english     leit  




  • 16. 09. 2010 - FKA konur til Stokkhólms.

  • 14. 09. 2010 - Tæklum Internetið

  • 9. 09. 2010 - Fyrsta samkoma haustsins



  • 24. júní 2010

    Kæru félagskonur.

     

    Ný stjórn og allar nefndir hafa haldið sinn fyrsta fund og munu allar nýta sumarið til að hlaða niður hugmyndum fyrir nýtt starfsár félagsins sem hefst í september.   

     

    Glæsilegt og vel heppnað golfmót FKA er afstaðið þar sem 48 konur spiluðu 9 holur í blíðskaparveðri í Hveragerði eftir ánægjulega heimsókn í FKA fyrirtækið Kjörís.  Allar fórum við glaðar heim hlaðnar vinningum eftir góðan kvöldverð í golfskálanum.                     

    Meira



     
    Nýjar FKA konur í júlí og ágúst:

     

    Yrki arkitektar ehf

    Sólveig Berg

    Volcano Iceland

    Steinunn Ketilsdóttir

    Ás Holding aps

    Ragnhildur Gottskálksdóttir

    Sædís gullsmiðja

    Sædís Bauer Halldórsdóttir

    Englahár

    Harpa Barkar Barkardóttir

    Pelsinn

    Ester Ólafsdóttir

    Jóhann Helgi & Co ehf

    Margrét Ormsdóttir 

     

    Helga Jóihanna Úlfarsdóttir



     
     
    27.08.2010
     
     
    Kæra félagskona.
    \ 
    Dásamlegt sumar er að renna rólega út  og fallegu haustlitirnir taka við, mynd sem gefur mörgum hönnuðum og listamönnum góðar hugmyndir.
     
    FKA félagskonur tóku þátt í könnun okkar í sumar þar sem spurt var um hvernig þær væru að nýta sér félagið og hvað þær vildu að félagið leggði áherslu á.  Góð þátttaka var og þökkum við félagskonum fyrir það enda er mikilvægt fyrir stjórnina að vita hvað á að leggja áherslu á í starfinu.  Útkoman var áhugaverð og fram kom að 51% svarenda nýta sér póstlistann, 55% sækja fræðslufundina, 24% námskeið, 53% sækja gleðistundir og 29% félagskvenna  fara í ferðir á vegum  félagsins.
     
    Í könnunni  kom fram að áhugi er á þematengdri  fræðslu/erindum s.s. um rekstrar- og markaðsmál, að koma sér/vöru sinni á framfæri á netinu og raunverulegar leiðir til þess að samræma atvinnu og fjölskyldulíf.
    Stjórnin telur þetta mjög áhugavert og veit um fjölmargar félagskonur sem eru að bjóða upp á góð og vönduð námskeið sem koma að þessum málum og mun auglýsa eftir þeim sem hafa áhuga á að bjóða FKA upp á slík námskeið fyrir félagskonur.
     
    Þá kom einnig fram að áhugi er á að tengjast alþjóðlegu tengslaneti kvenna í viðskiptum/atvinnurekstri og mun alþjóðanefndin taka þann bolta áfram og við fáum að fylgjast með þeirri framvindu.
     
    FKA er komið á Facebook. 
    Ef þú ert ekki orðin vinkona smelltu þá hér og smelltu svo á líkar.
    Tengslanefndin mun halda okkur vel upplýstum á Fésbókinni.  Einnig kom  fram í könnuninni að nýjum félagskonum finnst oft erfitt að mæta  á fyrsta fund.  Tengslanefndin ætlar að einbeita sér að þeim með því að bjóða þeim sérstaklega á einskonar „speed-date“ með nokkrum „eldri“ félagskonum.  Einnig mun nefndin bjóða upp á „Mentora“ fyrir þær sem eru að byrja í félaginu og eru að taka sín fyrstu skref í viðskiptalífinu. Við hinar eldri og reyndari vitum hversu mikilvægt tengslanetið er og hvernig það getur hjálpað okkur á þeirri flóknu braut sem viðskiptaumhverfið er á.  Allt þetta mun gerast fljótlega í byrjun september og verður nánar  auglýst og nýjar félagskonur munu einnig heyra frá nefndinni fljótlega.
     
    Haustið verður þétt skipað fræðandi og skemmtilegum atburðum sem ég vona að þið munuð nýta ykkur og mæta á, því félagið er ÞIÐ kæru félagskonur. Sterkar saman  getum við allt.
     
    Kær kveðja
    Hafdís Jónsdóttir
    formaður FKA
    disa@worldclass.is
     
     
     
     
     
    24. júní 2010
    Kæru félagskonur.
     
    Ný stjórn og allar nefndir hafa haldið sinn fyrsta fund og munu allar nýta sumarið til að hlaða niður hugmyndum fyrir nýtt starfsár félagsins sem hefst í september.   
     
    Glæsilegt og vel heppnað golfmót FKA er afstaðið þar sem 48 konur spiluðu 9 holur í blíðskaparveðri í Hveragerði eftir ánægjulega heimsókn í FKA fyrirtækið Kjörís.  Allar fórum við glaðar heim hlaðnar vinningum eftir góðan kvöldverð í golfskálanum.
     
    FKA er komið á Facebook.  Smellið á : líkar og þið eruð komnar í hópinn.  Við erum spenntar að fylgjast með hvernig Fésbókin getur eflt og styrkt tengslanet félagsins og félagskvenna enn frekar.
     
