Handleiðsla FKA
Handleiðsla FKA er verkefni sem felst í því að félagskona tekur að sér hlutverk mentors og miðlar af reynslu og þekkingu sinni til félagskonu sem óskar eftir handleiðslu. Eitt af markmiðum félagsins er að stuðla að miðlun fróðleiks milli félagskvenna og því er þetta verkefni sett af stað.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur hittist í 1 klst. í senn einu sinni í mánuði í afmarkaðan tíma.
Mentorinn og félagskona sem óskar eftir handleiðslu skrá sig hér fyrir neðan og svara spurningum. Tengslanefnd félagsins mun para konur saman eftir reynslu og þekkingu, óskum og þörfum. \
Þegar búið er að para saman konur hefst verkefnið sem gert er ráð fyrir að geti tekið allt að 4 - 6 mánuði. Mentorinn boðar til fyrsta fundar t.d á vinnustað hennar. Gert er ráð fyrir mánaðarlegum framhaldsfundum ef þörf krefur en þeir geta verið símafundir ef það hentar.
Að loknu verkefni svara báðir þátttakendur nokkrum lokaspurningum þar sem þær meta gildi verkefnisins og geta komið á framfæri tillögum til að bæta það.
Ávinningur:
Metnorverkefninu er ætlað að efla konur í atvinnurekstri og nýta tengslanet FKA á persónulegan hátt. Þátttakandi sem óskað hefur eftir mentor hefur vonandi lært eitthvað nýtt, fengið svör við spurningum og tækifæri til að móta eigin hugmyndir með því að ræða þær við konu í svipaðri stöðu. Mentor hefur vonandi notið þess að miðla af þekkingu og reynslu og ekki er ólíklegt að hún hafi lært sitthvað í leiðinni.
Frekari upplýsingar hjá Sofíu, framvkæmdastjóra FKA, í síma 897-0711 sofiaj@simnet.is
Skráning hér
Veitendur handleiðslu smelli hér: Skráning veitandi mentor
Þiggjendur handleiðslu smelli hér: Skráning þiggjandi óskar eftir handleiðslu