skoðuðu í lok 2009 möguleikann á að skipuleggja viðskiptasendinefnd í tengslum við ráðstefnuna Global Summit of Women sem haldin verður dagana 20.-22. maí 2010 í Bejing, Kína og skoðunarferð á heimssýninguna EXPO í Shanghæ.
Því var boðað til fundar fyrir áhugasamar í nóvember 2009. Á fundinum sagði Rúna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Connected-Women.com frá þátttöku í fyrri ráðstefnum, ásamt því að rætt var um mögulega ferð og skipulag. Jónína Bjartmarz fyrrverandi ráðherra sem þekkir vel til aðstæðna í Kína bauð fram aðstoð sína við skipulag ferðarinnar.
Árleg ráðstefna Global Summit of Women er nú í maí haldin í tuttugasta skipti en hún er fyrir konur; forstjóra, framkvæmdastjóra, ráðamenn og aðra stjórnendur sem koma saman til fundar um hvernig hægt er að hafa áhrif í samfélaginu, læra hver af annarri og miðla þekkingu og reynslu.
10 konur mættu á fundinn og var áhuginn mikill en þegar liða tók á tímann þá var ákveðið að hætta við sökum þess hve fáar konur skráðu sig í ferðina.
FKA SUÐURLAND
Frá Bryndísi Sigurðardóttur.
Sunnlenskar skvísurnar héldum 5 kaffifundi þar sem mættu 15 – 18 konur sem er auðvitað frábært miðað við að við erum ekki nema rétt rúmlega 30 sem erum í félaginu hér á svæðinu. Vetrarstarfinu lukum við svo með dýrindis kvöldboði í verslun einnar félagskonu. Þrír kaffifundur voru síðan frá september – desember. Ekki vorum við samtaka í að nýta það sem var í boði í Reykjavík, fórum reyndar nokkrar saman á FKA viðurkenninguna.
Það er góður andi í konum á okkar svæði og mjög gaman hjá okkur á þessum hittingum.
FKA NORÐURLAND
FKA konur á Norðurlandi héldu Gleðistundir á Akureyri frá hausti til jóla. Í vetrarstarfi þeirra bar hæst Dömulegir dekurdagar sem heppnuðust með eindæmum vel svo og móttaka sunnlenskra FKA kvenna í byrjun mars með bæjarrölti, heimsóknum, skoðunarferð og matur á Öngulsstöðum.
Golfnefnd
Golfnefnd stóð fyrir 3ja kylfu HATTA-móti á Hólmsvelli í Leiru í júní 2009 og vinnur nú að undirbúningi golfmóts í Hveragerði fimmtudaginn 10. júní, þriggja kylfu FLOWER POWER að þessu sinni.
Ferðanefnd
Ferðanefnd sú sem kjörin var 2009 skipulagði Berlínarferð FKA kvenna í september 2009.
Auglýst var eftir framboðum í nýja ferðanefnd í byrjun árs 2010 og hefur sú nefnd unnið að undirbúningi ferðar FKA kvenna til Stokkhólms helgina 16. – 19. september 2010.
i]