    Tengill á Fésbókina  -  smelltu hér -
     
    Á næstu vikum munum við senda út stutta könnun til ykkar, kæru félagskonur, þar sem við viljum fá að vita beint frá ykkur hvað þið viljið að félagið geri fyrir ykkur og hvert þið viljið sjá félagið stefna.  Við vonumst eftir góðri þáttöku svo við getum leitt félagið áfram á þeirri braut sem þið viljið. 
     
    Skráning stendur yfir í hina árlegu utanlandsferð félagsins.  Eins og þið hafið séð þá höldum við til Stokkhólms 16. september.  Þetta er fimmta utanlandsferð félagsins sem hefur ávallt tekist með eindæmum vel bæði hvað varðar tengsl, fræðslu og þekkingu.  Má t.d. nefna að 2009 var farið til Berlíanar og tókust þar á tengsl milli ESMOD hönnunarskólans í Berlín og Fatahönnunarfélag Íslands sem leitt hefur að sér tvö stór verkefni.
     
    Þrjátítíu ár eru síðan Vigdís var kjörin forseti þann 29.júní n.k.  Í tilefni að því vill FKA hvetja félagskonur sínar til þess að vera hluti af breiðum hópi sem hvetti til stuðnings við að styrkja byggingu fyrir starfsemi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, þar sem öll starfsemi hennar og Alþjóðleg tungumálamiðstöð yrðu hýst.
     
     
    Tímamótadómur féll í Hæstarétti sem á væntalega eftir að hafa mikil áhrif á flesta landsmenn.  Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra kveðst feginn að niðurstaða hafi fengist í mál um ólögmæti gengistryggðra bílalána og hann segir ekki útilokað að þetta eigi einnig við um húsnæðislán.  Umsókn Íslands í ESB var samþykkt á 17.júní.   Þetta mun án efa auka bjartsýni og trú manna á að hjól atvinnulífsins fari hraðar í gang en búist var við og hagvöxtur verði strax á þessu ári.
     
    Með von og sól í hjarta vona ég að þið getið allar notið sem best okkar dásamlega sumars með löngum sumarnóttunum sem eflir dug og dáð.
     
    Bestu kveðjur,
     
    Hafdís Jónsdóttir formaður FKA
     
     -----------------------------------------------------------------------------------
     
     
     
    13. mars 2010
    Kæru félagskonur 
    FKA hefur síðastliðin fjögur ár  lagt áhersu á að viðskiptalífið nýti krafta kvenna í stjórnum og við stjórnun fyrirtækja.  Til þess að vekja athygli á því var haldið málþing í vor að frumkvæði FKA þar sem Félag kvenna í atvinnurekstri, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands ásamt fulltrúum stjórnmálaflokkana skrifuðu undir tímamótasamning um að auka hlutfall kvenna í forystusveit íslensks atvinnulífs. Markmið samningsins er að í lok árs 2013 verði hlutfall hvors kyns ekki undir 40%
    Næsta skref var að fá fyrirtækin með okkur í lið og var mjög vel heppnuð ráðstefna haldin 10.janúar s.l.    Þar mættu  yfir 300 karlar og konur úr íslensku atvinnulífi og það ánægjulegasta var að kynjaskipting var nokkuð jöfn -  43% gestanna karlar og 57% konur.                                                                    
    Tveir karlmenn tóku af skarið fyrir hönd sinna fyrirtækja þeir;  Jón Axel Ólafsson, eigandi Eddu útgáfu og Sigurður Arnalds, stjórnarformaður Mannvits og skrifuðu undir samstarfssamninginn um að leggja sitt af mörkum til að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs.  Nú nýlega bættust Saltkaup  og Landsbankinn í  þennan fyrirmyndahóp þar sem síðasta verk bankaráðsins  með Ásu Richardsdóttur í farabroddi var að skrifa undir samninginn.     
    Nú hefur Alþingi hins vegar samþykkt lög sem taka gildi frá og með 1.september 2013 sem hljóða svo:
    Í stjórn einkahlutafélags skulu eiga sæti fæst þrír menn nema hluthafar séu fjórir eða færri, þá nægir að stjórnina skipi einn eða tveir menn.  Ef stjórn félags er skipuð einum manni skal valinn a.m.k. einn varamaður.  Þegar stjórnarmenn eru tveir eða þrír í félagi þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli skal hvort kyn eiga fulltrúa í stjórn og þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír í slíkum félögum skal hlutfall hvors kyns ekki vera lægra en 40%.  Sama gildir um kynjahlutföll meðal varamanna í slíkum félögum en hlutföllin í stjórn og varastjórn skulu þó í heild vera sem jöfnust.  Náist ekki viðhlítandi niðurstaða má samþykkja nauðsynlega breytingu með nýrri ákvörðun hluthafafundar en ákvæði um þetta efni skal taka upp í samþykktir félags.  Í tilkynningum um stjórnir til hlutafélagaskrár skal sundurliða upplýsingar um hlutföll kynjanna í stjórn.  Í einkahlutafélögum, þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli, skal jafnframt sundurliða upplýsingar um hlutföll kynjanna meðal starfsmanna og stjórnenda félagsins.
    Þrátt fyrir að Alþingi hafi samþykkt þessi lög vill FKA leggja áherslu á að viðskiptalífið sjái sjálft um þessi mál og sýni fram á að við þurfum ekki lög á skynsama hluti.  Viljum við því hvetja ykkur félagskonur til þess að fara með þennan samning sem víðast og fá fleirri fyrirtæki sem ekki uppfylla 40% lágmarkið í stjórnum hjá sér með okkur í lið.  Þeir ætli sér að fjölga konum í stjórnum hjá sér áður en lögin taki gildi.
    Samkvæmt rannsókn CreditInfo eru 4.321 fyrirtæki á Íslandi með blandaðar stjórnir karla og kvenna og jafnt kynjahlutfall.  Fram til loka ársins 2013 hefur viðskiptalífið sett sér það markmið að auka fjölbreytni atvinnulífsins enn frekar.  Á næstu vikum og misserum munu því SA, Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands, CreditInfo og LeiðtogaAuður hvetja fyrirtæki og eigendur þeirra til að auka fjölbreytni í forustusveit sinni.
    f.h. FKA
    Hafdís Jónsdóttir
    Formaður.
    Samningur smelltu hér
     
