


24. júní 2010 Kæru félagskonur. Ný stjórn og allar nefndir hafa haldið sinn fyrsta fund og munu allar nýta sumarið til að hlaða niður hugmyndum fyrir nýtt starfsár félagsins sem hefst í september. Glæsilegt og vel heppnað golfmót FKA er afstaðið þar sem 48 konur spiluðu 9 holur í blíðskaparveðri í Hveragerði eftir ánægjulega heimsókn í FKA fyrirtækið Kjörís. Allar fórum við glaðar heim hlaðnar vinningum eftir góðan kvöldverð í golfskálanum. Meira
|

|
Mánudagur 10. maí 2010
KNITTING ICELAND stendur fyrir prjónaferðum til Íslands og kennir erlendum prjónakonum og -körlum hina íslensku prjónahefð í bland við náttúruskoðun og matrupplifun.
FKA konan Ragnheiður Eiríksdóttir stofnaði fyrirtækið Knitting Iceland á síðasta ári . Viðtal er við Ragnheiði á vefTV Morgunblaðsins í dag 10. maí 2010. Smelltu hér til að sjá og hlusta
Þriðjudagur 15. september 2009
Tímaritið Fortune Small Business fjallar um fatahönnuðinn Steinunni Sigurðardóttur í nýjasta hefti sínu. Tímaritið er í eigu Time-útgáfunnar sem gefur meðal annars út tímaritin Time, Sports Illustrated, Entertainment Weekly og Fortune. Fortune Small Business er viðskiptablað sem sérhæfir sig í umfjöllunum um smærri fyrirtæki.
Viðtalið er hluti af föstum lið sem nefnist „small business make-over" þar sem smærri fyrirtæki fá ráðleggingar við reksturinn.
Miðvikudagur 28. janúar 2009
„Þetta var æðislegt, ég hef aldrei fengið svona stóra viðurkenningu,“ segir Agnes Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bruggsmiðjunnar á Árskógssandi, sem hlaut hvatningarverðlaun FKA, Félags kvenna í atvinnurekstri, fyrir athyglisvert frumkvæði.
Fimmtudagur 22. janúar 2009
Svanhildur Einarsdóttir hefur mikinn áhuga á fötum og rekur nú barnafataverslunina Rumputuska á Laugaveginum. Þar fást litskrúðug og skemmtileg föt en fatastíll Svanhildar er ekki síður athyglisverður.
Föstudagur 16. janúar 2009
SPJALLÞÁTTADROTTNINGIN Oprah Winfrey sótti til Íslands í vikunni þegar hún fékk Guðrúnu Magnúsdóttur, eiganda og framkvæmdastjóra samfélagssíðunnar Connected-Women.com
Föstudagur 2. janúar 2009
Að sögn Huldu er koddinn Keilir nýnæmi á markaðnum og er sérstaða hans einkum fólgin í að mynda stuðning undir höfuð og sitt hvoru megin við það. „Þessir eiginleikar eru mikilvægir fyrir þá sem þjást af stoðkerfiseinkennum frá hálsi og herðasvæði og getur átt mikilvægan þátt í því að þessir einstaklingar nái góðum nætursvefni. Stuðningurinn sitt hvoru megin eru kallaðar keilur sem eru færanlegar eftir þörfum og stærð höfuðs - koddinn dregur nafnið sitt þaðan.
Föstudagur 7. nóvember 2008
„Það býr sköpunargáfa í hverju einasta hjarta enda alltaf gaman að sjá eitthvað verða til,“ segir Auður Kristinsdóttir, verslunarkona og útgefandi prjónablaðsins Ýr.
Föstudagur 7. nóvember 2008
Ragna Erwin rekur hið virta textílfyrirtæki Chase Erwin í London en ætlar nú einnig að fara í samstarf með föður sínum hér á landi. Þau ætla að bjóða upp á nýja vöru og hefja útflutning.
Fimmtudagur 6. nóvember 2008
viðtla við Aðalheiði í Speglinum mánudaginn 3. nóvember
|

|