Póstlisti FKA er frábært tæki til að ná til félagskvenna, einn af stóru kostunum við aðild okkar að félaginu. Mjög auðvelt er að koma upplýsingum um eigið fyrirtæki, tilboð og ýmiss konar vörur á framfæri svo og ósk um aðstoð o.fl.
Hins vegar getur þessi kostur snúist upp í andhverfu sína ef póstlistinn er ofnotaður eða misnotaður.
Stjórn FKA hefur tekið saman yfirlit yfir það hvernig á að nota póstlista FKA:
Eingöngu til að kynna eigið fyrirtæki og vörur eða óska aðstoðar - ekkert fyrir aðra.
Eingöngu til að auglýsa eigið húsnæði – ekki fyrir aðra.
Ekki áframsenda póst af nokkru tagi sem er í gangi í þjóðfélaginu og skiptir þá engu máli hversu göfugt, skemmtilegt eða áhugavert málefnið kann að vera. Ef félagskonur telja að ákveðinn tölvupóstur eigi erindi til félagskvenna geta þær komið þeirri ósk á framfæri (stjorn@fka.is) við stjórn sem tekur ákvörðun um áframsendingu.
Þegar félagskonur svara pósti sem sendur hefur verið á póstlistann biðjum við þær að ýta ekki á "reply to all" heldur eingöngu á "reply" því annars berst svarið á allar félagskonur FKA.
Þar sem hátt í yfir 600 konur eru á póstlista FKA biðjum við félagskonur að stilla póstsendingum í hóf, miðað við að hver félagskona sendi ekki fleiri pósta en einn í mánuði.
Gætið þess að póstar séu ekki of stórir, þeir eru stundum til vandræða og er strax hent. Einnig teppa þeir pósthólf margra. Gott er að miða við að póstar séu ekki stærri en 200-300 KB (með viðhengi ef það er) en setja frekar tengil inn á heimasíðu þar sem má fá frekari upplýsingar.
Að lokum skal á það bent að hægt er að taka sig út af póstlista FKA, en við vonum að sem fæstar félagskonur geri það því ef póstlistinn er rétt notaður getur hann fært okkur margvíslegan fróðleik um það sem félagskonur eru að gera.
Stjórn FKA