     

     
    1. mars 2010
    Kæru félagskonur.
    Virkjum karla og konur – fjölbreytni í forystu var yfirskrift tímamótafundarins sem FKA, Samtök Atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands, CreditInfo og LeiðtogaAuður héldu í samvinnu við Iðnaðar- og Viðskiptaráðuneytin 10. febrúar s.l.  Fundurinn var haldinn á Hilton Reykjavík Nordica.
    Þar sem tímamótafundir síðustu ára hafa ávallt verið vel sóttir af konum og markmið fundarins að virkja konur og karla til jafns þá var mikil áhersla lögð á  jafnt kynjahlutfall  þ.e. 40/60 yrði á fundinum  í ár. Yfir 300 karlar og konur úr íslensku atvinnulífi mættu til ráðstefnunnar og var kynjaskipting nokkuð jöfn -  43% gestanna karlar og 57% konur.
    Samkvæmt rannsókn CreditInfo eru 4.321 fyrirtæki á Íslandi með blandaðar stjórnir karla og kvenna og jafnt kynjahlutfall.  Fram til loka ársins 2013 hefur viðskiptalífið sett sér það markmið að auka fjölbreytni atvinnulífsins enn frekar.  Á næstu vikum og misserum munu því SA, Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands, CreditInfo og LeiðtogaAuður hvetja fyrirtæki og eigendur þeirra til að auka fjölbreytni í forustusveit sinni.
    Á fundinum Virkjum karla og konur - fjölbreytni í forystu  bættust tvö fyrirtæki í hóp fyrirmyndarfyrirtækja á Íslandi þegar Jón Axel Ólafsson, eigandi Eddu útgáfu og Sigurður Arnalds, stjórnarformaður Mannvits, skrifuðu undir samstarfssamning um að leggja sitt af mörkum til að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs.
     
    Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, setti fundinn og sagði m.a. að í yfirskrift fundarins  væru fólgin mikilvæg skilaboð.  „Ójöfn staða kynjanna í atvinnulífi, menntakerfi og stjórnsýslu hefur án efa sett mark sitt á þróun þjóðmála hin síðari ár.  Sennilega getum við verið sammála um það að einsleitni í hugarfari og ákvörðunum í viðskiptalífinu, sem tengist á sinn hátt því hversu kynbundin hlutverk eru í fyrirtækjum og stjórnkerfi, átti sinn þátt í þeim ósköpum sem yfir okkur hafa dunið.
    Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Auði Capital, fjallaði um hvernig fjölbreytni getur bætt karla og kynnti ágrip úr nýlegri rannsókn um áhrif fjölbreyttrar samsetningar á verklag stjórna.  Niðurstöður hennar gefa sterklega til kynna að aukin fjölbreytni bæti verklag í stjórnum  og árangur þeirra.
    Þá fjallaði Alex Haslam prófessor við háskólann í Exeter um konur og forystuhlutverk sem hann hefur rannsakað ítarlega.  Hann sagði rannsóknir sínar benda til þess að konur séu líklegri til að veljast til stjórnunar eða ábyrgðar þegar fyrirtæki eru í vanda stödd. „Karlmanni sem er við stjórnvölinn í fyrirtæki sem gengur vel er yfirleitt eignaður heiðurinn af velgengninni. Ef kona stýrir vel heppnuðu fyrirtæki er velgengni þess gjarnan skrifuð á hópvinnu og hagstætt umhverfi," segir Alex.
     
    Í umræðum um efni fundarins kom m.a. fram að mikilvægt væri að auka fjölbreytni atvinnulífsins og nýta sem best krafta allra.  Það væri sameiginlegt verkefni karla og kvenna í atvinnulífinu  en framundan væru fjölmörg tækifæri til að auka fjölbreytnina á komandi aðalfundum. Konur segjum JÁ þegar til okkar er leitað.
     
    Smelltu hér til að sjá nánar um samninginn á vef SA
     
    f.h. stjórnar FKA,
    Hafdís Jónsdóttir
    formaður
     
    4.janúar 2010
    Kæru félagskonur.
    Gleðilegt nýtt ár, takk fyrir það liðna.
    Árið 2009 kvaddi  með fallegu vetrarveðri og landsmenn fögnuðu nýju ári að venju með mikilli flugeldasýningu, erlendum ferðamönnum til mikillar ánægju.
    FKA þakkar ykkur félagskonum góða þáttöku á viðburðum félagsins síðastliðið ár.
    Við vonumst eftir og hvetjum ykkur til þess að vera virkir þáttakendur á viðburðum FKA í vetur og mun félagið leitast við að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá  sem upplýsir og fræðir félagskonur.  Við byrjum strax með morgunverðarfund þann 06.janúar, setjum upp sjónaukann - skoðum  markmiðin.
    Að venju mun FKA velja konu ársins og tilkynna það með viðhöfn í Perlunni þann 21. janúar.
    Árið byrjaði vel með ráðningu Elínar Jónsdóttu r í forstjórastöðu Bankasýslunnar,  það er félaginu bæði ánægja og akkur að kona skuli hafa verið ráðin í þetta starf.  Nú er vonandi upphaf nýrra tíma þar sem konum verður falin aukin ábyrgð í endurreisn viðskiptalífsins – við höfum frekar farið halloka undanfarna mánuði og var þó ekki úr háum söðli að detta.
    Við óskum Elínu velfarnaðar í nýja starfinu.
    Kynjakvóti hefur verið mikið í  umræðunni og er lagasetning á döfinni þar sem kveður á um að hvort kyn hafi ekki undir 40 % í stjórnum 350 stærstu fyrirtækja landsins. Félagið hefur  beitt sér fyrir því að viðskiptalífið sjái um þetta sjálft án lagasetningar  og fái til þess svigrúm til ársins 2013.  
     
    f.h. stjórnar FKA,
    Hafdís Jónsdóttir
    formaður.
     
    9.nóvember 2009
    Kæru félagskonur.
    Góð þátttaka á fundum okkar hefur einkennt starfsemi FKA þetta haust.  Hvet ég félagskonur til þess að halda því áfram, á hverjum fundi fáum við nýjar upplýsingar og tengslin styrkjast.  Tengslanetið er okkar styrkur sem við eigum að nýta okkur.  Jólin nálgast óðfluga og ætlum við félagskonur að hittast í jólahlaðborði þann 25. Nóvember hjá Marentzu Poulsen á Hótel Loftleiðum.  Þemað verður “Mundu mig • ég man þig”  þannig munum við kynna fyrirtæki okkar fyrir hver annari enn betur.  Bindum við miklar vonir við góða þátttöku þar sem þetta verður síðasti viðburður félagsins á þessu ári.
    Það voru ekki góðar tölur sem Rakel framkvæmdastjóri Creditinfo birti í nýrri skýrslu á morgunverðarfundi FKA, en þar kom fram að fjöldi kvenna í stjórnum hefur fækkað niður í 11% frá því að vera 15%  í vor.
    Þessi fækkun verður  þrátt fyrir að við höfum ítrekað sent forsvarsmönnum fyrirtækja, banka og opinberra stofnanna lista með um 100 öflugum konum sem gefa kost á sér og hafa þekkingu til þess að sitja í stjórnum.   Þessar tölur sýna að við þurfum að efla sóknina svo um munar og við FKA konur munum svo sannarlega spila öflugan sóknarleik.
    Sú nýbreytni var á gleðistund FKA að athuga hvort það væri áhugi hjá félagskonum að bjóða í  fyrirtækjaheimsókn.  Áhuginn var framar öllum vonum og voru það um 15 fyrirtæki sem lýstu áhuga á að taka á móti hópnum.  Gaman verður að hafa framhald á þessu þar sem það er virkilega áhugavert að koma í fyrirtæki og fá að sjá hvað þau standa fyrir, þar sem nöfn fyrirtækja gefa ekki alltaf glögga mynd af starfsemi þeirra.
     
    f.h. stjórnar FKA
    Hafdís Jónsdóttir
    formaður
     
    9.október 2009
    Kæru félagskonur. 
    Október er runninn upp, veturinn er farinn að sýna sig og ríkisstjórnin kveður upp harðan vetur. Það er ekkert annað að gera en að klæða sig betur , reka upp hökuna og keyra áfram eins og við atvinnurekendur á Íslandi erum vön að gera með bjartsýnina og brosið að vopni.  Við kvenatvinnurekendur erum svo vanar að vera hagsýnar og alltaf að hagræða þannig að þetta er ekkert nýtt fyrir okkur.  Það væri samt voða gaman að fá smá hvatningu eða bara lítið bros frá ríkisstjórninni sem segði að þeir vissu nú að  lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi væru ríflega 99% allra starfandi fyrirtækja á landinu.  Þau eru stærsti vinnuveitandinn í landinu og því er þjóðhagslegt mikilvægi þeirra ótvírætt.  Samt eru auknar álögur boðaðar á fyrirtækin þannig að lífslíkur þeirra munu skerðast enn frekar.
     Við þurfum líklega að líta á þetta ástand svipað og að ala upp unglinga í dag, maður vonar bara að þau meti seinna meir allt það sem gert er fyrir þau í dag.  En með bjartsýnina að vopni fóru 38 FKA konur til Berlínar þar sem þær skoðuðu m.a. leikhús Helga Björnssonar og fengu að heyra framtíðaráform þeirra sem eru mjög stór og óskum við þeim velfarnaðar með þau.  Einn virtasti hönnunarskóli í Evrópu, ESMOD hönnunarskólinn er í  Berlín og þar opnuðust skemmtilegar umræður um hversu mikil og lík gróskan í fatahönnun er á Íslandi og  í Berlín.  Þeir hönnuðir sem voru í ferðinni komust í gott tengslanet og einnig var ákveðið að vinna að því að á næsta ári myndu íslenskir hönnuðir vera á meðal þeirra þýsku á sýningu á vegum skólans sem hefur hlotið mikla alþjóðlega athygli og viðurkenningu. 
    Í september tóku kvenskörungarnir í Auði Capital við 75 FKA konum á morgunverðafund, kynntu starfsemi sína og blésu von í hjarta okkar um að fjárfestingarstarfsemi  á Íslandi ætti góða framtíð fyrir sér. Allavega svo framarlega sem konur jafnt sem karlar væru þar fremstar í flokki.  Með það í huga fór formaðurinn ásamt Mörtu Eiríksdóttur félagskonu til fundar við viðskiptaráðherra til þess að ítreka samstarfssamninginn sem skrifað var undir í vor þar sem hvorugt kyn væri undir 40% í stjórnum á Íslandi árið 2013, en okkur hefur þótt snjóa heldur ört í þau spor.
    Mikil og skemmtileg dagskrá er framundan hjá félaginu og hvet ég ykkur til þess að vera duglegar að mæta því tengslanetið er okkar styrkur og sameinaðar getum við brosað framan í heiminn.
     
    f.h stjórnar FKA
    Hafdís Jónsdóttir formaður
     
    7.september 2009
    Kæru Félagskonur
    Haustið fer vel af stað og lofar góðu. Hátt í 70 konur mættu í Seðlabankann þar sem var vel tekið á móti okkur. Einkar fróðleg heimsókn enda hafa ákvarðanir sem þar eru teknar mikil áhrif á okkur í atvinnulífinu. Góður tími var gefinn í fyrirspurnir enda margar spurningar sem brunnu á félagskonum. The Brand You- vörumerkið þú, var frábær fyrirlestur sem við fengum frá Mary Shnack sem kom hingað til lands á vegum Háskólans í Reykjavík. Sá fundur var sendur út á Skype til félagskvenna á Akureyri þar sem þær höfðu safnast saman og tókst nokkuð vel. Við munum stefna á að senda sem flesta fyrirlestra út á Skype til þess að þjóna félagskonum á landsbyggðinni sem best ásamt því að reyna að  hafa morgunverðarfundina okkar á föstudagsmorgnum samkvæmt beiðnum. Okkur var tjáð að þeir dagar hentuðu þeim félagskonum sem búa úti á landi betur til þess að komast þá á fundina. Einnig hefur Happy hour hittingurinn verið færður yfir á fyrsta miðvikudaginn í hverjum mánuði samkvæmt beiðnum. Tengsla og nýliðanefnd stendur fyrir morgunhittingi einu sinni í viku sem hefur verið vel tekið og hvetjum við félagskonur að vera duglegar að mæta á viðburði og nýta sér þetta frábæra tengslanet sem FKA er. Dagskránna fyrir september má finna hér á heimasíðunni.
    Mikið hefur gengið á íslensku þjóðlífi undanfarna mánuði sem hefur sett mörg fyrirtæki í erfiða aðstöðu gagnvart erlendum birgjum. Staða krónunnar er veik og gjaldeyrishöft setja strik í reikninginn. Litlar líkur eru á að krónan styrkist fyrr en gjaldeyrishöftin verða afnumin. Sú áætlun sem Seðlabankinn hefur sett  fram um afnám gjaldeyrishaftanna er mjög varfærin og til styrkingar á gengi krónunnar og þar með lækkun vaxta sem er lykillinn að því að íslenskt atvinnulíf geti þrifist.
    Hér finnið þið link inn á uppfært skjal á ensku frá SVÞ sem hagfræðingar Samtaka atvinnulífsins hafa útbúið sem þið getið notað ti lað senda á ykkar birgja til að útskýra stöðu íslenskra fyrirtækja gagnvart erlendum birgjum.
     
    f.h stjórnar FKA
    Hafdís Jónsdóttir formaður
     
    8. júní 2009
    Kæru FKA konur.
    Hugsum smátt var yfirskrift málþings á vegum Viðskiptaráðs Ísland þar sem kynnt var skýrsla um stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja á landinu
    Þar kemur m.a. fram að lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi eru ríflega 99% allra starfandi fyrirtækja á landinu. Þau eru stærsti vinnuveitandinn í landinu og því er þjóðhagslegt mikilvægi þeirra ótvírætt. Þrátt fyrir það fer lítið fyrir þessum fyrirtækjum í daglegri umræðu.
    Skýrsla Viðskiptaráðs er ítarlegasta úttektin á litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi sem gefin hefur verið út til þessa. Fyrri hluti skýrslunnar, þar sem efnahagslegu vægi þessara fyrirtækja eru gerð ítarleg skil, hefur ekki verið unnið áður. Ég hvet félagskonur til þess að skoða þessa skýrslu hún er virkilega áhugaverð.
    Aðalgestur málþingsins var Christina Sommer, frá Bretlandi hún er forseti European Small Business Alliance sem eru ein stærstu samtök sem standa fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í Evrópu. Hún fjallaði m.a. um það hversu nauðsynlegt sé fyrir þessi fyrirtæki að vera sameinuð í óháðum samtökum til þess að koma sínum sjónarmiðum á framfæri við reglugerðarverk Evrópusamtakanna. Til þess að frjáls verslun getur þrifist verður að passa að reglugerðarverkið verði ekki of þungt fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Einnig talaði hún um að hið opinbera þyrfti að skilja það að þegar verið væri að veita fé í störf á vegum hins opinbera þá eyðist það upp en ef það er sett upp jákvætt skatta og reglukerfi fyrir einkafyrirtæki, skilaði það sér til baka í formi skatta ásamt því að vaxa og skila sér í auknum fjölda starfa og aukins kaupmáttar sem skilar sér svo aftur margfalt inn til ríkisins. Höfum það í huga að margt smátt gerir eitt stórt.
    Árleg ráðstefna evrópskra kvenlögfræðinga (EWLA) verður haldin í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík 3. og 4. júlí næstkomandi. Ráðstefnan er ekki einskorðuð við lögfræðinga. Hún er öllum opin sem láta sig samfélagsleg mál varða. Þema ráðstefnunnar er Mannréttindi og Fjármálamarkaðir. Aðalfyrirlesari er norsk/franski dómarinn EVA JOLY, sem íslensk stjórnvöld hafa fengið sem ráðgjafa. Án efa eiga íslenskar konur eftir að fjölmenna á þessa merkilegu ráðstefnu og sýna samstöðu sín í verki.
     Nú er tímabært að æfa sveifluna fyrir golfmótið okkar sem verður á fimmtudaginn 11.júní. Fullbókað er í mótið tæplega 60 konur skráðar, glæsileg þátttaka.
    Kær kveðja,
    f.h. stjórnar FKA
    Hafdís Jónsdóttir,
    formaður
     
     20.maí. 2009
     Kæru FKA konur,
    Nýtt starfsár nýs formanns og stjórnar hófst í maí blíðu, eitthvað sem íslenska þjóðin hefur beðið eftir. Síðastliðin helgi var viðburðarrík fyrir FKA konur. Föstudaginn 15.maí hélt FKA upp á 10 ára afmæli félagsins.
    Hófu FKA konur daginn með aðalfundi sem var mjög vel sóttur. Margrét Kristmannsdóttir sem hefur verið formaður síðastliðin 4 ár lét af störfum og var undirrituð kosin í hennar stað. Einnig fór fram stjórnarkjör þar sem Katrín Pétursdóttir sem hefur setið í stjórn síðastliðin 4 ár gekk úr stjórn.
    Ég vil þakka þeim og öðrum nefndarkonum fyrir vel unnin störf og jafnframt óska nýjum stjórnar- og nefndarkonum til hamingju.
    Í framhaldi af aðalfundinum var haldið málþing að frumkvæði FKA þar sem Félag kvenna í atvinnurekstri, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands ásamt fulltrúum stjórnmálaflokkana skrifuðu undir tímamótasamning um að auka hlutfall kvenna í forystusveit íslensks atvinnulífs. Markmið samningsins er að í lok árs 2013 verði hlutfall hvors kyns ekki undir fjörtíu prósentum.
    Um kvöldið var vegleg afmælisveisla þar sem vel yfir 100 FKA konur mættu svo og voru nokkrar erlendar konur frá systurfélögum FKA í Evrópu. Fjölbreytt dagskrá var og m.a lét afmælisnefndin útbúa persónulega gjöf fyrir hvern gest. Kvöldið heppnaðist einstaklega vel og verður lengi í minnum haft.
    Laugardaginn 16. maí söng Jóhanna Guðrún sig inn í hjörtu okkar og Evrópubúa, við höfum aldrei fengið annan eins stigafjölda. Þetta segir okkur að við erum ekki alveg búin að brenna allar brýr að baki okkur í Evrópu.
    Ég trúi því að þetta þýði að bjartari tímar séu framundan í íslensku viðskiptalífi, nú þurfum við að nýta eldmóðinn og byggja upp, spennandi tímar eru framundan og hlakka ég til að starfa með ykkur.
    Kær kveðja,
    Hafdís Jónsdóttir,
    formaður FKA
     
     
    17. febrúar
    Kæru félagskonur
    Við sem stöndum í fyrirtækjarekstri erum að upplifa ótrúlega tíma - tíma sem munu væntanlega reyna meira á okkur en okkur óraði fyrir. Ytra umhverfið er flestum mjög erfitt - og innan veggja fyrirtækjanna þarf að hlúa að starfsmönnum sem margir hverjir eru í erfiðleikum með sín persónulegu mál. Eftir að kreppan skall á hefur FKA gert margt til að létta félagskonum lífið - með fræðslufundum, námskeiðum, mentorverkefni, hádegishittingi og fleiru. En stærsta verkefni vetrarins er kannski framundan og dæmi um hvernig lítil þúfa veltir oft þungu hlassi. Eins og komið hefur fram hafði FKA frumkvæði að því að leiða saman SA, Viðskiptaráðið og LeiðtogaAuði og var upphaflega hugmyndin að gera aðra herferð sem fylgja átti eftir auglýsingaherferðinni "Við segjum JÁ" þar sem yfir 100 konur buðu sig fram til stjórnarsetu. Þegar hópurinn var nýfarinn af stað skall kreppan á og í stuttu máli hefur verkefnið undið mikið upp á sig. Hópurinn hefur fengið til liðs við sig fleiri aðila og hefur því stækkað jafnt og þétt og nú er stefnt að gríðarlega stóru verkefni þar sem aðaláherslan verður lögð á að snúa vörn í sókn. Fólkið sem starfar í hópnum er margbreytilegt en það sem drífur það áfram er viljinn til að taka málin í sínar hendur - leggja sitt af mörkum til að byggja upp betra og krafmeira þjóðfélag. Hópurinn vill virkja kraftinn og senda út í þjóðfélagið skilaboð sem hvetja fólk áfram. Íslenskt þjóðfélag er að mestu frosið - allir eru að bíða eftir einhverju og þessi viðbrögð gera hlutina enn verri - dýpka kreppuna. Það eru enn til fullt af einstaklingum og fyrirtækjum sem geta framkvæmt og nauðsynlegt er að fá þessa aðila til að halda áfram að fjárfesta - því "eyðslan þeirra getur verið vinnan mín". Við verðum að halda hjólum atvinnulífsins gangandi! Vonast er til að herferðin fari í gang í byrjun mars. Fleiri spennandi viðburðir eru i burðarliðnum. Við ætlum að velta því fyrir okkur af hverju fjölmiðlar eru hreint og klárt að drepa okkur með bölmóði, af hverju aldrei er sagt frá neinu jákvæðu í fréttum! Margir eru hreinlega hættir að hlusta á fréttirnar til að halda geðheilsunni. Viðskiptaráðherra kemur væntanlega á fund til okkar - erlendir gestir koma í maí þegar félagið fagnar 10 ára afmæli og áfram má telja. Við sem stýrum FKA finnum gríðarlegan meðbyr með félaginu - það hefur mikið verið leitað til félagsins undanfarnar vikur og við höfum bent á margar konur í ábyrgðarstörf og nú þegar hafa margar þeirra tekið að sér sér slík störf til lengri eða skemmri tíma. Því þó að þetta séu erfiðir tímar þá geta þetta líka verið spennandi tímar að mörgu leyti - hlutirnir eru að breytast og við eigum þátt í því. Að lokum hvetur stjórn FKA félagskonur til að leita til félagsins ef þær þurfa á aðstoð að halda - við erum við hinn endann á símanum. Baráttukveðjur f.h. stjórnar FKA
    Margrét Kristmannsdóttir formaður
     
    30. janúar 2009
     Kæru félagskonur
    Í vetur átti FKA frumkvæði að því að leiða saman SA, Viðskiptaráð og LeiðtogaAuði og var upphaflega hugmyndin sú að þessir aðilar stæðu að ráðstefnu nú í febrúar þar sem leitað væri raunhæfra leiða til að fjölga konum í áhrifastöðum í íslensku viðskiptalífi. Atburðir undanfarinna vikna hafa hins vegar leitt til þess að hópurinn hefur ákveðið að víkka út upphaflega markmið hópsins og nú er unnið að "framtíðarsýn fyrir íslenskt atvinnulíf" - þar sem aukin þátttaka kvenna mun meðal annars vega þungt. Hópurinn ákvað í byrjun að kalla til ýmsa aðila sem standa fyrir utan þessi samtök til að hafa sem mesta breidd í hópnum og var ákveðið á síðasta fundi að hluti hópsins myndi kalla eftir hugmyndum til að setja í nokkurs konar "aðgerðarpakka fyrir stjórnvöld" til að draga úr atvinnuleysi þ.e. hvaða leiðir sér atvinnulífið sjálft til að draga úr því. Atvinnuleysi hefur ekki einungis ömurlegar afleiðingar fyrir þann sem í því lendir, heldur standa á bak við hvern atvinnulausan einstakling margir aðrir einstaklingar s.s. makar og börn. Atvinnuleysi er þar að auki gríðarlega dýrt fyrir samfélagið og kemur í veg fyrir að þeir aðilar sem í því lenda hafi kaupmátt til að versla - t.d. hjá mörgum okkar. FKA leitar nú til félagskvenna og biður þær konur sem búa yfir hugmyndum í þennan aðgerðarpakka að senda þær á formann félagsins á mk@pfaff.is
    Óskar félagið eftir raunhæfum leiðum sem hægt er að framkvæmda sem fyrst. Ekki er verið að leita að almennt orðuðum hugmyndum eins og "fjölga sprotafyrirtækjum" - heldur verður þá útfærsla að fylgja með. Hugmyndum verður komið á framfæri við ríkisstjórnina við fyrsta tækifæri. Dæmi um hugmynd sem komið hefur fram: Gríðarlegt atvinnuleysi er hjá arkitektum. Mörg stórfyrirtæki eru með hönnunar og/eða viðhaldsverkefni á t.d. 5 ára framkvæmdaráætlun. Er hægt að koma til móts við þessi fyrirtæki með því að ríkið láni þeim vaxtalaust lán til 5 ára til að flýta þessum verkefnum þ.a. þau gætu keyrt þau áfram næstu 1-2 árin. Þar með fengju t.d. arkitektar + iðnaðarmenn vinnu og í stað þess að ríkið væri að greiða þessum aðilum atvinnuleysisbætur þá niðurgreiddi það lán til fyrirtækja sem á móti gætu haldið uppi ákveðnum atvinnustigi hjá þessum starfsstéttum. Vonum eftir góðri þátttöku frá félagskonum
    f.h. stjórrnar FKA
     Margrét Kristmannsdóttir formaður
     
    10. nóvember 2008
    Kæru félagskonur\
    Ef marka má spár er talið að atvinnuleysi muni ná allt að 10% á komandi mánuðum sem þýðir að allt að 18.000 konur og menn muni verða atvinnulaus. Hvort sem þessar spár eru of svartsýnar eða ekki er ljóst að mjög margir hafa nú þegar misst vinnu eða munu gera það á komandi vikum með öllum þeim hörmungum sem atvinnuleysi fylgir. Og þegar rætt er um allt að 10% atvinnuleysi þá mun lungað af því fólki koma frá einkageiranum, en ekki hinu opinbera þ.a. einkageirinn er hugsanlega að segja upp miklu meira en 10% af sínum starfsmönnum. Stjórn FKA telur að atvinnurekendur verði með öllum tiltækum ráðum að sporna við þessari þróun og leita allra leiða til að draga úr atvinnuleysi á meðan að íslenska þjóðin er að vinna sig út úr núverandi erfiðleikum. Hins vegar þekkja stjórnendur af eigin raun að staða atvinnurekenda er mjög erfið um þessar mundir með gríðarlega veikri krónu, himinháum vöxtum, verðbólgu, minnkandi eftirspurn o.s.frv. o.s.frv.. Félagskonur FKA eru því í mikilli klemmu ásamt öðrum atvinnurekendum við það eitt að koma fyrirtækjum sínum í gegnum þetta fárviðri. Það er augljóst að flestir atvinnurekendur muni horfa til þess að fækka starfsfólki enda launakostnaður hár í flestum fyrirtækjum og nauðsynlegt að skera niður þann kostnað jafnframt því sem aðhalds er gætt á öðrum sviðum. Stjórn FKA vill hins vegar beina því til þeirra félagskvenna, sem telja nauðsynlegt að segja upp fólki að þær velti því vandlega fyrir sér að lækka frekar laun eða minnka starfshlutfall hjá fleirum / öllum starfsmönnum til að koma í veg fyrir uppsagnir fárra. Enda verður gríðarlega erfitt fyrir starfsfólk að fá aðra vinnu - ef ekki gott sem ómögulegt. Við bendum félagskonum á eftirfarandi tengil inn á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins um lengingu tekjutengingar atvinnuleysisbóta við minnkað starfshlutfall: http://www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/4081
    Að lokum hvetjum við félagskonur til að sækja námskeiðið sem verður haldið n.k. fimmtudag um endurskipulagningu fyrirtækja og til að nýta tenglsnetið innan FKA til að fá aðstoð á þessum erfiðu tímum - enda við flestar að glíma við sömu vandamálin og betur sjá augu en auga. Einnig er ykkur velkomið að hringja í mig eða Sofiu Johnson framkvæmdastjóra félagsins.
    Baráttukveðjur f.h. stjórnar FKA
    Margrét Kristmannsdóttir formaður
     
    27. október 2008
    Kæru félagskonur
    Ríkisstjórnin hefur óskað eftir samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, sem á að skila niðurstöðum innan 10 daga. Með þessum aðgerðum vonum við að fljótlega komist á nokkur stöðuleiki í íslenskt efnhagslíf og að við förum að sjá fyrir endann á stöðunni í gjaldeyrismálum. Hér að neðan finnið þið nýjan link inn á uppfært skjal á ensku frá Viðskiptaráðinu sem þið getið notað til að senda á ykkar birgja til að ítreka í hvaða stöðu fyrirtæki hafa verið í á undanförnum vikum. Skjalið er á ensku og það má nálgast hér. Baráttukveðjur f.h. stjórnar FKA
     Margrét formaður
     
    17.október 2008
    Kæru félagskonur
    Þegar núverandi ástand reið yfir íslenskt viðskiptalíf ákvað stjórn FKA að koma ekki fram með yfirlýsingar í fjölmiðlum heldur vinna frekar að hag okkar á bak við tjöldin. Á morgunverðarfundinum í gær kom fram sú ósk að að stjórn FKA sendi frá sér stutt yfirlit yfir það hvað stjórnin hefði helst gert: Tölvupóstur var sendur á fjármálaráðherra, viðskiptaráðherra og formann SA þar sem FKA bauð fram aðstoð sína við að tilnefna konur í ábyrgðarstöður. Sjá afrit af þessum tölvupósti í viðhengi Afrit af þessum sama tölvupóst var sendur á lykilkonur innan ríkisstjórnarflokkanna. Listi yfir kandidata í stjórnir nýju bankanna var sendur bankastjórunum - þeim Birnu Einarsdóttur og Elínu Sigfúsdóttur. Tekið var fram að listinn væri engan veginn tæmandi. Gjafakörfur voru sendar í nafni FKA til Birnu og Elínar með góðum birgðum af lýsi, góðu kaffi & te og frábæru næturkremi þ.a. þær væru vel undir búnar fyrir komandi átök. :=) FKA hefur hefur sett sig í samband við LeiðtogaAuði og óskað eftir fundi með þeim til að meta stöðuna. Stjórn LeiðtogaAuðar mun hittast á næstu dögum og væntum við að sameiginlegur fundur fari fram í næstu viku. Samráðsfundur FKA og SA sem vera átti í dag vegna áframhaldandi samstarf í framhaldi af auglýsingunni "Við segjum Já" var frestað vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Reiknað er með að fundurinn fari fram í byrjun nóvember. Við erum svo til í daglegum sambandi við SVÞ (SA) og fleiri aðila til að fá upplýsingar og reyna að meta stöðuna. Í stað þess að senda ykkur reglulega tölvupóst frá stjórn um líðandi mál hvetjum við ykkur til að heimsækja reglulega heimsíðu félagsins www.fka.is Stjórnin mun á komandi dögum og vikum setja reglulega inn fréttir sem við teljum að eigi erindi til ykkar. Að lokum hvetur stjórn FKA félagskonur til að vera í sambandi við okkur ef við getum eitthvað aðstoðað. Munið síðan að nýta ykkur tengslanetið - beina viðskiptum til félagskvenna - vera bjartsýnar, sýna samstöðu og samhug. Haldið vel utan um ykkar fólk - bæði heima og í vinnunni og munið að gott knús virkar í báðar áttir!
    f.h. stjórnar FKA
    Margrét Kristmannsdóttir formaður
     
     
     

    Nýsköpunarmiðstöð Íslands
    Félag kvenna í atvinnurekstri - Pósthólf 8683 - 128 Reykjavík - fka@fka.is - Sími 897-0711